Dagur - 05.02.1987, Qupperneq 15
5. febrúar 1987 - DAGUR - 15
Minning:
Ý Anna Sigurðardóttir
- fyrrum húsfreyja að Auðnum í Óiafsfirði
F. 31.1. 1904 -D' 17.1. 1987
Þann 24. janúar síðastliðinn, var
jarðsett hér í Ólafsfirði Anna
Sigurðardóttir frá Auðnum.
Hún var fædd 31. janúar 1904,
að Garði í Ólafsfirði, Anna ólst
upp í fæðingarsveit sinni, og bjó
þar allt sitt líf. Ung giftist hún
Steini Ásgrímssyni frá Karlsstöð-
um í sömu sveit. Bæði elskuðu
þau sveitina sína, og stunduðu
búskap, lengst af, sín hjúskapar-
ár.
Þó óblíðar aðstæður slitu þau
frá þeim störfum um tíma, vegna
veikinda Steina, þráðu þau bæði
að komast aftur í sveitina. Þau
keyptu Auðnir, og hófu þar
búskap að nýju, og bjuggu þar til
efri ára.
Þau Anna og Steini eignuðust
átta mannvænleg börn, sem öll
komust til fullorðinsára.
Anna var vel kynnt og vina-
mörg og þrátt fyrir sinn stóra
barnahóp, og mikið annríki
heima fyrir, átti hún ætíð tíma
aflögu til að rétta þeim hjálpar-
hönd, sem þurftu þess með, og
þannig voru þau hjónin bæði, og
fékk ég, sem þessar línur skrifa,
og mitt heimili, að njóta þeirra
góðu eiginleika þessara hjóna.
Við fluttum í nágrenni vð þau
1951, og þó vatnsflötur skildi í
milli bæja, voru drengirnir þeirra
fúsir, að ferja okkur yfir á bátn-
um þeirra. Oft þurftum við að
leita til þeirra hjóna á margvís-
legan hátt, um hjálparhönd, sem
ætíð var fúslega veitt, bæði af
þeim og börnum þeirra. Þakklæti
fengu þau eitt að launum, fyrir
alla sína hjálp og greiðasemi, um
annað var aldrei talað, það var
þeim gleði að geta rétt þeim
hjálparhönd, sem þurftu þess
með. Þau áttu sjálf sína reynslu
úr skóla lífsins og þekktu baráttu
þá, sem oft verður að heyja í
þögn og þolinmæði, við fátækt og
strit. í þeim skóla lærist að ávaxta
sitt pund, vera sparsamur, nægju-
samur og nýtinn. Og þessa ávexti
átti Anna í ríkum mæli. Anna
var dásamleg kona og móðir.
Hún lét aldrei erfiðleikana buga
sig. Þó hópurinn hennar væri stór
og efnin lítil, voru börnin ávallt
vel klædd, og báru vitni sínum
móðurhöndum, sem saumaði
þeim falleg föt, úr gömlum og
notuðum flíkum, sem vent var og
sniðið úr, og gert sem nýtt væri
og tel ég að börnin þeirra Önnu
og Steina hafi fengið dýrmætari
arf í veganesti út í lífið, en heims-
ins auður getur veitt.
Elsku Anna mín, ég kveð þig
með þakklæti í hug og hjarta, fyr-
ir alla þína hjálp og vinsemd, sem
ég fékk að njóta í fátækt minni og
sjúkleika. Þú skildir mig öðrum
Útgerðarmenn
Óskum eftir netabát í viðskipti á vetrarvertíð.
Búrfell hf. Rifi, símar 93-6761 og 6679.
Jökull hf. Hellissandi, símar 93-6739 og 6744.
Hestamenn
Kynningarfundur á Evrópumóti í Weistrach í
Austurríki í sumar og Evrópulykli.
Fundurinn verður föstudaginn 6. febrúar kl.
20,30 að Hótel Varðborg.
E.M. nefndin.
|||| Opið hús
hjá ungum
framsóknarmönnum
í Hafnarstræti 90 á laugardagskvöldið frá kl. 20.30-?
Nú mæta framarar á öllum aldri,
ræða málin og taka lífinu létt.
