Dagur - 14.07.1986, Blaðsíða 11
14. júlí 1986 - DAGUR - 11
Vel heppnað vinabæja-
mót í Ólafsfirði
Um helgina var haldið norrænt
vinabæjamót í Ólafsfirði í fyrsta
skipti. Ólafsfirðingar hófu þátt-
töku í vinabæjasamstarfi árið
1977 og hafa tekið þátt í vina-
bæjamótum á Norðurlöndum
síðan og einnig annars konar
samskiptum á menningar- og
íþróttasviðum, t.d. hafa ungling-
ar dvalið ytra við skíðaiðkun.
Vinabæirnir eru Hilleród í Dan-
mörku, Horten í Noregi, Karls-
krona í Svíþjóð og Lovisa í
Finnlandi. Síðasta mót var haldið
í Horten og fóru þá 25 manns frá
Ólafsfirði til mótsins og var vina-
bærinn Hil'. ‘ród einnig heimsótt-
ur í þeirri ferð. Fyrrihluta júní-
mánaðar árið 1982 sótti 50
manna hópur frá Ólafsfirði vina-
bæjamót í Lovisa í Finnlandi og
ferðaðist í þrjár vikur um
Norðurlönd og heimsótti þá einn-
ig vinabæina Karlskrona í Sví-
þjóð og Hillerpd í Danmörku.
Var ferðin farin á vegum Kirkju-
kórs Ólafsfjarðar, sem hélt tón-
leika í ferðinni og söng við sam-
norræna guðsþjónustu í Lovisa,
og Ólafsfjarðarkaupstaðar.
Til vinabæjamótsins í Ólafs-
firði nú komu samtals á annað
hundrað gestir frá öllum Norður-
löndunum og dvöldust flestir á
heimilum, nokkrir á hótelinu og
um 30 unglingar og fararstjórar
voru í Gagnfræðaskólanum
Ólafsfirði. Gestirnir komu að
kvöldi fimmtudagsins 10. júlí en
formleg dagskrá mótsins hófst
með samnorrænni guðsþjónustu
kl. 9 á föstudagsmorgun í Ólafs-
fjarðarkirkju. Að lokinni guðs-
þjónustu var gengið frá kirkju að
félagsheimilinu Tjarnarborg þar
sem mótið var sett samkvæmt
dagskrá.
Dagskrá mótsins var mjög fjöl-
breytt. Gestirnir tóku þátt í
íþróttakeppnum, fóru í skoðun-
arferð um Skagafjörð og Eyja-
fjörð auk þess sem þeim voru
svnd markverðustu mannvirki í
Ólafsfirði. Fjölmargt fleira var
gert til skemmtunar og þótti mót-
ið í alla staði takast mjög vel.
Formlegri dagskrá lauk með
lokahófi á laugardagskvöld. Par
komu fram skemmtikraftar úr
Ólafsfirði auk þeirra Símonar
ívarssonar gítarleikar og Viktor-
íu Spans söngkonu og hljómsveit
Finns Eydal lék fyrir dansi. Gest-
irnir fóru frá Ólafsfirði í gær og
munu flestir ferðast um landið í
nokkra daga áður en þeir halda
af landi brott.
Sýning Kristins G. Jóhanns-
sonar listmálara og fyrrum skóla-
stjóra í Ólafsfirði var opin í gagn-
fræðaskólanum 11.-13. júlí.
Ólafsfjarðarbær var með sér-
stökum hátíðarsvip mótsdagana.
Bæjarbúar lögðu sig fram um að
fegra í kringum sig og bæjar-
starfsmenn ekki síður. Virðist
tilefni sem þetta kjörinn hvati til
átaka í fegrunar- og umhverfis-
málum fyrir utan það mikla
menningarlega gildi og ánægju
sem Ólafsfirðingar hafa haft af
þessu norræna samstarfi sem
byggir á gagnkvæmu samstarfi og
samskiptum bæjanna, norrænu
félaganna og fjölmargra annarra
félaga og stofnana f bæjunum.
s*.
