Dagur - 22.09.1986, Blaðsíða 7
6 - DAGUR - 22. september 1986
22. september 1986 - DAGUR - 7
Knatt-
spymu-
úrslit
Úrslit leikja í 1. og 2. deild
ensku knattspyrnunnar á
laugardag urðu þessi:
1. deild:
Arsenal-Oxford 0:0 x
Aston Villa-Norwich 1:4 2
Charlton-Coventry 1:1 x
Chelsea-Nottm.Forest 2:6 2
Everton-Man.United 3:11
Leicester-Tottenham 1:2 2
Man.City-Q.P.R. 0:0 x
Newcastle-Wimbledon 1:01
Southampt.-Liverpool 2:11
Watford-Sheff.Wed. 0:12
West Ham-Luton 2:01
2. deild:
Bamsley-Plymouth 1:1
Blackburn-C.Palace 0:2
Bradford-Leeds 2:0
Brighton-W.B.A. 2:0
Derby-Millwall 1:1
Huddersf.-Oldham 5:4
Hull-Birmingham 3:21
Ipswich-Sunderland 1:1
Reading-Shrewsbury 3:1
Sheff.United-Grimsby 1:2
Stoke-Portsmouth 1:1
•
Staðan
Staðan í 1. og 2. deild ensku
knattspyrnunnar er þessi:
1. deild
Nottm.Forest 7 5-1-122: 7 16
Everton 7 4-3-013: 615
Norwich 7 4-2-1 15:11 14
Liverpool 7 4-1-2 13: 7 13
West Ham 7 4-1-212:1113
Coventry 7 3-3-1 8: 4 12
Sheff.Wed. 7 3-3-111: 9 12
Wimbledon 7 4-0-3 8: 8 12
Tottenham 7 3-2-2 8: 7 11
Q.P.R. 7 3-2-2 9:10 11
Watford 7 3-1-3 10: 7 10
Southampt. 7 3-0-4 15:1610
Arsenal 7 2-3-2 5: 4 9
Luton 7 2-3-2 7: 7 9
Man.City 7 14-2 5: 5 7
Oxford 7 1-4-2 4: 8 7
Leicester 71-3-3 8:10 6
Chelsea 7 1-3-3 7:13 6
Charlton 7 1-2-4 4:11 5
Newcastle 71-2-4 4:11 5
Man.United 7 1-1-5 9:11 4
Aston Villa 7 1-0-6 6:20 3
•
2. deild
Oldham 7 5-1-1 D: 5 16
C.Palace 7 5-0-2 10: 6 15
Portsmouth 6 3-3-0 7: 2 12
Sheff.U. 7 3-2-2 8: 7 11
Leeds 7 3-1-3 8: 9 10
Hull 7 3-1-3 6: 8 10
Blackburn 5 3-0-2 9: 5 9
Plymouth 5 2-3-0 9: 5 9
Brighton 7 2-3-2 7: 5 9
Ipswich 6 2-3-1 8: 7 9
Birmingham 7 2-3-2 9: 9 9
Derby 5 2-2-1 4: 3 8
Grimsby 5 2-2-1 4: 3 8
Bradford 7 2-2-3 8:10 8
Sunderland 5 2-2-1 6: 8 8
W.B.A. 7 2-2-3 7:10 8
Shrewsburv 6 2-1-3 4: 6 7
Millwall 7 2-1-4 5: 8 7
Huddersf. 6 1-2-3 7:10 5
Stoke 7 1-2-4 5: 9 5
Reading 5 1-1-3 6: 7 4
Barnsley 7 0-1-6 3:11 1
íþróttÍL
Umsjón: Kristján Kristjánsson
„Mannskapurínn verður að
svara því sjálfur hvort
hægt er að gera betur“
- segir Jóhannes Atlason sem ráðinn hefur verið þjálfari Þórs
í knattspyrnu næsta keppnistímabil
Sigurvegararnir í Firmakeppni GA ásamt fulltrúm frá Hellusteypunni og Reyni s/f. F.v. Guðmundur Finnsson,
Hörður Steinbergsson, Tryggvi Gunnarsson, Ingólfur Jónsson og Guðmundur Lárusson.
