Dagur - 07.07.1986, Page 7
Umsjón: Kristján Kristjánsson
7. júlí 1986 - DAGUR - 7
íslandsmótið 1. deild:
Enn hafði Valsdraugurinn betur
- þegar Þór tapaði 0:1 að Hiíðarenda
í gærkvöld tapaði Þór fyrir Val
í 10. umferð Islandsmótsins.
Tap þetta er ekki það fyrsta
sem Þórsarar bíða fyrir
Völsurum að Hlíðarenda og
því óhætt að segja að enn eigi
Þórsarar eftir að kveða niður
þennan magnaða Valsdraug.
Hún var ekki rismikil knatt-
spyrnan sem liðin sýndu í gær-
kvöld, mikið um hnoð og hasar
en þeim mun minna um hættuleg
færi og skemmtilegan samleik. A
5. mínútu fengu Þórsarar sitt eina
umtalsverða færi í fyrri hálfleik.
Jónas sendi þá góðan stungubolta
á Kristján sem skaut viðstöðu-
lausu skoti að marki Vals en
Guðmundur Hreiðarsson var vel
á verði og náði að stoppa gott
skot Kristjáns. Eftir þetta færi
Þórs sóttu Valsmenn það sem eft-
ir var hálfleiksins. Á 10. mínútu
átti Ámundi Sigmundsson hörku-
skot af stuttu færi en Baldvin
markvörður Þórs varði hreint á
undraverðan hátt. Og eru nú
markfærin í fyrri hálfleik upptal-
in.
Seinni hálfleikur var líkur
þeim fyrri. Valsmenn með bolt-
ann en lítið sem ekkert um færi.
Þau fáu skipti sem skotið var að
marki Þórs var Baldvin á réttum
stað og varði vel. Þór fékk seinna
færið sitt í leiknum á 26. mínútu
en þá átti Einar Arason skot að
Valsmarkinu eftir góðan undir-
búning Hlyns og Halldórs. Skot
Einars var beint á markmanninn.
Það leit allt út fyrir að þessi til-
þrifalausi leikur mundi enda með
ippgöri
jafntefli en svo fór þó ekki.
Áhorfendum til mikillar undrun-
ar var skorað mark á 41. mínútu
og það sem meira er: Markið var
gullfallegt. Sigurjón Kristjánsson
skoraði með hjólhestaspyrnu
utan úr teig. Gersamlega óverj-
andi fyrir Baldvin markvörð.
Leikurinn var sem fyrr segir
ekki skemmtilegur á að horfa og
er heldur fátt um Þórsliðið að
segja, Baldvin átti þó góðan dag
og það sama má einnig segja um
vörnina sem tókst lengi vel að
standa af sér pressu Valsmanna.
Sóknarmenn Þórs áttu aftur á
móti aldrei möguleika gegn
sterkri vörn Vals þar sem þeir
Þorgrímur Þráinsson og Guðni
Bergsson voru sterkastir.
AE/REK
Þrjú mikilvæg stig til Einherja
Einherjar komnir i 3. sæti
dag
um leik og var góð barátta í öll-
um leikmönnum, þeir voru ávallt
á undan Víkingum í boltann og
unnu vel fyrir sigrinum. Bestir í
KA-liðinu voru þó Erlingur,
Bjarni Friðfinnur og Tryggvi.
Um Víkinga er fátt að segja og
vilja þeir örugglega gleyma þess-
um leik sem fyrst. ÁE/REK
Á Iaugardag léku á Vopnallrði
Einherji og KS, leikurinn var
frekar jafn en heimamenn
náðu þó að knýja fram sigur og
fengu því 3 mikilvæg stig í
toppbaráttunni.
