Dagur - 24.09.1986, Qupperneq 3
24. september 1986 - DAGUR - 3
Norðurland:
Töhmtæki s.f.,
umboðsaðili SFI
Á mánudag gaf Lionsklúbburínn Huginn Lyflækningadeild mjög myndarlega gjöf. Þar er um að ræða sveigjanlegan
berkjuspegil, sem er tæki til greiningar á lungnasjúkdómum. Aður var um að ræða stíft tæki og þurfti að svæfa
sjúklingana fyrir rannsókn. Nú nægir deyfing og gerir tækið því rannsóknina auðveldari fyrir báða aðila. Auk þess
þarf ekki að senda sjúklinga til Reykjavíkur í sama mæli, svo fleiri kostir séu nefndir og ríkir því mikil ánægja yflr
þessari höfðinglegu gjöf. SS
Slátrun hjá KS:
Ekkert vandræðaástand
- rru ið af kjöti í 0-flokkinn
Féiagar Stjórnunarfélags
íslands, búsettir á Norðurlandi
eru margir. Þeir hafa langoft-
ast orðið að sækja námskeið
félagsins suður til Reykjavík-
ur. Þessi ferðalög eru tímafrek
og viðkomandi þarf að hverfa
frá vinnu allan daginn yfír
námskeiðstímann, jafnvel þó
námskeiðin sjálf séu ekki
kennd nema hálfan daginn í
einu.
Til að bæta úr þessari óhagræð-
ingu hefur Stjórnunarfélag
íslands samið við Tölvutæki s.f. á
Akureyri um að starfa sem
umboðsaðilar fyrir SFÍ á
Leiðrétting
í gær var sagt frá uppboði á
lögreglustöðinni þar sem
boðnir voru upp ýmsir óskila-
munir. Meðal annars var boðið
upp gamalt dekk af heyvagni
eða einhverju slíku og gall þá
við í mönnum að þetta væri nú
undan einhverjum lögreglu-
bflnum. Þetta skens var auð-
vitað hin mesta fjarstæða en
eitthvað hefur það setið í
blaðamanni því í myndatexta
er sagt að þetta sé dekk af lög-
reglubfl.
Fólk brást að vonum il!a við og
spurði hvað þetta ætti að þýða að
selja eigur ríkisins á uppboði sem
þessu. En um slíkt var alls ekki
að ræða og vil ég leiðrétta þann
misskilning hér með. SS
Norðurlandi.
Starfsmenn Tölvutækja s.f.
eru: Unnar Þór Lárusson, Jón
Magnússon og Jón Ellert Lárus-
son. Aðsetur fyrirtækisins er að
Gránufélagsgötu 4 í síma 96-
26155.
Tölvutæki s.f. mun sjá um
skráningu þátttakenda og allan
ytri aðbúnað á námskeiðum
félagsins á Akureyri, sem verður
fyllilega sambærilegur við aðbún-
að á öllum öðrum námskeiðum
félagsins í Reykjavík.
Leiðbeinendur verða þeir
sömu og í Reykjavík og einnig
verða námsgögn þau sömu og þar
eru notuð.
Námskeiðin verða haldin á
Akureyri og standa yfir allan
daginn, þannig að 16 klst. nám-
skeið, sem venjulega tekur fjóra
hálfa daga í Reykjavík verður
kennt á tveimur dögum.
Fyrsta námskeiðið sem Tölvu-
tæki s.f. munu sjá um á Akureyri
verður eitt vinsælasta námskeið
sem Stjórnunarfélag íslands hef-
ur gengist fyrir. Dagana 10. og
11. október mun Anne Bóge-
lund-Jensen leiðbeina á Time
Manager námskeiði, en nú þegar
hafa 1700 íslendingar setið það
námskeið.
Með þessu ánægjulega upphafi
námskeiðahalds á Akureyri býð-
ur Stjórnunarfélag íslands starfs-
menn Tölvutækja s.f. velkomna
til starfa og væntir þess að félagar
SFÍ norðan heiða taki upp öflugt
samstarf við þá.
„Þetta gengur vel í augnablik-
inu. Það er ekkert vandræða-
ástand lengur. Það hefur verið
að bætast við fólk undanfarna
daga og er alveg að hafast í
fullan mannaila,“ sagði Sigur-
jón Gestsson sláturhússtjóri
hjá KS á Sauðárkróki þegar
hann var spurður að því hvern-
ig slátrun gengi, en hátt í 30
manns vantaði í húsið fyrstu
dagana og olli það miklum erf-
iðleikum við slátrunina.
Sigurjón sagði að slátrað væri
2200 kindum á dag, sem væri
venjulegur fjöldi. Fjallalömbin
virtust vera heldur vænni nú en í
fyrra, meðalvigtin eftir fyrstu
þrjá dagana hefði verið 14,95 kg,
sem væri ívið meira en í fyrra.
Aðspurður sagði hann mikið fara
í O-flokkinn, sem er verðskertur
vegna fitumagns. Eftir fyrstu þrjá
dagana hefði 19,76% af kjöt-
magni farið í O-flokk og 17% af
stykkjafjölda. -þá/SS
íslenska óperan:
IIT rovatore
á Blönduósi
Síðastliðinn sunnudag var
óperan II Trovatore sýnd í fé-
lagsheimilinu á Blönduósi við
mjög góðar undirtektir áheyr-
enda, sem voru fjölmargir og
sumir um langan veg komnir.
