Dagur - 16.09.1986, Síða 10
10 - DAGUR - 16. september 1986
4ra herb. íbúð til leigu, á besta Honda Accord.
stað í bænum. Á sama stað er til Til sölu Honda Accord árgerð
leigu herbergi fyrir námsmann. 1982. Útvarp, segulband, 2 vetrar-
Uppl. í síma 24115. dekk fylgja. Uppl. í síma 23788
Hótel KEA óskar eftir 2ja herb. eftir kl' 18-____________________
/íbúð fyrir starfsmann, fyrir 30, Cortina, árg. ’79 til sölu, ek. 60
sept. nk. Uppl. f síma 22200. þús. km. Get boðið góð kjör. Uppl.
ísíma 26119.
Sala
Til sölu furusófasett og borð.
Verð kr. 10.000. Uppl. í sima
26711.
Vörubíll til sölu.
MAN 850 árg. ’67 til sölu, með
krana, skóflu og 80 kindafjárkörfu.
Uppl. gefur Jón í síma 95-6258 á
kvöldin.
Nýlegur en ónotaður hefilbekk-
ur til sölu. Stærð 2,3 metrar. Full-
kominn hefilbekkur fyrir verkstæði sem og föndurhorn í bílskúrnum. Uppl. 1 síma 95-6592. Til sölu Yamaha 175 torfæru- þríhjól. Einnig bensínvél úr fram- byggðum Rússajeppa, keyrð ca. 15 þús. km. Uppl. í síma 96-43282. I r r Passa- nyndir Gott úrval nynda-
Til sölu er notað timbur. vacuum fúavarið. Uppl. í síma 26875.
Tölvur iammd
Til sölu Commodore 64 tölva með diskdrifi, litaskjá sem hægt er að tengja við videotæki og ná sjónvarpinu, stýripinni, kennslu- bók á íslensku og ca. 100 forrit. Uppl. í síma21910eftirkl. 18.00. Slmi 9I Glerárg norðun mynd LJÓSHIYN DASTOFA 3-22807 • Pósthólf 464 ótu 20 602 Akureyri
Borgarbíó
Er í skóla, vantar vinnu á kvöldin og um helgar. Vanur að vinna sjálfstætt. Uppl. ( síma 21831 eftir kl. 19.00.
Píanóstillingar
Píanó, flyglar, píanóstólar, cemb- alar, kontrabassar, blokkflautur, píanóstillingar og viðgerðir. ísólfur Pálmarsson, Vesturgötu 17, Reykjavík. Sími 91-11980 og 30257, milli kl. 16 og 19.
Kvikasilfur Þriðjud. kl. 9.00.
Námskeid
Vefnaðarnámskeið. Almennt vefnaðarnámskeið verð- ur haldið í gamla útvarpshúsinu á vegum félagsins Nytjalistar. Skráning og upplýsingar í síma 25774. Þórey Eyþórsdóttir.
Karatemeistarinn The Karate Kid part II. Þriðjud. kl. 6.00. Ath. Myndin Karatemeistarinn verður ekki sýnd á 9 sýningu Miðapantanir og upplýsingar í símsvara 23500. Utanbæjarfólk sími 22600.
Tapað
Hjolkoppar af Subaru týndust sl. laugardag á leiðinni upp úr Eyjafirði ( Laugartell, frá Laugar- felli í Bárðardal. Finnandi vinsam- legast hafi samband við Óskar í síma 24271 eða 21903. Fundar- laun.
Salaaðgangskorta
kl. 14.00-18.00 í Ánni
viö Skipagötu,
sími 24073.
Sími25566
Opið alla virka daga
kl. 14.00-19.00.
2ja herb. íbúðir:
Við Tjarnarlund á 4. hæð og 1.
hæð, - við Hrísalund á 2. hæð,
laus strax.
Tjarnarlundur:
3ja herb. íbúð á 2. hæð i fjöl-
býlishúsi. Laus 15. okt.
Stapasíða:
Mjög fallegt einbýlishús á
eínni hæð ásamt bflskúr.
Dalsgerði:
3ja herb. íbúð á efri hæð í
2ja hæða raðhúsi ca. 80 fm.
Laus eftir samkomulagi.
Einbýlishús:
I Síðuhverfi, við Hólsgerði, við
Lerkilund, við Grænumýri
(mögulegt að taka fbúð f
Reykjavík í skiptum).
Grenilundur:
Parhús á tveimur hæðum
ásamt bflskúr. Efri hæð ófull-
gerð. Til greina kemur að taka
minni eign í skiptum.
Eyrarlandsvegur:
Efri hæð mikið endurnýjuð
120-140 fm. Eignarhluti í risi
og kjallara. Skipti á húseign
með tveimur íbúðum koma til
greina.
Norðurgata:
Efri hæð í tvíbýlishúsi - sér-
inngangur. Ástand gott.
Atvinna:
Þekkt sérverslun með góð við-
skiptasambönd og góðan
lager.
Vantar:
Okkur vantar bokstaflega
allar stærðir og gerðir eigna
á söluskra.
FASTEIGNA& fj
SKIPASALAáfc
NORÐURLANDS (l
Amaro-húsinu 2. hæð.
Sími 25566
Benedikt Olafsson hdl.
Sölustjori, Pétur Josefsson, er á
skrifstofunni virka daga kl. 14-19.
Heimasimi hans er 24485.
Úr bæ og byggð
ATHUBIB
Félagsvist.
