Dagur - 05.02.1987, Blaðsíða 16

Dagur - 05.02.1987, Blaðsíða 16
Akureyri, flmmtudagur 5. febrúar 1987 Mótorverkstœði Stillum alla bfla með fullkominni mótorstillitölvu þÓRSHAMAR HF. " Við Tryggvabraut • Akureyri • Sími 22700 Sérframboð: Afrýjað til miðstjórnar? Stefán Valgeirsson alþingis- maður hefur sagt að til greina komi að áfrýja til miðstjórnar Framsóknarflokksins því að sérframboði í Norðurlands- kjördæmi eystra var meinað að nota listabókstafina BB. Þær raddir hafa heyrst að þar sem Stefán sé ekki lengur í Fram- sóknarflokknum - reglur flokks- ins segja að sá sem fer í framboð fyrir annan aðila en flokkinn skuli ekki lengur tilheyra flokkn- um - beri að víkja honum úr þingflokki Framsóknarflokksins. Páll Pétursson formaður þing- flokksins hefur sagt að hann mæli ekki með að Stefáni verði vísað úr þingflokknum til að byrja með a.m.k. Stefán Valgeirsson sagðist ekki ráðinn í því hvað hann sækti þingflokksfundi héðan í frá. gk-. ístess hf.: „Það er að komast sköpulag á skepnuna" - segir Guðmundur Stefánsson framkvæmdastjóri „Það er að koma sköpulag á skepnuna og við reiknum með að fara í gang 17. febrúar,“ sagði Guðmundur Stefánsson framkvæmdastjóri ístess hf. aðspurður um það hvað liði framkvæmdum við fóðurverk- smiðjuna. Nú er unnið við tengingar á rafbúnaði ýmiss konar en nokkr- ar tafir urðu á að stjórntæki bærust. Það sem þá er eftir er að leggja gufulögn úr loðnuverk- smiðjunni og er nú beðið eftir þeim búnaði sem til þess þarf. Tafir á þeirri sendingu urðu vegna mistaka í pöntun en send- Skagafjörður: Hjólin snúast á ný Hjól atvinnulífsins við Skaga- fjörð eru farin að snúast á fullu aftur eftir að togararnir Drang- ey og Skafti lönduðu rétt fyrir helgina tæplega 160 tonnum af fiski. Vegna verkfalls sjó- manna sem leiddi til siglinga togaranna var engin vinna í fiski við Skagafjörð allan jan- úarmánuð. Drangey og Skafti fóru beint á veiðar eftir söluna í Þýskalandi og það tók skipin aðeins 3 daga á heimstíminu að ná þessum afla. Skafti kom með tæp 90 tonn og Drangey 70 tonn. Hegranesið fór beint í slipp á Akureyri og er reiknað með skipinu á veiðar upp úr helginni. Söluferðir skipanna 3ja veittu útgerðinni 30 milljónir tæpar í brúttótekjur og munar um minna eftir áföllin sem hún varð fyrir á síðasta ári. ingin mun nú vera komin til landsins. Á næstunni er síðan von á erlendum sérfræðingum til að leggja blessun sína yfir upp- setninguna. Eins og áður segir er síðan meiningin að prufukeyra verk- smiðjuna 17. febrúar og ef vel gengur fer verksmiðjan í fullan gang strax sama dag. ístess áætlar að framleiða um 7000 tonn af fiskafóðri fyrsta árið. Til þeirrar framleiðslu þarf rúm 4000 tonn af loðnumjöli og um 1000 tonn af lýsi. Samið hefur verið um kaup á 3000 tonnum á mjöli úr Krossanesi og sagðist Guðmundur ekki eiga von á öðru en við það yrði staðið. Nú eru til um 1500 tonn af mjöli í Krossa- nesi en aðeins hluti þess er það gæðamjöl sem ístess kaupir. Guðmundur sagðist reikna með að mest eftirspurn eftir fiskafóðri yrði á haustmánuðum og til þess að geta annað þeirri eftirspurn verður keyrt á fullu í sumar og birgðum safnað. ET Hvernig skyldi þetta nú passa gætu þeir Birgir og Arnfinnur verið að hugsa en Guðlaugur fylgist með úr vinnupallinum. Mynd; rpb Borgarbíó: Fram- kvæmdir em á lokastigi Þessa dagana vinna iðnaðar- menn hörðum höndum við framkvæmdir í hinum nýja sal sem Borgarbíó á Akureyri mun taka í notkun innan skamms. Nýji salurinn verður allur hinn glæsilegasti og ekkert til sparað svo að sem best muni fara um þá er þangað sækja. Húsnæðið er allt mjög nýtísku- lega frágengið og smekklegt. Þegar framkvæmdum við nýja salinn lýkur verður hafist handa um breytingar í þeim sal þar sem sýningar fara fram núna. Höfð verða „endaskipti“ á öllum hlutum þar og þegar þessum framkvæmdum lýkur verður Borgarbíó orðið mjög glæsilegt kvikmyndahús, mjög vel búið tækjum og allri aðstöðu. . gk-. Sjálfvirk eldvarnakerfi: Elliheimilin og Sólborg með ótengd kerfi - Kostnaður við beina línu óverulegur Á Akureyri eru nú um 30 fyrir- tæki og stofnanir búin sjálf- virkum reykskynjarakerfum sem tengd eru beint við slökkvistöðina. Auk þess er fjöldi kerfa í bænum sem ekki eru tengd við stöðina heldur gera aðeins viðvart á viðkom- andi stað. Að sögn Víkings Björnssonar hjá Eldvarnaeft- irlitinu er ástand þessara mála í bænum yfirleitt gott en þó eru til staðir þar sem ýmsu er ábótavant. Víkingur sagði að erfitt væri að eiga við þær stofnanir sem byggð- ar voru áður en reglugerð um þessi mál tók gildi í júní 1978. í slíkum tilfellum geta eftirlits- menn ekki beitt öðrum ráðum en vinsamlegum tilmælum ef þeir vilja að bætt sé úr. Stofnanir sem breytt hefur verið á einhvern hátt Bæjarstjórn Sauðárkróks: Frystihúsin auki hlut sinn í útgerðarfélaginu Bæjarstjórn Sauðárkróks sam- þykkti á fundi sínum á þriðju- dag að fara þess á ieit við frystihúsin tvö á staðnum, Fiskiðjuna og Hraðfrystihúsið Skjöld að þau taki á sig þá 6 millj. kr. greiðslu sem Sauðár- króksbæ var gert að greiða í 20 millj. kr hlutafjáraukningu í Útgerðarfélagi Skagfirðinga sem ákveðin var á síðasta ári. Undanfarið hafa staðið yfir viðræður milli bæjarins og fyrirtækjanna um málið og kom fram á fundinum að góðar horfur virtust á því að fyrirtæk- in taki þessa aukningu hluta- Ijár á sig. í umræðum í bæjarstjórn Sauðárkróks seint á síðasta ári voru flestir bæjarfulltrúar á því að eðlilegt væri að frystihúsin sem mestu hagsmunaaðilar í út- gerðinni tækju á sig hlutafjár- aukningu bæjarins í útgerðarfé- laginu. Fyrir lá þá að Hraðfrysti- húsið á Hofsósi mundi sjá um hlutafjáraukningu Hofsóshrepps í ÚS. Þegar hefur verið ákveðið að Fiskiðjan sjái um hlutafé kaupfélagsins í aukningunni, en það er stærsti hluthafinn í Fisk- iðjunni. í máli Snorra Björns Sigurðssonar á þriðjudag kom fram að hann sæi ekki hvernig hægt væri að koma þessari hluta- fjáraukningu í ÚS fyrir í fjár- hagsáætlun bæjarins sem unnið væri að þessa dagana og engin spurning um hvað það kæmi bæjarsjóði vel að losna við þessa greiðslu. Komu þessi orð bæjar- stjóra sjálfsagt engum á óvart þar sem fyrir dyrum stendur hluta- fjáraukning bæjarins í Steinullar- verksmiðjunni. -þá eftir að ný reglugerð tók gildi falla hins vegar undir hana og þar ber að hafa sjálfvirk kerfi. Sem dæmi um þetta nefndi Víkingur Sólborg en.þar er. sjálf- virkt kerfi í nýjustu álmunni ein- göngu. í eldri byggingum er að vísu reykskynjárakerfi en það er ekki tengt við stöðina. Víkingur sagðist hafa átt von á að úr þessu yrði bætt eftir brunann á Kópavogshælinu á síðasta ári en slíkt virðist þó ekki hafa hreyft nægilega við þeim sem fara með fjármálin. Sama vandamál er við lýði á elliheimilunum Hlíð og Skjaldar- vík en þessar stofnanir eru báðar búnar kerfum sem ekki eru tengd slökkvistöð. Eftir breytingar sem gerðar hafa verið á Heimavist Menntaskólans fellur hún undir reglugerðina og að sögn Jóhanns Sigurjónssonar skólameistara er slíkt kerfi komið inn á áætlun, þó ekki fyrr en settar hafa verið upp eldvarnahurðir. Nú í vetur verð- ur endurnýjað viðvörunarkerfi í skólanum sjálfum. Aðspurður sagðist Víkingur ekki telja mikinn kostnað því fylgjandi að tengja þessi kerfi með símalínu við stöðina. Hjá Pósti og síma fengust þær upplýs- ingar að stofngjald fyrir bruna- línu væri 2700 krónur á kílómetra og leigan 1350 krónur á ári fyrir kílómetrann. Nú er unnið að gerð nýrrar reglugerðar um eldvarnakerfi og er sú vinna á lokastigi. ET

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.