Dagur - 19.09.1986, Side 16
Akureyri, föstudagur 19. september 1986
Nýir réttir á
helgarseðli Smiðjunnar
Sæberg keypti Merkúr
Fyrirtækið Sæberg í Ólafsfirði
hefur keypt togarann Merkúr
af Ríkisábyrgðasjóði og er
kaupverð skipsins 281 milljón
króna og hehningur þess greið-
Menningarsjóður SIS:
Þráinn
fær styrk
í gær var Þráni Karlssyni
leikara frá Akureyri veittur
styrkur úr Menningarsjóði
Sambands íslenskra samvinnu-
félaga og fór veitingin fram á
skrifstofu Sambandsins á
Akureyri.
Anna María Jóhannsdóttir
afhenti Þráni styrkinn sem nemur
75 þúsund krónum. Sagði hún að
stjórn sjóðsins hefði ákveðið að
veita Þráni styrkinn til þess að
hann gæti sinnt list sinn óskiptur
um hríð, en Þráinn vinnur nú að
æfingum á nýju verki sem Böðvar
Guðmundsson hefur samið fyrir
hann. Er þar um að ræða tvo ein-
þáttunga sem nefnast Varnar-
ræða og Gamli maðurinn og
kvenmannsleysið. Er þetta
tveggja tíma verk fyrir einn
leikara. Þessi leiksýning Þráins
sem væntanlega verður frumsýnd
fyrir miðjar. desember er sýnd í
tilefni 30 ára leikafmælis hans.
í lok styrkveitingarinnar stóð
Þráinn upp og þakkaði fyrir sig
og sagði m.a. „Eg er mjög þakk-
látur fyrir að stjórn Menningar-
sjóðs Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga hefur trú á því sem
ég er að gera og veitir mér þenn-
an styrk.“ Síðan las hann stuttan
kafla úr öðru verkinu fyrir við-
stadda.
Þráinn er í leyfi frá Leikfélagi
Akureyrar fram í desember til að
sinna þessu verki sem hann vinn-
ur nú að. gej-
„Lögfræðingar hafa venju
samkvæmt býsna rúmt umboð
til að gæta hagsmuna sinna
skjólstæðinga og til að gera
samninga fyrir þeirra hönd,
þótt þeir komi hvergi nærri
sjálfir,“ sagði Páll Sigurðsson
dósent við lagadeild Háskóla
íslands er hann var spurður
hvað fælist í starfsumboði lög-
fræðings.
Spurningin var lögð fyrir hann
í framhaldi af máli því sem upp
er komið varðandi skaðabóta-
greiðslur eigenda H-100 vegna
slyss sem varð á skemmtistaðnum
ist við útborgun.
Merkúr er um 1000 tonn að
stærð og hét áður Bjarni Bene-
diktsson er skipið var gert út frá
Reykjavík. Nú er skipið í Noregi
Beiðni eigenda matsölustaðar-
ins „Crown chicken“ á Akur-
eyri um Iögbann við hlutafjár-
aukningu í Akri h.f. sem rekur
Sjallann, verður tekin fyrir hjá
bæjarfógetanum á Akureyri
árið 1980. Greiðslurnar voru
tryggðar með skuldabréfum til 5
ára en þau voru gefin út á nafn
lögfræðings þess sem slasaðist,
ekki á nafn þess sem bæturnar
skyldi hljóta. Lögfræðingurinn
seldi síðan skuldabréfin og stakk
andvirðinu í eigin vasa. Málið
virðist nú snúast um það hvort
uppgjörið standist; þ.e. hvort
umboð það, sem lögfræðingurinn
hafði frá skjólstæðingi sínum,
hafi veitt honum heimild til að
taka á móti peningagreiðslum
eða ígildi þeirra, eða hvort hann
hafi einungis haft heimild til að
semja um greiðslurnar.
þar sem veríð er að breyta því í
frystiskip en það mun væntanlegt
til landsins um næstu áramót.
Sæberg átti fjórða hæsta tii-
boðið í skipið á sínum tíma. Þeir
- tekið fyrir í dag
fyrir hádegi í dag.
