Dagur - 05.03.1987, Side 3

Dagur - 05.03.1987, Side 3
KEA mun halda áfram að stuðla að víð- feðmri uppbyggingu - segir í skýrslu til félagsráðsfundar kaupfélagsins Leikfélag 5. mars 1987-DAGUR-3 Akureyrar Aríðandi félagsfimdur verður haldinn í borgarasal leikhússins nk. sunnudag 8. mars kl. 17.00. Félagar mætið vel. Stjórnin. í skýrslu félagsráðsfundar KEA er rætt um afkomu Mjólkursamlags KEA, slátur- húss og kjötvinnslu, verslunar, sjávarútvegs o.fl. greina. Þá er rætt um verklegar fram- kvæmdir, fjárfestingar og áætl- aðar fjárfestingar, lánsfé og lántökur. í lok skýrslunnar er rætt um almennan rekstur og rekstrarafkomu KEA á síðasta ári auk annarra umsvifa. Kem- ur greinilega í Ijós hversu mikilvægur aðili kaupfélagið er í atvinnu, viðskiptum og þjónustu í byggðum Eyjafjarð- ar, nú sem áður. Hér á eftir verður stiklað á því helsta sem kemur fram í skýrslunni. Mjólkursamlag KEA tók á móti nærri 22 milljónum lítra af mjólk á síðasta ári frá 250 mjólk- urframleiðendum. Minni mjólk barst en árið áður og var minnkunin tæp 3% eða 672.404 lítrar. Með- alfita mjólkurinnar var 4% en árið 1985 var hún 3,97% og hefur því hækkað milli ára. Flokkun mjólkurinnar var mjög góð og framleiðendum til sóma en í fyrsta flokk fóru 99,525% mjólk- urinnar sem segja má að sé öll sláturhúsum félagsins á síðasta hausti og er þetta 20,4% aukning frá fyrra ári. Dilkum fjölgaði um 7.572 og fullorðnum kindum um 2.485. Þessi aukning sláturfjár haustið 1986 er vegna þess að slátrað var á vegum félagsins í sláturhúsinu á Svalbarðseyri í fyrsta sinn. Ef miðað er við slát- urfjárfjölda í þessum þrem hús- um haustið 1985 (Akureyri, Dal- vík og Svalbarðseyri) kemur f ljós að um ca. 5,5% fækkun er að ræða. Alls voru lögð inn 754.730 kg af dilkakjöti (632.873 kg 1985) og 147.793 kg kjöts af fullorðnu fé (95.920 kg 1985) eða alls 902.523 kg sem er 23,8% aukning frá fyrra ári. Meðalfallþungi dilka var 15,158 kg eða 0,418 kg hærri en haustið 1985 en þetta er 2,84% hækkun. Alls voru lagðar inn 59.622 gærur og var þyngd þeirra 197.010 kg. Á haustmánuðum var slátrað 1.001 nautgrip samanborið við 1.019 gripi á sama tíma 1985. Þegar litið er á verðlagsárið í heild jókst slátrun hins vegar verulega. Fjöldi slátraðra naut- gripa var 2.452 samanborið við Frá félagsráðsfundinum í gær. mjólkin. Mjólkurframleiðendur á svæði mjólkursamlagsins hafa náð mjög góðum árangri og bætt framleiðslu sína milli ára þrátt fyrir hertar flokkunarreglur. Öll mjólk innan fullvirðisréttar var lögum samkvæmt greidd í næsta mánuði eftir innleggsmán- uð. Aðeins voru um 138.000 lítr- ar af mjólk framleiddir utan full- virðisréttar svæðanna en ekki er greitt fullt verð fyrir þá fram- leiðslu. Birgðabreytingar í full- unnum vörum samlagsins voru þær helstar að í árslok 1986 höfðu smjör- og smjörvabirgðir lækkað um ca. 36 tonn en sala á smjörva er nú svipuð og á smjöri, 50-55 tonn á mánuði. Til að hægt væri að anna eftirspurn hefur ver- ið fluttur rjómi til Akureyrar frá Húsavík, Sauðárkróki og Blönduósi. Veruleg aukning hefur orðið á ostabirgðum og er ekkert lát þar á. Verðmæti ostabirgða samlags- ins var 165 milijónir króna um síðustu áramót og er það 60% aukning frá árinu áður. Ógreidd- ur útflutningur var að verðmæti 31 milljón króna um áramótin. Reikningsleg afkoma Mjólkur- samlags KEA var viðunandi fyrir síðasta ár þó