Dagur - 01.07.1986, Side 8
8 - DAGUR - 1. júlí 1986
Meðfylgjandi myndir eru frá opnun sögusýningarinnar. Hér eru það Matthías Bjarnason, viðskiptaráðherra, Pétur Sigurðsson, formaður bankaráðs Landsbankans,
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, og Jónas Haralz, bankastjóri sem skoða sýninguna. Myndir: Róbert.
Landsbankinn og seðla-
Landsbanki íslands er 100 ára
- i
í dag, 1. júlí. I tilefni þessara
tímamóta var opnud stór-
glæsileg sýning í nýja Seðla-
bankahúsinu í Reykjavík,
bæði vegna aldarafmælis
bankans og einnig í tilefni 100
ára seðlaútgáfu á íslandi.
Markmiðið með þessari sýn-
ingu er að veita almenningi inn-
sýn í 100 ára sögu bankans, allt
frá þvf að hann hóf starfsemi
sína 1. júlí 1886 og fram á þenn-
an dag. Pá er rakin saga gjald-
miðils á íslandi allt frá land-
námsöld og sýnt hvernig seðill
verður til.
í sérstökum bás á sýningar-
svæðinu hefur verið dregin upp
mynd af því hvernig menn
hugsa sér að framtíðarbankinn
muni verða. Sá hluti sýningar-
innar myndar skemmtilega and-
stæðu við gamlar vélar og tæki
sem notuð hafa verið í bankan-
um, ritvélar, samlagningarvélar
og fleira, sumt allt frá aldamót-
um.
Einnig eru sýnd málverk í
eigu bankans, tvær kvikmyndir
eru sýndar og fjölmargt fleira
má sjá sem tengist sögu bank-
ans og seðlaútgáfunnar. Sýning-
in er opin frá kl. 16-22 virka
daga og kl. 14-22 um helgar allt
fram til 20. júlí. Gengið er inn á
sýningarsvæðið frá Arnarhóli.
útgáfa hundrað ára
Saga gjaldmiðils er rakin á mjög myndrænan hátt og má þar m.a. sjá skreið og vaðmál, sem notað var í þessum
tilgangi fyrr á öldum.
<■■■ ■■
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, var meðal gesta á
sýningunni og hér ræðast þeir við
hann og Helgi Bergs, bankastjóri.
Hér má m.a. sjá Tómas Árnason, bankastjóra í Seðlabankanum, og hjónin Sigríði Ólafsdóttur og Val Arnþórs- Fjölmiðlarnir áttu fulltrúa við opnun sýningarinnar og hér ræðast þeir við
son, kaupfélagsstjóra. Hermann Sveinbjörnsson, ritstjóri Dags, og Helgi E. Helgason, frétta-
maður á sjónvarpinu.