Dagur - 05.03.1987, Síða 10

Dagur - 05.03.1987, Síða 10
10 T-, DA<?iUR'n*:5. mars 1987 sem liggur frá húsinu út í staur í stefnunni suðvestur-norðaustur." - Nærðu útvarpsstöðvum betur með þessu? „Ég hef nú ekki kannað það til fulls, það fer auðvitað eftir því hversu gott útvarp maður er mcð." - Að lokum, hvað ætlarðu að starfa í framtíðinni? „Ég veit það ekki, það er alveg óákveðið." Til Danmerkur í sumar - Jón Daníelsson, býrð þú hérna í bænum? „Já, ég er héðan frá Akureyri.” - Hvernig finnst þér að vera í Löngumýrinni? „Það er nokkuð gott.“ - Hvernig er mórallinn hérna í skólanum? „Það er svona upp og ofan, stund- um ágætur, stundum slæmur." - Hvernig líkar þér við starfsfólk- ið? „Magna og Elísabetu? Mér líkar bara vel við þau." - Þú ert í vinnu, er það ekki? „Jú, en fyrst er ég hérna í skól- anum fyrir hádegi, kem um áttaleytið og fer svo í vinnuna eftir hádegi." - Hvaö gerið þið hérna fyrir hádegi? „Við erum í kennslustundum, svo erum við líka að smíða." - Hvað smíðið þið aðallega? „Við erum að smíða hluti sem við seljum svo, eins og t.d. þorrabakka." - Er það satt að þið munuð fara til Danmerkur fyrir ágóðann? „Já, við förum trúlega öll í sumar." - Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? „Það er að spila á hljóðfærin mín og hlusta á músík." - Á hvernig hljóðfæri spilar þú? „Rafmagnsbassa og gítar." - Hver er uppáhaldsmústkin þín, áttu þér t.d. einhverja uppáhalds- hljómsveit? „Nei, enga sérstaka." - Að lokum, Jón. hvað langar þig að gera þegar þú verður eldri? „Ég ætla að verða söngvari." Fer kannskí á sjó - Hvað heitir þú? „Ég heiti OIli." - Hvaðan ert þú? „Ég er frá Húsavík." - Hvernig finnst þér að búa á Húsavík? „Það er ágætt." ' - Hvernig líður þér hérna í Starfs- skólanum? „Það er líka ágætt." - Nú ert þú ekki í launavinnu, hvernig líður dagurinn hjá þér? „Ég sef í Hólsgerði 8, en hjóla hingað á morgnana og er í skóla fyrir hádegi nema á föstudögum." - Hvað gerið þið á föstudögum? „Fyrst þrífum við og síðan höldum við fund öll saman, stundum förum við í kynnisferðir í bæinn." - Eru það þá eins konar vett- vangsferðir? „Já." Elísabet Halldórsdóttir. Elísabetu Halldórsdóttur, kennara - Elísabet, er ekki við hæfi að byrja á örlítilli ættfræði að gömlum og góðum íslenskum sið. Hvaðan ert þú? . „Ég er fæddur og uppalinn Vestfirðingur, fluttist til Reykjavíkur. Ég bjó erlendis í nokkuð mörg ár og síðan kom ég hingað til Akureyrar." - Hvernig líkar þér að vinna hérna? „Mér finnst þetta mjög spennandi verkefni og gaman að prófa þetta. Starfið er gef- andi en erfitt." - Hefur þú unnið með sér- kennslunemendum áður? „Ég hef aldrei unnið svo lengi við akkúrat þetta en ég vann t.d. í Svíþjóð eitt sumar í sumarbúðum fyrir þroskaheft börn. Það var reyndar öðruvísi því þau börn voru rneira fötluð, en ég hef aldrei kennt áður og ég er ekki með kennararétt- indi.“ - Hvort telur þú heppilegra fyrir svona starfsemi - litlar, heimilislegar stofnanir eða þær sem eru stærri? „Þær litlu, alveg tvímæla- laust. Eftir því sem nemendur eru færri því meiri tengslum ná þeir hver við annan. Þannig ná kennarar líka betur til einstakl- ingsins og geta sinnt honum bet- ur og komið meira til móts við þarfir hans. En þar kemur á móti að stærri stofnanir hafa fleira starfsfólk og það er nátt- úrlega mjög jákvætt líka.