Dagur - 05.02.1987, Blaðsíða 13

Dagur - 05.02.1987, Blaðsíða 13
Umsión: Kristján Kristjánsson 5. febrúar 1;987 — DAGURi —13 Kristján Hrcinsson og félagar hans í Þór þurfa á góðum stuðningi áhorfenda að halda er þeir mæta Aftureldingu annað kvöld. Handbolti 2. deild: Tekst Þór að sigra Aftureldingu? - Liðin mætast á Akureyri annað kvöld Flugleiðamótið í handknattleik: ísland sigraði „Við förum I þennan leik með sama markmið og í aðra leiki, þ.e. að vinna. Ef við náum upp góðum varnarleik og spilum okkar leik í sókninni þá vinn- um við Aftureldingu,“ sagði Kristinn Hreinsson leikmaður Þórs í handbolta í samtali við Dag. Annað kvöld leika hér á Akureyri Þór og Afturelding í 2. deildinni og má segja að sá leikur skeri úr um það hvort liðið fylgi ÍR í 1. deild að ári. „Við spiluðum afleitlega þegar við mættum þeim í fyrri umferð- inni og sem dæmi um það þá skoraði Sigurður Pálsson ekki mark í þeim leik. Það er mjög sjaldgæft að hann komist ekki á blað. En það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan þá eins og sést á stigatöflunni hefur okkur farið mikið fram.“ - Á Þórsliðið raunhæfa mögu- leika á því að vinna sér sæti í 1. deild að ári? „Við nátturlegastefnum að því að komast upp. Leikurinn við Aftureldingu er fjögurra stiga leikur, því ef við vinnum erum við orðnir jafnir þeim að stigum. Ný stjóm Vasks Á aðalfundi knattspyrnudeild- ar Vasks, sem haldinn var fyrir skömmu var kosin ný stjórn deildarinnar. Ari Fossdal tók við formennsku af Sveini Björnssyni. Aðrir í stjórninni eru Sverrir Haraldsson gjald- keri, Valþór Brynjarsson ritari og meðstjórnendur eru Börkur Antonsson og Gísli Ármanns- son. Fyrsta verkefni hinnar nýju stjórnar verður að ráða þjálfara fyrir meistaraflokk. Nokkrir af máttarstólpum liðsins frá því í sumar eru komnir í eða á leið í önnur félög, þannig að einhverj- ar breytingar verða á liðinu í sumar. Ég vona bara að áhorfendur á Akureyri mæti í Höllina og hvetji okkur til sigurs.“ - Á liðið erindi í 1. deild? „Ég býst við því að við yrðum að styrkja liðið eitthvað ef við kæmust upp. En við erum með frábæran þjálfara og Erlendur er ráðinn til þriggja ára. Þannig að útlitið er nokkuð bjart hjá okkur og málin horfa öðruvísi við en í fyrra þegar enginn stjórn var hjá handknattleiksdeildinni. í dag erum við með góðan þjálfara og öfluga stjórn," sagði Kristinn. Stuðningur áhorfenda getur skipt miklu og hér með er skorað á handknattleiksáhugamenn í bænum að fjölmenna í Höllina og hvetja Þórsliðið til sigurs. Það væri ekki ónýtt að sjá bæði KA og Þór í 1. deildinni næsta vetur. Svisslendingar stóðu í íslenska landsliðinu í úrslitaleik Flug- leiðamótsins en þeir urðu loks að lúta í lægra haldi og Islend- ingar fóru með sigur af hóimi, 17-15. Þá gerðu unglinga- landslið íslands, U-21, og snaggaralegt lið Alsír jafntefli 21-21 eftir æsispennandi leik. Leikur íslendinga og Sviss- lendinga var leikur hinna sterku varna. Menn spiluðu nokkuð fast og þurftu að kæla sig í 24 mínút- ur, 6 leikmenn frá hvoru liði. Svisslendingar stóðu furðanlega í íslendingum sem eiga eftir mín- um kokkabókum að vera mun sterkari. Liðin skiptu marka- skoruninni bróðurlega á milli sín þar til staðan varð 11-11. Þá komust Islendingar í 15-11 og sigurinn ekki í hættu eftir það. Vörnin var góð, markvarslan sæmileg og sóknin upp og niður. Mörk íslands: Kristján Arason 6(3), Þorgils Óttar 3, Bjarni 2, Alfreð 2(1), Guðmundur 2, Páll 1 og Atli, sem hætti við að hætta, Hilmarsson 1. Múrbrjóturinn Keller var atkvæðamestur Svisslendinga með 5(4) mörk og skósmiðurinn Schumacher skoraði 3. Staðan í hálfleik var 8-8. Ungmennin höfðu yfir gegn Alsír 19-16 en þá voru Héðinn og Jón reknir út af og Alsír komst í 20-19. Úrslitin 21-21 í spennandi viðureign. Staðan í hálfleik var 9-8 fyrir Alsírbúum. Kamel varði vel og Bouchekriou gerði 4 mörk. Stórskyttur U-21 fengu lít- inn frið til athafna. Körfuknattleikslið Breiðabliks sækir lið Tindastóls og Þórs heim um helgina í 1. deildinni. Mörk