Það var samt KS sem náði for-
ystunni á 15. mín. er Colin
Thacker braust einn í gegnum
vörn Einherja og skoraði með
föstu vinstri fótar skoti. Eftir
þetta mark sóttu Einherjar held-
ur í sig veðrið og á 25. mín. náðu
þeir að jafna. Njáll Eiðsson tók
þá aukaspyrnu af 25 metra færi,
hann lyfti boltanum yfir vegginn
og einnig yfir Ómar markvörð
KS sem þó náði að snerta tuðr-
una. Það sem eftir lifði fyrri hálf-
leiks var leikurinn jafn.
Siglfirðingar komu mun
ákveðnari til leiks í seinni hálf-
leik og má segja að fyrstu 25 mín.
hafi verið þeirra. En þrátt fyrir
talsverða yfirburði og nokkur
ágæt færi þá tókst þeim ekki að
skora mark. Það gerðist svo er
um 15 mín. voru eftir leiksins að
heimamenn fengu hornspyrnu
sem þeir nýttu til hins ýtrasta.
Það var varamaður þeirra sem
var nýkominn inn á sem náði að
nikka boltanum yfir Ómar
markvörð. KS reyndi að jafna
það sem eftir lifði leiksins en án
árangurs.
Við þennan sigur er Einherji
kominn í 3. sæti deildarinnar og
þeir Vopnfirðingar með Njál
Eiðsson í fararbroddi virðast til
alls líklegir. Hjá KS gengur aftur
ekki alveg jafn vel en þeim Sigl-
firðingum gengur ansi brösuglega
að binda endahnútinn á sóknar-
lotur sínar.
Hjá Einherja lék Náll Eiðsson
best.
Lið KS var jafnt í þessum leik
og ekki hægt að nefna neinn einn
sem þeirra besta mann.
BV
Létl hjá Tindastóli
- burstaði Leikni 6:0
Hún var ekki mikil fyrirstaðan
sem Leiknismenn veittu Sauð-
krækingum er liðin leiddu
saman hesta sína á laugardag á
Króknum. Heimamenn burst-
uðu Leikni, skoruðu 6 mörk
gegn engu. Og segir það flest
það sem segja þarf um leikinn.
Fyrsta mark leiksins kom á 10.
mín. og þar var Rúnar Björnsson
að verki. Bræðurnir Eiríkur og
Eyjólfur Sverrissynir áttu báðir
góðan dag á laugardaginn og það
var einmitt Eiríkur sem skoraði
annað markið en Eyjólfur það
þriðja. Þannig var staðan í hálf-
leik, 3:0 fyrir Tindastól.
Sama var uppi á teningnum í
seinni hálfleik, Tindastóll sótti
látlaust og tókst leikmönnum að
bæta við þremur mörkum til við-
bótar. Það voru þeir Eiríkur,
Eyjólfur og Birgir Rafnsson sem
skoruðu þessi mörk.
Lið Leiknis virðist ekki vera til
stórræða þessa dagana, leikur
liðsins er með öllu kraftlaus og
stefnir ekki í gott með þessu
áframhaldi. Sauðkrækingar voru
sannfærandi í leiknum en taka
verður með í reikninginn að ekki
var mótspyrnan umtalsverð.
Leiftur sigraði Magna
Leiftur heldur sínu striki í 3.
deildinni. Á laugardaginn
fengu þeir Magna í heimsókn
frá Grenivík og þóttu heldur
ógestrisnir, því þeir sendu
Magnamenn stigalausa heim
aftur. Leiknum lauk með sigri
Leifturs sem skoraði tvö mörk
án þess að gestirnir næðu að
svara fyrir sig.
Mjög gott veður var til knatt-
spyrnuiðkunar, logn og sólar-
laust. Fyrra mark heimamanna
kom á 27. mínútu. Eftir horn-
spyrnu barst knötturinn til Einars
Áskelssonar sem var einn og
óvaldaður í markteig Magna og
skoraði auðveldlega. Lítið var
um færi í fyrri hálfleik og einna
næst því að skora komst Hringur
Hreinsson er hann átti gott skot
rétt fram hjá marki Leifturs.
