Dagur


Dagur - 20.01.1987, Qupperneq 12

Dagur - 20.01.1987, Qupperneq 12
Akureyri, þriðjudagur 20. janúar 1987 Gjaldhækkun hjá SVA - Notkun vagnanna verði könnuð Stjórn Strætisvagna Akureyrar samþykkti á fundi sínum 13. janúar að fargjöld með strætis- Hlíðarfjall: Klaka- hella í brekk- unum „Að sjálfsögðu hvet ég fólk til að koma á skíði en það er sjálfsagt og reyndar fyllsta ástæða til þess að leggja áherslu á það að biðja fólk að fara varlega í þessu færi,“ sagði ívar Sigmundsson í Hlíðarfjalli við Akureyri er við ræddum við hann í gær. ívar sagði að eftir miklar rigningar um helgina hefði fros- ið í Fjallinu og væru brekkurnar því meira og minna ein klaka- halla. „Það er ekki verra að kunna sitthvað fyrir sér í færi sem þessu en þetta er þó ekki hættulegt ef ntenn fara var- lega,“ sagði ívar. Hann sagði að sáralítið hefði verið um óhöpp í Fjallinu í vetur. Þó meiddist lítil stúlka þar sl. föstudag er spotti í tog- lyftu slitnaði og slóst í hana. Stúlkan féll við og rakst þá á strák. Hann sakaði ekki en stúlkan skrámaðist lítillega í andliti og mun einnig hafa rot- ast, annað hvort er spottinn slóst í hana eða þegar hún rakst á strákinn. í gær valt snjósleði í Fjallinu og starfsmaður þar sem var á sleðanum lenti undir hon- um og meiddist lítillega. „Nú vantar okkur bara snjó ofan á þessa klakahellu hérna, og víst yrði ég ánægður ef við fengjum núna svona eins og hálfs metra snjólag alveg niður að sjó,“ sagði ívar og hló við. gk-. vögnum hækki um næstu mán- aðamót. Samkvæmt þessari hækkun verður fargjald fyrir fullorðna 28 krónur og barnafargjald 9 krónur. Kort fullorðinna kosti 400 krónur, kort barna 100 krón- ur og kort aldraðra 200 krónur. í öllum tilfellum er um að ræða kort með 20 miðum. Á fundinum samþykkti stjórn- in einnig að láta kanna notkun strætisvagna á Akureyri. Telja stjórnarmenn mikilvægt að fá upplýsingar um notkunina vegna þess að framundan sé að móta stefnuna í ýmsum mikilvægum málum og megi þar nefna nýtt leiðakerfi og ákvörðun um stað- setningu og hlutverk aðalbið- stöðvar í Miðbænum. Slík könnun hefur ekki verið gerð nýlega en samþykkt var á fundinum að fela Gunnari Jóhannessyni verkfræðingi hjá tæknideild Akureyrarbæjar og Stefáni Baldurssyni forstöðu- manni Strætisvagna Akureyrar framkvæmd og umsjón könn- unarinnar og gert er ráð fyrir aðstoð frá nemendum Verk- menntaskólans við framkvæmd hennar. gk-. Heldur hcfur lifnað yfir byggingariðnaði á Akureyri. Starfsmönnum SS Byggis miðar vel við byggingu fjölbýlishúss við Skógarlund en þar tók Rúnar þessa mynd í gær. Akureyri: Ekki komin skýr stefna varðandi íbúðir aldraðra Búið er að teikna þjónustu- kjarna og 60 íbúðir fyrir aldr- aða sem eiga að rísa í Víði- lundi. Áætlað var að hefjast handa í vor, en málið er laust í reipum, t.d. hafa ekki fengist nægileg svör hjá Húsnæðis- málastjórn að sögn Erlings Davíðssonar, formanns Félags aldraðra. Hann sagði einnig að það ætti eftir að samþykkja hver eignaraðild væntanlegra íbúa yrði. Sums staðar borgar fólk íbúðir að fullu, annars staðar að hluta og greiðir síðan leigu. Hreinn Pálsson er formaður nefndar sem skipuð var af bæn- um og Félagi aldraðra. Aðrir í nefnd eru Jón Björnsson og Stef- án Reykjalín. Hreinn staðfesti að ekki væri búið að ákveða stefn- una varðandi þessar framkvæmd- ir, en það yrði að gera á næstunni því bæjarráð er að fara að skoða fjárhagsáætlun bæjarins og það þarf að ætla fé til þessara fram- kvæmda. Um er að ræða tvö fimm hæða hús með 30 íbúðum hvort. Hreinn sagði að nefndin ætti eftir að leggja tillögur sínar fyrir bæjarráð sem síðan