Dagur - 01.07.1986, Side 9
1.JÚIÍ 1986 - DAGUR - 9
.íþróttiL
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Amór sigraöi
í Artic-open
- þrjú mót að Jaðri um helgina
Það var aldeilís fina veðrið
sem golfarar á Akureyri fengu
um helgina en þá fóru fram
þrjú mót að Jaðri á vegum
Golfklúbbs Akureyrar. Það
voru nýliðamót þar sem keppt
var í þremur flokkum, kvenna-
mót og svo Artic-open þar sem
keppni fór fram aðfaranótt
sunnudags. Mjög góð þátttaka
var í mótunum.
f kvennamótinu voru leiknar
18 holur með fullri forgjöf og
urðu úrslitin þessi:
1. Katrín Frímannsdóttir 75 högg
2. Jónína Pálsdóttir 76 högg
3. Sunna Borg 76 högg
Jónína náði öðru sætinu eftir
bráðabana við Sunnu.
í nýliðamótinu voru leiknar 9
holur með fullri forgjöf. Keppt
var í karla-, kvenna- og ungl-
ingaflokki. Úrslitin urðu þessi:
Kvennaflokkur:
1. Sunna Borg 60 högg
2. Guðný Jónasdóttir 63 högg
3. Margrét Kristinsdóttir 69 högg
Karlaflokkur:
1. Gunnar Skarphéðinsson 53 högg
2. Unnar Lárusson 53 högg
3. Oddbjörn Magnússon 55 högg
Gunnar sigraði í flokknum eft-
ir bráðabana við Unnar.
Unglingaflokkur:
1. Auðunn S. Guðmundsson
2. Steinmar Rögnvaldsson
3. Björn Þór Sigbjörnsson
51 högg
53 högg
56 högg
Mjólkurbikarkeppnin:
Stórleikur á
Ólafsfirði
- í kvöld er Leiftur og KS mætast
I kvöld kl. 20 fer fram stórleik-
ur á Ólafsfjarðarvelli er lið
Leifturs og KS mætast í Mjólk-
urbikarkeppni KSÍ. Er þetta
leikur í 32 liða úrslitum og það
lið sem sigrar kemst í 16 liða
úrslit en þá koma 1. deildar
liðin inn í keppnina.
Leiftursmenn slógu lið KA út úr
keppninni um daginn er þeir sigr-
uðu þá í skemmtilegum leik á
KA-velli. Siglfirðingar slógu lið
Tindastóls út í síðustu umferð
eftir langa og stranga viðureign
en í þeim leik fengust úrslitin eft-
ir framlengingu og vítaspyrnu-
keppni.
Það verður væntanlega hart
barist í kvöld og ætla bæði liðin
Úrslitaleikurinn
íkvöld
- í bikarmóti UMSE
Bikarmóti UMSE í knatt-
spyrnu lýkur í kvöld er liö
Reynis og UMFS leika til úr-
slita um bikarinn kl. 20 í
Árskógi. Upphaflega tóku sjö
lið þátt í mótinu og var leikið
með útsláttarfyrirkomulagi.
Síðastliðið miðvikudagskvöld
fóru undanúrslitin fram en þá
sigruðu Reynismenn lið Árroð-
ans með tveimur mörkum gegn
einu og Dalvíkingar sigruðu
Æskuna með þremur mörkum
gegn engu.
Það verða því Reynir og
UMFS sem leika til úrslita eins
og áður sagði.
sér sigur enda dugir ekkert annað
í þessari keppni.
Artic-open mótið var eins og
nafnið bendir til opið mót og var
eins og áður er getið leikið að-
faranótt sunnudags í frábæru
veðri. Leiknar voru 18 holur
með fullri forgjöf. Urslitin urðu
þessi:
1. Arnór Þorgeirsson 70 högg
2. Einar Viðarsson 71 högg
3. Inga Magnúsdóttir 71 högg
4. David Barnwell 71 högg
Einar sigraði Ingu Magnús-
dóttur í bráðabana í keppninni
um annað sætið. David Barnwell
enski golfkennarinn hjá GA fór
völlinn á pari vallarins en Barn-
well er með 0 í forgjöf.
I Artic-open voru einnig veitt
aukaverðlaun fyrir að fara næst
holu á 6. og 18. braut og þeim er
notaði fæst pútt á 18. braut. Þau
verðlaun gáfu Sporthúsið og
Hrímnir.
Þá má að lokum geta þess að
Sunna Borg keppti á öllum
mótunum um helgina og stóð sig
með prýði eins og sést hér að
ofan. Er þetta sennilega eins-
dæmi að sami keppandi taki þátt
í svo mörgum mótum sömu helg-
Jón Óðinn Óðinsson júdóþjálfari hjá KA er kominn með svarta beltið
íþróttinni.
Jón Óðinn kominn
með svarta beltið
Dagana 16.-27. júní var
Júdósamband íslands með
æfingabúðir fyrir júdómenn að
Laugarvatni. Það var lands-
liðsþjálfari Tékka sem leið-
beindi þátttakendunum á nám-
skeiðinu.
