Dagur - 16.09.1986, Qupperneq 9
16. september 1986 - DAGUR - 9
^íþróttiL
Umsjón: Kristján Kristjánsson
14. september
„þjóðhátíðar-
dagur“?
Hátíðahöld á Húsavík:
Geysilegur fögnuður braust út
á Húsavíkurvelli á sunnudag er
það fréttist að Völsungar
hefðu náð 1. sæti í 2. deildinni.
Sigrinum var fagnað langt fram
á nótt. Fyrst eftir leikinn var
opið hús í félagsheimilinu þar
sem bikarinn var afhentur
Völsungum og félaginu bárust
margar góðar gjafir og
kveðjur. Blómahaf var um-
hverfís liðið og hundruð
Húsvíkinga hylltu liðið sitt
lengi og innilega.
Um kvöldið bauð bæjarstjórn
Húsavíkur stjórn Völsungs, leik-
mönnum, knattspyrnuráði, þjálf-
ara og fleirum ásamt mökum til
kvöldverðar. Bjarni Aðalgeirs-
son sagði þar m.a. að sú hug-
mynd hefði komið fram að gera
14. september að „þjóðhátíðar-
degi“ á Húsavík. Á næsta ári yrði
Völsungur 60 ára, nýja íþrótta-
húsið yrði tekið í notkun og
Landsmót UMFÍ yrði haldið á
Húsavík. Vel ætti við að Völs-
ungar hæfu keppni í 1. deild ein-
mitt á þessu tímamótaári íþrótta-
viðburða á staðnum. Gleðilegt
væri hversu mikla jákvæða
athygli unga fólkið vekti á Húsa-
víkurbæ í sumar og nefndi hann
Greifana auk Völsungsliðsins í
því sambandi.
Katrín Eymundsdóttir forseti
bæjarstjórnar afhenti Birni Ol-
geirssyni fyrirliða Völsungs veg-
lega blómakörfu frá bæjarstjórn.
Síðar um kvöldið bauð bæjar-
stjórnin öllum bæjarbúum 18 ára
og eldri til dansleiks sem var afar
fjölmennur og dunaði fjörið
fram eftir nóttu. IM-Húsavík
KAfer
til Eyja
1. deildar lið KA í handknatt-
leik heldur til Vestmannaeyja
um næstu helgi og tekur þátt í
móti þar.
Auk KA taka þátt í mótinu lið
FH, ÍBV og eitt Íið úr 1. deild til
viðbótar, en ekki er enn ljóst
hvaða lið það verður. KA-menn
búa sig nú af kappi undir átökin í
1. deild í vetur undir stjórn lands-
liðsmarkvarðarins Brynjars
Kvaran ög m.a. lék liðið í Fær-
eyjum á dögunum, og vann þá
meðal annars landslið Færeyinga
eins og fram kemur hér á síð-
unni.
Lið Völsungs sem sigraði í 2. deild og vann sér rétt til að leika í 1. deild í fyrsta skipti í nær 60 ára sögu félagsins.
Myndin er tekin eftir leikinn á sunnudag. Mynd: kk
Lið KA sem hafnaði í 2. sæti 2. deildar og leikur í 1. deild að ári. KA liðið hafði forystu í deildinni þar til í síðustu
umferð að Völsungum tókst að „hrifsa“ bikarinn úr höndum þess. Mynd: ri>b
Skúli gegn
„Dodda Blomm“
Þórarinn B. Jónsson vann Alfreð Almarsson í síðustu viku, var
með 8 leiki rétta en Alfreð 6. Nú skorar Þórarinn á Skúla
Ágústsson sem er harður aðdáandi Manchester United og þess
vegna fremur dapurt yfir honum þessa dagana. Heldur myndi
birta til hjá Skúla ef hann ynni Þórarin í getraunaleiknum og
að því stefnir hann örugglega. En lítum á spá þeirra:
Þórarinn:
Skúli:
Arsenal-Oxford 1
A.Villa-Norwich x
Charlton-Coventry 2
Chelsea-N.Forest 2
Everton-Man.Utd. x
Leicester-Tottenham 2
Man.City-QPR 1
Newcastle-Wimbledon x
Southampton-Liverpool 2
Watford-Sheff.Wed. 1
West Ham-Luton 1
Hull-Birmingham 1
Arsenal-Oxford 1
A.Villa-Norwich x
Charlton-Coventry 1
Chelsea-N.Forest x
Everton-Man.Utd. 2
Leicester-Tottenham 1
Man.City-QPR 1
Newcastle-Wimbledon 2
Southampton-Liverpool 2
Watford-Sheff.Wed. 1
West Ham-Luton 1
Hull-Birmingham x
Tipparar munið að skila seðlunum inn fyrir hádegi á fimmtudög-
um svo enginn verði nú af vinningi.
