Dagur - 01.07.1986, Blaðsíða 12

Dagur - 01.07.1986, Blaðsíða 12
Akureyri, þriðjudagur 1. júlí 1986 Opmmartími á Bauta í sumar verður opið frá kl. 9 til 23.30. í gær voru kunngjörð í beinni útsendingu í RíkisútvarpiqiuLAkureyri úrslit í HM-getraun KA. Vinningshafar voru tveir, þeir Erlingur Kristjánsson og Stefán Einarsson. Skiptu þeir bróðurlega á milli sín vinningnum, nýrri Colt bifreið. Mynd: BV 15,8 milljóna rekstrarhalli hjá Kaupfélagi Norður-Þingeyinga - Verðum að snúa við blaðinu, sagði Pétur Þorgrímsson framkvæmdastjóri Mývatnssveit: Mjög mikill mývargur „Já, það er mjög mikill vargur hérna núna. Mun meira en verið hefur mörg undanfarin ár,“ sagði Anna V. Skarphéð- insdóttir, húsfreyja að Vogum I í Mývatnssveit, er hún var spurð um ástandið í þeim mál- um þessa dagana í Mývatns- sveit. „Það veit enginn skýringu á þessu, en vargurinn á upptök sín í Laxá. Ástandið verður hins veg- ar ekki svona slæmt nema í mikl- um hita og það er búið að vera óskaplega heitt hér í 10 daga.“ - Veldur þetta einhverjum vandræðum? „Það gerir það að vis$u leyti, kýrnar hérna eru t.d. ekki settar út fyrr en að kvöldinu. Þær hafa ekki frið fyrir vargnum. Það er nú misjafnt hvað þetta angrar mannfólkið, þær sækja meira á suma." Sagði Anna að öll hús væru full af flugum og það hefði enginn undan að hreinsa það. Vargurinn er mest við vatnið og sagði Anna að það væri mun meiri vargur vestan við vatnið, en í suðvestangolu, eins og verið hefur undanfarið berst hann einnig austur fyrir. -HJS Frá Mývatni. „Við eigum við þennan rekstrarhalla að stríða eins og svo margir aðrir og þetta er ansi mikill halli, en við ætlum okkur svo sannarlega ekki að hafa hann áfram. Við erum að kafa ofan í þessa hluti og erum þegar búin að gera ákveðnar breytingar í mannahaldi. En það gerir okkur enn erfiðara fyrir hversu atvinnuástandið er slæmt hérna,“ sagði Pétur Þorgrímsson framkvæmda- stjóri Kaupfélags Norður-Þing- eyinga á Kópaskeri í samtali við Dag. Aðalfundur KNÞ var haldinn á Kópaskeri fyrr í þessum mánuði og þar kom fram að rekstrarhalli félagsins á árinu 1985 nam 15,8 milljónum króna. Afskriftir námu 8,3 milljónum króna og heildarvelta vöru og þjónustu var um 173 milljónir. Launagreiðslur rekstrardeilda námu 26,9 millj- ónum. Fjárfestingar voru nokkuð miklar á árinu eða u.þ.b. 16,6 milljónir. Versnandi afkomu félagsins má að stórum hluta rekja til mik- ils samdráttar í landbúnaði í hér- aðinu í kjölfar mikillar fjárfest- ingar í slátur- og frystihúsi félags- ins. Atvinnuástand hefur verið slæmt á Kópaskeri eftir að rækju- veiðar brugðust í Öxarfirði og barátta heimamanna við að útvega skip til rækjuveiða hefur ekki skilað árangri, þrátt fyrir ómælda fyrirhöfn og kostnað. „Við erum ákveðin í að snúa við blaðinu. Við verðum að herða á ýmsum hlutum í fram- haldi af þessari niðurstöðu. En það er ljóst að botn verður að fást í atvinnumálin á staðnum, við verðum að geta tryggt stöð- uga atvinnu til að ekki verði fólksflótti héðan. Við erum að Sláttur hafinn í Skagafirði Sláttur er nú að hefjast á ein- staka bæ í Skagafirði. Á mið- vikudag voru tveir bændur í Holtshreppi að byrja slátt og einn bóndi í Hjaltadal hóf slátt um síðustu helgi. Ekki er vitað um fleiri sem voru byrjaðir í Skagafirðinum, en menn bjuggust við að á einstaka bæ hæfist sláttur næstu daga. Spretta hefur verið góð undan- farna daga, en samt er varla að búast við að sláttur hefjist almennt fyrr en viku af júlí. Þegar blaðið hafði tal af bændum í Þingeyjarsýslum í gær sögðust þeir ekki vita til þess að neinn væri farinn að slá og