Dagur - 24.02.1987, Page 8
8 - DAGUR - 24. febrúar 1987
„SambærOegt
við það besta á
Norðuriöndunum“
- segir Erik Vaaben tækniráðgjafi um
bílaverkstæði Höldurs sf.
„Þetta verkstæði er í hæsta
gæðaflokki og fyllilega sam-
bærilegt við það besta á
Norðurlöndunum. Hér eru
góðir og áhugasamir fagmenn
sem eru fljótir að notfæra sér
hátækni og tölvur í bílavið-
gerðum,“ sagði Erik Yaaben,
tækniráðgjafi og sölufulltrúi
Car - O - Liner, en hann hefur
undanfarið verið að kenna
starfsmönnum bílaverkstæðis
Höldurs sf. á ný tæki sem eru á
verkstæðinu.
„Við leggjum mesta áherslu á
að þjónustan við viðskiptavini
okkar sé eins góð og mögulegt er
og því höfum við tekið upp allar
þessar nýjungar hér á verk-
stæðinu," sagði Vilhelm Ágústs-
son, framkvæmdastjóri, þegar
hann sýndi blaðamönnum bíla-
verkstæðið, og bætti við: „Við
AUen Diagnostic system III - fullkomin mótorstillingatölva.
þvoum öll gólf og lyftur upp úr
sérstöku efni í hverri viku og þess
vegna er allt hreint hjá okkur.
Þetta er dýrt en svona viljum við
hafa það.“
Auk þess að annast allar
venjulegar viðgerðir er fullkomin
aðstaða til sérhæfðra viðgerða
eins réttinga og hjólastillinga.
Nýr tölvustýrður réttingabekkur
af fullkomnustu gerð réttir bílana
af þannig að ekki skeikar milli-
metra. Með þessu móti er fljót-
legra að rétta bílana auk þess
sem nákvæmnin er mun meiri en
áður var talið mögulegt.
Á verkstæðinu er verið að taka
í notkun fullkomnasta hjóla-
stillingatæki á landinu. Tækið,
sem er af gerðinni HPA 4950, er
tölvustýrt og prentar út stillingu
og halla allra fjögurra hjóla
bílsins. Þá gefur tölvan til kynna
ástand á hjólalegum, stýris-
endum o.fl sem hafa áhrif á stýr-
ingu bílsins. Næsta ótrúlegt er
aðfylgjast með þeirri hátækni
sem þarna er á ferðinni. Fljótlegt
er að nota tækið og fæst fuílkom-
in útskrift yfir þessa hluti á innan
við klukkutíma. Hjólastillingin í
tölvunni kostar frá kr. 2200.
Að Draupnisgötu 1 er einnig
boðið upp á varahlutaverslun,
bílasprautun, mótorstillingar
með Allen-stillingartölvu og
smurningu á smurstöð. Starfs-
mannafjöldi er 21. EHB
Bíll í hjólastillingu í fullkomnustu hjólastillingatölvu landsins. Á innfelldu myndinni sést hluti af Erik Vaaben við bíl í réttingabekknum. Myndir: ehb
tölvubúnaðinum.
Merkur áfangi í málefnum
blindra og sjónskertra
Fimmtudaginn 12. febrúar síö-
astliðinn, opnaði heilbrigðis-
og tryggingaráðherra Ragn-
hildur Helgadóttir formlega
Sjónstöð íslands, þjónustu- og
endurhæfingarstöð sjónskertra
að viðstöddum um eitt hundrað
gestum. Sjónstöðin er til húsa
á 5. hæð í húsi Blindrafélagsins
að Hamrahlíð 17 í Reykjavík.
Eru húsakynni þar öll hin
björtustu og vistlegustu, en
nokkuð skortir ennþá af bún-
aði og tækjum, svo stöðin megi
til fullnustu þjóna þeirri skyldu
sinni að verða miðstöð þjálfun-
ar og endurhæfingar blindra og
sjónskertra í landinu. Þetta
stendur þó væntanlega til bóta
á allra næstu vikum og mánuð-
um. Við opnunina bárust stöð-
inni ýmsar góðar gjafir svo og
kveðjur, meðal annars frá
blindrasamtökum á Norður-
löndum, en formenn þeirra
voru staddir hérlendis í tilefni
opnunar sjónstöðvarinnar.
Sjónstöð íslands er opinber
stofnun sem starfar samkvæmt
lögum sem samþykkt voru á
Alþingi 13. apríl 1984. Hlutverk
stöðvarinnar er hvers kyns þjón-
usta við sjónskerta svo sem sjúk-
dómsgreining, úthlutun sér-
hæfðra hjálpartækja, þjálfun og
endurhæfing, einnig sérfræðileg
umsjón með sjónþjálfun og augn-
læknisfræðilegri meðferð sjón-
skertra barna og unglinga í skól-
um landsins, einnig í samráði við
heilsugæslustöðvar að halda skrá
yfir alla blinda og sjónskerta á
íslandi.
Stöðinni er ætlað að
þjóna öllu landinu, og skal í því
sambandi bent á ákvæði 7. grein-
ar laganna um hana sem leggur
henni þá skyldu á herðar að
skipuleggja í samráði við land-
lækni ferðir sérfræðinga hennar
um landið til aðstoðar sjónskert-
um.
Gera má ráð fyrir því að á ís-
landi séu um það bil 500 lögblind-
ir einstaklingar að minnsta kosti,
og að minnsta kosti 2000 veru-
lega sjónskertir einstaklingar sem
þurfa á þjónustu stöðvarinnar að
halda. Flestir þessir einstaklingar
eru sjónskertir sakir ellirýrnunar
í miðgróf eða kölkunar í augn-
botnum. Eru því flestir sem á
þjónustu stöðvarinnar þurfa að
halda eldra fólk, en einnig er
nokkuð um yngra fólk sem sjón-
skert er af völdum erfða, eða
fósturskaða, svo og fólk sem
misst hefur sjónina að einhverju
eða öllu leyti vegna slysa eða
sjúkdóma svo sem gláku.
Af þeim um það bil 2500 ein-
staklingum sem áætlað er að
þurfi á þjónustu Sjónstöðvar
íslands að halda, má fastlega
gera ráð fyrir því að um það bil
250 séu búsettir á þjónustusvæði
Augndeildar Fjórður.gssjúkra-
hússins á Akureyri. í samtali við
forsvarsmenn stöðvarinnar kom
fram að fullur vilji væri fyrir
hendi hjá þeim, til þess að koma
á fót einhvers konar starfsemi á
vegum stöðvarinnar á Akureyri í
náinni framtíð, en hvenær það
gæti orðið er háð þeim fjárveit-
ingum sem stöðinni verða ætlað-
ar á komandi árum. Þá kom fram
vilji hjá forráðamönnum Blindra-
félagsins, samtaka blindra og
sjónskertra á íslandi, til þess að
stofnuð yrði á Norðurlandi deild
innan samtakanna. Gæti slík
deild meðal annars þrýst á upp-
byggingu starfsemi Sjónstöðvar-
innar á svæðinu, svo og aðra upp-
lýsinga- og félagsþjónustu fyrir
þennan hóp. í þessu sambandi
má geta þess að Akureyri myndi
henta einkar vel fyrir svokallaða
umferliskennslu sjónskertra
vegna staðhátta og birtuskilyrða.