Firmakeppni GA í golfi:
Hörður sigraði fyrir
Hellusteypuna
Firmakeppni Golfklúbbs
Akureyrar lauk að Jaðri á
laugardaginn. Keppnin hófst
fyrir um mánuði síðan með
undankeppni og þá voru 94
fyrirtæki skráð til leiks. Af
þeim komust 47 fyrirtæki í
úrslitakeppnina sem leikinn
var á laugardag. Leiknar voru
18 holur með forgjöf og var
dregið um það hvaða kylfingur
keppti fyrir hvaða fyrirtæki.
Mjög gott veður var á laugar-
daginn, nema aðeins fór að rigna
í lokin. Úrslitin í keppninni urðu
þessi:
1. Hellusteypan
Hörður Steinbergsson 65 högg
2. Reynirs/f.
Guðmundur Lárusson 67 högg
3. Gullsmiðir Sigtryggur og Pétur.
Guðmundur Finnsson 69 högg
4,- 5. Norðurljós
Pétur Sigurðsson 69 högg
4,- 5. Kótó s/f.
Rögnvaldur Ólafsson 69 högg
Guðmundur Finnsson vann þá
Pétur og Rögnvald í bráðabana í
keppninni um 3. sætið en allir
voru þeir á 69 höggum nettó.
GA þakkar bæði fyrirtækjun-
um og keppendum fyrir þátt-
tökuna.
Þjáifaramót KA:
„Höfum mestan áhuga
fyrir lan Ross“
- segir Stefán Gunnlaugsson formaður
Knattspyrnudeildar KA
Um þessar mundir keppast
menn við að ráða hina og þessa
menn til hinna og þessara liða
sem þjálfara og leikmenn.
Sjaldnast er fótur fyrir því sem
menn segja úti I bæ um þessi
mál. KA hefur ekki farið var-
hluta af umræðunni að undan-
förnu og því snéri Dagur sér til
Stefáns Gunnlaugssonar for-
manns knattspyrnudeildar KA
og spurði hann bæði um þjálf-
arantál og um hvort nýjir leik-
menn væru á leið til KA og þá
hvaða leikmenn.
„Hvað þjálfaramál varðar,
höfum við mikinn áhuga á því að
fá Ian Ross þjálfara Vals, til KA
næsta keppnistímabil. Hann er
hjá Val enn og ef þeir ekki
endurráða hann og hann ætlar
vera áfram á íslandi, tel ég mjög
góðar líkur á því að hann komi til
okkar,“ sagði Stefán.
„Hvað varðar nýja leikmenn,
er það alveg ljóst að við þurfum
meiri breidd í okkar hóp. Og þeir
menn sem ég hef fyrst og fremst
áhuga á í því sambandi eru
gömlu KA-mennirnir. Ég veit
ekki til þess að neinn af þeim
leikmönnum sem voru með KA í
sumar, fari frá félaginu.
Ég er bjartsýnn á að við náum
að styrkja okkar lið fyrir kom-
andi keppnistímabil með nýjum
mönnum,“ sagði Stefán Gunn-
laugsson.
Jóhannes Atlason hefur verið ráð-
inn þjáifari fyrir meistaraflokk Þórs
í knattspyrnu næsta keppnistímabil.
Jóhannes er ekki ókunnugur í her-
búðum Þórs en hann þjálfaði ein-
mitt liðið í fyrra með mjög góðum
árangri, þeim besta sem liðið hefur
náð til þessa, eða 3. sæti. Jóhannes
var hér á ferð um helgina, þar sem
gengið var frá ráðningu hans.
Blaðamaður Dags náði tali af hon-
um og átti við hann stutt spjall.
Hann var fyrst spurður hvernig hon-
um litist á að vera kominn til starfa fyr-
ir Pór á ný.
