Dagur - 16.09.1986, Page 12
7Siodroqa
snyrtivörur
Snyrtivörudeild
Nýtt merki í snyrtivörum • gott og ódýrt'
Fyrstu nemendur öldungadeildar Verkmenntaskóla Akureyrar mættu til skólasetningar klukkan 18 í gær en heimild
til að setja öldungadeild á fót við VMA var gefin út af menntamálaráðherra þann 11. júní s.l. Að sögn Bernharðs
Haraldssonar skólameistara, verða 15 áfangar kenndir í vetur á 1. og 2. ári viðskiptasviðs samkvæmt námsskrá fram-
haldsskóla. Kennarar verða 13 talsins en nemcndur 106. Kennslan fer fram fjóra daga vikunnar frá klukkan 18.10
til 22.35 á kvöldin. Kennslustundirnar verða helmingi færri en í dagskóla og kennsluhraðinn því tvöfaldur. Það er
því eins gott að nemendurnir standi sig við heimanámið! BB. Mynd rþb.
Ungur gangna-
maður
Hjálparsveit skáta á Akureyri
var tvívegis kölluð út á sunnu-
Jdag til aðstoðar og leitar.
í fyrra skiptið var beðið um
aðstoð við að bjarga ungri stúlku
sem hafði lent í sjálfheldu í klett-
um í Skjóldal. Þegar „klifur-
menn“ sveitarinnar komu á vett-
vang hafði tekist að bjarga stúlk-
unni, en þá kom beiðni um að
leitað yrði að ungum pilti sem
verið hafði í göngum í Þverárdal.
týndist
í þá ieit fóru um 20 manns á
vegum Hjálparsveitarinnar auk
fleira fólks og var að skella á
myrkur þegar hjálparsveitar-
menn fundu piltinn uppi á fjalli.
Hafði hann farið upp á fjallið en
ekki treyst sér til þess að fara nið-
ur aftur en hugðist reyna það
innst í dainum. Ekkert amaði að
piltinum en varla mátti tæpara
standa með að finna hann áður
en myrkrið skall á. gk-.
tímar, fólk vildi fara að byggja
aftur ef því yrði gert það kleift.
Hjá Híbýli fengust þær fréttir
að þeir væru ekki, frekar en
aðrir, með íbúðarhúsnæði í smíð-
um hér í bæ. Hins vegar hafa þeir
verið með tilboðsverkefni, m.a. á
Dalvík og nýlega áttu þeir lægsta
tilboð í byggingu húsnæðis fyrir
Sæplast, sem einnig er á Dalvík.
Miðað við árstíma má ástandið
heita mjög gott og töldu þeir að
nýbyggingar kæmust á skrið
næsta vor í kjölfar nýja húsnæðis-
lánakerfisins.
Sigurður Sigurðsson hjá Byggi
sagði ástandið nokkuð óljóst.
Þeir hefðu verið með Síðuskóla
sl. eitt og hálft ár og vonaðist
hann eftir innivinnu þar í vetur.
Þá væru þeir með lóðir fyrir
raðhús, parhús og blokkir við
Hjallalund og hefðu margir
skrifað sig fyrir íbúð nú um helg-
ina, en það er að koma vetur og
óvíst hvort framkvæmdir geti
hafist fyrr en næsta vor. Þá gætu
horfur verið mjög bjartar, ef þeir
lifa veturinn af, en sum sé ástand-
ið er ekki alveg ljóst ennþá. SS
Mokveiði í Eyjafjarðará:
Á undanförnum árum hefur
verið lægð í byggingariðnaði á
Akureyri, en menn hafa gert
sér vonir um það að úr rætist á
næstunni. Meiningin er að
kanna þessi mál nánar hér á
Norðurlandi og höfðum við
fyrst samband við Aðalgeir og
Viðar.