Ágætar veitingar á boðstóium.
Stjóm F.U.F.A.N.
betur, og varst alltaf tilbúin að
létta af mér, eins og þú gast.
Tókst yngsta barnið mitt yfir til
þín, þegar ég lá sjúk og oft komst
þú færandi hendi, með glaðningu
til mín og barnanna. Stundum
voru það föt, sem þú hafðir
saumað þeim.
Alla ævidaga þína, stóðst þú,
sem hetja í holskeflum lífsins, án
þess að kikna fyrir augum
manna. Sárin voru stór, þegar
dóttursonur þinn drukknaði við
vatnsbakkann, og svo þegar
næstyngsti sonurinn fórst með
skipi sínu og allri áhöfn.
Þú harm barst í hljóði
en herrann sá þín tár.
Hendur hans, þær græða
og mýkja öll vor sár.
hann þekkir aila reynslu
íþraut og stríði hér,
á þinni lífsins göngu
hann jafnan fyigdi þér.
Ég á svo margt að þakka
þér elsku Anna mín,
og eru þetta fátækleg
kveðjuorð til þín.
í hjarta mínu á ég
þá inniiegu trú
að ailt þér verði iaunað
í ríki Drottins nú.
ísól Karlsdóttir.
Aðalgötu 50 Ólafsfirði.
Nýkomið
Dömukjólar.
Verð kr. 4.490.
Rúllukragabolir.
Verð kr. 685.
Khibírarslwi
Sigwtkir(jiiömwuksoiuir hf
HAFNARSTRÆTI96 SÍMI96-24423 AKUREYRI
Sumarvinna
Erum byrjaðir að skrifa niður unglingsstúlkur vegna
sumarvinnu.
Getum bætt nokkrum við strax.
Niðursuðuverksmiðja K. Jónsson & Co hf.
Atvinna
Getum enn bætt við nokkrum konum.
Mikil vinna, greiðum premíu.
Upplýsingar hjá verkstjórum á staðnum.
Niðursuðuverksmiðja K. Jonsson & Co hf.
Starf á rannsóknastofu
Ullariðnaður Sambandsins óskar eftir að ráða
mann til starfa á rannsóknastofu.
Starfíð er fólgið í ýmiss konar efnafræðilegri
meðhöndlun á ull og vörum úr ull og tengist
framleiðslu, framleiðslueftirliti og vöruþróun.
Hér er um að ræða ábyrgðarstarf,
sem krefst nákvæmni og samviskusemi.
Við leitum að vandvirkum og duglegum starfsmanni
með grunnþekkingu í efnafræði, til dæmis
náttúrufræðideild menntaskóla
eða hliðstæða menntun.
Við bjóðum framtíðarstarf á góðum launum,
ásamt menntun og þjálfun hérlendis og erlendis.
Umsóknir sendist starfsmannastjóra fyrir
11. febrúar nk. og veitir hann nánari upplýsingar.
IÐNAÐARDEILD
SAMBANDSINS
'GLERÁRGÖTU 8 AKUREYRI SÍMI (96)21900 (220)
Yiðgerðarmaður
Iðnaðardeild Sambandsins óskar eftir að ráða
viðgerðarmann í prjónadeild fyrirtækisins.
Starfíð er fólgið í daglegu viðhaldi prjónavéla
og breytingum véla vegna mismunandi tegunda
og stærða.
Við leitum að ákveðnum, metnaðarfullum og
duglegum viðgerðarmanni sem getur unnið
sjálfstætt og sé skapandi í störfum sínum.
Við bjóðum réttum starfsmanni framtíðarstarf
á góðum launum ásamt menntun og þjálfun.
Umsóknir sendist starfsmannastjóra fyrir
12. febrúar nk. og gefur hann nánari upplýsingar.
IDNADARDEILD
SAMBANDSINS
IGLERÁRGÖTU 8 AKUREYRI SÍMI (96)21900 (220)
REYKJAVÍK
Hefyatferðir - Viðskiptaferðir
m Ferðaskrifstofa Akureyrar
m Ráðhústorgi 3 • Sími 25000