„Ég er mjög ánægður með það að
vera kominn til starfa hjá félaginu á ný.
Mér hefur alltaf liðið vel norðan heiða
og á ekki von á því að nein breyting
verði þar á.“
- Ertu ekki að taka við sökkvandi
skipi?
„Ég sá liðið ekki leika marga leiki í
sumar en það er ljóst að það kom gat á
skipið og ég mun reyna að gera við það
gat.
Mín skoðun er sú að Þórsliðið hafi
ekki haft neina heppni með sér til þess
að ná í þau 34 stig sem liðið fékk í fyrra
og ef eitthvað var voru þau stig of fá.
Til þess að ná toppárangri, þarf
heppni að fylgja. Sú heppni var ekki
með okkur í fyrra en hún er góð með.
Hlutirnir gengu vel á heimavelli og um
mitt sumar var mér það ljóst að við
myndum ekki tapa leik hér heima.
Með sama mannskap og ég var með
í fyrra, er engin ástæða til annars en
vera bjartsýnn. Toppurinn í 1. deild-
inni í ár var ekkert betri en í fyrra.
Þetta er fyrst og fremst spurning um að
hafa trú á því sem við erum að gera. í
fyrra vantaði þann neista sem þurfti til
þess að fara alla leið.
Þegar haft var samband við mig á
sínum tíma og ég beðinn að þjálfa Þór,
varð ég mjög ánægður, vegna þess að
ég hafði trú á að liðið gæti gert betur,
eins og kom á daginn. En mannskapur-
inn verður síðan að svara því sjálfur
hvort hægt er að gera betur en þá.“
- Voru ekki fleiri félög en Þór á eftir
þér núna?
„Það var búið að hafa samband við mig
frá öðrum félögum en hvaða félög það
voru læt ég ósagt hér.
„Þórsliðið á að geta
verið í fremstu röð“
„Mér Iíst mjög vel á þessa
ráðningu og er virkilega
ánægður með að fá Jóhannes
til starfa fyrir Þór á ný,“ sagði
Nói Björnsson fyrirliði Þórs
er hann var spurður um það
mál. En eins og fram kemur
annars staðar í opnunni hefur
Jóhannes Atlason verið ráð-
inn þjálfari Þórs í knatt-
spyrnu næsta keppnistímabil.
„Ég held að Jóhannes geti
náð góðum árangri með liðið,
eins og hann sýndi f fyrra. En
það er ekki nóg að.fá Jóhannes
til starfa, leikmenn þurfa að
breyta hugsunarhætti sínum
og koma mun jákvæðari til leiks
fyrir komandi keppnistfmabil
en gert var í ár,“ sagði Nói.
- Nú var gengi liðsins frekar
dapurt í sumar, hverja telurþú
vera ástæðuna fyrir því?
„Það voru margir þættir sein
spiluðu þar inn í. En ég tel að
stærsta atriðið þar hafi verið
það að leikmenn voru ekki til-
búnir að leggja það af mörkum
sem til þurfti, til þess að betri
árangur næðist.“
- Þarf ekki nýja leikmenn til
þess að betri árangur náist?
„Ég er á móti því að við séum
að sækja menn hingað og
þangað. En ef einhverjir hafa
áhuga á því að koma til félags-
ins, eru þeir velkomnir.
Ég á von á því að allur sá
mannskapur sem æfði með lið-
inu í sumar, verði áfram og
meira að segja Sigurbjörn
„gamli“ Viðarsson Iíka. Einnig
eigum við unga stráka sem bæt-
ast í hópinn. Og ég held að í
Þórsliðinu séu nógu margir góð-
ir leikmenn til þess að liðið sé á
toppnum í íslenskri knatt-
spyrnu," sagði Nói Björnsson
að lokum.
i það gat.“
Mynd: KK
Sumarið í fyrra, var eitt það ánægju-
legasta tímabil sem ég hef átt og ég
vona svo sannarlega að við getum
endurtekið það næsta sumar."
