Dagur - 04.05.1987, Side 1
70. árgangur Akureyri, mánudagur 4. maí 1987 82. tölublað
Filman þín
á skiliö þaö
besta1
FILMUHÚSIÐ
Hafnarstræti 106- Sími 22771 Pósthólf 198
H-Lúx
gæðaframköllun
Hrað-
framköllun
Opiö á >
laugardögum
frá kl. 9-12.
Plasteinangrun hf:
Reiknað með 100%
söluaukningu á árinu
- söluaukning milli áranna ‘85 og ‘86 var 40%
- rekstrarhagnaður síðasta árs 12,2 milljónir
Aðalfundur Plasteinangrunar
hf. var haldinn síðastliðinn
miðvikudag. Á fundinum kom
m.a. fram að söluaukning milli
áranna 1985 og 1986 nam 40%.
Heildarrekstrartekjur voru
rúmar 100 milljónir króna og
þar af voru útflutningstekjur um
60 milljónir. Framleiðsla og
sala gengu mjög vel á síðasta
ári og rckstrarhagnaður var
12,2 milljónir króna.
Stöðugleiki í efnahagsmálum
ásamt bættri afkomu útgerðar-
innar í landinu höfðu að sögn
Sigurðar Jóhannssonar fram-
kvæmdastjóra mjög jákvæð áhrif
á reksturinn og hjá fyrirtækinu
voru á síðasta ári framleiddir 220
þúsund fiskikassar og er þar um
nýtt framleiðslumet að ræða. í
söluaukningunni munaði einnig
um mikla framleiðsluaukningu á
trollkúlum en framleiðslan á
árinu var á annað hundrað þús-
und kúlur. Eftirspurnin eftir
trollkúlum er það mikil að sögn
Sigurðar að það er ekki fyrr en
núna með tilkomu nýrrar steypu-
vélar að þeim tekst að anna
henni.
Framleiðsla á einangrunar-
plasti dróst hins vegar mikið sam-
an eða úr 4200 rúmmetrum á
árinu 1985 í 2400 rúmmetra á síÖt
asta ári. Að sögn Sigurðar stafar
þessi mikli samdráttur fyrst og
fremst af aukinni samkeppni með
tilkomu Steinullarverksmiðjunn-
ar á Sauðárkróki en einnig af
samdrætti í byggingum. Á þessu
ári er fyrirhugað að endurskipu-
leggja þessa framleiðslu og flytja
hana á annan stað þar sem fram-
leiðsla steypudeildarinnar krefst
aukins rýmis í núverandi hús-
næði.
Að sögn Sigurðar eru liorfur
fyrir þetta ár mjög góðar og
reiknað með að salan fari yfir 200
milljónir á árinu. Þessi viðbót
verður öll í útflutningi en nú er
meðal annars unnið að öflun
nýrra markaða fyrir kúlur í Dan-
mörku og Noregi. Plasteinangrun
tók þátt í stórri sjávarútvegssýn-
ingu í Skotlandi fyrir páska og
sagði Sigurður að árangur hennar
væri strax kominn í ljós en miklir
möguleikar væru þar fyrir hendi í
sölu á kössum. ET
Sigurður Gestsson frá Akureyri tryggði sér islandsmeistaratitilinn í vaxtarrækt þriðja árið í röð á íslandsmótinu seni
fram fór í Sjallanum á Akureyri í gær. íslandsmeistari í kvennaflokki varð Ásdís Sigurðardóttir úr Keykjavík og í
unglingaflokki Einar Guðmann frá Akureyri. Nánar verður sagt frá inótinu í blaðinu á morgun. Mynd: kk
Þróun mannaflaskiptingar:
Framleiðslugreinarnar að
kikna undan þjónustunni
- helmingi fleiri í þjónustu en framleiðslu árið 1990
I fréttabréfí Félags íslenskra
iðnrekenda „Á döfinni“ er
sagt frá því að í ræðu sem for-
maður félagsins Víglundur
Þorsteinsson hélt á ársþingi
þess fyrir skömmu hafí komið
fram að þróun mannaflaskipt-
ingar í þjóðfélaginu komi í veg
fyrir að framleiðsluatvinnu-
vegirnir fái nægt fólk til starfa í
Fastlaunasamningur verslunar- og skrifstofufólks:
Flestir greiða laun
samkvæmt samningnum
- Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri
íhugar úrsögn úr landssamtökunum
Eins og sagt var frá í Degi
gerðu Vinnumálasamband
samvinnufélaganna og lands-
bygðarsamtök Landssambands
íslenskra verslunarmanna með
sér nýjan fastlaunasamning um
miðjan mánuðinn. Kaupfélög-
in eru því í raun einu vinnu-
veitendurinr sem eru aðilar að
samningnum en nú hafa flestir
félagar kaupmannasamtak-
anna á Akureyri fallist á að
greiða laun samkvæmt honum.