myndi ákvarða stefnu varðandi bygging- arframkvæmdir, eignaraðild og sölufyrirkomulag. Hann bjóst við að málin myndu skýrast fljótlega. SS Akureyri: Fjörkippur í byggingariðnaði Heldur virðist vera að rofa til í húsbyggingum á Akureyri eftir mikla deyfð í þeim efnum undanfarin ár. Einn viðmæl- enda blaðsins orðaði þetta þannig að við værum að hoppa í botninum. Flest bygginga- fyrirtæki virðast nú hafa næg verkefni að minnsta kosti út þetta ár. Ástæður fyrir þessum tímabæra fjörkipp telja menn vera aukinn kjark vegna góðæris og auknar lánafyrir- greiðslur Húsnæðisstofnunar ríkisins. Afgreiðslur þessara lána hafa þó dregist mjög á langinn. Á síðasta fundi byggingar- nefndar voru meðal annars tekin fyrir erindi um leyfi fyrir hús- byggingum. Fjölnir sf. sótti um leyfi til byggingar fjölbýlishúss með 11 íbúðum við Múlasíðu 5. fbúðirnar eru af þremur stærðum og þær hafa allar verið seldar stjórn Verkamannabústaða. Húsið verður á þremur hæðum og er áætlað að það verði fullfrá- gengið á árinu 1988. Fjölnir sf. á lóðir undir tvö önnur fjölbýlishús á þessu svæði. Haraldi og Guðlaugi sf. var veitt leyfi bygginganefndar til að byggja raðhús méð fimm íbúðum við Múlasíðu. Ætlunin er að hefja framkvæmdir við þessar íbúðir í apríl og gera þær fok- heldar á þessu ári. Af öðrum húsbyggingum má nefna framkvæmdir SS Byggis við Skógarlund og einnig eru þeir með raðhús í byggingu í Glerár- þorpi. Fjölnir er með raðhús í byggingu og sama má segja um Norðurverk hf. ET Fjallvegir opnir til Vopna- fjarðar - Mjög óvenjulegt á þessum árstíma Leiðin til Vopnafjarðar um Mývatnsöræfi, Möðrudalsöræfi og Vopnafjarðarheiði er nú opin og mun það vera mjög óvenjulegt á þessum árstíma. Yfirleitt er þessi leið lokuð frá því í desember og fram í apríl, í fjóra til fimm mánuði. Þegar svo er þarf að fara mun lengri leið meðfram ströndinni. Vopnafjarðarheiðin var rudd síðastliðinn þriðjudag en Mývatnsöræfi og Möðrudalsöræfi um síðustu helgi. Þá höfðu þessir vegir verið lokaðir frá því í des- ember en snjóar eru nú litlir. Samkvæmt upplýsingum frá vegaeftirlitinu er vegurinn í góðu standi því þíða hefur ekki verið mjög mikil. Vegurinn telst þó aðeins fær jeppum og stærri bíl- um þar sem skafrenningur var nokkur í fyrradag. ET Jökull hf. á Raufarhöfn: Góð afkoma á síðasta ári - launauppbætur til starfsmanna í fullu starfi 22.500 krónur „Síðasta ár kom mjög vel út og þó að ekki sé búið að gera það endanlega upp þá er Ijóst að það verður nokkur hagnaður,“ sagði Hólmsteinn Björnsson framkvæmdastjóri frystihúss- ins Jökuls hf. á Raufarhöfn. Árið 1985 var hagnaður af rekstri fyrirtækisins um 9 milljón- ir eða um 5% af veltu. Hólm- steinn sagðist reikna með að hlut- fallið í ár yrði að minnsta kosti ekki lægra. Heildarvinnsla Jökuls á síðasta ári var um 3600 tonn. Þar af lagði Stakfellið til tæplega 400 tonn. Heildarafli Rauðanúps á árinu var um 2800 tonn og þar af var 2500 tonnum landað hjá Jökli. Rækja var um 140 tonn af aflan- um og fór hún til vinnslu á Kópa- skeri. Afgangurinn, um 160 tonn, var seldur erlendis. Nú í janúar voru öllu starfsfólki fyrirtækisins greiddar út launa- uppbætur. Alls voru greiddar um 2 milljónir og komu 22.500 krón- ur í hlut þeirra sem voru í fullu starfi. Að sögn Hólmsteins er þetta gert í beinu framhaldi af góðri afkomu og afköstum. Jökull hf. er nú að byggja nýtt frystihús sem á að leysa þann húsnæðisvanda sem fyrirtækið hefur átt við að stríða. Öll ísfisk- vinnsla verður flutt í nýja húsið en saltfiskverkunin mun verða í því gamla. ET

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.