Þetta var eina sýningin á verk-
inu á Norðurlandi, en það var
Tónlistarfélag Austur-Hún-
vctninga sem hafði veg og
vanda af komu listafólksins
norður.
Alls munu um 50 manns hafa
verið í hópnum sem kom norður
í tengslum við flutning verksins.
Mikið lof hefur verið borið á
listafólkið fyrir flutning þess á
verkinu enda var auðséð í lok
sýningarinnar að áheyrendur
kunnu vel að meta þetta ágæta
verk og flutning listafólksins á
því. Áheyrendur komu víða af
Norðurlandi og má því ljóst vera
að tónlistarunnendur norðan-
lands láta ekki langar vegalengdir
standa fyrir sér í því að fá notið
einhvers af því sem Reykvíking-
um og nágrönnum þeirra stendur
til boða á listasviðinu. Það kom
fram í viðtali við einn söngvarann
að lokinni sýningu að hann taldi
félagsheimilið á Blönduósi sér-
lega vel til þess fallið að halda
slíkar sýningar sem þessa. Það er
því von þeirra sem hafa gaman af
hvers konar listum að flutningur
óperunnar hér í félagsheimilinu
sé aðeins upphafið að því sem
vænta má á þessu sviði. G.Kr.
Húsavík:
Almennur
fundur
- vegna Landsmóts
UMFf
Héraðssamband Þingeyinga
heldur á fimmtudagskvöld
almennan borgarafund í Fé-
lagsheimili Húsavikur, og er
hann ætlaður Húsvíkingum og
nærsveitafólki.
Fundurinn er haldinn í tilefni
þess að á næsta ári verður Lands-
mót Ungmennafélágs íslands
haldið á Húsavík. Á fundinum
verður fjallað um möguleika sem
skapast við þetta mótshald og
þýðingu þess fyrir Þingeyinga.
Ræðumenn verða m.a. frá HSÞ
og Ferðamálafélagi Húsavíkur.
Á fundinum verður „víkingurinn“
kynntur, en hann er tákn mótsins
á næsta ári.
Fundurinn verður sem fyrr seg-
ir í Félagsheimiii Húsavíkur og
hefst hann kl. 20.30. IM
Landssamband kúabænda:
Varað við nýjum búmörkum
- valda gengislækkun á þeim sem fyrir eru
Á þriðja fundi stjórnar Lands-
sambands kúabænda var
ákveðið að senda Framleiðslu-
ráði og búnaðarsamböndum
bréf í tilefni af nýútkominni
reglugerð um búmark og full-
virðisrétt til mjólkurfram-
leiðslu verðlagsárið 1986/1987.
í reglugerðinni eru ákvæði sem
heimila Framleiðsluráði land-
búnaðarins að veita ný búmörk
og stækka búmörk á lögbýlum
séu ákveðnar forsendur fyrir
hendi.
Stjórn L.K. varar í bréfinu við
þessari heimild þár sem hún komi
til með að auka framleiðslukostn-
að og þannig leiða til hækkaðs
verðlags eða lakari afkomu
bænda.
Oddur Gunnarsson varafor-
maður L.K. sagðist telja að yfir-
leitt væru búnaðarsambönd á
sömu skoðun og benti á að á
aðalfundi Stéttarsambands
bænda hefði verið samþykkt að
engin ný búmörk skyldu veitt á
næstu árum. „Það má segja að
þeir hafi laumað þessu inn í
reglugerðina aftur einhverra
hluta vegna.
Hvert nýtt búmark sem bætist
við þýðir í rauninni gengislækkun
á þeim sem fyrir eru. Það eru
heimildir fyrir því að kalla inn
búmörk ef ekki er framleitt út á
þau og við teljum að þegar það sé
gert eigi ekki að úthluta þeim
aftur. Með því móti er þeim
möguleika haldið opnum að þeir
sem hafa þurft að minnka við sig
geti stækkað aftur ef ástandið
batnar. ET
Til sölu eða leigu
150 fm iðnaðar- og/eða verslunarhúsnæði. Uppl.
símum 21744 á daginn og 24300 eftir kl. 18.00.
íbúðir
aldraðra
Félag aldraðra heldur fund um íbúðamálin í
húsi sínu laugardaginn 27. september og hefst
hann kl. 2 e.h. Framsögumaður verður Stefán
Reykjalín.
Einnig verður rætt um vetrarstarf félagsins og
skemmtiatriða notið. Sameiginleg kaffidrykkja.
Stjórnin.
FUNDARBOÐ
Iðntæknistofnun íslands og Iðnþrounarfelag
Eyjafjarðar hf. bjóða til opins fundar í Alþyöu-
húsinu, Skipagötu 14, Akureyri, miðvikudag-
inn 24. sept. kl. 17-19.
Á fundinum verður starfsemi iðntæknistofnun-
ar kynnt, auk þess sem erindi verða haldin um
stöðu og horfur í iðnaði.
Fundurinn er öllum opinn en sérstaklega er
bent á að hér er kjörið tækifæri fyrir iðn-
rekendur að kynna sér þá þjónustu sem iðn-
tæknistofnun hefur upp á að bjóða.
IÐNÞRÓUNARFÉLAG
EYJAFJARÐAR HF.
Glerárgötu 30, 600 Akureyri, sími 96-26200.