“ - Eru krakkarnir yfirleitt einn vetur hérna? „Þetta byrjaði allt sem tilraun og þetta er ei.nungis annar vet- urinn sem skólinn starfar. Upp- haflega var reiknað með að nemendur væru tvö ár í skól- anum. En þörf einstaklinganna er mjög mismunandi, sumir þurfa langan tíma, aðrir styttri, til að nálgast takmark skólans, en það er að einstaklingarnir verði sjálfbjarga úti í þjóðfélag- inu.“ - Færð þú séð að starf ykkar beri árangur geta krakkarnir betur bjargað sér þegar þau fara héðan að vori heldur en þegar þau koma inn að hausti? „Við vinnum stöðugt að því að reyna að benda nemendun- um á hluti sem þau geta gert betur. Þau eru alltaf í einhvers konar þjálfun og maður sér yfir- leitt alltaf einhverjar framfarir, en þegar er um að ræða ein- staklinga sem eru orðnir þetta fullorðnir er það afskaplega erf- itt að ala þá upp aftur ef svo má að orði komast. Ég vona að krakkarnir læri eitthvað af því sem þau eru að gera hér og geti tekið það með sér út í lífið.“ Langamýri 15, þar er hvorki hátt til lofts né vítt til veggja. REYKJAVÍK Heígarferðir - Viðskiptaferðir i®) ^eröaskrifstofa Akureyrar WÍ Ráðhústorgi 3 Sími 25000 - En hvað gerir þú annars eftir hádegi á virkum dögum? „Ég fer með Magna upp í Bröttu- hlíð að smíða.“ - Hvað eruð þið að smíða? „Við erum að innrétta eitt her- bergið, smíða veggþil.“ - Hefur þú eitthvert tómstunda- gaman? „Ég hlusta mikið á útvarp. Um helgar leik ég mér á vespunni minni." - Þú ferð þá alltaf heim til Húsa- víkur um helgar? „Já.“ - Hvað ætlar þú að leggja fyrir þig í framtíðinni? „Ég veit ekki, kannski fara á sjó.“ Með bikar í borðtennis - Hvað heitir þú? „Stefán Thorarensen.“ - Og hvaðan ertu? „Ég er frá Akureyri." - Hvar vinnur þú? „Ég vinn niðri á Kjötiðnaðarstöð KEA." - Hvernig líkar þér að vinna þar? „Bara vel.“ - Hvenær byrjaðir þú þar? „Einhvern tímann í október síðast liðnum.“ - Víkjum að öðru - hvernig finnst þér að vera í þessum skóla, Starfs- skólanum? „Jú, þetta er ágætt, þó svo að stundum sé hasar ef sambúðin geng- ur stirðlega." - Hver eru áhugamál þín? „Það eru aðallega íþróttir, ég æfi íþróttir." - Hvaðagreinareruþaðþáhelst? „Aðallega borðtennis, boccie og sund.“ - Ertu kannski að æfa fyrir ein- hverja keppni? „Já, ég fer kannski í apríl til Reykjavíkur að keppa í sundi. Svo erum við, ég og bróðir minn, með bikar núna fyrir tvíliðaleik í borð- tennis.“ - í hvaða aldursflokki kepptuð þið? „Þetta eru opin mót, nema þegar við erum að keppa fyrir sunnan, þá er skipt í riðla.“ - Þú ert sem sagt alveg á kafi í íþróttunum? „Já.“ - Segðu mér, ertu farinn að plana framtíðina eitthvað, ertu t.d. ákveð- inn í hvað þú ætlar að gera? „Nei, það er ekkert ákveðið. Ég held áfram að æfa íþróttir og ætli ég vinni ekki bara áfram í Kjötiðnaðar- stöðinni." Ég vona að þú, lesandi góður, sért einhverju nær uni fjölskylduna í Löngumýrinni eftir þennan lestur. Við megum aldrei gleyma þeim sem minna mega sín og þetta efni var val- ið á unglingasíðu Dags til að minna á að við eigum öll sama rétt til lífsins. Til þcss að lifa því og deila með öörum, þó svo við eigum misjafnlega gott með það.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.