Dagur - 20.10.1986, Blaðsíða 11
20. október 1986 - DAGUR - 11
Geysiskonur stóðu fyrir kaffisölu í Lóni, húsi Karlakórsins Geysis, sl. sunnu-
dag. Þarna var boðið upp á dýrindis meðlæti með kaffínu, enda fjölmenntu
gestir á staðinn. Konurnar munu endurtaka þetta nokkrum sinnum í vetur,
en ágóði rennur til styrktar karlakórnum. Mynd: ehb
Kanarí/Madeira-
klúbburinn
Sérrit Siglingamála-
stofnunar ríkisins:
Björgun úr
köldum sjó
Siglingamálastofnun ríkisins
og Oryggismálanefnd sjó-
manna standa að útgáfu bækl-
ings sem nefnist Björgun úr
köldum sjó. Með þessum
bæklingi er ætlað að reyna að
fækka slysum vegna drukkn-
unar með því að brýna fyrir
sjómönnum, og öðrum, rétt
viðbrögð í sjávarháska.
Á tímabilinu 1974-1983
drukknuðu hér við land 128
manns. Rannsóknir erlendis sýna
að ofkæling (hypothermia) er
helsta dánarorsök þeirra sem tal-
ið er að hafi drukknað. í bækl-
ingnum kemur fram hvernig
menn geti lengt þann tíma sem
þeir geti lifað í köldum sjónum
með réttum viðbrögðum. Þá er
skýrt ítarlega frá áhrifum kulda á
líkamann, og meðhöndlun
manna sem náðst hafa úr sjó en
orðið fyrir ofkælingu, og að lok-
um er fjallað um kuldaáverka og
helstu einkenni.
Bæklingnum verður dreift án
endurgjalds í öll íslensk skip og
verða eigendur þeirra beðnir um
að koma þeim um borð í skip sín
á næstu dögum. Einnig verður
bæklingnum dreift til félagasam-
taka er tengjast málefni þessu
með einum eða öðrum hætti, svo
sem björgunarsveita, siglinga-
klúbba og veiðifélaga.
Öryggismálanefnd sjómanna
hefur séð um fjármögnun á
útgáfu þessa bæklings, og hafa
fjölmörg fyrirtæki og einstakling-
ar styrkt málefnið. SS
(Úr fréttabréfi).
Nýverið hófst vetrarstarf Kanarí/
Madeira klúbbsins, sem telja má
einn stærsta ferðaklúbb landsins.
Undanfarin ár hafa hinar sívin-
sælu Kanaríeyjar verið aðal-
áfangastaður klúbbsins og nú í
vetur verða í fyrsta skipti skipu-
lagðar ferðir til eyjunnar fögru
Madeira. Af því tilefni hefur
Kanarí/Madeira klúbburinn gefið
út glæsilegt kynningarrit þar sem
þessir áfangastaðir eru rækilega
kynntir. Ritið var samið og hann-
að hjá Ólafi Stephensen - auglýs-
ingar og almenningstengsl - und-
ir umsjón Sigríðar Bragadóttur.
Útlit og hönnun var í höndum
þeirra Erlings Páls Ingvarssonar
og Friðriks Erlingssonar. Korpus
sá um litgreiningu en Svansprent
prentaði.
Kynningarrit Kanarí/Madeira
klúbbsins fæst ókeypis hjá sölu-
skrifstofum Flugleiða, ferðaskrif-
stofunni Úrval, Útsýn, Sam-
vinnuferðum-Landsýn, umboðs-
mönnum þeirra og ferðaskrifstof-
um um land allt.
Þar sem ég er hættur störfum hjá
AKO pokanum
vil ég þakka öllum þeim mörgu og traustu við-
skiptamönnum um land allt sem hafa skipt við
mig sl. 15 ár.
Ég er fús til ráðgjafa eins og fyrr.
Friðrik Agústsson FLEXO-prentari
sími 26909.
Framkvæmdastjóri
Framkvæmdastjóra vantar strax við fiskvinnslu
og útgerð á Norðvesturlandi.
Upplýsingar í síma 95-6440 eða 95-6380. Helg-
arsími 95-6389.
Starfsfólk
Viljum ráða starfsfólk til afgreiðslustarfa sem
fyrst. Hafið samband við eiganda, ekki í síma.
Verslunin Garðshorn,
Byggðavegi 114, Akureyri.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarforstjóra vantar að dvalar- og sjúkra-
deild Hornbrekku, Ólafsfirði frá 1. nóvember.
Umsóknarfrestur til 20. september.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 96-
62480.
ALGJÖR SÉRSTAÐA
í HÚSBYGGINGUMÁNORÐURIANDI
Þessi fjölbýlishús verða byggð við Hjallalund Akureyri
Fyrstu 22 íbúðirnar verða afhentar 1. desember 1987.
Helstu nýjungar eru:
• HÚSyARPABÍBÚB
• BÍLAGEYMSLA í kjallara, eitt bílastæði á hverja íbúð
• LYFTUR verða úr bílageymslu upp á hæðirnar.
Komið og kynnið ykkur verð og teikningar á skrifstofu okkar
Sunnuhlíð 10, alla virka daga milli kl. 13 og 17, sími 26277.
Eða hringið í síma 26172 (vinna), 24719 (Sigurður-heima),
23956 (Heimir, heima).
byggir sf
byggir sf.
byggir sf.
I