Dagur - 20.01.1987, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 20. janúar 1987
Fyrirtækið „Marska“ hf. á Skagaströnd komst í heims-
metabókina síðastliðið sumar þegar það bjó til stærstu böku
sem gerð hefur verið svo vitað sé, á sýningu sem haldin var
í Laugardalshöllinni. Höfundurinn að réttunum frá „Marska“
er Steindór Haraldsson sem einnig skóp hið fræga Lado-
lamb. Blaðamaður hitti Steindór að máli á Skagaströnd fyrir
skömmu og innti hann tíðinda af rekstri „Marska“ hf.
Steindór Haraldsson hjá „Marska“ á Skagaströnd.
„Helstu tíðindin eru þau að við
erum komnir fram úr helstu
keppinautunum á Norðurlöndum
og í Norður-Evrópu í vöruþróun
og vöruvöndun, það er stað-
reynd. Ég tel, og það sama má
segja um ýmsa matvælafræðinga
og aðra sem best þekkja til þess-
ara hluta hér á iandi, að við séum
komnir fram úr því sem best ger-
ist í Evrópu. Við stöndum
frammi fyrir því að verði okkur á
að senda út vöru sem teldist ann-
ars flokks vara, þá yrði það geysi-
legur álitshnekkir. Pað hefur
verið litið á ísland sem vanþróað
ríki í fullvinnslu matvæla, það er
fyrst og fremst litið á okkur sem
hráefnisframleiðendur. Það má
segja að þetta sé svipað og það að
höfuðborgarsvæðið lítur á lands-
byggðina sem vanþróaðan hrá-
efnisframleiðanda. “
- Hvenær hófst undirbúningur
að framleiðslunni hjá „Marska"?
„Ég kom hingað fyrir tveim
árum og fór þá fyrst að at-
huga hvað væri hægt að gera
hér í sambandi við matvælafram-
leiðslu, þá var þetta allt algjör-
lega ómótað. Það væri efni í heila
grein að segja frá því hvernig ég
fór að því að finna út hvað ég ætti
að gera. Hér var ekki um að ræða
fyrirtæki sem hafði verið í undir-
búningi að stofnsetja í einhver
ár, heldur varð að byrja algjör-
lega frá grunni.“
- Komst þú sem sagt gagngert
hingað til Skagastrandar til að
stofnsetja fyrirtæki í matvælaiðn-
aði?
„Já. Það má segja að tilurð
þessa fyrirtækis hafi orðið í Kaffi-
vagninum á Granda fyrir nokkr-
um árum. Ég fór í kaffi á Kaffi-
vagninum og þar rakst ég á Svein
Ingólfsson framkvæmdastjóra
Skagstrendings og í spjalli okkar
kom hann inn á það að hann
hefði áhuga á að koma upp ein-
hvers konar fyrirtæki til að vinna
meira úr því hráefni sem bærist
þar á landi. Ég varð náttúrlega
allur upptendraður af hugmynd-
inni í hvelli. Á þessum tíma var
ég á Akureyri, í Lado-lambinu
og þá var ég líka að vinna fyrir
fiskvinnslufyrirtæki og gera til-
raunir í sambandi við söltun á
flökum. Ég kom hingað nokkrar
ferðir til viðræðna við Svein og
þáverandi framkvæmdastjóra
Hólaness, og síðan var það í upp-
hafi árs 1985 að ég flutti hingað."
Unniö viö að pakka sjávarréttabökum. Hallbjörn Hjartarson og Kristín Sigurðardóttir verkstjóri. Unnið við fyllingarnar í réttina. Guðbjörg ir