Dagur - 14.07.1986, Blaðsíða 7
6 - DAGUR - 14. júlí 1986
14. júlí 1986-DAGUR-7
íhrnttir
i—* w»*.« >—
Akureyrarmótið í golfi:
Stærsta og fjölmennasta
mótið til þessa
- mjög gott veður var alla mótsdagana
3. Guðmundur Finnsson GA 352
2. flokkur karla:
1. Birgir Marinósson GA 354
2. Guðjón H. Sigurðsson GA 354
3. Árni Ketill Friðrikss. GA 360
3. flokkur karla:
1. Auðunn Þorsteinsson GA 346
2. Örn Kristinsson GA 364
3. Brynjólfur Tryggvason GA 370
4. flokkur karla:
1. Oddur Jónsson GA 377
Fór holu
r ■ ■■ ■
i hoggi
Akureyrarmótinu í golfi því 48. í
röðinni lauk á laugardag. Keppni
hafði þá staðið yfir í fjóra daga í
frábæru veðri eða frá því á mið-
vikudag. Mótið í ár var það fjöl-
mennasta og stærsta sem fram
hefur farið til þessa en alls voru
keppendur 112. Er þetta í fyrsta
skipti sem þátttakendur eru fleiri
en 100. Keppt var í 11 flokkum
og voru veitt vegleg verðlaun í
þeim öllum. Einnig voru fjöl-
mörg aukaverðlaun veitt. Akur-
eyrarmeistari í meistaraflokki
karla varð Björn Axelsson og er
þetta annað árið í röð sem Björn
vinnur þennan titil. Akureyr-
armeistari í meistaraflokki
kvenna varð Inga Magnúsdóttir
og vann hún titilinn í 8. sinn.
Búnaðarbankinn á Akureyri og
Sparisjóður Akureyrar styktu GÁ
veglega við kaup á verðlaunum og
það voru Mjólkursamlag KEA og
Akva s/f sem gáfu öll aukaverð-
launin. Mjólkursamlagið gaf bæði
ostabakka og skafís og Akva s/f gaf
Blöndu.
Gunnar Jakobsson fór holu í höggi á Akureyrarmótinu sem lauk á laugardag.
Inga Magnúsdóttir Akureyrarmeistari kvenna 1986.
Bræöurnir Magnús og Þórlcifur Karlssynir sigruöu báðir hvor í sínum flokki.
Þrír efstu menn í hverjum flokki
urðu þessir á mótinu:
Meistaraflokkur karla:
1. Björn Axelsson GA 307
2. Sverrir Þorvaldsson GA 311
3. Þórhallur Pálsson GA 313
Meistaraflokkur kvenna:
1. Inga Magnúsdóttir GA 341
2. Jónína Pálsdóttir GA 355
3. Erla Adolfsdóttir GA 390
1. flokkur karla:
1. Þorsteinn Flalldórsson GA 343
2. Gunnar Rafnsson GA 350
Björn Axelsson Akureyrarmeistari karla 1986.
2. Símon Magnússon GA 386
3. Aðalsteinn P. Eiríkss. GA 392
Öldungar:
1. Hörður Steinbergsson GA 174
2. Ragnar Steinbergsson GA 175
3. Tryggvi Sæmundsson GA 185
1. flokkur kvenna:
1. Sunna Borg GA 232
2. Guðrún Guðmundsd. GA 250
3. Helga Árnadóttir GA 251
Stúlknaflokkur:
1. Andrea Ásgrímsdóttir GA 420
2. Elísabet Stefánsdóttir GA 597
3. Halla Berglind Arnar GA 603
Unglingaflokkur:
1. Magnús Karlsson GA 317
2. Jón Baldvin Árnason GA 336
3. Sigurbjörn Þorgeirss. GA 347
Drengir 11 ára og yngri:
1. Þorleifur Karlsson GA 387
2. Jón Steindór Árnason GA 409
3. Kristófer A. Einarsson GA 459
Á Akureyrarmótinu í golfl um
helgina náði einn keppendanna
þeim skemmtilega áfanga að fara
holu í höggi. Það var Gunnar
Jakobsson keppandi í 4. flokki
karla og hann fór holu í höggi
síðasta keppnisdaginn sem var á
laugardag.
