Dagur - 14.07.1986, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 14. júlí 1986
á Ijósvakanum
JsjónvarpM
MÁNUDAGUR
14. júlí
19.00 Úr myndabókinni.
10. þáttur. Endursýndur
þáttur frá 9. júlí.
19.50 Fréttaágrip á tákn-
máli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.35 Poppkorn.
Tónlistarþáttur fyrir tán-
inga. Gísli Snær Erlingsson
og Ævar Örn Jósepsson
kynna músíkmyndbönd.
Samsetning: Jón Egill
Bergþórsson.
21.05 íþróttir.
Umsjónarmaður: Þórarinn
Guðnason.
21.400 Nana Akoto.
Þýsk-ganísk sjónvarps-
mynd.
Handrit og leikstjórn: King
Ampaw.
Aðalhlutverk: Joe Eyison,
Emmanuel Agbinowu.
Nana Akoto er höfðingi
þorpsins Oyoko í Gana.
Hann er tekinn að reskjast
og finnst ýmsum þorps-
búum tímabært að valinn
verði nýr höfðingi. Sjálfur
er Nana Akoto á öðru máli.
Hann hyggst reisa sér
verðugan bústað og eign-
ast afkomendur með ungri
eiginkonu.
Þýðandi: Þorsteinn Helga-
son.
23.15 Fréttir í dagskrárlok
'rás 1M
MÁNUDAGUR
14. júlí.
7.00 Vedurfregnir • Fróttir.
Bæn • Séra Baldur Rafn
Sigurðsson á Hólmavík
flytur. (a.v.d.v.)
7.15 Morgunvaktin.
- Atli Rúnar Halldórsson,
Bjarni Sigtryggsson og
Hanna G. Sigurðardóttir.
7.30 Fróttir • Tilkynningar.
8.00 Fróttir • Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
8.30 Fréttir á ensku.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Pétur Pan og
Vanda“ eftir J.M. Barrie.
Sigríður Thorlacius þýddi.
Heiðdís Norðfjörð les (14).
9.20 Morguntrimm - Jón-
ína Benediktsdóttir
(a.v.d.v.)
Tilkynningar • Tónieikar,
þulur velur og kynnir.
9.45 Búnaðarþáttur.
Gunnar Guðmundsson til-
raunastjóri talar um vot-
heysverkun.
10.00 Fróttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Einu sinni var.
Þáttur úr sögu eyfirskra
byggða. Umsjón: Kristján
R. Kristjánsson. (Frá Akur-
eyri).
11.00 Fréttir.
11.03 Á frívaktinni.
Þóra Marteinsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
12.00 Dagskrá • Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir • Til-
kynningar • Lesiö úr for-
ustugreinum landsmála-
blaða.
13.30 í dagsins önn - Heima
og heiman.
Umsjón: Gréta Pálsdóttir.
14.00 „Miðdegissagan:
„Katrín", saga frá
Álandseyjum eftir Sally
Salminen.
Jón Helgason þýddi. Stein-
unn S. Sigurðardóttir les
(10).
14.30 Sígild tónlist.
15.00 Fróttir • Tilkynningar
• Tónleikar.
15.20 „Á hringveginum -
Austurland.
Umsjón: Inga Rósa Þórðar-
dóttir, Örn Ragnarsson og
Ásta R. Jóhannesdóttir.
16.00 Fréttir • Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 íslensk tónlist.
17.00 Fréttir.
17.03 Barnaútvarpið.
Stjórnandi: Vemharður
Linnet. Aðstoðarmaður:
Sigurlaug M. Jónasdóttir.
17.45 í loftinu.
Blandaður þáttur úr
neysluþjóðfélaginu.
Umsjón: Hallgrímur Thor-
steinsson og Guðlaug
María Bjarnadóttir.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir • Dag-
skrá kvöldsins.
19.00 Fróttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál.
Örn Ólafsson flytur
þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn.
Bjarni Tómasson málara-
meistari talar.
20.00 Lög unga fólksins.
Þóra Björg Thoroddsen
kynnir.
20.40 „Vits er þörf, þeim er
víða ratar."
Annar þáttur.
Umsjón: Maríanna
Traustadóttir. Lesari: Þrá-
inn Karlsson (Frá Akur-
eyri).
20.05 Gömlu dansarnir
21.30 Útvarpssagan: „Njáls
saga".
Einar Ólafur Sveinsson les
(23).
22.00 Fréttir Dagskrá
morgundagsins Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Fjölskyldulíf
Karlmenn, kynlíf, klám.
Umsjón: Anna G. Magnús-
dóttir og Sigrún Júlíus-
dóttir.
23.00 Sumartónleikar í
Skálholti 1986.
Hamrahlíðarkórinn syngur
íslensk kórverk.
Stjórnandi: Þorgerður Ing-
ólfsdottir.
Kynnir: Þorsteinn Helga-
son.
24.00 Fréttir • Dagskrárlok.
hér og þar-
Hjénaband og tvíburar efst á oskalístanum
- Jennifer Rush undir smásjánni
Bandaríska söngkonan Jennifer Rush eignaðist
marga aðdáendur hér á landi þegar lagið
hennar „Power of love“ tók að hljóma
á öldum ljósvakans. Síðan þá
hún bætt nokkrum lögum á
sældalistann og aðdáendunum
hefur líklega fjölgað í
hlutfalli. Fyrir þá sem
eru forvitnir um hagi
annarra verða hér
tíundaðar örfáar
staðreyndir um
söngkonuna.