Tveir júdómenn frá Akur-
eyri fóru á Laugarvatn en það
voru þeir Freyr Gauti Sigmunds-
son og Jón Úðinn Oðinsson
Vormót KRA í knattspyrnu:
Þór sigraði KA
í miklum rokleik
júdóþjálfari, báðir úr KA. Þar
þreytti Jón Óðinn m.a. próf til
þess aö fá svarta beltið í íþrótt-
inni og stóðst hann það með
miklum ágætum.
Er Jón Óðinn fyrsti Akurcyr-
ingurinn sem nær þessum merka
áfanga og kemur þetta til með að
hafa mjög jákvæð áhrif á upp-
gang íþróttarinnar hér í bæ en
Jón Óöinn hefur öðrum fremur
verið maðurinn á bak við hinn
frábæra árangur akureyrskra
júdómanna. Hefur Jón Óðinn
séð um alla þjálfun og auk þess
hefur hann séð um allan þann
rekstur er fylgir slíkri deild.
Aðstæður til knattspyrnu-
iðkunar voru ekki upp á það
besta í síðustu viku er Þór og
KA í meistaraflokki kvenna
léku í vormóti KRA. Ástæðan
var m.a. sú að leikið var á mal-
arvelli Þórs og var hífandi rok
á meðan leikurinn fór fram.
Hefði þessi leikur svo sannar-
lega verið betur settur á gras-
inu við hliðina á malarvellin-
um. En mjög erfitt hefur verið
fyrir aðra flokka en meistara-
flokk karla að fá afnot af gras-
vellinum.
Þórsstelpurnar léku undan
vindinum í fyrri hálfleik og sóttu
þær án afláts allan hálfleikinn.
Þeim tókst þó ekki að skapa sér
nein færi þrátt fyrir mikinn
ágang. Þær náðu þó að koma
knettinum einu sinni í markið hjá
KA-stelpunum og reyndist það
vera sigurmark leiksins. Það kom
úr vítaspyrnu á 32. mín. eftir að
ein KA-stelpnanna hafði hand-
leikið knöttinn í vítateignum.
Valgerður Jóhannsdóttir skoraði
af öryggi úr vítinu.
í síðari hálfleik sóttu KA-
stelpurnar meira án þess þó að ná
að skapa sér almennileg færi upp
við markið. Þórsstelpurnar náðu
nokkrum skyndisóknum sem lítið
kom úr.
KA fékk kjörið tækifæri til
þess að jafna leikinn skömmu
fyrir leikslok er dæmt var víti á
Þór þar sem ein þeirra handlék
knöttinn í vítateignum. Hjördís
Úlfarsdóttir tók vítið en Þórdís
Sigurðardóttir markvörður Þórs
varði frekar lélegt skot hennar.
Boltinn hrökk til Hjördísar aftur
og þá skaut hún himinhátt yfir af
stuttu færi.
Úrslitin því 1:0 Þór í vil í til-
þrifalitlum leik. Bæði þessi lið
virðast nokkuð áþekk að getu og
er greinilegt að KA-stelpurnar
eiga heima í 1. deild.
Staðan
3. deild
Staðan í b-riðli 3. deildar
eftir leiki helgarinnar er
þessi:
Leiknir-Leiftur 1:2
Magni-Austri 0:0
Reynir-Valur 3:2
Þróttur-Tindastóll 2:2
Leiftur 6 4-2-0 12: 4 14
Tindastóll 6 3-3-0 10: 6 12
Þróttur N 6 2-4-0 12: 6 10
Magni 6 2-2-2 6: 6 8
Reynir Á 6 2-2-2 10:11 8
Austri E 5 1-2-2 4: 5 5
Valur Rf 5 1-1-3 4: 8 4
Leiknir F 6 0-0-6 2:14 0
Staðan
4. deild
Staðan í E-riðli 4. deildar er
þessi:
Hvöt 4 3-1-0 5:0 10
Vaskur 5 3-1-1 7:4 10
Svarfdælir 5 2-1-2 4:4 7
Kormákur 3 1-0-2 4:8 3
Höfðstrendingur 5 0-14 2:6 1
Þessi skemmtilega mynd er úr leik Þórs og KA í vormóti KRA sem leikinn var í síðustu viku.
Mynd: BV
Knattspyrna:
Kvennalið á
Blönduósi
Á þriðjudaginn 24. júní var
fyrsta æfing kvennaliðs Hvatar
á Blönduósi í knattspyrnu. Á
þessari fyrstu æfingu voru
mættar 17 stúlkur og vitað er
að á næstu æfíngum er von á
enn fleiri stúlkum.
Það er mikili hugur í stúlkun-
um að koma upp liöi sem fyrst og
vitað er að þær hafa fullan hug á
því að fá að taka þátt í knatt-
spyrnumóti sem fyrirhugað er að
halda í sumar. Er það með þátt-
töku kvennaliða frá Siglufirði,
Ólafsfirði og fleiri stöðum hér
norðanlands.
Samið hefur verið við einn
meistaraflokksmanna Hvatar um
að þjálfa kvennaliðið.