Blaðamaður náði tali af Gunnari
og spurði hann fyrst um golfferil-
inn?
„Ég byrjaði að spila golf í fyrra
og hef stundað það nokkuð reglu-
lega síðan. Ég hef m.a. farið í tíma
hjá enska kennaranum sem starfar
hjá klúbbnum."
- Hefurðu tekið þátt í mörgum
mótum?
„Nei það hef ég ekki gert. Akur-
eyrarmótið núna er annað mótið
sem ég tek þátt í. Ég keppti í
Nýliðamótinu um daginn.“
- Hvernig hefur þér gengið í
þessum mótum?
„Svona þokkalega. Maður spilar
ekkert betur en maður er en ég hef
þó orðið var við framfarir. Höggun-
um sem maður notar hringinn fer
fækkandi."
- Á hvaða braut var það sem þú
fórst holu í höggi?
Það var á 18. braut, síðasta
keppnisdaginn. Þetta var mitt síð-
asta högg í mótinu og ég notaði
járn númer 5 við höggið.“
- Hvað með framhaldið í golf-
inu?
„Maður heldur áfram í golfinu,
það er öruggt. Þetta er skemmtileg
íþrótt og það er númer eitt hjá mér
að hafa gaman af þessu og meðan
maður hefur það, held ég áfram,“
sagði Gunnar að lokum.
Þess má geta að Gunnar hafnaði
í 7.-8. sæti í fjórða flokki karla á
mótinu um helgina.
Sigurvegaramir í ilokkunum 11 á Akureyrarmótinu í golfi 1986.
Myndir: KK
Umsjón: Kristján Kristjánsson
íslandsmótið 1. deild:
Sanngjarn sigur Fram á Þór
- 3:0 á Akureyrarvelli á laugardag
Það var ekki hátt risið á Þórs-
urum í leiknum gegn Fram á
laugardag. Leikið var í blíð-
skaparveðri á Akureyrarvelli
sem er ábyggilega besti völlur
á landinu í dag. En þrátt fyrir
góðar aðstæður þá tókst
heimamönnum ekki vel upp og
endaði leikurinn með sann-
gjörnum sigri Framara 3-0.
í fyrri hálfleik gerðist fátt
markvert, mikil barátta var um
miðjuna og því lítið um góð
marktækifæri. Segja má að liðin
hafi fengið sitt hvort færið, það
voru Framarar sem voru fyrri á
ferðinni er Guðmundur Torfason
skallaði inn fyrir vörn Þórs þar
sem nafni hans Steinsson náði
boltanum en ágætt skot hans fór
fram hjá. Færi Þórs í fyrri hálf-
leik féll í hlut Kristjáns Kristjáns-
sonar. Boltinn barst til hans rétt
fyrir utan markteigshorn, hann
skaut föstu skoti sem Friðrik
Friðriksson varði glæsilega.
Seinni hálfleikur byrjaði af fýt-
onskrafti, á 3. mínútu fékk Guð-
mundur T. gott færi en Sigur-
björn Viðarsson komst fyrir
skotið. Einni mínútu síðar braust
Halldór í gegnum vörn Fram,
sendi boltann fyrir markið hvar
hann rúllaði eftir markteigslín-
unni án þess að sóknarmenn Þórs
hefðust nokkuð að. Á 5. mínútu
komst Guðmundur S. inn fyrir
vörn Þórs en Baldvin varði
naumlega í horn. Það var ljóst á
þessum krafti sem var að færast í
leikinn, sérstaklega í leikmenn
Fram, að stutt væri í að eitthvað
markvert gerðist. Það reyndist
rétt. Á 8. mínútu komst Fram í 1-
0. Kristinn Jónsson fékk boltann
frá Jóni Sveinssyni og skoraði
með góðu skoti af vítateigslínu.
Aðeins 5. mínútum seinna komst
Fram svo í 2-0. Sóknarmenn liðs-
ins átu þá vörn Þórs og endaði
samléikur þeirra með marki
íslandsmótið 2. deild:
Völsungar enn með
í baráttu efstu liða
Guðmundar S. af stuttu færi.