Fyrir það fyrsta skal
það tekið fram að
Jennifer er ekkert
skyld Ian Rush knatt-
spyrnugarpi hjá
Liverpool, þótt þau
beri sama eftirnafn.
Jennifer er fædd
þann 28. október
árið 1960 í New
og er því 25 ára
að aldri og sporðdreki að upplagi, segja vinirhennar.
í gegn um tíðina hefur hún verið á stanslausu flakki
milli Bandaríkjanna og Þýskalands og á reyndar íbúð
á báðum stöðum. Foreldrar hennar eru óperu-
söngvarar að atvinnu og starfa báðir í Þýskalandi.
Þetta er engin vísitölufjölskylda, því Jennifer á
tvo bræður. Hún er ógift eins og er en hjú-
skaparstaða hennar breytist væntanlega síðar
á þessu ári því í október ætlar hún að ganga
í hjónaband. Hún hefur víst þegar „sigtað“ út
þann eina rétta.
Áður en Jennifer helgaði sig sönglistinni
starfaði hún sem gengilbeina á veitinga-
húsi og nam lögfræði í frístundum. Kemur
það henni líklega að gagni við lagasmíð-
arnar!
í frístundunum, sem eru fáar og strjálar
eftir að hún sló í gegn, þykir henni gaman
að fara í leikhús. Einnig að sýsla í garðin-
um og hanna föt. „Ég gerði mikið af því
áður fyrr en núna hef ég varla tíma til
nokkurs annars í frístundum en að semja
lög,“ segir hún.
Jennifer klæðist oftast svörtum leðurfötum
og segir að bæði séu þau falleg og eins hitt að
þótt þau séu dýr þá sé ómetanlegur kostur
að geta kuðlað þeim ofan í ferðatösku og
tekið þau upp aftur nokkrum tímum síðar
okrumpuð og hugguleg. Efst á óskalista
Jennifer er að eignast börn þegar hún
er gengin í hnapphelduna. „Tvíbura,
takk og búa í Englandi.“
'rás 2M
MANUDAGUR
14. júlí
9.00 Morgunþáttur.
Stjórnendur: Ásgeir Tóm-
asson, Kolbrún Halldórs-
dóttir og Kristján Sigur-
jónsson. Inn í þáttinn flétt-
ast u.þ.b. fimmtán mín-
útna barnaefni kl. 10.05
sem Guðríður Haralds-
dóttir annast.
12.00 Hlé.
14.00 Fyrir þrjú.
Stjórnandi: Jón Axel
Ólafsson.
15.00 Við förum bara fetid.
Þorgeir Ástvaldsson kynn-
ir sígild dægurlög.
16.00 Allt og sumt.
Helgi Már Barðason kynnir
tónlist úr ýmsum áttum,
þ. á m. nokkur óskalög
hlustenda í Múlasýslum
og kaupstöðum Austur-
lands.
18.00 Dagskrárlok
3ja mín fréttir ki. 9, 10, 11,
15, 16 og 17.
17.03-18.30 Ríkisútvarpið á
Akureyri - Svæðisútvarp.
# Þumbara-
leg þögn
Svo sem fram hefur kom-
íð eru í bígerð ýmsar
nýjungar í iðnaði á
Blönduósi og jafnvel
búist við flutningi fyrir-
tækja annars staðar frá.
Vitað er að „karlinn með
töfratöskuna" kom til
Blönduóss og dró upp úr
töskunni ágætis hug-
myndir, ásamt með öðr-
um verri. En ef svo ber við
að fjölmiðlar spyrji frétta
af þessum málum, sem
virðast geta orðið til fram-
dráttar fyrir staðinn, þá
þegja allir þunnu hljóði og
engu er líkara en málpípa
þeirra hafi verið innsigl-
uð. Þessi þumbaralega
þögn ku stafa af ótta við
að segi þeir eitthvað um
þær hugmyndir sem verið
er að kanna, þá hlaupi ein-
hverjir aðrir til, einhvers
staðar annars staðar á
landinu og steli hugmynd-
inni. En mikið hlýtur
traust þeirra að vera á fjöl-
miðlunum ef þeir trúa því
að ekkert verði um þetta
sagt fyrr en þeir leyfa.
Herrar mínir, það þýðir
ekki að miða eingöngu við
blöðin sem gefin eru út
utan Reykjavíkur.
# Orðréttar
fréttir
Það vill brenna við að í
fréttum Ríkisútvarpsins
séu lesnar nær orðréttar
fréttir upp úr morgun-
blöðunum en hins vegar
virðist þess gætt að það
komi ekki fram að við-
komandi frétt sé fengin úr
þessu blaðinu eða hinu.
Af hverju skyldi fjetta
stafa? Ætli fréttamenn
útvarpsins skammist sín
fyrir að viðurkenna að ein-
hver annar hafi orðið fyrri
til, eru þeir í það mikilli
samkeppni við stéttar-
bræður sína að þeir geti
ekki unnt þeim þess að
njóta sannmælis?
Þetta eru varhugaverð
vinnubrögð og varla til
þess fallin að auka sam-
heldni innan stéttarinnar,
en fáum starfsstéttum er
kannski eins mikil þörf á
að standa þétt saman og
einmitt þessari.