Dagur - 28.11.1986, Side 11
28. nóvember 1986 - DAGUR - 11
íslenski dans-
flokkurinn norður
í kvöld og annað kvöld gefst
leikhúsgestum á Akureyri í
fyrsta skipti síðan 1973 tæki-
færi til að sjá íslenska dans-
flokkinn flytja list sína í Sam-
komuhúsinu. Dansflokkurinn
heldur frá Reykjavík til Akur-
eyrar með úrvals dagskrá, tvo
vinsæla balletta frá síðasta ári,
Fjarlægðir og Tvístígandi
sinnaskipti eftir Ed Wubbe og
hinn heita og ástríðufulla dans
Duende eftir Hlíf Svavarsdótt-
ur, sem frumsýndur var í Þjóð-
leikhúsinu um síðustu helgi
ásamt tveimur öðrum.
í Duende túlka tvö pör, Guð-
munda Jóhannesdóttir, Katrín
Hall, Örn Guðmundsson og Patr-
ick Dadey ást og ofbeldi sem
spænska skáldið Lorca fjallaði
um í ljóðum sínum og leikritum
við tónlist eftir George Crumb.
Ballettarnir Fjarlægðir og
Tvístígandi sinnaskipti eftir Ed
Wubbe eru hlutar af danssýning-
unni Stöðugir ferðalangar sem
flutt var við miklar vinsældir í
Þjóðleikhúsinu sl. vor og í Kaup-
mannahöfn á alþjóðlegri leiklist-
arhátíð í októberlok. Sú sýning
hlaut einróma lof gagnrýnenda
jafnt heima sem erlendis. „Glæsi-
legur og frumlegur dans,“ sögðu
danskir gagnrýnendur, „listvið-
burður ársins“ og „stórsigur
íslenska dansflokksins,“ sögðu
íslenskir starfsbræður þeirra.
Þetta eru gullfallegir dansar,
sem höfða til allra, og eiga von-
andi eftir að gleðja augu sem
flestra Norðlendinga. í Fjarlægð-
um dansa þær: Birgitte Heide,
Guðrún Pálsdóttir, Helga Bern-
hard og Ingibjörg Pálsdóttir en í
Tvístígandi sinnaskiptum þau
Helena Jóhannsdóttir, Katrín
Hall, Sigrún Guðmundsdóttir,
Patrick Dadey, Norio Mamiya og
Örn Guðmundsson.
Listdans hefur verið á stefnu-
skrá Pjóðleikhússins frá upphafi
og árið 1952 var Listdansskóli
Þjóðleikhússins stofnaður, en
sjálfstæður dansflokkur varð ekki
að raunveruleika fyrr en við
stofnun íslenska dansflokksins
árið 1973. í dansflokknum er nú
starfandi þrettán dansarar, en oft
fá þau gestadansara til liðs við sig
erlendis frá eins og þá Patrick
Dadey og Norio Mamiya að
þessu sinni. Framkvæmdastjóri
Islenska dansflokksins er Örn
Guðmundsson en listdansstjóri
Þjóðleikhússins er Nanna Ólafs-
dóttir. Dansflokkurinn setur að
jafnaði upp tvær danssýningar í
Þjóðleikhúsinu á ári, en undan-
farin ár hefur flokknum í síaukn-
um mæli verið boðið að sýna
erlendis. Dansflokkurinn hefur
ekki farið út á land með list sína
síðan 1978 svo nú gefst einstakt
tækifæri fyrir landsbyggðarfólk
að sjá danslist á heimaslóðum.
Leikfélag Sauðárkróks frumsýndi sl. laugardag við góðar undirtektir áhorf-
enda, barnaleikritið Línu Langsokk eftir Astrid Lindgren, við lcikstjórn
Harðar Torfasonar. Þegar hafa verið 3 sýningar á leiknum og hefur aðsókn
verið góð. Næsta sýning verður á laugardag og síðan verður leikritið sýnt í
desember eftir því sem aðsókn endist. Mynd. -þá
Lögmanns-
125 ára
Sunnudaginn 30. nóv. verður
minnst 125 ára vígsluafmælis Lög-
mannshlíðarkirkju. Kirkjan stendur
á svokallaðri Lögmannshlíðartorfu í
hlíðinni ofan Akureyrar. Upphaf-
lega hét bærinn þar Hlíð en nafnið
mun hafa breyst er Guðmundur Sig-
urðsson lögmaður bjó þar í 40 ár á
14. öld. Talið er að kirkja hafi stað-
ið í Lögmannshlíð frá því skömmu
eftir kristnitöku. Þar var í katólsk-
um sið kirkja helguð Ólafi helga
Noregskonungi.