Fallegt mark. Eftir þetta mark
fylltist leikur Þórs miklu vonleysi
og eftirleikurinn var Frömurum
léttur. Þeir fengu ágæt færi til að
auka muninn en það gekk ekki
fyrr en á 40. mínútu er Gauti
Laxdal fékk boltann óvaldaður
innan Þórsvarnarinnar og veittst
honurn létt að gulltryggja sigur
Fram.
Það er erfitt að taka einhvern
einn út úr Þórsliðinu sem besta
mann, liðið lék allt langt undir
getu og var sóknarleikur liðsins
t.d. fullkomlega bitlaus. . .
m.ö.o. lið Þórs mætti hreinlega
ofjörlum sínum.
Um lið Fram er einungis hægt
að segja eitt: Besta og skemmti-
legasta félagslið á íslandi. BV
Ekkert gefíð eftir, en óljóst hvor hefur betur, Kristján Kristjánsson Þórsari eða Gauti Laxdal Framari.
Mynd: KGA.
STAÐAN
2. deild
Staðan í 2. deild íslands-
mótsins í knattspyrnu er
þessi:
Völsungur-KS 2:0
Víkingur-Þróttur 2:1
UMFN-ÍBÍ 0:2
Skallagrímur-Selfoss 0:1
Selfoss 10 6-3-1 18: 6 21
KA 9 5-4-0 26: 6 19
Víkingur 10 6-1-3 28:10 19
Völsungur 10 5-2-3 16: 9 17
Einherji 9 5-2-2 13:13 17
ÍBÍ 10 3-5-2 19:14 14
UMFN 10 3-2-5 15:21 11
KS 10 2-3-5 14:16 9
Þróttur 10 2-2-6 16:22 8
Skallagr. 10 0-0-10 4:52 0
Markahæstir:
Tryggvi Gunnarsson, KA 13
Andri Marteinsson, Víkingi 9
Jón Gunnar Bergs, Selfossi 9
STAÐAN
3. deild
Staðan í b-riðii 3. deildar er
þessi:
Þróttur-Leiknir 5:0
Tindastóll-Magni 4:1
Reynir-Leiftur 1:0
Tindastóll 8 5-3-0 20: 7 18
Leiftur 8 5-2-1 14: 5 17
Þróttur N 8 4-4-0 19: 7 16
Reynir Á 8 4-2-2 12:11 14
Austri E 7 2-2-3 7: 8 8
Magni 8 2-2-4 7:12 8
Valur Rf 7 1-1-5 7:13 4
Leiknir F 8 0-0-8 2:25 0
Markahæstir:
Eyjólfur Sverrisson, Tindastóli 9
Oskar Ingimundarson, Leiftri 7
1. deild kvenna:
Þór tapaði
fyrir UBK
og ÍBK
Kvennalið Þórs lék tvo leiki í
1. deildinni í knattspyrnu fyrir
sunnan um helgina. Á föstu-
dagskvöld gegn UBK í Kópa-
vogi og á laugardag gegn ÍBK í
Keflavík.
Leikurinn gegn UBK tapaðist
0:1. Ásta B. Gunnlaugsdóttir
skoraði markið um miðjan fyrri
hálfleik af stuttu færi. Breiða-
bliksstúlkurnar sóttu nokkuð stíft
allan leikinn en vörn og mark-
varsla Þórs var góð svo fleiri urðu
mörkin ekki.
Á laugardag léku stelpurnar
gegn ÍBK í Keflavík og tapaðist
sá leikur einnig. Kata Eiríksdóttir
og Inga Birna skoruðu sitt hvort
markið fyrir ÍBK í fyrri hálfleik
og þannig var staðan í leikhléi.
í síðari hálfleik minnkaði Val-
gerður Jóhannsdóttir muninn fyr-
ir Þór er hún skoraði úr víta-
spyrnu. En ÍBK-stelpurnar náðu
að bæta við þriðja markinu fyrir
leikslok og var þar að verki
Svandís Gylfadóttir. Úrslitin því
3:1.
