Dagur - 16.09.1986, Blaðsíða 6

Dagur - 16.09.1986, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 16. september 1986 Stutt úttekt á óskilamm Óskilamunir eru kyndugt fyrir- bæri. Hlutir eru sífelit að giatast, fínnast oft aldrei en margir lenda þó á lögreglu- stöðinni og bíða eigenda sinna. Ætli sé mikið um óskilamuni þar og ætli þeirra sé vitjað? Og ef ekki, hvað þá? Hvers kyns munir skyldu þetta vera? Það er best að ganga úr skugga um þetta mál hið snarasta til að svala forvitninni. Við fórum í könnunarferð á lögreglustöðina og tók Broddi Björnsson vinsamlega á móti okkur og leiddi okkur um svæðið. Það fyrsta sem fyrir augu bar voru fullar skúffur frammi við afgreiðsluborðið. f>ar ægði saman hinum margvíslegustu hlutum. Lyklar í þúsundatali, staflar af veskjum, úrum og gler- augum. Einnig gat þar að líta vandaða myndavél og enn vand- aðra Bang & Olufsen segul- bandstæki. Allir hlutir eru merktir með dagsetningu og nöfnum finnenda og voru margir búnir að liggja lengi í skúffunum. Þó áttum við eftir að sjá eldri hluti seinna. - Segðu mér Broddi, hvernig komast munirnir í ykkar vörslu? „Það er nú allur gangur á því. Hingað kemur fólk með hluti sem það hefur fundið á förnum vegi. Þegar krakkar koma með eitthvað til okkar þá gaukum við gjarnan að þeim fundarlaunum, sérstaklega ef um verðmæta hluti er að ræða. Fullorðnir hafa yfir- leitt ekki rænu á því að minnast á fundarlaun og erum við heldur ekkert að ýta undir það. Svo rek- umst við líka á ýmisiegt sjálfir í ferðum okkar um bæinn. Einu sinni á ári, eða svo, fáum við heilmikið af óskilamunum neðan úr Sjalla. Þá hafa þeir reynt að koma þessu til skila í ár, en ekki gengið og þá tökum við dótið í okkar vörsiu. Þarna er um að ræða skartgripi ýmiss konar, lykla, úr og föt. Þið ættuð að líta á dótið hjá þeim.“ Við spurðum verði laganna hvort þeir lumuðu á einhverjum óvenjulegum hlut til að sýna okkur. Hófst þá mikil leit að fölskum tönnum sem áttu að vera þarna en þær fundust ekki og allir voru með réttan góm uppi í sér, þannig að því miður getum við ekki birt neinar skoltamyndir. Sívinsæl reiðhjólageymsla Broddi fór næst með okkur niður í kjallara og sýndi okkur kunnug- legar vistarverur, nefnilega reið- hjólageymsluna. Hún hefur verið þakin reiðhjólum alveg frá því blaðamaður man eftir sér. Að þessu sinni voru óvenju fá reið- hjól í geymslunni og aðeins ein skellinaðra. „Það eru nokkuð góðar heimt- ur á hjólunum núna,“ sagði Broddi. „Þetta eru yfirleitt nýleg og dýr hjól sem eru í gangi núna, þannig að það er spurt reglulega um þau ef þau glatast. Áður var hér allt fullt af hálfónýtum hjól- um sem engin hreyfing var á.“ Þess má geta að öll hjól, sem ekki hafa verið sótt af eigendum innan árs, eru seld á uppboði. Þarna voru nokkur hjól sem tími var kominn á og verða því líklega seld á næstunni. Broddi var spurður nánar um skráningu óskilamuna. Hann sagði að allir hlutir væru merktir og reiðhjólin skráð hjá þeim uppi. Hins vegar væri engin tæm- andi spjaldskrá til yfir óskilamuni hjá þeim og jánkaði hann því að víst væri það þægilegra fyrir- komulag. Fólk gæti þá byrjað á því að fara í gegnum skrána og ef það yrði einhvers vísari þá væri hægt að sýna þeim hlutinn. Núverandi