Nýr bátur sjósettur á Blönduósi
Síðastliðið mánudagskvöld var
sjósettur nýr bátur frá Trefja-
plasti h/f á Blönduósi. Þetta er
annar báturinn sem sjósettur
er á Blönduósi, beint frá fram-
leiðanda.
Báturinn er sportútgáfan af
átta tonna bátunum sem Trefja-
plast framleiðir, hann er búinn
220 hestafla Ineco-vél og er áætl-
aður ganghraði um 30 mílur. Þá
eru í.bátnum öll helstu siglinga-
tæki auk tveggja DNG handfæra-
rúlla.
Vistarverur eru mjög rúmgóð-
ar, og þar er meðal annars að
finna vask, eldavél og auk þess
klósett, en það er iðulega erfitt
að finna um borð í mörgum fiski-
bátum íslenskum, jafnvel þó þeir
séu miku stærri en hér um ræðir.
Kaupandi bátsins er Sveinn
Sigurjónsson frá Grindavík og
ætlar hann að sigla bátnum aust-
ur fyrir land og til Grindavíkur
ásamt syni sínum. Kaupverð
bátsins mun vera rétt um 2,5
milljónir. G.Kr.
LYFTARAR
Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra rafmagns-
og diesellyftara, ennfremur snúninga- og hliðarfærslur.
Tökum lyftara upp í uppgerðan, leigjum lyftara, flytjum lyft-
ara.
Varahluta- og viðgerðaþjónusta.
Líttu inn - við gerum þér tilboð.
Tökum lyftara í umboössölu.
LYFTARASALAN HF.
Vitastíg 3, símar 91-26455 og 91-12452.
Félag málmiðnaöar-
manna, Akureyri
efnir til hópferðar til Vestmannaeyja
dagana 21.-24. ágúst nk.
Fimmtud. 21. ágúst: Ekið frá Akureyri kl. 9.00 yfir
hálendið til Laugarvatns,
gist þar í svefnpokaplássum.
Föstud. 22. ágúst: Siglt til Eyja frá Þorlákshöfn
kl. 12.30.
Laugard. 23. ágúst: Eyjarnar skoðaðar á landi
og af sjó.
Sunnud. 24. ágúst: Lagt af stað heim kl. 10.30.
Áætlaður komutími á Akur-
eyri um kl. 23.00.
í Vestmannaeyjum verður gist í uppbúnum rúmum í
2ja manna herbergjum.
Allt fæði er innifalið í verði þ.m.t. nesti á heimleið, en
þátttakendur þurfa þó að nesta sig á leiðinni Akur-
eyri-Laugarvatn.
Á Laugarvatni er gist í svefnpokaplássum og þurfa
menn því að hafa meðferðis svefnpoka.
Verð kr. 6.000,- pr. mann.
Félagsmenn og makar þeirra eru hvattir til að nota
þetta tækifæri til að skreppa til Eyja í hópi góðra
félaga.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins, sími
26800 kl. 9-12.
Panasonic
myndbandstækin komin aftur.
Verð kr. 44.200 með
afborgunum.
BUÐIN BQNNUHLto
sr 96-22111
Kennara
vantar við grunnskólann í Bárðardal. Húsnæði á
staðnum. Góðir tekjumöguleikar.
Uppl. gefur skólastjóri í síma 96-43291.
Sjúkraliðar athugiö
Við Sjúkrahúsið á Egilsstöðum eru lausar 3-4
stöður sjúkraliða, nú þegar eða frá 1. sept. nk..
Fljótsdalshérað er fagurt bæði sumar og vetur,
flugvöllur er við bæjardyrnar og skíðaland í Fjarð-
arheiði skammt undan. Við höfum grunnskóla,
menntaskóla og tónlistarskóla á staðnum, svo
eitthvað sé nefnt.
Er ekki tilvalið að breyta til og prófa að búa úti á
landsbyggðinni?
Hugsið málið og leitið nánari upplýsinga, það
kostar ekkert.
Hjúkrunarforstjóri sími 97-1631.
Skrifstofan sími 97-1386.