Um leið verður tekin fyrir
beiðni frá Sigurði Helga Guð-
jónssyni lögfræðingi um fjárnám
í H-100. Sú beiðni er tilkomin
vegna slyss sem varð í H-100 fyrir
6 árum síðan og skaðabóta-
„Þróunin hefur verið sú að
umboð lögfræðinga hafa orðið æ
víðtækari, vegna tímasparnaðar
og annars. Eg tel því ekkert
óeðlilegt þótt þeim sé treyst fyrir
miklum peningum, enda fylgir
það þeirra starfi. Ef þeir hins
vegar eru ekki traustsins verðugir
og stinga peningunum í eigin
vasa - sem betur fer gerist það
ekki nema í algerum undantekn-
ingartilfellum - þá er um stór-
kostlegan glæp að ræða,“ sagði
Páll ennfremur.
Hann sagðist hallast að því að
Lögmannafélagið ætti að greiða
þeim sem slasaðist umsamdar
sem stóðu að tveimur þeirra til-
boða er hærri voru réðu ekki við
skilmála seljenda um helmingsút-
borgun og einn dró tilboð sitt til
baka. gk-.
greiðslna sem aldrei komust í
réttar hendur. Fjárnámsbeiðnin
er lögð fram fyrir hönd Lög-
mannafélags íslands svo og þess
sem lenti í slysinu á sínum tíma,
en frá þessu máli öllu var greint í
Degi í fyrradag. BB.
bætur úr Ábyrgðarsjóði félags-
ins.
„Sá sem stal þessum peningum
var lögfræðingur og gerði þetta á
meðan hann starfaði sem slíkur.
Ég viðurkenni reyndar að mér
finnst dálítið undarlega að upp-
gjörinu staðið en ég held samt að
þessi framgangsmáti við uppgjör
sé ekki óalgengur og að þarna
hafi ekki verið farið langt frá því
sem venjan býður. Það eru engin
lagaákvæði til sem taka á þessu
beinlínis en eins og ég sagði fyrr
er hefðin sú að umboð lögfræð-
ings er mjög víðtækt.“ BB.
Ungur
maður
dmkknaði
Banaslys varð í fyrrinótt á
loðnumiðunum norður af Kol-
beinsey er ungur maður af
loðnubátnum Þórði Jónassyni
féll útbyrðis og drukknaði.
Samkvæmt heimildum Dags
voru skipverjar að undirbúa kast
er atburðurinn átti sér stað. Nán-
ari upplýsingar var ekki að hafa
varðandi málið í gær og ekki er
unnt að birta nafn hins látna að
svo stöddu.
Beiðni Akurs:
Atvinnu-
mála
nefnd
sagði nei
Atvinnumálaneft'd Akureyrar
kom saman til fundar í gær-
n.orgun og ræddi þar m.a.
beiðni Akurs hf. sem er eig-
andi Sjah tns, um að Akureyr-
arbær keypti hlutabréf í fyrir-
tækinu.
Niðurstaða nefndarinnar varð
sú að allir nefndarmenn urðu
sammála um að hafna erindi
fyrirtækisins. Málið fer fyrir fund
bæjarráðs í dag, og er reiknað
með að það verði til endanlegrar
afgreiðslu hjá bæjarstjórn á
þriðjudag. gk-.
Sæbjörg ÓF1:
Vélin
er ónýt
„Þetta stendur eins og við
héldurn. Vélin er ónýt og ljóst
að skipið fer ekki á sjó í bráð,“
sagði Svavar Magnússon hjá
Magnúsi Gamalíelssyni er
hann var spurður um það
óhapp er vélin bilaði í
Sæbjörgu ÓF 1 frá Ólafsfirði.
„Við vorum búnir að sjá þetta
er skipið kom til hafnar, en stað-
festing fékkst eftir að sérfræðing-
ar frá Hollandi og Reykjavík
skoðuðu vélina í gær. Það er
óvíst hvað verður gert, en það er
verið að skoða ýmsa möguleika í
stöðunni í dag. Þetta er mikið
áfall fyrir alla hér í Ólafsfirði því
margir byggja afkomu sína á
þessu skipi,“ sagði Svavar.
Sæbjörgin hefur aflað mjög vel
að undanförnu og verður síðasti
túr skipsins lengi í minnum hafð-
ur er það kom með rækju að
landi sem metin var á 17 milljónir
króna. Svavar sagði að það yrði
tekin ákvörðun í málinu um
helgina. gej-
Anna Bergþórsdóttir, Anna María Jóhannsdóttir, Jónína Pálsdóttir og Ágústa Manúsdóttir ásamt Þráni Karlssyni
við styrkveitinguna í gær. Mynd: -gej
Fjárnám í H-100 og
lögbann á Sjallann
„Samkvæmt hefð er umboð
lögfræðings mjög víðtækt"
- segir Páll Sigurðsson dósent við Lagadeild Háskóla íslands