Þessara tímamóta verður minnst
við hátíðarguðsþjónustu nk. sunnu-
dag. Kirkjukór Lögmannshlíðar-
sóknar syngur og sóknrpresturinn
sr. Pálmi Matthíasson syngur
messu. Eftir messu bjóða kvenfé-
lagskonur í Baldursbrá til kaffisam-
sætis í Glerárskóla. Er þess vænst að
sem flestir sjái sér fært að koma til
messu á þessum tímamótum og
þiggja góðgerðir á eftir.
Málverkasýning
á Blönduósi
Þorlákur Kristinsson (Tolli) opnaði
málverkasýningu í útibúi Alþýðu-
bankans, Húnabraut 13, Blöndu-
ósi,í gær, en það var jafnframt
fyrsti starfsdagur útibúsins. Sýning-
in verður opin á sama tíma og
bankinn og mun standa í nokkrar
vikur. Bent skal á, að um sölusýn-
ingu er að ræða svo þarna gefst gott
tækifæri, bæði til að komast í kynni
við góða málaralist og eignast mál-
verk sérstaks listamanns.
Póst- og símamálastofnunin
NotdEx
norræn viðskiptasímaskrá
NORDEX er ný viðskiptasímaskrá, sem
símamálastjórnir Norðurlanda gefa út
sameiginlega.
I NORDEX verða allar nauðsynlegar
upplýsingar varðandi samskipti í síma og
farsíma, með telex og telefax við
útflytjendur á Norðurlöndum, ásamt
póstföngum þeirra.
NORDEX er því kjörinn vettvangur fyrir
útflutningsfyrirtæki til þess að kynna og
auglýsa starfsemi sína.
Gögn varðandi NORDEX 1987 hafa þegar
verið send flestum fyrirtækjum landsins.
Þau fást einnig á póst- og símstöðvunum. Ef
þér óskið nánari upplýsinga hafið
vinsamlega samband með pósti eða í síma.
Pantanir þurfa að berast í sfðasta lagi um
mánaðamótin nóvember-desember 1986.
NORDEX
SÍMASKRÁIN - AUGLÝSINGAR
PÓSTHÓLF 311 - 121 REYKJAVlK
SÍMI 91-29140
Aðstandendur og annað
áhugafólk um málefni
þroskaheftra
Styrktarfélag vangefinna og Foreldrafélag
barna með sérþarfir halda myndasýningu
laugardaginn 30. nóv. nk. frá kl. 14-17 í
Þjálfunarskólanum, Hvammshlíð 6.
Myndefnið fjallar um:
A. Þjálfun og þjónustu við fjölfötluð börn.
B. Kennslu yngri barna í Öskjuhlíðarskóla.
C. Kennslu eldri barna í Öskjuhiíðarskóla og starfsþjálfun
þeirra.
D. Sambýli.
Höfum heitt á könnunni. Fræðslunefndin.
....1 " ■■■■■■■■■
Basar
Köku- og munabasar verður haldinn í
Freyvangi sunnudaginn 30. nóvember
kl. 15.00.
Kaffisala.
Kvenfélagið.
Sauðkrækingar, Blönduós-
búar, Hvammstangabúar
Verðum með skemmtun í samvinnu við heima-
menn á Sauðárkróki föstudagskvöld, Blönduósi
laugardagskvöld, Hvammstanga sunnudag.
Jass, önnur tónlist, dans, uppákomur, talaö mál og
fleira.
Sjá nánar í götuauglýsingum.
MENOR - Menningarsamtök Norðlendinga.
-