í síðari hálfleik sóttu heima-
menn mun meira án þess að
skapa sér veruleg færi. Á 74.
inínútu jók þjálfari Leifturs,
Óskar Ingimarsson forystuna
þegar hann skoraði sitt 7. mark í
deildinni í jafn mörgum leikjum
með skoti af stuttu færi eftir góð-
an samleik Ólafsfirðinga.
Urslitin í þessum leik voru
sanngjörn og þegar mótið er
hálfnað standa Ölafsfirðingar vel
að vígi og eru á góðri leið með að
endurheimta sæti sitt í 2. deild.
Reynir hafði það af
- Markið skorað 5 mín. fyrir leikslok
ur við mark Víkinganna en honum tókst ekki að skora í þessum leik.
Mynd: AE/Reykjavík
Leikmenn Reynis Árskógs-
strönd gerðu góða ferð til
Eskifjarðar um helgina er þeir
sóttu þangað 3 stig í 1:0 sigri
sem hefði hæglega getað orðið
stærri.
Allhvasst var á Eskifirði er
leikurinn fór fram, heimamenn
spiluðu undan vindinum í fyrri
hálfleik og sóttu þeir nær látlaust
en án þess þó að skapa sér færi.
Það voru aftur á móti Reynis-
menn sem áttu ágæt færi sem
komu upp úr skyndisóknum
liðsins. í seinni hálfleik snerist
leikurinn við og Reynir sótti nú
allt hvað hægt var. En markið lét
bíða eftir sér og voru menn farnir
að örvænta. En Örn Viðar Arn-
arsson var ekki á því að fara ein-
ungis með eitt stig heim og á 85.
mín. tókst honum að skora eina
mark leiksins og tryggja Reyni
stigin þrjú.
Sigur Reynis hefði hæglega
getað orðið stærri í þessum leik
en leikmönnum gekk ekki sem
skyldi að nýta fjölmörg færi sín.
Bestur í jöfnu liði Reynis var
Arnar Gústafsson. í liði Austra
bar enginn leikmaður af.
Staðan
1. deild
Fram 10 7 2 1 22:6 23
Valur 10 6 2 2 11:4 21
ÍBK 10 6 0 4 11:12 18
FH 10 5 1 S 17:18 16
KR 10 3 5 2 13:17 15
ÍA 10 4 2 5 19:10 14
Þór 10 4 2 4 15:16 14
UBK 10 3 2 5 8:13 11
Víftir 10 2 2 7 7:16 8
ÍBV 10 1 2 7 9:23 5
2. deild
KA 9 5 4 0 27:6 19
Selfoss 9 5 3 1 17:6 18
Einherji 9 5 2 2 13:13 17
Víkingur 9 5 1 3 26:9 16
Völsungur 9 4 2 3 14:9 14
ÍBÍ 9 2 5 2 17:14 11
UMFN 9 3 2 4 15:19 11
Þróttur 9 2 2 5 14:20 8
Skallagr. 9 0 0 9 5:52 0
•
Úrslit
A
I
4. deild
Kormákur og Hvöt spiluðu í
miklu roki og sigruðu gestirnir
verðskuldað 2:0. Mörk Hvatar
skoruðu þeir Hrafn Valgarðs-
son og Garðar Jónsson þjálf-
ari.
Núpan og Austri gerðu 0:0
jafntefli í dæmigerðum rigningar-
leik. Leikurinn var með öllu tíð-
indalítill utan það að Núpa mis-
notaði víti á síðustu minútu og
rann þar eina færi leiksins út í
sandinn.
Tjörnes sigraði Æskuna 2:0 á
heimavelli í leik sem var leikinn í
skítakulda og rigningu. Sigur
heimamanna var sanngjarn.
Mörkin skoruðu þeir Aðalsteinn
Baldvinsson og Sigurður Illuga-
son. BV