Dagur - 05.02.1987, Blaðsíða 12

Dagur - 05.02.1987, Blaðsíða 12
12 - ÐAGUR - 5.?febr,úar 1987 Eigandi Prentfilmu, Ríkarður B. Jónasson t.h. ásamt lærlingi sínum, Birni Kr. Björnssyni. Mynd: KK „Virkilega spennandi að reka eigið fyrirtæki“ segir Ríkarður B. Jónasson, eigandi Prentfilmu á Akureyri Prentfilma á Akureyri er fyrir- tæki sem vinnur alla undirbún- ingsvinnu fyrir prentun, bæði almenna prentun og prentun límmiða alls konar og þá vinn- ur fyrirtækið mikið fyrir aug- lýsingastofurnar í bænum. Má segja að hjá Prentfilmu sé unn- ið allt frá flóknum litaverkefn- um og niður í einföldustu prentgripi. Fyrirtækið er í eigu Ríkarðs B. Jónassonar en hann er meistari bæði í offsettskeytingu og offsett- ljósmyndun og hefur hann starf- að í faginu í 24 ár. Fyrsta hálfa árið starfaði Ríkarður einn í Prentfilmu en eftir það gekk Hörður Árnason til liðs við Rík- arð og ráku þeir Prentfilmu sam- an í eitt ár. Um haustið 1986 flutti Hörður suður og þá tók Ríkarður alfarið við rekstrinum á ný og gerir enn í dag. Hjá fyrirtækinu starfar einnig Björn Kr. Björnsson en hann hefur verið á samningi í offsett- ljósmyndun hjá Ríkarði síðan í mars í fyrra. Auk þess vinnur eig- inkona Ríkarðs, María Árna- dóttir hálft starf i bókhaldi fyrir- tækisins. „Afkoma fyrirtækisins er góð en vinnudagurinn hjá manni er ansi langur. Hann er í rauninni allt of langur en öðruvísi gengur dæmið ekki upp,“ sagði Ríkarður er blaðamaður Dags heimsótti hann í fyrirtæki sitt. „Miðað við verkefnastöðuna í dag þyrfti fyrirtækið að vera stærra en það er. Pað væri nóg fyrir tvo að gera í fullu starfi við framleiðsluna og einn í innheimtu- og skrifstofu- störfum. „Það er virkilega spennandi að reka eigið fyrirtæki og á mun bet- ur við mig en að vinna hjá öðrum,“ sagði Ríkarður en hann starfaði áður hjá Dagsprenti. - Hvernig hefur uppbygging fyrirtækisins gengið? „Það hefur gengið ágætlega. Ég hef ekki þurft að leita í neina sjóði eða slíkt. Ég er í viðskipt- um við Búnaðarbankann og það fjármagn sem ég hef þurft í fyrir- tækið hef ég fengið hjá þeim banka. Það er mun auðveldara að reka fyrirtæki sem þetta og eins prent- smiðjur á Reykjavíkursvæðinu en hér fyrir norðan. Þar eru öll stóru fyrirtækin og stóru stofnan- irnar og því fá sambærileg fyrir- tæki þar stærri verkefni. Með því er líka auðveldara að endurnýja tækjakostin.“ - Hvernig er útlitið fyrir fram- tíðina? „Það er mikil vinna framundan hjá mér. Skilningur stjórnenda fyrirtækja hér fyrir norðan, á gildi auglýsinga og fallegum umbúðum undir vöru sína er að aukast og þá Sérstaklega hjá fyrirtækjum í útflutningsgreinun- um. Þó að hér sé breyting til batnaðar eru fyrirtækin úti á landi töluvert á eftir hvað varðar að kynna eigin framleiðslu," sagði Ríkarður að lokum. -KK Heimssöngvari svngur á Akureyri Söngvarinn Andreas Schmidt og píanóleikarinn Thomas Palm halda tónleika í Borgarbíói í kvöld kl. 19. Undraverður frægðarferill Andreas Schmidt hófst eftir að hann hlaut fyrstu verðlaun í tveimur stærstu söngkeppnum Þýskalands árið 1982, þá aðeins 22 ára gamall. Hann er nú fastráðinn við Berlínaróperuna, en hefur auk þess sungið aðalhlutverk m.a. í óperuhúsum í Hamborg, Múnchen og Covent Garden í London. Hann hefur haldið