Dagur - 24.02.1987, Qupperneq 3
24. febrúar 1987 - DAGUR - 3
Sambandið hvetur
til haustrúnings
- „ullin föl fyrir hærra verð“ segir Sigurður á Grænavatni
Vegna breytinga á framleiðslu
ullarvara undanfarin ár, hefur
innflutningur á mjúkri ull,
aðallega frá Nýja-Sjálandi,
aukist stöðugt á síðustu árum.
A síðasta ári var innflutt ull um
það bil helmingur af hráefni
ullarframleiðslu Sambandsins,
að sögn Kristins Arnþórssonar
ullarfræðings.
Önnur breyting á framleiðsl-
unni er að notkun á ljósum litum
hefur aukist og íslenska ullin hef-
ur reynst of blökk og of gul og
því miður, að sögn Kristins, oft
of óhrein. Petta hefur enn aukið
á innflutning.
Til þess að reyna að fá hvítari
og hreinni ull er nú að sögn Krist-
ins mikill áhugi á því innan sam-
bandsins að auka haustrúning og
losna þannig við þessar „húsvist-
arskemmdir“. Einnig hefur verið
rekinn áróður meðal bænda um
það að fara betur með ullina en á
síðasta ári fóru um 20% ullar í 3.
flokk. Petta hlutfall hefur verið
svipað í mörg ár.
„Það hlýtur að vera hagur
bóndans að auka gæði ullarinar
og hækka þannig verðið. Tilraun-
ir hafa raunar bent til þess að
kjötmagn aukist við það að rýja
tvisvar á ári.
„Ég efast ekkert um það að
með þessu fæst betri ull, enda
erum við hér búnir að rýja hluta
af fénu á haustin í mörg ár. Við
höfum hins vegar ekki getað
losnað við ullina fyrr en verðið er
ákveðið og það gerist ekki fyrr en
1. mars. Þetta er eingöngu mál
kaupenda. Ef þeir bjóða betur í
ullina á haustin þá er hún fö!,“
sagði Sigurður Þórisson bóndi á
Grænavatni í Mývatnssveit
aðspurður um það hvernig sér lit-
ist á þessar hugmyndir. ET
Starfsmenn vélsmiðjunnar Atla hf. á Akrureyri sjást hér koma stýrishúsinu af Dalborginni fyrir á vörubfl. Húsið
verður sett á skipið í Slippstöðinni hf. á Akureyri. Mynd: ehb
Akureyri:
Unnið að stefnumótun
í dagvistarmálum
„Þaö þarf alltaf að endurskoða
það hvaða stefnu ber að taka í
dagvistarmálum og við erum
að því nú bæði vegna þess að
nú á að setja framkvæmda-
áætlun til lengri tíma fyrir
Hlýindin í vetur hafa sett strik
í reikninginn hjá bændum á
Höfðaströnd sem stunda neta-
veiðar í Höfðavatni. Varð einn
þeirra Valgeir á Vatni að draga
netin upp fyrir nokkru þegar
ísinn var orðinn laus frá landi
og ógjörningur að komast á
„þarfasta þjóninum“ við veið-
arnar, vélsleðanum, á miUi.
Veiðar í vatninu gegnum ís eru
stundaðar frá 3 bæjum sem land
eiga að því, auk Vatns, frá
Mannskaðahól og Bæ. Reynir í
Bæ sagðist hafa verið með fá net
til þessa vegna ástand íssins, en
fjölga þeim um leið og hann
styrktist enn frekar. Hann sagði
veiðina annars hafa verið góða og
sömu sögu hafði Valgeir að segja
um þann tíma sem netin voru
bæinn og svo þarf alltaf að
hugsa sinn gang í þessum
málum, hvort við séum að gera
það sem er í takt við tímann,“
sagði Jón Björnsson félags-
málastjóri er hann var inntur
niðri hjá honum. Halldór á
Mannskaðahóli sagði veiði hjá
sér hafa verið trega. Bændur á
Selá og Hvalnesi á Skaga lögðu
net í Selvatn og Ölvesvatn í síð-
ustu viku og veiði þar því ekki
marktæk enn. Ekki hefur frést af
veiði í öðrum vötnum í héraðinu.