Að sögn Jónu Steinbergsdótt-
ur formanns Félags verslunar- og
skrifstofufólks á Akureyri hafa
kaupmannasamtökin ekki viljað
gerast aðilar að samningnum.
Samningar við Vinnuveitenda-
sambandið hafa gengið mjög
hægt og stranda þeir að sögn
Jónu aðallega á deilum um opn-
unartíma verslana í Reykjavík.
Aðspurð um samninginn sagði
Jóna að hann væri sá besti í lang-
an tíma og hún væri nokkuð
ánægð með hann. Verslunarfólk
hafi dregist mjög aftur úr á
undanförnum árum.
Aðalfundur F.V.S.A. var
haldinn á mánudaginn. Fundur-
inn var sæmilega sóttur, miðað
við fundi í launþegasamtökum
almennt, og fóru fram töluverðar
umræður. Á fundinum var Jóna
endurkjörin formaður.
Aðalfundurinn samþykkti
ályktun þar sem segir að efla beri
samtök verslunarmanna á lands-
byggðinni. Einnig telur fundur-
inn að á næsta þingi LÍV þurfi að
breyta lögum sambandsins þann-
ig að atkvæðisréttur verði jafnað-
ur svo ekkert eitt félag innan þess
geti haft meirihluta fulltrúa. Jóna
sagði að eins og þessum málum
væri nú háttað þá réði Verslun-
armannafélag Reykjavíkur öllu
sem það vildi ráða. í lok ályktun-
arinnar segir að ef ekki náist fram
breytingar þá beri að skoða
úrsögn úr LIV. ET
framtíðinni.
í ræðunni rakti Víglundur
þróun þessara mála undanfarin
20 ár og sagði að krafan til undir-
stöðuatvinnuveganna hljóðaði nú
á þessa leið: „Þið verðið að vinna
meira með færra fólki til þess að
standa undir framleiðslukröfum
þjónustuþjóðfélagsins."
Formaðurinn tók nokkur
athyglisverð dæmi máli sínu til
stuðnings og sagði að árið 1966
hefðu 32 þúsund manns starfað
við framleiðslu á íslandi en 24
þúsund í þjónustu eða vcrið líf-
eyrisþegar. Árið 1971 voru þess-
ar tölur orðnar 34 þúsund í báð-
um tilfellum, árið 1976 36 þúsund
í framleiðslu og 43 þúsund í þjón-
ustu og árið 1981 hafi hlutfallið
verið 38 þúsund á móti 55 þús-
undum. Á síðasta ári voru töl-
urnar orðnar 39 þúsund í fram-
leiðslunni en 59 þúsund í þjón-
ustunni og að sögn Víglundar
gætu þessar tölur árið 1990 verið
35-39 þúsund í framleiðslunni og
yfir 60 þúsund í þjónustugreinum
' og sem lífeyrisþegar.
Þessar tölur sýna þróunina
glögglega og einnig sést að hraði
hennar hefur aukist. Aðgerða-
leysi sagði Víglundur að myndi
leiða til þess að framleiðslugrein-
ar íslendinga, landbúnaður og
sjávarútvegur standi ekki undir
sívaxandi framfærslukröfum
þjónustuþjóðfélagsins og við
Islendingar verðum undir í sam-
keppninni við innfluttar vörur.
ET
Fjórhjól og
bifreið í
árekstri
Samkvæmt upplýsingum varð-
stjóra hjá lögreglunni var helg-
in ákaflega róleg hjá þeim.
Ekki komust lögreglumenn þó
hjá því að sinna útköllum
vegna árekstra og ölvunar.
Alls urðu 5 árekstrar frá föstu-
degi og fram á sunnudag. Voru
þeir allir minniháttar og engin
slys á fólki. Einn áreksturinn
var með þeim hætti að bifreið
og óskráð fjórhjól lentu
saman.
Þeir sem aka um á óskráðum
fjórhjólum taka mikla áhættu því
þeir hafa ekki tryggingarnar á
bak við sig. Þeir verða því bæði
að greiöa tjón á hjólinu og bíln-
um eða því sem ekið er á. úr eig-
in vasa, ef þeir eru í órétti. Búið
er að gefa út reglugerð um fjór-
hjólin en að sögn lögreglunnar
virðast eigendur þeirra vera sein-
ir að taka við sér. -HJS