Dagur - 23.09.1986, Page 12

Dagur - 23.09.1986, Page 12
DA6UR Akureyri, þriðjudagur 23. september 1986 SANS SOUCIS snyrtivörur BADEN-BADEN • PARIS SlMI (96) 21400 Snyrtivörudeild Sæplast á Dalvík: Tvöföldun á framleiðslu - milli ára • Sala til Kanada og USA fyrir 8 milij. króna „Það lítur út fyrir tvöföldun á framleiðslu milli áranna 1985 og ’86 og erum við að sjálf- Fékk troll í skrúfuna Rækjuveiðibátur frá Húsavík fékk trollið í skrúfuna og var dreginn til heimahafnar á mánudag. Er Björg Jónsdóttir ÞH 321 var að rækjuveiðum við Grímsey skömmu eftir miðnætti aðfara- nótt mánudags, festist trollið í skrúfu skipsins. Skipverjum tókst ekki að losa trollið úr skrúfunni og 6 tímum síðar kom Votaberg SU 14 og dró skipið til Húsavík- ur. Pangað var komið um hádegi á mánudag og skar kafari trollið frá skrúfunni. Björg Jónsdóttir var búin að vera á veiðum síðan á laugardag og hafði fengið 1300 kíló af rækju. IM Ólafsfjörður og Dalvík: Akureyr- ingar malbika Um þessar mundir er verið að malbika götur í Ólafsfirði. Hafa Ólafsfirðingar malbikað götur bæjarins í áföngum og er nú verið að malbika Hlíðar- veg. Einnig á að malbika göngu- stíga um kirkjugarðinn, auk þess sem heimkeyrslur og bílastæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki eru á verkefnalistanum. Ólafsfirðingar hafa keypt mal- bik frá Akureyri undanfarin ár og er eins í þetta sinn. Það er því vinnuflokkur frá Akureyrarbæ sem leggur malbikið á götur Ólafsfjarðar. Heimamenn hafa séð um allan undirbúning verksins. Frá Ólafsfirði fer vinnuflokk- urinn til Dalvíkur og vinnur þar við lagningu malbiks hjá nokkr- um fyrirtækjum og einstakling- um. Er það nokkuð mikið verk- efni. Engar malbikunarfram- kvæmdir verða á vegum Dalvík- urbæjar að þessu sinni, enda komið malbik á flestar helstu göt- ur bæjarins. gej- sögðu ánægðir með það,“ sagði Pétur Reimarsson fram- kvæmdastjóri Sæplasts h/f á Dalvík. Mest af því sem flutt hefur ver- ið út af framleiðslunni hefur farið til Færeyja. Fó hefur átak í mark- aðsöflun í Kanada og Bandaríkj- unum borið góðan árangur. „Við gætum farið illa út úr slíkum við- skiptum eins og frystihúsin, þar sem staða dollarans er ekki góð,“ sagði Pétur. Hann sagði að aðal markaðssvæði væru í Nova Scot- ia, Halifax og þar í kring. Útflutningur til þessara svæða í Kanada og Bandaríkjunum var enginn í fyrra, en verður nú fyrir u.þ.b. 200 þúsund dollara, eða um 8 milljónir króna og sagði Pétur að það væri góður árangur á ekki lengri tíma. Aðal keppi- nautar Sæplasts á mörkuðum í Færeyjum eru norskir sem eru að framleiða svipaða vöru, en í Kan- ada og Bandaríkjunum eru það 2 þarlend fyrirtæki sem keppa við Sæplast. „Ég held að okkar framleiðsla líki það vel að við þurfum ekki að hræðast markaðinn," sagði Pétur. gej- Mjög haröur árekstur varð í Skagafirði í fyrradag. Þar var ekið aftan á nýja bifreið af Lancer-gerð og er hún talin ónýt. Meiðsli urðu ekki á mönnum. Mynd: Páii Innréttingaframleiðsla á Akureyri: Nóg að gera og mikil bjartsýni ríkjandi Það kom fram um daginn að senn gæti hafist nýtt uppgangs- skeið í byggingariðnaði hér í Það er margt að skoða í hinum stóra heimi. Mynd: RÞB bæ. Fólk er almennt bjartsýnt í kjölfar nýju húsnæðislánanna. Væntanlega haldast í hendur auknar byggingaframkvæmdir og aukin innréttingafram- leiðsla, en hvernig er ástandið í dag hjá þeim fyrirtækjum sem sjá um tréverk og innréttingar? Hjá Berki er framleiðsla á hurðum og gluggum í fullum gangi. Þeir setja vöruna á mark- að í Reykjavík, Keflavík og hér á Norðurlandi. Börkur er með verslun í Reykjavík, sem þeir eiga 40% eignaraðild að. Um 50% framleiðslunnar fer suður, hitt er selt hér í byggðarlaginu þó hlutfallslega minnst á Akureyri, en eftirspurn ætti að aukast með vorinu. Én það er nóg að gera hjá Berki, að sögn viðmælanda blaðsins. „Hér er brjálað að gera,“ sagði starfsmaður hjá Þór í samtali við blaðið. Þeir eru eiginlega með allar innréttingar og tréverk nema bílskúrs- og útihurðir. Þeir gera gjarnan tilboð í heilu húsin, bjóða allar innréttingar. Stærstur hluti framleiðslunnar fer út á land, mest til Reykjavíkur. Þeir eru með lítið á lager, þetta er aðallega sérsmíði. Þó hefur bað- innréttingum frá Þór verið stillt upp í Húsasmiðjunni í Reykja- vík, einni búð á ísafirði og hjá Bynor á Akureyri. Næst var ástandið kannað hjá trésmiðjunni Vinkli sem er með TV innréttingar. Þeir eru með eldhús- og baðinnréttingar, fata- skápa og ýmislegt fleira. Þar er búið að vera geysilega mikið að gera frá því fyrirtækið tók til starfa. Þeir selja nánast út um allt land og er í bígerð að fá verslanir í Reykjavík og Keflavík til að sjá um dreifingu að einhverju leyti. Erlingur Þorsteinsson sagði að vissulega væri reytingssala í bænum, en salan að mestu dreifð um landið. Fyrirtækið ráðgerir að flytja í annað húsnæði í janúar og jafnvel að auka framleiðsluna og bæta við mönnum. SS Sigurbjörg ÚF 1: Vélaskipti undirbúin - Verkið boðið út „Það er á hreinu að það verður sett ný vél í skipið og erum við byrjaðir að rífa þá ónýtu úr,“ sagði Svavar Magnússon hjá Magnúsi Gamalíelssyni í Ólafs- firði er hann var spurður um viðgerðina á Sigurbjörgu ÓF 1. Nú liggur skipið vélarvana við bryggju eftir að hlutar úr vélinni brotnuðu er skipið var á veiðum fyrir stuttu. Svavar sagði að það tæki langan tíma að skoða þessi mál. „Það þarf að ákveða hvernig vél verður sett í skipið og panta hana. Síðan þarf að bjóða út verkið. Það er líklegt að þurfi að skipta um gíra og fleira í tengsl- um við þetta, svo það þarf að hyggja að mörgu áður en útboðið verður unnið,“ sagði Svavar. Þau mistök urðu er sagt var frá þessu óhappi í blaðinu á föstu- daginn að Sigurbjörg ÓF 1 var nefnd Sæbjörg. Éru hlutaðeig- andi beðnir velvirðingar á þess- um mistökum. gej-

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.