Að sögn Gísla Kristjánssonar hjá
Hraðfrystihúsinu á Hofsósi mun
frystihúsið ekki taka á móti
silungi í vetur. Þeir bændur sem
ekki eru með eigin markað fyrir
silung munu samt áfram hafa
möguleika á að flytja hann
ferskan til Frakklands í gegnum
umboðsaðila fyrir sunnan. Að
frádregnum flutningi á fiskinum
suður og öðrum kostnaði fá
bændur rúmlega hundrað krónur
fyrir kílóið. -þá
eftir fundahaldi varðandi
stefnumótun í dagvistarmál-
um.
Á þessum fundum er m.a.
fjallað um dagvistarþörf, hvernig
uppbyggingu skuli háttað, hvar
beri að staðsetja næstu dagvistir,
samspil dagheimila, leikskóla,
gæsluvalla og dagmæðra. Þá er
rætt um hvort réttlætanlegt sé að
slá af einhverjum kröfum þegar
ekkert gengur að stytta biðlistana
og margt fleira. Áð sögn Jóns
munu niðurstöður fundanna birt-
ast eftir einhverjar vikur sem
plagg sem er þá stefnumótun
þessa félagsmálaráðs í dagvistar-
málum „og vonandi yrði það
stefnumótun bæjarins líka, jafn-
vel óháð öllum flokkum, því auð-
vitað þarf Akureyrarbær sem
slíkur og sama hver er við stjórn,
að hafa einhverja skilgreiningu á
því hvers vegna hann geri hitt en
ekki þetta í þessum málum,“
sagði Jón.
Aðspurður staðfesti hann að
kjallari Glerárkirkju væri ákjós-
anlegur staður fyrir næstu dagvist
bæjarins eins og fram kom í blað-
inu á mánudag en eftir er að ná
samkomulagi við byggingarnefnd
kirkjunnar. Þá verður leikskóli
Hvítasunnumanna í Glerárhverfi
tekinn í notkun fljótlega en eftir
það verður að ákveða staðsetn-
ingu næstu dagvistar með tilliti til
hvar næst verður byggt í bænum.
SS
Skagafjörður:
Hlýindi trufla
veiðar í vötnunum
TIL SÖLU!
Trésmíðaverkstæði 375 fm ásamt vélum og tækjum á
góðum stað í bænum. Til greina kemur að selja hús
sér. Lofthæð húss er 3.80 m. 2 stórar dyr. Tilvalið fyrir
ýmsan atvinnurekstur.
Upplýsingar gefur Eignakjör sími 26441.
Sími sölumanns heima 22697.
Frá menntamála-
ráðuneytinu:
Umsóknarfrestur um áður auglýsta stöðu fræðslustjóra i Norður-
landsumdæmi eystra framlengist til 1. apríl n.k.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist Menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið.
Vika hársins
Hársnyrtistofurnar í Kaupangi auglýsa:
Rakarastofa Sigvalda
veitir 20% afslátt af
allri hársnyrti-
þjónustu þessa viku.
Sími 21898.
Hártískan
býður 50% afslátt
af djúpnæringa-
kúrum þessa viku.
Opið á laugardögum
Sími 26666.
Félag verslunar-
og skrifstofufólks, Akureyri
Sfmi 21635 - Skipagötu 14
HELGARFERÐ
F.V.S.A. og S.K.E. ráðgera helgarferð til Reykjavík-
ur 13.-15. mars n.k.
Verð per. mann í tveggja manna herbergi kr. 4.500.-
Þátttaka tilkynnist eigi síðar en föstudag 27. februar
í síma 21635 og síma 21400 (121 Sveina).
Félag verslunar- og skrifstofufólks,
Akureyri og nágrenni.
Starfsmannafélag Kaupfélags Eyfirðinga.
Á AKUREYRI
Krabbameinsleit
Konur 20 ára og eldri
Starfslið Krabbameinsleitarinnar kvartar mikið yfir
hve fáar konur koma til skoðunar.
Pantið þið nú tíma sem fyrst í síma 25511 kl. 8:00-
17:00 alla virka daga.
Hjúkrunarforstjóri.
í huseignina Ásgarðsveg 2 á Húsavík,
neðri hæð + hálft ris og hálfan kjallara.
Húsið er á besta stað í bænum og fæst á góðum kjörum.
Upplýsingar gefur Kristján Kristjánsson I síma 24222
á daginn og í síma 26367 á kvöldin og um helgar.
Tilboð óskast