væri það frekar ólíklegt. Menn bjuggust ekki við að sláttur almennt hæfist þar fyrr en tíu til fimmtán dagar væru liðnir af júlí. -þá skoða þessi mál núna og hvaða möguleika við höfum. Það er auðvitað helvíti hart að vera búin að byggja upp dýra aðstöðu fyrir rækjuvinnslu en geta ekki notað hana,“ sagði Pétur Þorgrímsson. í stjórn Kaupfélags Norður- Þingeyinga voru kjörnir; Tryggvi ísaksson Hóli, formaður, Brynj- ar Halldórsson Gilhaga, varafor- maður, Garðar Eggertsson, Kópaskeri, ritari, og meðstjórn- endur Björn Hólmsteinsson, Raufarhöfn og Sigurður Árnason Hjarðarási. Framkvæmdastjóri er Pétur Þorgrímsson. -mþþ Skortur á hjúkrunarfræðingum: Astandið verst hjá F.S.A. Eins og kom fram í viðtali við forstöðumann ríkisspítalanna á dögunum þá er mikill skortur á hjúkrunarfræðingum við ríkis- spítalana. Dagur fór á stúfana og kannaði hvernig staðan væri hjá sjúkrahúsi og vist- heimilum á Akureyri. Þær upplýsingar fengust hjá Ragnheiði Arnadóttur, hjúkrun- arforstjóra FSA, að ástandið væri frekar slæmt. „Þetta fer að vísu dálítið eftir því við hvað er miðað,“ sagði Ragnheiður. „Ef reka á spítalann á fullu, með af- leysingafólki og allar deildir opnar, þá vantar okkur 27 hjúkr- unarfræðinga. Það vantar 10 til að fylla þau stöðugildi sem við höfum leyfi fyrir, afgangurinn af tölunni er afleysingafólk.“ Ragnheiður sagði að það væri samdráttur í rekstri FSA, eins og kom fram í föstudagsblaðinu, og stafaði það af tvennu. Annars vegar væri of lítið fjármagn fyrir hendi og hins vegar væri mjög erfitt að fá hjúkrunarfræðinga til starfa. „Ástandið hjá okkur er þokka- legt eins og er,“ sagði Bjarni Arthursson, framkvæmdastjóri Kristnesspítala. „Starfsemin er í fullum gangi núna, við höfum ekki þurft að loka neinu vegna sumarleyfa. Að vísu þurfum við að fara að auglýsa núna fyrir haustið, en það eru ekki nema svona þrjár hjúkrunarfræðinga- stöður og ég er þokkalega bjart- sýnn á að okkur takist að fá fólk í þær.“ Að sögn Önnu Guðrúnar Jóns- dóttur, hjúkrunarforstjóra Dval- arheimilisins Hlíðar og Dvalar- heimilisins í Skjaldarvík, vantar þar eitthvað af fólki, nokkra í þau stöðugildi sem leyfi er fyrir, en aðallega í sumarafleysingar. „Það fólk sem fyrir er hefur þurft að bæta við sig vinnu, því hér er ekki hægt að loka, þetta er heimili fólksins sem hérna dvelur,“ sagði Anna Guðrún. JHB Gamla lagið, orf og Ijár, er stundum það eina sem dugar við sláttmn. Til dæmis í brekkunni niður frá Gilsbakkavegi, þar sem brattinn er mikill og grasið enn meira. En eins og sjá má eru sláttumennirnir ekki að taka neina áhættu og hafa taug sín á milli. Mynd: KGA Á annað þúsund manns - í Vaglaskógi um helgina „Jú, það var geysilega margt fólk hérna í Vaglaskógi um helgina. Það voru hátt á annað þúsund manns hér í skógin- um,“ sagði Þorsteinn Arnþórs- son í skógræktinni að Vöglum í samtali við Dag. Þorsteinn sagði að engar skemmdir hefðu verið unnar á gróðri þrátt fyrir þennan fjölda sem í skóginum var, en smávægi- legar skemmdir voru unnar á sal- ernum. „En það var ekkert meira en oft gerist um helgar,“ sagði Þorsteinn. Þorsteinn sagðist ekki muna annað eins flóð í Fnjóská og ver- ið hefði um helgina. „Ég man ekki eftir öðru eins í marga ára- tugi. Tjaldstæði sem er hér niður við ána var allt umflotið vatni, en ég á ekki von á að það hafi skemmst." í skógræktinni að Vöglum vinna á milli 15 og 20 manns, að sögn Þorsteins. I síðustu viku sagði Þorsteinn að hefði verið um 20 stiga hiti í skóginum, „og það er allt að skrælna úr þurrki.“ -mþþ

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.