U-21: Konráð Olavsson 4(3), Hálfdán Þórðarson 4, Árni Friðleifsson 3, Gunnar Beinteins- son 3, Pétur Petersen 2, Héðinn Gilsson 2, Jón Kristjánsson, Sig- urjón Sigurösson og Bjarki Sig- urðsson 1 hver. Eins og sjá má voru Hafnfirð- ingar í eldlínunni í gær. Kristján, Óttar, Hálfdán, Gunnar, Pétur, Héðinn og Sigurjón eru allir af hafnfirsku bergi brotnir. SS Daníel í 48. - í stórsvigi Daníel Hilmarsson skíðamað- ur frá Dalvík hafnaði í 48. sæti í stórsvigi á heimsmeistaramót- inu í Crans-Montana í Sviss í gær. Það var enginn annar en Pirmin Zurbriggen frá Sviss sem sigraði en Marc Giradelli frá Luxemburg varð í öðru sæti. Daníel varð 17 sekúndum á eftir Zurbriggen. Það voru 94 skíðamenn sem hófu keppnina í gær. Pirmin Zurbriggen er óstöðvandi um þessar mundir og hann er nú með örugga forystu í heimsbikarkeppninni. Hann vann tvenn gullverðlaun á heims- meistaramótinu í Bormio á Ítalíu 1985, í bruni og svigi. Keppni í svigi á heimsmeist- aramótinu fer fram á sunnudag- Á föstudagskvöld mætir UBK Tindastóli á Sauðárkróki kl. 20 og á laugardag halda Kópa- vogsbúarnir til Akureyrar og leika gegn Þór í íþróttahöllinni kl. 14. Tindastóll er í næstneðsta sæti deildarinnar og þarf nauðsynlega á sigri að halda. Liðinu gengur mun betur á heimavelli og þau sex stig sem liðið hefur fengið í vetur náðust heima, með sigri á ÍS tvívegis og UMFG. Með sigri á UBK kemst Tindastólsliðið upp að hlið Breiðbliks sem er með 8 stig fyrir leikinn. Þórsarar fóru mikla sigurför suður um síðustu helgi, unnu ÍS og UBK í deildinni og B-lið UMFN í bikarnum. Liðið er í öðru sæti deildarinnar með 22 stig eftir 14 leiki. ÍR er í efsta sætinu rneð 30 stig eftir 17 leiki. Þórsarar ættu ekki að verða í vandræðum með lið UBK á góð- um degi. Eyjólfur Sverrisson leikmaður Tindastóls er nú langstigahæstur í 1. deildinni, hann hefur skorað 333 stig í 13 leikjum. Karl Guð- laugsson ÍR hefur skorað 305 í 17 leikjum, félagi hans í ÍR Jón Örn Guðinundsson hefur skorað 280 stig í jafnmörgum leikjum og ívar Webster þjálfari Þórs er fjórði stigahæsti maður deildar- innar með 279 stig í 14 leikjum. er langstigahæstur í 1. deildinni Körfubolti 1. deild: UBK leikur gegn Tindastóli og Þór Lokastaðan í Flugleiða- mótinu Lukastaðan í Flugleiðamótinu varð sem hér segir: ísland 3 3-0-0 75-48 6 Sviss 3 2-0-1 62-54 4 Alsír 3 0-1-2 50-63 1 ísl. U-21 3 0-1-2 62-84 1 Alsír hafnaði í þriðja sæti með hagstæðara markahlutfall en íslenski æskulýðurinn. hafnaði sæti á HM í gær inn kemur og mun Daníel einnig keppa í þeirri grein. Bikarkeppni SKÍ: Fyrsta mótið um helgina Um helgina hefjast bikarmót Skíðasambands Islands í alpa- og norrænum greinum. Keppni í alpagreinum í flokki unglinga 15-16 ára átti að fara fram á Dalvík en mótið hefur verið flutt í Bláfjöll þar sem ekki er nægur snjór á Dalvík. Keppni í karla- og kvenna- flokki fer fram á ísafirði. Á ísa- firði fer keppnin í norrænum greinum einnig fram, bæði í full- orðins- og unglingaflokki. í full- orðinsflokki verður keppt bæði í 15 km göngu með frjálsri aðferð og í 10 km göngu með hefðbund- inni aðferð. Blak: KA mætir Þrótti N. Einn leikur fer fram hér á Akureyri á laugardag í 1. deild karla í blaki. KA og Þróttur frá Neskaupstað leika í íþrótta- húsi Glerárskóla kl. 14.30. KA-liðið gerði sér lítið fyrir og lagði ÍS að velli um síðustu helgi og hefur liðið unnið tvo síðustu leiki sína í deildinni. Liðið hefur sýnt stöðugar framfarir að undanförnu og ætti á góðum degi að geta unnið Þróttara. ÍMA 50 ára Iþróttafélag Menntaskólans á Ákureyri, IMA, á 50 ára afmæli þann 18. febrúar næst- komandi og hefur verið ákveð- ið að minnast þess með ýmsum hætti. Enn hefur ekki verið fullmótuð dagskrá fyrir afmælisdaginn. Þó hyggjast félagar í ÍMA hlaupa áheitahlaup frá Húsavík til Akur- eyrar á afmælisdaginn. Hlaupið verður frá Húsavík að morgni 18. og síðan er stefnt að því að vera með einhverja dagskrá í miðbæn- um í framhaldi af hlaupinu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.