tón- leika í 17 Evrópulöndum, fsrael, Suður-Ameríku og Japan. Píanó- leikarar hans hafa m.a. verið Jörg Demus, Irvin Gage og Thomas Palm. Hljómplötufyrirtækin EMI, Philips og Deutsche Grammophon hafa gefið út plötur með söng And- reas Schmidt. Á tónleikunum á Akureyri flytja þeir félagar sönglög og ljóðaflokka eftir Mozart, Beet- hoven og Schuman. Textar verða þýddir á íslensku. Andreas Schmidt fæddist í Dússeldorf árið 1960. Hann lærði fyrst píanóleik, orgelleik og kirkju- tónlist, en árið 1978 hóf hann söng- nám hjá Ingeborg Reichelt í Dússel- dorf og síðar hjá Dietrich Fischer- Dieskau í Berlín. Eftir að hafa unnið til fyrstu verðlauna í tveimur stærstu söngkeppnum Þýskalands árið 1982, og lokið námi „með láði“, hófst undraverður söngferill hans. Árið 1984 kom hann fyrst fram við óperuhúsið í Berlín í hlutverki Malatesta í óperunni Don Pasquale eftir Donizetti og fékk þá þegar ráðningarsamning þar. Þess má til gamans geta að hinn ungi söngvari hefur áður heimsótt ísland og er mikill aðdáandi lands og þjóðar. Fyrsta sjónvarps- prógramm, sem hann söng var hjá íslenska sjónvarpinu árið 1982, þegar hann var aðeins 22 ára gamall, en þá söng hann nokkrar kirkjulegar aríur og Ijóð með aðstoð Harðar Áskelssonar orgelleikara og Ingu Rósar Ingólfsdóttur selló- leikara. Sama haust söng hann tvær einsöngskantötur eftir Bach í Hall- grímskirkju með hljómsveit og tveimur árum síðar var hann gestur Mótettukórs Hallgrímskirkju á vor- tónleikum í Kristskirkju. Einhverjir muna eflaust óvænta uppákomu á píanótónleikum Jörg Demus hjá Tónlistarfélaginu í maí 1984, þar sem hann söng nokkur þekkt Schubert-ljóð í lok tónleikanna. Thomas Palm stundaði sitt tón- listarnám í Köln hjá Astrid Schmidt-Neuhaus, Eckard Sellheim og Wilhelm Hecker. Síðan hann lauk einleikaraprófi hefur hann mest fengist við kammertónlist og ljóðaundirleik. Hann hefur verið undirleikari á fiðlunámskeiðum Max Rostals í Bern og Köln og í ljóðadeild Dietrich Fischer-Diesk- aus í Berlín (1980-1984). Síðan 1983 hefur Thomas Palm kennt píanóleik við Tónlistarháskólann (Robert Schumann-Institut) í Dússeldorf jafnframt tónleikahaldi. Hann hefur verið styrkþegi hjá „Deutscher Musikrat“ frá árinu 1978 og unnið til alþjólegra verð- launa, sem hafa opnað honum leiðir til tónleikahalds í mörgum Evrópu- löndum og Austurlöndum fjær. Hann hefur leikið inn á hljómplötur og margsinnis fyrir útvarp. -íþróttir.__________________________ Frjálsar íþróttir: UMF. Reynir sliga- hæst félaga - Valdís Hallgrímsdóttir sigraði í öllum kvennagreinunum og Cees van de Ven í 5 af 6 greinum í karlaflokki Nokkuð góð þátttaka var í flestum flokkum á jólamóti UMSE í frjálsum íþróttum sem fram fór á milli jóla og nýárs. Keppt var í flmm flokkum karla og kvenna. Ungmenna- félagið Reynir fékk flest stig og sigraði í keppni félaganna. Sig- urvegarar í hverri grein í hverj- um flokki urðu þessir: Langstökk án at.: Karlar 17 ára og eldri: m 1. Cees van de Ven, Umf. Fr. 3,03 Hástökk m. at.: m 1. Gunnar Sigurðsson, Umf. Þ.Sv. 1,80 Þrístökk án at.: m 1. Cees van de Ven, Umf. Fr. 8,81 40 m hlaup: sek. 1. Cees van de Ven, Umf. Fr. 5,1 800 m hlaup: mín. 1. Páll Jónsson, Umf. Sv. 2.16,3 Kúluvarp: m 1. Cees van de Ven, Umf. Fr. 11,31 