Dagur - 04.05.1987, Blaðsíða 6

Dagur - 04.05.1987, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 4. maí 1987 Erlendur Hermannsson þjálfar Þór í 1. deildinni næsta vetur. Handbolti: Brynjar áfram með KA Erlendur m » r ■ i_ r þjalfar Þor Þórsarar hal'a endurráðið Erlend Hertnanns- son sem þjálfara nieistaraflokks í handbolta inesta keppnistímabil. I»að keniur fæstum á óvart þar sem Erlendur náði l'rábæriini árangri með liðið í vetur og kom því í 1. deild. Síðastliðið haust leit jafnvel ut á tímabili að handknattleiksdeild félagsins legðist nið- ur vegna manneklu. En úr rættist með þjálf- un og stjórnarmenn og árangurinn lét ekki á sér standa, Þór vann sér sæti í 1. deild eftir að hafa komist „bakdyrainegin“ í 2, deild í fyrra. Ljóst er róður Þórsara verður þungur á næsta ári en ef liðið heldur þeim mannskap er lék með liðinu í vetur og fær jafnvel einn til tvo snjalla leikmenn til viðbótar, gefur llð- ið spjarað sig. Brynjar Kvaran hefur skrifað undir nýjan þjálfarasamning við KA og mun hann þjálfa liðið áfram í 1. deildinni í handbolta næsta ár. Brynjar tók við liðinu í haust og Ijóst var þá að hann ætti erfitt verkefni fyrir höndum þar sem KA liafði misst nokkra af sínum betri leikntönnum. En Brynjar náði mun betri árangri með liðið en búist var við í upp- hafi móts. Liðið hafnað í 6. sæti í 1. deild með 20 stig í 18 leikjum, vann 9 leiki, geröi 2 jafntefli og tapaði 7 leikjum. • Flest bendir til þess að KA missi stórskyttu sína Jón Kristjánsson eins og áður hefur komið fram í blaöinu en á móti hefur Jakob Jónsson sem hefur verið stórskytta í Noregi síðustu ár, gengið til liðs við KA-menn á ný. Brvnjar Kvaran hefur verlð endurráðinn þjálfari KÁ. íþróttiL Sigurbjörn Viðarsson leikmaður Þórs og Tryggvi Gunnarsson leikmaður KA berjast um knöttinn í leiknum á föstudag. Bikarkeppni KRA: Þór sigraði KA í baráttuleik - og liðið sigraði í bikarkeppninni og vann bikarinn til eignar „Ég er mjög ánægður, mér hefur ekki gengið neitt allt of vel framan af vori en ég finn að þetta er allt að koma. Þessi leikur var ósköp venjulegur leikur á milli þessara liða, mik- il barátta en lítil knattspyrna sýnd,“ sagði Hlynur Birgisson hetja Þórsara í leiknum við KA í bikarkeppni KRA á föstudag. Hann skoraði eina mark leiksins og tryggði Þór sigur og um leið sigur í bikar- keppni KRA 1987. Þórsarar unnu bikarinn sem keppt var um til eignar þar sem þetta var í flmmta sinn sem þeir vinna hann. Leikurinn sem fram fór á KA- vellinum var lítið fyrir augað enda aðstæður til knattspyrnu- iðkunar ekkert sérlega skemmtilegar. KA-menn voru mun frískari í fyrri hálfleik og voru óheppnir að koma ekki marki á Þórsara. Strax á 3. mín. fékk Bjarni Jónsson boltann einn og óvaldaður innan við markteig til hliðar við markið en Baldvin markvörður Þórs varði fast skot hans í horn. Þórsurum gekk illa að hreinsa frá markinu og alls fengu KA-ntenn þrjár hornspyrn- ur í röð. Eftir þessa hörðu atlögu KA-manna í qpphafi leiksins jafnaðist hann til muna en þó náðu Þórsarar aldrei að ógna marki KA í fyrri háífleik. Á 33. mín. hálfleiksins má segja að Þórsarar hafi sloppið mcð skrckkinn. Eftir mikinn darr- aðadans í vítateig Þórs og hrika- legt úthlaup Baldvins markvarð- ar. bjargaði Jónas Róbertsson skoti KA á marklínu. í hálfleik var staðán 0:0. í síðari hálfleik snérist dæmið við og þá voru Þórsarar mun frískari. Á 48. mín. fékk Nói hörkufæri á vítateig en fast skot hans fór iangt fram