fyrirkomulag byggist á misskilningi og sambandsleysi. Kannski hringir einhver kona og spyr um úr. Lögregluþjónn leitar að því, en þarf svo að fara í útkall. Konan hringir aftur en það næst ekki í viðkomandi lög- regluþjón, þannig að annar reyn- ir að leita uns hann er kallaður í annað og svo koll af kolli. Það er því ekki nema von að illa gangi að koma hlutunum til skila. í rauninni er ekki gert ráð fyrir því að lögreglustöðin sé geymslustaður fyrir óskilamuni. Þar er lítið pláss og lögregluþjón- ar hafa öðru að sinna, eins og nærri má geta. En þetta hefur alltaf verið svona og sá Broddi ekki fram á neinar úrbætur á næstunni. - En eitthvað hlýtur að ganga út. Eða hvernig komið þið í veg fyrir það að hér verði allt yfir- fullt? „Jú, jú. Auk reiðhjólanna þá komast veski ágætlega til skila, enda oft merkt. Þetta væri bæri- legt ef allir hlutir væru merktir með nöfnum eigenda. Nú, ef hlutir hafa verið hér mjög lengi þá er reynt að selja það nýtileg- asta og hinu er hent á öskuhaug- ana og reynt að hitta þannig á að það sé verið að urða ruslið svo Köttum prangað út Næst sýndi Broddi okkur skáp í kjallaranum. í honum voru kass- ar með lyklum, mun eldri en lykl- arnir í skúffunum uppi. í einum voru lyklar sem fundust árið 1977 og eru það ábyggilega elstu óskilamunir í húsinu. Það er kannski óþarfi að geyma svo gamla hluti, en Broddi tjáði okk- ur að fólki væri leyft að koma og róta í kössunum og sumir væru svo heppnir að finna bíllyklana sína. Annars var þessi kassi undantekning næstelstu lyklarn- ir voru frá 1981. Áfram röltum við og komum auga á lítinn sandkassa. Kannski þeir taki börnin sín með í vinn- una, hugsaði ég með mér og var búinn að gleyma því að með því algengasta sem fólk týnir eru kettir. Engir kettir voru á staðn- um núna, en gefum Brodda orðið: „Við vorum með tvo ketti hérna um daginn, en þeir eru báðir gengnir út, kannski ekki eftir réttum boðleiðum að vísu. Þannig var að þeir voru búnir að vera ansi lengi hjá okkur, ekki báðir í einu reyndar, en við get- um ekki setið uppi með ketti vik- um saman. Við neyðumst því til að lóga þeim sé þeirra ekki vitjað. En við sluppum við það núna því Ingimar kom þeim út. Blaðamaður horfir löngunarfullur á farkostina, Þarna kenndi ýmissa grasa, allt frá tanngómum til segulbandstækja. fólk fari ekki að róta mikið í haugunum. Okkur er illa við að vera að selja ódýr úr og þess hátt- ar lélega hluti. Hendum þeim frekar,“ sagði Broddi. Hann bætti því við að óskilagómar gengu illa út. Kannski þykir fólki skammarlegt að koma á lög- reglustöðina og spyrja um góm- inn sinn. Fyrst kom hingað maður sem hafði leitað lengi að kettlingnum sínum. Hann fór héðan ánægður með rígfullorðinn kött. Síðar kom annar maður í sömu erinda- gjörðum og eftir að hafa ráðfært sig við konuna sína féllst hann á að taka hinn köttinn þó svo hann væri öðruvísi á litinn. Kettirnir hafa ekki komið til baka og hafa því vonandi sætt sig við hlutskipti . sitt.“ Reynt aö svindla á vörðum laganna Að lokum fengum við að kíkja inn í merkilega geymslu. Þar voru gamlir hjálmar úr stríðinu, nokkrir óskilamunir og ýmislegt Aöalsteinn sagði ósköpin rétt að byrja.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.