- En að lokum Jóhannes, hvernig
líst þér á að fá bæði KA og Völsung í 1.
deild?
„Ég gleðst mjög yfir því að Norður-
landið sé komið inn á landakortið fyrir
alvöru og óska bæði KA og Völsungi
alls hins besta. Það hefur þó sýnt sig að
lið sem koma upp úr 2. deild og leika í
þeirri 1. með óbreyttan mannskap,
lenda í neðri kantinum. Ég er þó ekki
að spá þessum liðum falli.
Völsungar eru þekktir baráttujaxlar
sem gefa lítið eftir og KA-menn sýndu
það í bikarnum í fyrra að þeir eru til
alls líklegir.
Leikir þessara liða næsta sumar,
verða án efa fjörugir og það verður
hart barist jafnt á vellinum sem og
áhorfendapöllunum. Þá er ljóst að
þessir leikir verða ekki auðdæmdir,“
sagði Jóhannes Atlason.
Eggert Tryggvason skorar eitt marka sinna gegn Þór í gær.
Mvndir: KK
Handbolti:
KA sigraöi Þór
KA sigraði Þór með 22 mörk-
um gegn 18 er liðin mættust í
Feðginin Amór og
Halldóra sigmðu
- í parakeppni GA í golfi sem fram fór í gær
Parakeppni GA í golfí fór fram að
Jaðri í gær. Leiknar voru 9 holur
með forgjöf. Keppnisfyrirkomulag
var þannig að annar keppandin sló
brautarhögg en hinn aðilinn sá um
púttið. Keppnin var geysilega jöfn
og skemmtileg og alls mættu 19 pör
til leiks að þessu sinni.
Af loknum 9 holum voru tvö pör
jöfn, með 18 högg nettó. Það voru þau
Arnór Þorgeirsson og Halldóra dóttir
hans annars vegar og þau Konráð
Gunnarsson og Indíana Asmundsdótt-
ir hins vegar. Þau þurftu því í bráða-
bana til þess að ná fram úrslitum.
í bráðabananum höfðu þau feðginin
Arnór og Halldóra betur og sigruðu.
Konráð og Indíana höfnuðu í öðru sæti
en í þriðja sæti urðu þau Rögnvaldur
B. Ólafsson og María Steinmarsdóttir
á 19 höggum nettó.
Þá voru veitt verðlaun þeim er not-
aði fæst púttin. Þau verðlaun nældi
Smári Garðarsson í en hann spilaði
með Jónínu Pálsdóttur og var sagt að
Arnór slær upphafshöggið í bráðabanan-
um.
Halldóra púttar sigurpúttinu ofan í af
miklu Öryggi. Myndir: KK
hún hefði ávallt lagt boltann í
dauðafæri fyrir Smára.
Senn líður að lokum golfver-
tíðar en síðasta mót sumarsins
hjá GA er Bændaglíman sem
fram fer þann 4. október næst-
komandi.
Erlendur Hermannsson:
„Verðum
í topp-
baráttunni“
„Þetta var allt í lagi. Strákarnir
eru búnir að æfa saman í stutt-
an tíma og margir þeirra að
koma úr fótboltanum. Það
voru margir jákvæðir punktar í
þessum leik,“ sagði Erlendur
Hermannsson þjálfari Þórs í
handbolta eftir leikinn við KA
í gær.
Ertu bjartsýnn á gott gengi
Þórs í 2. deildinni í vetur?
„Deildin verður mjög erfið og í
henni eru mörg góð lið, eins og
ÍBV, HK, ÍR, Afturelding og
ÍBK. Með þann mannskap sem
ég hef er ég ekki í vafa um að við
getum blandað okkur í toppbar-
áttuna. En það kemur í ljós í vet-
ur hvernig til tekst,“ sagði Erl-
endur.