hjá. (Rétt við línuvörðinn). Á næstu mín. á eft- ir skoraði Hlynur síðan sigur- markið. Einar Arason braust þá af harðfylgi upp að endamörk- um vinstra megin og sendi háan bolta fyrir markið. Haukur Bragason markvörður KA virtist hafa öruggar hcndur á knettinum en svo var ekki, hann missti bolt- ann og Hlynur var fyrstur að átta sig og potaði honum í stöngina og inn. Skömmu síðar átti Bjarni skot rétt yfir Þórsmarkið og þeg- ar lítið var eftir af leiknum skall- aði Erlingur Kristjánsson yfir Þórsmarkið eftir aukaspyrnu. En fleiri urðu mörkin ekki og Þórs- arar fögnuðu sigri í leikslok. Einar Arason og Halldór Áskelsson voru skástir í Þórslið- inu en hjá KA voru þeir Bjarni Jónsson og Erlingur Kristjánsson skástir. Leikinn dæmdi Magnús Jónat- ansson og fórst honum það ágæt- lega úr hendi. Handbolti: Tveir landsleikir við Norðmenn - Jón Kristjánsson í landsliðshópnum Landslið íslands, skipað leik- mönnum 21 árs og yngri leikur tvo leiki gegn Norðmönnum um það hvor þjóðin kemst í lokakeppni heimsmeistara- móts landsliða í handknattleik, U-21. Fyrri leikurinn fer fram á íslandi 30. maí en sá síðari í Noregi 6. júni. Sjálf loka- keppnin fer fram í Júgóslavíu í desember. Viggó Sigurðsson þjálfari íslenska Iiðsins hefur valið liðið Jón Kristjánsson er í hópnum sem mætir Norðmönnum. sem leikur þessa leiki og þeir eru eftirtaldir: Markverðir: Bergsveinn Bergsveinsson FH Guðmundur A Jónsson Fram Hrafn Margeirsson ÍR Aðrir leikmenn: Konráð Olavsson KR Hálfdán Þórðarson FH Gunnar Beinteinsson FH Bjarki Sigurðsson Víking Sigurjón Sigurðsson Haukum Sigurður Sveinsson Aftureld. Stefán Kristjánsson FH Árni Friðleifsson Víking Einar Einarsson Stjörnunni Héðinn Gilsson FH Jón Kristjánsson KA Skúli Gunnsteinsson Stjörnunni Pétur Petersen FH Sjö lið tryggðu sér sæti í aðal- keppninni á síðasta heimsmeist- aramóti en það eru Sovétmenn, Svíar, Tékkar, Danir, Júgóslav- ar, Austur-og Vestur Þjóðverjar. Þá hafnaði íslenska liðið í 8 sæti eftir tap gcgn Dönum í hörku- leik. ísland og Noregur léku síðast í þessum aldursflokki í Noregi síð- astliðið haust og þá fóru Norð- menn með sigur af hólmi 24:21. Liðin þykja nokkuð jöfn að getu og má búast við hörkuleikjum. Bik; Reynslu gerði - þegar liðið ti Á fimmtudagskvöldið léku KA og Grótta til úrslita í bikar- keppni annars flokks karla í handknattleik. Leikurinn fór fram í Seljaskóla og honum lauk með sigri Gróttu 23-20 eftir að þeir höfðu haft forystu 12-9 í hálfleik. KA strákarnir hófu leikinn af miklum krafti og skoruðu tvö fyrstu mörkin. Gróttumenn jöfn- uðu síðan 3-3 en KA náði foryst- unni aftur og var yfir þangað til um miðjan hálfleikinn að Seltirn- ingar sigu fram úr og héldu for- ystu til loka leiksins. Jón Kristjánsson fór mjög vel af stað í leiknum en var síðan tekinn úr umferð og við það riðl- aðist leikur KA mjög mikið. Arnar Dagsson leikmaöur KA svífur ir Keppni Daníel o Daníel Hilmarsson frá Dalvík og Guðrún H. Kristjánsdóttir frá Akureyri sigruðu í sam- hliðasvigskeppni sem lialdin var í Bláfjöllum á laugardag- inn. Mjög gott veður var á Knatts Glasgow skoskur Glasgow Rangers, liðið sem Greame Souness fyrrum leikmaður Liverpool stýrir og leikur með, varð á laugardag- inn skoskur meistari í knatt- spyrnu. Þó enn sé ein umferð eftir í skosku úrvalsdeildinni er titillinn þegar í höfn hjá Rangers. Liðið gerði jafntefli við Aberdeen á laugardaginn 1:1 á útivelli en á

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.