ýmsar blikur séu á lofti í mjólkuriðnaðinum. AIls var slátrað 52.005 dilkum og 7.343 fullorðnum kindum í Mynd: EHB 1.881 á verðlagsárinu 1984/85 og aukning í fjölda var 38,45%. Til ullariðnaðar Sambandsins bárust 55.159,5 kg af ull á árinu 1986 og KEA hafði milligöngu urn að færa innlagða ull í reikn- inga bænda. Þetta er nokkuð minna en var árið 1985, en þá voru lögð inn 57.273 kg. Hvað sjávarafla snertir þá tóku fiskvinnslustöðvar félagsins 13.227 tonn af bolfiski til vinnslu samanborið við 13.055 tonn 1985. Heildaraflaverðmæti var 279,7 milljónir króna á árinu en fyrir árið 1985 var þessi tala rúm- ar 205 milljónir. Framleidd voru 2.378 tonn af freðfiski, 2.064 tonn af saltflökum og 237 tonn af skreið og hausum. Rækjuafli var 1.174 tonn samanborið við 672 tonn árið 1985. Á árinu 1986 fékk félagið ný langtímalán hjá ýmsun lánastofn- unum að upphæð kr. 102,2 millj- ónir. Af eldri lánum greiddi félagið 47,1 milljón, þannig að iangtímalán jukust um 55,1 millj- ón króna. Almennur stofnsjóður hækkaði á árinu um 4,4 milljónir og innlán í innlánsdeild jukust um 52 milljónir króna. Aukning á aðfengnu fjármagni varð kaup- félaginu til aðstoðar í miklum fjárfestingum og uppbyggingu, svo og vegna aukningar vöru- birgða. Félagsmenn eignuðust sjálfir rúmlega 7 milljónir króna í félag- inu gegnum endurgreiddan tekjuafgang og vexti af innistæð- um í stofnsjóði og er fróðlegt fyr- ir félagsmenn að bera þá stað- reynd saman við árangur sinn af viðskiptum sínum við önnur félags- form. Auk þess fengu félags- mennirnir í afslátt frá vöruverði í sérstakri afsláttarviku fyrir jólin rúmlega eina og hálfa milljón króna. Vöruverð hjá Kaupfélagi Ey- firðinga var yfirleitt mjög hagstætt, eitthvert hið hagstæð- asta utan höfuðborgarsvæðisins ef þá ekki í landinu öllu. Félagið var áfram stærsti vinnuveitandi á Eyjafjarðarsvæðinu og reyndar með þeim stærstu á landinu. Kaupfélagið stuðlaði að margvís- legri uppbyggingu utan eigin veggja með hlutafjárframlögum, t.d. á sviði fiskeldis, í uppbygg- ingu ístess hf. og vegna áfram- haldandi starfsemi Iðnþróunar- félags Eyjafjarðar hf., en KEA beitti sér fyrir stofnun þess félags fyrir nokkrum árum. í lok félagsráðsskýrslunnar segir að kaupfélagið muni áfram leitast við að gegna sínu víð- feðma hlutverki til uppbyggingar iðnaðar, þjónustu, atvinnu, sjáv- arútvegs og verslunar eins og ver- ið hefur en þar byggi að sjálf- sögðu mest á samstöðu félags- manna um málefni félagsins. EHB Gömludansa- kennsla Sporið heldur námskeið fyrir byrjendur og framhald, helgina 13.-15. mars. Kennari er Helga Þórarinsdóttir frá Rjóðdansafélagi Reykjavíkur. Upplýsingar og skráning í síma 22710 milli kl. 16 og 19 virka daga. Sporið. Nýkomið Sportskór St. 29-40. Verð kr. 485.- Dömu flauelsbuxur St. 38-44. Tveir litir. Verð kr. 877.- Barnagallabuxur St. 116-152. Verð kr. 772.- Herravinnuskyrtur St. 38-46. Verð frá kr. 472.- Herragallabuxur St. 30-40. Verð kr. 795.- Telpna bikiní St. 104-164. Verð kr. 365.- Gjöríð svo vel að líta inn það marg-borgar sig. [Jj m Eyfjörð Hjaltayiargötu 4 - simi 22275 Frá Kjörmarkaði KEA Hrísalundi Vörukynning verður í versluninni fimmtudag og föstudag frá kl. 3-6. Kynnt verðun Barnángen hreinlætis- og snyrtivörur Ofnæmisprófaðar gæðavörur. Kynningarverð. ☆ Verið velkomin í Hrísalund.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.