æfíngaleik í handbolta i Höll-
inni í gær. Leikurinn sem átti
að hefjast kl. 14 hófst ekki fyrr
en 14.30 þar sem gleymdist að
boða dómara á leikinn. Bene-
dikt Guðmundsson formaður
Þórs, sem mættur var sem
áhorfandi, hljóp í skarðið og
dæmdi leikinn einn og gerði
það af stakri prýði.
Nokkur fjöldi áhorfenda var
mættur í Höllina og var selt inn á
leikinn. Áhorfendurnir voru
langt frá þvf að vera ánægðir með
það hversu seint leikurinn hófst
og gengu margir þeirra út. En
engu að síður hófst leikurinn um
síðir og lauk eins og áður sagði
með sigri KA.
KA komst í 2:0 í byrjun en
Þórsarar jöfnuðu 2:2 skömmu
síðar. Síðan komust Þórsarar yfir
5:4 og var það í eina skiptið sem
liðið var yfir í leiknum. KA jafn-
aði 5:5 og komst aftur yfir 8:6.
Þór jafnaði 8:8 en því svöruðu
KA-menn með þremur mörkum í
röð og breyttu stöðunni í 11:8.
Þórsarar áttu síðasta orðið í fyrri
hálfleik og náðu að skora tvö
mörk fyrir hlé og staðan því
11:10 í hálfleik.
í síðari hálfleik náði KA fljót-
lega þriggja marka forystu 15:12
og um miðjan hálfleik var enn
þriggja marka munur 16:13. Sá
munur hélst þar til í lokin en þá
Ómar
til Þórs
Ómar Guðmundsson er lék í
marki KS í sumar í 2. deildinni
í knattspyrnu hefur ákveðið að
ganga til liðs við Þór á ný.
Ómar lék með Þór í fyrra er
Jóhannes Atlason þjálfaði liðið
en þeir eru nú báðir komnir
aftur.
Ómar er fluttur til Akureyrar
og mun stunda kennslu við Gler-
árskólann í vetur. Fyrir utan við
árið í fyrra hefur Ómar leikið
undanfarin ár með liði KS á
Siglufirði.
náði KA að auka muninn í fjögur
mörk og úrslitin 22:18.
Þórsliðið átti ágætan leik en
þetta var fyrsti leikur liðsins á
þessu tímabili. Sigurður Pálsson
var atkvæðamestur Þórsara að
þessu sinni, skoraði hann 8 mörk
og þar af nokkur úr vítum.
KA liðið var ekki mjög sann-
færandi í þessum leik en leikur
liðsins lagaðist er á leið.
Atkvæðamestur KA-manna var
Jón Kristjánsson sem skoraði 6
mörk og þar af nokkur úr vítum.
Brynjar Kvaran:
„Erfiðir
leikir í
byrjun“
„Þetta var lélegur leikur af
okkar hálfu en þó rættist úr
honum í lokin,“ sagði Brynjar
Kvaran þjálfari KA í hand-
bolta eftir leikinn við Þór í
gær. „Það að leikurinn tafðist
vegna dómarahallæris hafði sín
áhrif í byrjun, menn kólnuðu
niður eftir að hafa verið búnir
að hita upp. En sigur er alltaf
sigur.“
- Hvernig leggst veturinn í
Þig?
„Við náum ekki að koma eins
vel undirbúnir til leiks og hin lið-
in í deildinni. Þau eru öll að leika
innbyrðis um þessar mundir í
æfingamótum fyrir sunnan. Við
komum þó alls ekki illa undir-
búnir til leiks. Við förum til
Eyja um næstu helgi í keppnis-
ferð og vonandi tekst sú ferð vel.
Fyrstu leikir KA í deildinni í ár
eru ekki þeir auðveldustu. Við
leikum fyrst tvo erfiða útileiki,
við Fram og FH og síðan fáunt
við KR-inga heim í fyrsta heima-
leik okkar. Allt eru þetta mjög
erfiðir leikir og KR-ingar virðast
mjög sterkir um þessar mundir,“
sagði Brynjar Kvaran.