Tiyggvi
missti
metið
„Ég er auðvitað ekki ánægður
að missa markametið, það er
ekkert gaman að láta taka af
sér 11 mörk,“ sagði marka-
kóngur 2. deildar, Tryggvi
Gunnarsson er keppninni í 2.
deild lauk um helgina.
Tryggvi skoraði samtals 28
mörk í leikjum KA í 2. deild og
sló þar með markamet Vest-
manneyingsins Arnars Óskars-
sonar sem var 26 mörk. Hins veg-
ar gerðist það svo fyrir helgina að
lið Skallagríms úr Borgarnesi gaf
síðasta leik sinn í mótinu, útileik
gegn ÍBÍ og við það féllu öll
mörk sem skoruð höfðu verið
gegn Skallagrími út af töflunni.
Þetta varð til þess að Tryggvi
missti þau 11 mörk sem hann
skoraði gegn Skallagrími og
markametið um leið. Sannarlega
dapurt fyrir hann því sennilega
var Tryggvi búinn að setja met
sem ekki hefði verið slegið í
bráð. En hvað fannst honum um
þá ákvörðun ieikmanna Skalla-
gríms að gefa leikinn við ÍBÍ?
„Þetta er slæmt. Þessir strákar
eru búnir að vera að baða sig í
fjölmiðlum í sumar og þar hefur
þeim verið hælt fyrir það að gef-
ast ekki upp og ætla sér að klára
mótið. En markamet mitt skiptir
þó ekki höfuðmáli, heldur hitt að
við KA-menn náðum takmarki
okkar sem var að komast í 1.
deild,“ sagði markaskorarinn að
lokum.
Þórsaramir
æfa mjög vel
Handknattleiksmcnn Þórs á
Akureyri hafa ekki slegið
slöku við æfíngar að undan-
förnu. Að sögn Smára Garð-
arssonar formanns handknatt-
leiksdeildar félagsins hefur
verið æft grimmt, 13 æfíngar
hafa verið á 15 dögum.
Erlendur Hermannsson sér um
þjálfun Þórsliðsins í vetur og
binda Þórsarar miklar vonir við
starf hans. Erlendur hefur haft
félagaskipti úr KA yfir í Þór, en
engin ákvörðun hefur samt verið
tekin um það hvort hann hyggst
leika með liðinu í 2. deildinni.
Fyrsti leikur Þórs í íslandsmótinu
verður 10. október.
KA sigraði lands-
lið Færeyinga
Handboltalið KA var í æf-
inga- og keppnisferð í Fær-
eyjum nýlega. Liðið lék fjóra
leiki og æfði 5 sinnum. KA fór
út boði færeyska liðsins
Vestmanna og lék tvo leiki við
það lið eins og komið hefur
fram.
Einnig var sagt í blaðinu að
KA hafi leikið gegn liði Götu en
það er rangt. KA lék gegn KIF
og sigraði í þeim leik 28:20. Síð-
asti leikur KA í ferðinni var gegn
færeyska landsliðinu og lauk
þeim leik með sigri KA 27:20.
KA-menn létu mjög vel af
ferðinni og töldu að hún kæmi
liðinu til góða fyrir hina hörðu
keppni sem framundan er hér
heima. Þá rómuðu þeir einnig
mjög þær frábæru móttökur sem
liðið fékk í Færeyjum.