Dagur - 20.01.1987, Qupperneq 11
20. janúar 1987 - DAGUR - 11
Þorrinn hefst nk. föstudag og verður þá víða boðið upp á gómsætan þorramat. Veitingahúsið Bautinn á Akureyri
er einn þeirra staða þar sem þorramatur er ávallt á boðstólum og á dögunum var blaðamönnum boðið upp á „for-
smökkun“ á hinum vinsæla þorramat þar. Þá var þessi mynd tekin af einum af matreiðslumönnum staðarins við
þorrabakkana. Mynd: rpb
Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna:
Vill endurskoða
stjórnarsamstarfið
- Lýsir vantrausti á Sverri Hermannsson menntamálaráðherra
Stjórn Sambands ungra fram-
sóknarmanna hélt fund um
helgina, þar sem fjallað var um
stjórnmálaástandið í dag og
starfið framundan. Fundurinn
sendi frá sér stjórnmálaályktun
þar sem hin ýmsu mál, sem efst
eru á baugi, eru reifuð frá
sjónarhóli ungra framsókn-
armanna.
Stjórnmálaályktunin er svo-
hljóðandi:
* Stjórn SUF telur að endur-
skoða eigi reglugerð um fullvirð-
isrétt.
* Stjórn SUF harmar að okur
skuli vera lögverndað á íslandi,
því slíkt vegur gróflega að rétt-
lætistilfinningu almennings.
* Stjórn SUF lýsir yfir stuðn-
ingi við að tekið verði upp stað-
greiðslukerfi skatta. Jafnframt
lýsir stjórn SUF yfir óánægju
sinni með hve hægt miðar í að
bæta skattheimtu og koma í veg
fyrir skattsvik.
* Stjórn SUF ftrekar stuðning
sinn við hugmyndir Finns Ingólfs-
sonar í málefnum Lánasjóðs
íslenskra námsmanna.
* Sverrir Hermannsson
menntamálaráðherra hefur sýnt
fádæma valdníðslu í málefnum
Lánasjóðsins og fræðslustjóra-
málinu á Norðurlandi eystra.
Hann vílar ekki fyrir sér að víkja
mönnum fyrirvaralaust úr starfi
án skýringa og sniðgengur með
öllu sjónarmið íslenskra náms-
manna. í ljósi þessa lýsir stjórn
SUF yfir vantrausti á Sverri Her-
mannsson menntamálaráðherra.
* Stjórn SUF telur að það hafi
verið rétt ákvörðun hjá Stein-
Utvegsmenn
Norðurlandi
Útvegsmannafélag Noröurlands boöar til fundar
fimmtudaginn 22. janúar á Hótel KEA, Akureyri kl.
14.00. Stjórnin.
grími Hermannssyni forsætisráð-
herra að kalla saman þing til að
ræða stöðuna í sjómannadeilunni
og þrýsta á um aðgerðir í málinu.
Jafnframt fagnar stjórn SUF
þeim árangri sem náðst hefur við
lausn deilunnar og að samningar
skuli hafa náðst án lagasetningar.
* Stjórn SUF lýsir yfir van-
þóknun sinni á ummælum Þor-
steins Pálssonar um Framsókn-
arflokkinn sem birtist í DV laug-
ardaginn 17. janúar. Þessi
ummæli verða ekki skilin öðru-
vísi en sem vantraust á Fram-
sóknarflokkinn.
* Stjórn SUF lýsir áhyggjum
sínum yfir því að samskiptaörð-
ugleikar og valdabarátta innan
Sjálfstæðisflokksins er farin að
draga verulega úr starfsgetu
ríkisstjórnarinnar.
* í ljósi þessara atburða telur
stjórn SUF að Framsóknarflokk-
urinn eigi að taka áframhaldandi
stjórnarþátttöku til alvarlegrar
endurskoðunar. BB.
Útboð
Byggingamefnd flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli
býöur út gróöur innanhúss í nýrri flugstöö.
Afhendingu skal vera lokiö 13. apríl (fyrri áfanga) og
1. júní 1987 (síðari áfanga).
Útboðsgögn verða afhent á Almennu verkfræöistof-
unni, Fellsmúla 26 Reykjavík frá og með mánudeg-
inum 19. jan. gegn 20.000 kr. skilatryggingu.
Fyrirspurnir og óskir um upplýsingar skulu berast
Almennu verkfræöistofunni eiqi síðar en 6. febr.
1987.
Tilboðum skal skilað til byggingarnefndar, Varnar-
málaskrifstofu utanríkisráöuneytisins Skúlagötu 63,
105 Reykjavík, fyrir kl. 14.00 föstudaginn 13. febr.
1987.
Byggingarnefnd flugstöðvar
á Keflavíkurflugvelli.
Lágmarkskaup
Óvæntar fregnir í blöðunum „Helgarpósturinn" og
„Noröurland" herma aö ýmsir atvinnurekendur,
einkum á Dalvík, séu áfjáöir í að greiða hærra kaup
en þaö sem náöst hefur í samningum Verkalýðsfé-
lagsins Einingar og atvinnurekenda aö undanförnu.
Af þessu tilefni vill stjórn félagsins benda á þaö, aö
allir kauptaxtar í samningum félagsins eru lágmarks-
kaup, en hverjum og einum er heimilt að greiða
hærra. Þetta vonum viö, aö öllum sé Ijóst, jafnt
launþegum sem atvinnurekendum.
Þaö hefur ekki verið samiö um neitt hámarkskaup,
hvorki nú né áöur.
Stjórn Verkalýðsfélagsins Einingar.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Ein staða meinatæknis
við Rannsóknadeild í meinafræði við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri er laus til umsóknar.
Möguleiki er á aö ráöa 2 meinatækna í 50% starf
hvorn um sig.
Umsækjandi þarf aö geta hafið störf sem allra fyrst.
Upplýsingar um starfið veitir Þorgeir Þorgeirsson,
sérfræðingur deildarinnar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist Þorgeiri Þorgeirssyni fyrir 27. janúar 1987.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Fiskvinnsla í
Grímsey
Óskum eftir aö ráöa starfsfólk í saltfiskverkun
sem fyrst.
Allar upplýsingar gefa verkstjórar í síma 96-
73105 og heimasími 96-73118.
Fiskvinnslustöð KEA
Grímsey.
Starfskraftur óskast
til afgreiöslustarfa frá kl. 13-18 virka daga.
Áhugasamir vinsamlegast leggiö nafn, aldur og
heimilisfang inn á afgreiöslu Dags merkt:
„Verslun" fyrir 27. janúar.
jjðk
.
pz ? •
f •• •' fsfææi&%.
R-
ff', -' r-í.C' 1
.
.
m M'É §3
■ ■
itasett
Taemman
Opið laugardaga 10-12 I Glerárgötu 34 • Sími 96-23504