Dagur - 28.11.1986, Side 13
28. nóvember 1986 - DAGUR - 13
Gestirnir kunnu svo sannarlega vel að meta það sem var á boðstólum á villibráðarkvöldinu.
Hótel KEA:
Fjölbreyttur og góður matur
á villibráðarkvöldi
Gestirnir á villibráðarkvöld-
inu á Hótel KEA síðastliðið
laugardagskvöld kunnu greini-
lega vel að meta það góðmeti
sem þar var boðið upp á. Enda
var maturinn virkilega fjöl-
breyttur og góður. Það var
Pálmi Matthíasson prestur og
útvarpsmaður sem stjórnaði
veislunni með góðri aðstoð
Ingimars Eydal sem lék undir
borðum.
Salurinn á KEA var þétt-
skipaður og virtist fólk skemmta
sér hið besta enda fóru þeir Pálmi
og Ingimar á kostum. Eftir að
gestirnir höfðu borðað nægju
sína voru kokkarnir sem mat-
reiddu krásirnar kallaðir fram og
hylltir vel og lengi með lófa-
klappi. Síðan var tekið af borð-
um og við völdum tók af Pálma
veislustjóra, hljómsveit Ingimars
Eydal sem lék fyrir dansi fram á
nótt af sinni alkunnu snilld.
Pálmi Matthíasson og Ingimar Eydal stjórnuðu samkomunni með mikilli
prýði.
RÖY ROBSON®
Jakkaföt kosta hjá
okkur kr. U.90Ö,-
Við minnum á 10%
afsláttinn til félagsmanna.
I.jósnivndakeppni
Dags’86
Vegna mikillar þátttöku framlengjum við skila-
frestinn um eina viku, eða til föstudagsins 5. des. ’86.
1. verðlaun:
Olympus OMIO
Aukaverðlaun:
OMIO, pappír og vökvar til
framköllunar í lit og svart-
hvítu. Ektaflex framköllunar-
vélar, fllmur og ókeypis fram-
köllun.
Filmuhúsið
Akureyri
Myndval
Akureyrí
Hans Petersen hf.
Reykjavík
David Pitt & Co hf.
Rcykjavík
Þorfinnur Gunnlaugsson
Hafnarfirði
Ljósmynd #86
Strandgötu 31
600 Ahureyri
innréttingar í allar stærðir baðherbergja.
Einnig stakir veggskápar.
Verslið við
fagmann.
DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI
SÍMI (96)22360
HREINLÆTISTÆKI
STURTUKLEFAR OG HURÐIR
BLÖNDUNARTÆKI
ALLT EFNI TIL PÍPULAGNA
JAFNAN FYRIRLIGGJANDI
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 114., 117. og 121. tbl. Lögbirtingablaðsins
1985 á fasteigninni Einarsstaðir, Glaesibæjarhreppi, þingles-
inni eign Eiríks Sigfússonar o.fl., fer fram eftir kröfu Stofnlána-
deildar Landbúnaðarins á eigninni sjálfri miðvikudaginn 3.
desember 1986, kl. 14.00.
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 100., 104. og 107. tbl. Lögbirtingablaðsins
1986 á fasteigninni Rein II. Öngulsstaðahreppi, þinglesinni
eign Árna Jóhannssonar, fer fram eftir kröfu Ólafs B. Árnason-
ar hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 3. desember 1986, kl.
15.00.
Sýslumaðurinn f Eyjafjarðarsýslu.