AE/Reykjavík
„Mér fannst þetta virkilega
ánægjulegur sigur. Þetta small
saman í síðari hálfleik. Við
náðum yfírhöndinni í lok fyrri
hálfleiks og ég var viss um að
við næðum að sigra. Leikurinn
sjálfur var góður á köflum og
vonandi náum við að fylgja
þessum sigri eftir í næstu leikj-
um,“ sagði Vilhelm Fredriksen
leikmaður Völsungs eftir góð-
an sigur á KS á föstudags-
kvöld.
Leikurinn fór fram í blíðskap-
arveðri á Húsavík. í fyrri hálfleik
gerðist fátt markvert fyrsta hálf-
tímann. Þó áttu liðin sitt hvort
færið á þeim tíma. Jón Kr. skaut
rétt framhjá marki Völsungs og
hinum megin varði Ómar vel frá
Kristjáni Olgeirssyni.
íslandsmótið 4. deild:
Hvöt og HSÞ-b
- halda toppsætunum eftir leiki helgarinnar
- eftir 2:0 sigur a KS á föstudagskvöld
Síðasta stundarfjórðunginn í
hálfleiknum tóku Völsungar leik-
inn í sínar hendur og gerðu þá oft
harða hríð að marki KS án þess
þó að skora mark. í hálfleik var
staðan 0:0.
Strax á 1. mín. síðari hálfleiks
náðu Völsungar forystu. Eiríkur var
með knöttin úti á kantinum og
sendi háan bolta inn á teig. Þar
stökk Grétar félagi hans hæst og
skallaði boltann fyrir fætur
Kristjáns Olgeirssonar sem stóð
utarlega í teignum á mós við
markteig og hann þrumaði hon-
um í netið.
Á 58. mín. átti Jónas Hall-
grímsson skot í stöng KS-marks-
ins en einn varnarmanna KS
braut á Jónasi um leið og hann
skaut en ekkert var dæmt. Fátt
markvert gerðist á næstu mín. og
fór leikurinn að mestu fram á
miðju vallarins.
Það var svo skömmu fyrir
leikslok að Völsungar gerðu sitt
annað mark og var það sérlega
glæsilegt. Bræðurnir Kristján og
Björn tóku stutta aukaspyrnu úti
á kanti og Björn skaut síðan í átt-
ina að markinu. Boltinn fór í
gegnum vörn KS og í átt að fjær-
stöng þar sem Vilhelm Fredrik-
sen var og hann tók boltann á lofti
og klippti hann með þrumuskoti í
markið, óverjandi fyrir Ómar
markvörð.
Síðasta færi leiksins fékk Haf-
þór Kolbeinsson en hann skaut
himinhátt yfir Völsungsmarkið af
frekar stuttu færi. Úrslitin því 2:0
fyrir heimamenn.
Völsungar léku ágætlega á
köflum en leikur liðsins datt nið-
ur þess á milli. Bestu menn liðs-
ins voru þeir Birgir Skúlason og
Vilhelm Fredriksen.
Siglfirðingar áttu ekki góðan
dag að þessu sinni. Skástir í lið-
inu voru þeir Colin Thacker og
Sigurgeir.
Fjórir leikir fóru fram hér fyrir
noröan í 4. deildinni í knatt-
spvrnu um helgina. Hvöt á
Blönduósi tryggöi stöðu sína á
toppnum í e-riðli með 2:0 sigri
á Höfðstrendingi. Mörkin
gerðu þeir Garðar Jónsson og
Hrafn Valgarðsson.
Á Dalvík léku UMFS og
Kormákur og lauk þeirri viður-
eign með sigri UMFS en þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir tókst ekki
að fá tölur úr leiknum.
í f-riðli voru tveir leikir. Æsk-
an og Núpar gerðu jafntefii á
Svalbarðsstrandarvelli. Hvort lið
skoraði eitt mark.
Á Raufarhöfn léku Austir og
HSÞ-b og sigruðu Mývetningar
með þrernur mörkum gegn einu.
Vilhelm Fredriksen skorar annað mark Völsungs með þruniuskoti í lok
leiksins gegn KS. Mynd: KK