Dagur - 14.07.1986, Blaðsíða 12
Ritstjóm • Auglýsingar • Afgreiðsla
Síminn er 24222
Póstkort, já. Auðvitað kaupi ég bara nokkur póstkort og þá er allt í lagi þótt ég hafi gleymt myndavélinni heima.
Mynd: KGA
„Bjartsýnin sem gildir“
- segir Örn Baidvinsson, framkvæmdastjóri Atla hf.
„Við höfun nú fengið ýmislegt
í staðinn og þetta er ekkert
lakara en í fyrra, þetta er held-
ur í hina áttina,“ sagði Örn
Baldvinsson, framkvæmda-
stjóri Atla h.f., aðspurður
hvaða áhrif það hefði haft fyrir
fyrirtækið að missa verkefni í
Kröflu þetta árið, en undanfar-
in sumur hefur Atli h.f. einmitt
verið með nokkra menn í
vinnu þar.
Við erum nú með ýmis verk-
efni, við höfum t.d. mikið sam-
starf við Slippstöðina og það er
býsna stór hluti af okkar verkum.
Nú, svo eru það ýmis verkefni
sem falla til. Það var nú ekki bara
Krafla sem datt út, heldur var
það Kísiliðjan líka, en þrátt fyrir
þetta erum við með heldur meira
en í fyrra, eins og ég sagði áðan.
Annars held ég að Krafla sé ekki
dottin endanlega út úr myndinni
hjá okkur. Þetta hefur nú verið
svona prufukeyrsla hjá þeim og
það kom í ljós að slitið á vélunum
var ekki eins mikið og búist hafði
verið við. Af þessu leiðir að það
verður ekki upptekt á vélunum
nema annað til þriðja hvert ár og
ég reikna með að við komum þar
aftur inn í myndina þegar að því
kemur. Það sama má segja um
Kísiliðjuna, þeir þurftu að stoppa
vegna sölutregðu og nota þá sína
menn á meðan. En ég á allt eins
von á að við komum aftur inn í
myndina í haust. En það er sem
sagt bara bjartsýnin sem gildir,“
sagði Örn Baldvinsson. JHB
Kolbeinsey landar 160 tonnum
Kolbeinsey ÞH 110 landaði 160
tonna afla á fimmtudag eftir 8
sólarhringa veiðiferð. 90 tonn
af aflanum var ufsi, en um 70
tonn þorskur.
Fiskiðjusamlag Húsavíkur
vantar nú starfsfólk sem er vant
snyrtingu og pökkun. Afli Kol-
beinseyjarinnar er eiginlega eina
hráefnið sem berst til hússins, því
lítill afli er hjá smærri bátunum
og stærri bátarnir stunda flestir
rækjuveiðar. IM.
Blönduós og Sauðárkrókur:
Dagur opnar
skrifstofu
Um helgina voru skrifstofur
Dags á Blönduósi og Sauðár-
króki formlega teknar í
notkun. Þar með er Dagur
kominn með útibú á þremur
Framkvæmda-
stjóraskipti
hjá Bjargi
Nýlega urðu framkvæmda-
stjóraskipti hjá Endurhæfinga-
stöðinni Bjargi á Akureyri.
Formleg skipti urðu þann 8.
júlí er Valdimar Pétursson sem
hefur verið framkvæmdastjóri
í þrjú og hálft ár lét af störfum.
Nýi framkvæmdastjórinn er
Tryggvi Sveinbjörnsson sem
undanfarin ár hefur starfað hjá
Mjólkursamlagi KEA á Akur-
eyri. Síðasta ár var hann við nám
í kerfishagfræði í Noregi og lauk
þaðan fyrsta áfanga fyrir stuttu.
Valdimar hefur ráðið sig til
Hagþjónustunnar á Akureyri, en
það fyrirtæki annast m.a.
bókhald, innheimtu og tölvu-
þjónustu fyrir einstaklinga og
fyrirtæki. gej-
stöðum á Norðurlandi því í
haust var skrifstofa Dags á
Húsavík formlega opnuð.
Fastur opnunartími skrifstof-
anna er frá klukkan 10-12 árdegis
alla virka daga en að sjálfsögðu
verður opið þar á öðrum tímum
svo framarlega sem blaðamenn
eru ekki í efnisöflun einhvers
staðar á svæðinu. Á skrifstofun-
um er tekið á móti aðsendu efni
af öllu tagi og auk þess verður
þar auglýsingamóttaka. Allar
ábendingar frá lesendum um efn-
isval eru vel þegnar.
Blaðamaður Dags í Skaga-
fjarðarsýslu er Þórhallur Ás-
mundsson. Skrifstofan á Sauðár-
króki er til húsa að Skagfirð-
ingabraut 47 og símínn er 5960.
Heimasími blaðamanns er 5729.
Blaðamaður Dags í Húna-
vatnssýslum er Gestur Kristins-
son. Hann hefur einnig tekiö við
umboði blaðsins á Blönduósi af
Snorra Bjarnasyni. Skrifstofa
Dags á Blönduósi er til húsa að
Húnabraut 29 og þar er síma-
númerið 4070. Heimasími blaða-
manns er 4368.