Fyrsta spilakvöld Sjálfs-
bjargar á haustinu verð-
ur að Bjargi, fimmtu-
daginn 18. sept. kl. 20.30 stundvís-
lega. Mætið vel og verið með frá
byrjun. Allir velkomnir meðan
húsrúm leyfir. X'erðlaun.
Spilanefnd Sjálfsbjargar.
Móðir okkar,
SIGURBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
Hólabraut 17
lést að heimili sínu, laugardaginn 13. september.
Jón M. Jónsson,
Steindór R. Jónsson,
Magnús A. Jónsson.
íþróttasvæði
á vegum Voitoðans
- í Austur-Húnavatnssýslu
í sumar hefur verið unnið ötul-
lega að gerð íþróttasvæðis á veg-
um ungmennafélagsins Vorboð-
ans í Austur-Húnavatnssýslu.
Ungmennafélagið átti sjötugsaf-
mæli á síðasta ári og í stað þess
að halda stóra kökuveislu, gáfu
ungmennafélagar sér íþrótta-
svæðið í afmælisgjöf. Svæðið er á
Bakkakotsmelum skammt ofan
við Blönduós. Um síðustu helgi
var unnið af kappi við að þekja
nýjan knattspyrnuvöll sem vænt-
anlega verður tilbúinn næsta
sumar. Þetta mun vera fyrsti
grasvöllurinn í Austur-Húna-
vatnssýslu af þeirri stærð sem
K.S.Í. viðurkennir sem löglegan
völl.
Ekki lengur topp-
verð á æðardúni
- Geta bændur aukið dúntekju sína?
Eftír að verð á æðardúni komst
í hámark á síðasta ári hefur
það lækkað nokkuð á þessu
ári. Verðið komst hæst í fyrra í
1250 mörk, en megnið af sölu
síðasta árs var á 1150 mörk af
fjaðratíndum dúni. Verð nú er
um þúsund mörk, en nokkuð
vegur á móti hækkun á þýska
markinu á síðasta ári.
Að sögn Jóhanns Steinssonar
hjá Búvörudeild Sambandsins
sem sér um útflutning á æðardún-
inum hefur dúnninn vaxið nú síð-
ustu árin. Síðasti dúnninn frá því
í fyrra hafi verið að fara og heild-
armagnið verið 1500-1600 kíló á
síðasta ári. Aðalmarkaðurinn er í
Þýskalandi og einnig dálítið í
Japan. Jóhann kvað íslendinga
vera með langstærsta hluta
heimsmarkaðarins, Kanadamenn
og Grænlendingar væru þar með
lítinn hluta. Þegar væri búið að
gera nokkra samninga á sölu
þessa árs og gott útlit með að
dúnninn seldist á núgildandi
verði.
Vigfús Jónsson bóndi á Laxa-
mýri sem er með hvað mestu
dúntekjuna kvað tvö síðustu ár
hafa verið mjög góð. Um hvort
bændur gætu haft drjúgar tekjur
af dúntekju sagði hann svo vera
ef nóg væri af fuglinum. En þetta
væri eitt af því sem krefðist gífur-
legrar vinnu.
„Það er liægt að auka þetta
hérna með því að gera ýmislegt
fyrir varpið, en það er hlutur sem
gerist ekki af sjálfu sér. Annars
hefur æðarstofninn minnkað
mikið hér á landi síðan 1930. Að
hluta til fyrir byggðareyðingu t.d.
á Vestfjarðakjálkanum, í Breiða-
fjarðareyjum og víðar. Því
vörp þrífast hvergi nema þar sem
maðurinn verndar og það er ein-
mitt mesta vinnan að vernda
varpið fyrir vargfuglinum. Þá varð
stofninn fyrir höggi um og eftir
stríðsárin af olíu á sjónum úr
skipum sem sokkið höfðu. Einnig
fer mikið af æðarfugli árlega í
grásleppunetin hér fyrir Norð-
austurlandi. Hér var varpið kom-
ið niður í ekkert eftir ísárin en
með auknum sjávarhita hefur
það komið til aftur og er nú stíg-
andi. Þetta er sveiflukennt eins
og annað í náttúrunni, en eitt af
því sem maðurinn getur stýrt
nokkuð mikið. Og eitt er víst að
lífsskilyrði við landið eru til stað-
ar til að taka við stærri stofni,“
sagði Vigfús á Laxamýri að
lokum. -þá
Greifar
á ferðinni
Hljómsveitin Greifarnir mun á
næstu dögum skemmta Norð-
lendingum og öðrum sem á vilja
hlýða. Á fimmtudagskvöldið
verða þeir með tónleika í Sjallan-
um og síðan með dansleiki í
Freyvangi á föstudagskvöld og
Ljósvetningabúð á laugardags-
kvöld. Að lokum verða þeir svo
með tónleika í Dynheimum kl.
17 á sunnudaginn. Þeir Greifar
lofa hörkustuði á öllum stöðun-
um þar sem þeir munu leika nýtt
og nýrra efni eftir sjálfa sig og
aðra.
Bifreiðaeigendur -
Bifreiðastjórar
Snjóhjólbarðamir eru komnir, nýir og sólaðir í
miklu úrvali.
Jafnvægisstillum öil dekk.
Athugið okkar frábæru aðstöðu.
Opið á laugardögum fyrir hádegi.
hjólbarðaverkstæði
Óseyri 2, sími 23084 og 21400.