50 m grindahlaup: sek. 1. Cees van de Ven, Umf. Fr. 7,3 Strákar 15-16 ára: Hástökk m. at.: m 1. Róbert Jósavinsson, Umf. Skr. 1,59 Langstökk m 1. Brynjólfur Brynjólfss., Umf. Fr. 2,68 Þrístökk: m 1. Brynjólfur Brynjólfss., Umf. Fr. 8,15 Kúluvarp: m 1. Frímann Rafnsson, Úmf. R. 9,69 40 m hlaup: sek. 1. Kristinn Magnússon, Umf. D. 5,5 800 m hlaup: mín. 1. Róbert Jósavinss., Umf. Skr. 2.51,4 50 m grindahlaup: sek. 1. Brynjólfur Brynjólfss., Umf. Fr. 9,4 Strákar 13-14 ára: Langstökk án at.: m 1. Pétur Friðriksson, Umf. Æ. 2,63 Þrístökk án at.: m 1. Pétur Friðriksson, Umf. Æ. 8,05 Hástökk: m 1. Pétur Friðriksson, Umf. Æ. 1,55 Kúluvarp: m 1. Hreinn Karlsson, Umf. Æ. 11,28 400 m hlaup: sek. 1.-2. Pétur Friðriksson, Umf. Æ. 5,5 1.-2. Gunnlaugur Jónsson, Umf. Sv. 5,5 800 m hlaup: mín. 1. Gunnlaugur Jónss., Umf. Sv. 2.43,1 Strákar 11-12 ára: Langstökk án at.: m 1. Valgarð Guðmundss., Umf. Sv. 2,17 Hástökk m. at.: m 1. Hreinn Hringsson, Umf. Æ. 1,35 Þrístökk án at.: m 1. Benedikt Benediktss., Umf. Æ. 6,39 40 m hlaup: sek. 1. Benedikt Benediktss., Umf. Æ. 6,2 800 m hlaup: mín. 1. Ottó B. Ottósson, Umf. Sv. 2.59,2 Kúluvarp: m 1. Benedikt Benediktss., Umf. Æ. 9,35 10 ára og yngri: Langstökk án at.: m 1. Stefán Gunnlaugsson, Umf. R. 2,15 40 m hlaup: sek. 1. Stefán Gunnlaugsson, Umf. R. 6,4 800 m hlaup: mín. 1. Stefán Gunnlaugss., Umf. R. 3.06,6 Konur 17 ára og eldri: Langstökk án at.: m 1. Valdís Hallgrímsd., Umf. R. 2,29 Kúluvarp: m 1. Valdís Hallgrímsd., Umf. R. 8,52 40 m hlaup: sek. 1. Valdís Hallgrímsd., Umf. R. 6,1 40 m grindahlaup: sek 1. Valdís Hallgrímsd., Umf. R. 7,0 Stelpur 15-16 ára: Langstökk án at.: m 1. Þóra Einarsdóttir, Umf. Sv. 2,46 Þrístökk án at.: m 1. Þóra Einarsdóttir, Umf. Sv. 7,34 Hástökk: m 1. Þóra Einarsdóttir, Umf. Sv. 1,40 Kúluvarp: m 1. Ragna Höskuldsdóttir, Umf. R. 7,51 40 m hlaup: sek. 1. Ragna Höskuldsdóttir, Umf. R. 6,2 40 m grindahlaup: sek. 1. Sólveig Haraldsdóttir, Umf. Fr. 8,2 800 m hlaup: mín. 1. Guðrún Svanbj.d., Umf. D. 2.43,0 Stelpur 13-14 ára: Langstökk: m 1. Rannveig Hansen, Umf. Æ. 2,46 Hástökk: m 1. Pálína Sigurðardóttir, Umf. Á. 1,39 Þrístökk án at.: m 1. Snjólaug Vilhelmsd., Umf. Sv. 7,08 Kúluvarp: m 1. Ása Þorsteinsdóttir, Umf. R. 7,77 40 m hlaup: sek. 1. Rannveig Hansen, Umf. Æ. 6,0 800 m hlaup: mín. 1. Erla Árnadóttir, Umf. Skr. 3.08,6 Stelpur 11-12 ára: Hástökk m. at.: m 1. Sigríður Sverrisd., Umf. Skr. 1;25 Langstökk: m 1. Laufey Svavarsdóttir, Umf. R. 2,07 Þrístökk án at.: m 1. Sigrún Árnadóttir, Umf. Skr. 5,78 Kúluvarp: m 1. Stella Árnadóttir, Umf. Skr. 6,39 40 m hlaup: sek. 1. Sigrún Árnadóttir, Umf. Skr. 6,5 800 m hlaup: mín. 1. Laufey Svavarsdóttir, Umf. R. 3.23,4 Stelpur 10 ára og yngri: Langstökk án at.: m 1. Erla Jóhannesdóttir, Umf. Fr. 2,02 40 m hlaup: sek. 1. Erla Jóhannesdóttir, Umf. Fr. 6,6 800 m hlaup: mín. 1. Karen Gunnarsd., Umf. Sv. 3.18,0 Flest stig: 1. Umf. Reynir 113,5 2. Umf. Framtíð 106,5 3. Umf. Æskan 101,0 4. Umf. Svarfdæla 100,0 5. Umf. Skriðuhrepps 58,0 6. Umf. Árroðinn 38,0 7. Umf. Þorst. Sv. 31,5 8. Umf. Dagsbrún 15,5 9. Umf. Möðruvallasóknar 3,0 Cees van de Ven var mjög sigursæll í jólamóti UMSE í frjálsum íþrótt- um.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.