Dagur - 16.09.1986, Síða 8
8 - DAGUR - 16. september 1986
erlendur vettvanguL.
Gadhafi byltingarleið-
togi þjáist af þunglyndi
og ofsóknarótta. Lík-
legasta eftirkomanda
sínum sendi hann
dauðadóm heim.
Barnamorð í áróðurs-
skyni.
Komið hefur í ljós að það var
uppspuni frá rótum að böm
Gadhafis hafi verið særð og
drepin í bandarísku loftárás-
unum eins og þessi mynd átti
m.a. að sanna.
Dauðadómur úr húsbð
Þjáist ýmist af stórmennskubrjálæði eða þunglyndi.
í afskekktu þorpi í eyðimörkinni reynir Gadhafi að gleyma þeim hörmung-
um sem þjóð hans er komin í undir hans stjórn. í sjónvarpsávarpi virtist allur
kraftur úr byltingarforingjanum, sem áður var þekktur fyrir harðfylgi og
mælsku.
Sendimenn dauðans komu
skömmu eftir miðnætti, fjórir
saman. Það var aðfaranótt 17.
maí sem þeir réðust til innrásar
í hvítkalkað glæsihúsið við
hliðina á sovéska sendiráðinu í
Tripolis. Tilræðið mistókst.
Einn féll í kúlnahríð varð-
manna, annar særðist alvar-
lega, tveir komust undan á
flótta. Samkvæmt fregnum var
það náfrændi Gadhafis sem
særðist, en sá fallni var úr fjöl-
skyldu konu hans, Safiva.
Fórnarlamb tilræðisins átti
að vera Abdel Salam Jalloud
hershöfðingi, næst-valdamesti
maður Líbýu. Gadhafi ætlaði
að koma í veg fyrir að hann
gæti náð völdunum frá sér. En
þessa nótt var Jalloud staddur í
kaffiboði með kunningjum
sínum.
Gadhafi hefur ekki látið sjá
sig í Tripolis eftir. sprengju-
árásir Bandaríkjamanna 15.
apríl. Strax á eftir flutti hann
ásamt fjölskyldu sinni og líf-
verði í litla eyðimerkurþorpið
A1 Baida nálægt Tobruk. Hér
hefur hann nú höfuðstöðvar
sínar, og héðan gaf hann skip-
un um að láta ryðja úr vegi
áralöngum samherja sínum og
félaga, Jalloud.
Fyrir stjórnarskrifstofu not-
ar hann lúxushúsbíl af Merc-
edes-Benz gerð, að sjálfsögðu
brynvarinn og loftkældan. Þar
er setustofa búin sófasetti, og á
litlu skrifborði standa loft-
skeytasímar og sjónvarpstæki.
f bílnum er einnig svefnher-
bergi og bað með vatnssalerni
og baðkeri.
Fréttamenn fullyrða að
Gadhafi sé allt annar maður
eftir bandarísku innrásina.
Með hjálp lyfja reyni hann að
gleyma þeim hörmungum, sem
þjóðin hefur ratað í undir hans
stjórn. Tunga hans virtist
þung, andlitið þrútið og mælið
þvoglulegt þegar hann fyrir
nokkru flutti örstutt sjónvarps-
ávarp til þjóðar sinnar í tilefni
af afmæli lokunar bandarísku
herstöðvarinnar við Tripolis.
Hann sýndist eiga í erfiðleik-
um með að lesa textann af
blaðinu. Áður hafði hann
ávallt notað þetta tækifæri til
að halda þrumuræður gegn
Bandaríkjunum, en nú var
hann „hreinasta sorgarmynd“,
eins og einn vestrænn frétta-
maður komst að orði.
Staða Gadhafis hefur aldrei
verið eins veik og í dag, síðan
hann hrifsaði völdin árið 1969.
Tekjur af olíuvinnslu hafa
dottið niður - árið 1981 færðu
þær 22 milljarða dollara í ríkis-
kassann, en í ár ná þær naum-
ast 5 milljörðum. Ríkisversl-
unin er í mesta ólestri. Langar
biðraðir eru við brauðbúðirn-
ar. Hillurnar í matvörubúðun-
um eru oft tómar um hádegið.
Meira að segja herinn sem hef-
ur verið dekraður árum saman
líður nú skort, svo hermenn fá
ekki nægilegan kost.
Það ólgar ekki eingöngu
meðal hersins og almennings.
Gadhafi á einnig í stríði við
fjölskyldu sína. Upplýsingar
liggja fyrir um að hann hafi lát-
ið skjóta frænda sinn síðastlið-
ið haust. Opinbera skýringin
var sjálfsmorð, þegar lík Hass-
an Ishkals ofursta fannst í
eyðimörkinni skammt frá
höfuðborginni. En ættingjarnir
fullyrða að Gadhafi hafi verið
morðingi hans. Ishkal hafði
mjög sterka stöðu innan
hersins. Gadhafi virðist hafa
óttast áhrif hans þegar Ishkal
bað hann fyrir hönd fjölskyld-
unnar að taka upp mildari
stefnu bæði í innanríkis- og
utanríkismálum.
Enginn getur verið öruggur
fyrir sjúklegri tortryggni
Gadhafis. Sumir af tryggustu
fylgismönnum hans hafa setið í
stofufangelsi, svo sem Ibrahim
al Bushari, yfirmaður leyni-
þjónustunnar. Breskir Líbýu-
sérfræðingar meta ástand bylt-
ingarforingjans svo: „Hjá hon-
um skiptist á stórmennsku-
brjálæði og alvarlegt þung-
lyndi.“ Upp á síðkastið virðist
hann helst þola unga og lítt
reynda samstarfsmenn sem
þora ekki að andmæla honum.
Nýlega gerði hann t.d. 29 ára
mann að menntamálaráð-
herra.
Hvort hinn 44 ára gamli
Jalloud er nógu sterkur til að
ýta Gadhafi til hliðar er erfitt
að spá um. Árum saman
tengdust þeir vinarböndum
sem m.a. byggðust á sameigin-
legum áhugamálum, svo sem
ástleitni þeirra til ungra
stúlkna. Eftir fyrrverandi hers-
höfðingja í útlegð er haft:
„Einkum á fyrstu árunum eftir
byltinguna háðu þeir Gadhafi
og Jalloud hreinlega keppni
um það, hvort þeirra gæti
komist yfir fleiri stúlkur.“
Jalloud, sem áður hefur gegnt
embættum forsætis- og utan-
ríkisráðherra, virðist þó opin-
berlega ekki tylla sér á háan
hest. Og áreiðanlega hefur
hann ætlað að styrkja ímynd
Gadhafis, þegar hann breiddi
út þá frétt að kjörbarn hans
hefði farist og tveir synir slas-
ast alvarlega í loftárásum
Bandaríkjamanna. Komið hef-
ur í ljós að þetta átti ekki við
nein rök að styðjast og myndir
sem áttu að sanna það voru
teknar í því borgarhverfi sem
harðast var úti.
Safiva, konu Gadhafis, var
líka fullkunnugt um þetta þeg-
ar hún stóð fyrir framan sjón-
Verður sá næststerkasti
bráðum sterkastur?
Fyrrum var Jalloud hershöfðingi
náinn vinur Gadhafis.
varpsvélar í húsarústum og sór
hefnd fyrir börnin sín. Hún bar
svart klæði um axlirnar, studdi
sig við staf og krafðist skjálf-
andi röddu: „Flugmaðurinn,
sem myrti barnið mitt, verður
að deyja!“
(Karl Gíinthcr Barth í STERN 27/1986, þýð.
Magnús Kristinsson).