Það er einlæg von okkar að
með þessari auknu þjónustu megi
takast að gera Dag að enn
öflugra málgagni Norðurlands
alls. BB.
Marga kennarara vantar
- að skólum á Norðurlandi vestra
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust á Fræösluskrifstofu
Noröurlands vestra vantar þó
nokkuð af kennurum á svæðið
og lítið er uiu umsóknir um
þær stöður sem auglýstar hafa
verið.
Ekki náðist í Guðmund Inga
Leifsson fræðslustjóra en sam-
kvæmt þeirn upplýsingum sem
fengust á skrifstofunni er nokkuð
misjafnt eftir stöðum hversu mik-
il hreyfing er á kennurum. Til
dæmis var talið að litlar breyting-
ar yrðu á Hvammstanga en hins
vegar vantaði 4-5 kennara á
Blönduós miðað við síðasta
vetur.
Ekki er búist við að farið verði
nákvæmlega ofan í saumana á
þessum ráðningarmálum fyrr en
eftir 20. júlí, en þá kemur
fræðslustjóri úrsumarfríi. G.Kr.
Heyskapur á Norðurlandi hef-
ur gengið nokkuð misjafnlega
það sem af er sumri. Lengst
eru bændur í Eyjafirði komnir,
en bændur frammi í Firði hófu
flestir heyskap síðustu viku
júnímánaðar. Margir eru langt
komnir með slátt, en eiga eftir
að ná upp. Slæmt veður í síð-
ustu viku setti strik í reikning-
inn hvað heyskap varðar.
Ævarr Hjartarson hjá Búnað-
arsambandi Eyjafjarðar sagði að
meginþorri bænda í Eyjafirði
hefði hafið slátt síðustu vikuna í
júní og þá hefði gengið mjög vel,
en síðan hefði lítið miðað. „Yfir-
leitt er grasspretta viðunandi og
það lítur allvel út með heyfeng.
Ef tíð verður sæmileg stefnir allt í
að heyfengur verði þokkalegur,"
sagði Ævarr.
Að sögn Ævars eru margir
langt komnir með slátt í Eyjafirði
og nokkrir þegar búnir, en eiga
eftir að ná upp. Sagði Ævarr að
þeir bændur sem byggju með fé
væru örlítiö seinna á ferðinni
með slátt vegna þess hve vorið
var kalt og fé gekk lengi í túnum.
Stefán Skaftason í Straumnesi
í Aðaldal sagði að heyskapur
væri lítið byrjaður þar um slóðir.
„Það er tæplega fullsprottið hjá
bændum til að sláttur geti hafist,
en það fer líklega að rætast úr
því,“ sagði Stefán. Stefán taldi að
heyskapur væri um hálfum ntán-
uði seinna á ferðinni í ár, en í
nteðalári. „Horfurnar eru þó
sæmilegar, ef við fáum þurrk.“
Stefán sagði að nokkuð væri
um kal í túnum á vissum svæðum
og væri það umtalsvert hjá
nokkrum bændum. Mest er um
kal í Rcykjahverfi, Tjörnesi og
einnig aðeins í Aðaldal. „Þetta
kemur sér auðvitað illa fyrir þá
bændur sem fyrir þessu verða, en
þó held ég að menn verði ekki í
neinum vándræðum vegna þessa.
Menn eiga fyrningar frá í fyrra
auk þess sem öllum er gert að
draga saman, þannig að líklega
gengur þetta allt saman upp,“
sagði Stel'án.
„Við byrjuðum að slá 29. júní
og þá gekk vel,“ sagði Sigurður
Ingimarsson á Flugumýri í
Skagafirði. Sigurður sagði að
nokkrir bændur hefðu hafið slátt
síðustu vikuna í júní, „við náðum
í skottið á hlýindakaflanum.“
Sigurður sagði að spretta væri
ágæt, en það vantaði bara
þurrkinn. Áð sögn Sigurðar
misstu margir af hlýindakaflan-
um seinnipart júnímánaðar
vegna þess hve fé gekk lengi í
túnum og mönnum þótti spretta
ekki nógu mikil. „Það er glanna-
skapur að sleppa svona góðum
þurrki, þó að ekki sé fullsprottið.
En það er fullsprottið núna, vant-
ar bara þurrkinn til að geta ham-
ast áfram," sagði Sigurður.
„Það er ögn misjafnt á milli
bæja hvernig heyskapur gengur,"
sagði Sigurður Jósefsson á
Torfufelli í Eyjafirði. Sagði
Sigurður að hæðarmismunur
skipti talsverðu máli einkum þeg-
ar vor er kalt. „En það er komið
gott gras á vel varin tún.“ Sigurð-
ur sagði að margir bændur í Saur-
bæjarhreppi væru að hefja hey-
skap um þessar mundir og nokkr-
ir ekki byrjaðir. „Maímánuður
var kaldur og þegar beitt var í
ofanálag þróaðist það ekki far-
sællega. Fé var sleppt seint sök-
um þess hversu seint gréri til
afrétta og fé var því í heimahög-
um fram eftir júnímánuði," sagði
Sigurður.
Sagði Sigurður að ef hlýnaði þá
myndi spretta taka vel við sér og
málin gætu þróast farsællega.