Að sögn Aðalgeirs Finnssonar
stendur fyrirtækið mest í viðgerð-
um og breytingum um þessar
mundir. Það mun þó ekki standa
lengi eins og málum er háttað í
dag. Þeir eru ekki með neitt í
byggingu núna og engar nýbygg-
ingar á döfinni, þannig að hljóðið
var frekar þungt í mönnum. Að-
algeir tók þó undir það viðhorf
að senn gætu komið bjartari
Annar
bíllinn
fundinn
Annar bílanna tveggja sem
stolið var á Akureyri um helg-
ina er enn ófundinn, en hinn
fannst í gær á Akureyri og var
hann óskemmdur.
Ekki er enn vitað hver stal
þeim bíl en unnið er að rannsókn
málsins. Þá er að sjálfsögðu hald-
ið áfram að svipast um eftir bílnum
A-10604 sem er af Lancer gerð,
ljósdrapplitur. Þeir sem geta gef-
ið einhverjar upplýsingar um þá
bifreið sem gætu leitt til lausnar
málsins eru beðnir um að setja
sig í samband við lögregluna.
gk--
Akureyri:
Byggingariðnaður
á tímamótum
183 fiskar á
tveimur dögum
Þeir eru margir íslendingarnir
sem hafa stangveiði að áhuga-
máli. Þeir félagar Jóhann Sig-
tryggsson og Þorbergur Hinr-
iksson hafa í sumar farið
nokkra túra í Eyjafjarðará og
dagana 8. og 9. september bar
sérstaklega vel í veiði svo að
ekki sé meira sagt því þá
veiddu þeir hvorki meira né
minna en 183 fiska á fyrsta
svæði.
Þessi mikli afli var nær allur
bleikja 1V2-5 pund og svo til allt
veitt á maðk. Þorbergur sagði að
sér fyndist veiðin í ánni hafa ver-
ið góð í sumar og fiskurinn stærri
en í fyrra.
Hjá versluninni Eyfjörð sem
selur veiðileyfi í ána fengust þær
upplýsingar að veiði hefði verið
mjög misjöfn í sumar en þokka-
leg þegar á heildina væri litið og
ofarlega í ánni hefðu veiðst
nokkrir laxar. ET
Haustdagar hafa verið fallegir á Akureyri að undanförnu eins og sjá má á
þessari mynd sem RÞB tók af „speglun“ í Pollinum.
Stjórnsýslumiðstöðvar á landsbyggðinni:
Undirbúningur í gangi
„Stjóm Byggðastofnunar hef-
ur unnið af fullum krafti að því
að undirbúa uppsetningu
stjórnsýslumiðstöðva víða um
landið. Engin ákvörðun hefur
hins vegar verið tekin um
hversu margar þær verða,“
sagði Stefán Guðmundsson
stjórnarformaður Byggða-
stofnunar í samtali við Dag.
Stefán sagði að hlutverk slíkra
stjórnsýslumiðstöðva yrði marg-
víslegt en það réðist nokkuð af
því hverjir tækju þátt í að koma
þeim á fót.
„Við höfum verið að ræða við
ráðuneytin um hvort þau vilji
koma inn í þetta og höfum fundið
fyrir áhuga hjá þeim. Við höfum
einnig rætt við aðila frá Húsnæð-
isstofnun, Skipulagi ríkisins og
fleiri stofnunum. Okkar hlutverk
er fyrst og fremst að stilla saman
krafta hinna ýmsu aðila sem
koma til með að taka þátt í
þessu.“
Svo sem mönnum er í fersku
minni felldi meirihluti stjórnar
Byggðastofnunar tillögu þess efn-
is að Byggðastofnun yrði flutt til
Akureyrar, en samþykkti þess í
stað að setja upp stjórnsýslumið-
stöðvar á nokkrum stöðum á
landinu.
„Ég hef haldið því fram að
þetta sé meira mál fyrir lands-
byggðina en ef Byggðastofnun
hefði verið flutt tií Akureyrar.
Þessar stjórnsýslumiðstöðvar
verða dreifðar um allt land og
hafa þannig meira vægi fyrir íbúa
landsbyggðarinnar,“ sagði
Stefán.
Mál þetta verður tekið fyrir á
næsta fundi stjórnar Byggða-
stofnunar, mánudaginn 22. sept-
ember og þá munu línurnar vænt-
anlega skýrast talsvert. BB.