Dagur - 04.05.1987, Qupperneq 3
J
4. maí 1987 - DAGUR - 3
Halldórsmótið:
Gunnar Berg
enn efstur
Nú er lokið 10 umferðum af 13
í Halldórsmótinu hjá Bridge-
félagi Akureyrar, árlegu minn-
ingarmóti um Halldór Helga-
son. Þetta er sveitakeppni og
spilad er eftir Board-O-Max
fyrirkomulagi.
Staða efstu sveita að loknum
10 umferðum er þessi:
Stig:
1. Gunnar Berg 182
2. Gunnlaugur Guðmundsson 180
3. S.S. Byggir h.f. 167
4. Árni Bjarnason 152
5. Ragnhildur Gunnarsdóttir 147
6. Stefán Vilhjálmsson 146
7.-8. Haukur Harðarson 144
7.-8. Stefán Sveinbjörnsson 144
9. Hellusteypan hf. 140
Keppnisstjóri er Albert Sig-
urðsson.
Svo sem sjá má er keppnin jöfn
og spennandi og ljóst að Gunnar
Berg og félagar verða að halda
vel á spilunum ef þeir ætla að
halda toppsætinu.
Síðustu þrjár umferðirnar
verða spilaðar í Félagsborg ann-
að kvöld og hefst spilamennskan
kl. 19.30. BB.
hluta í mörgum skuldabréfum og
þannig minnkar áhættan, það er
ekki bara einn skuldari. Síðan
geturðu komið hvenær sem er og
leyst út þann pening sem þú ert
búinn að leggja inn.“
- En þetta er sem sagt áhætta?
„Það er talað um mismunandi
áhættu. Ríkisskuldabréfin eru
auðvitað áhættuminnst því ríkið
er skuldari. Þar af leiðandi er
ávöxtun ríkisskuldabréfa lægri en
annarra verðbréfa. Það er trygg-
ara að kaupa skuldabréf með
góðu veði í fasteign heldur en
”” bréf með sjálfskuldarábyrgð ein-
staklings því er ávöxtun sjálfs-
skuldarábyrgðarbréfa hærri en
ávöxtun veðskuldabréfa.
Við erum líka með nýjung en
það eru lífeyrisbréfin. Þetta er
sjóður sem á sér fyrirmynd all-
staðar erlendis. f>ú getur stofnað
þinn eigin lífeyrissjóð með því
að gera áætlun fyrir sjálfan þig í
samvinnu við okkur. f>ú ákveður
að spara kannski 5000 kr. á mán-
uði í 20 ár. Við sjáum um að
halda utan um sparnaðinn fyrir
þig, sendum þér gíróseðil einu
sinni í mánuði. Gíróseðillinn er
óútfylltur þannig að ef þú átt ekki
pening einn mánuð geturðu
sleppt þessu og borgað svo
kannski hærri upphæð seinna.
Eftir þessi 20 ár geturðu tekið út
pening mánaðarlega eða alla
upphæðina í einu, allt eftir þín-
um hentugleika. Munurinn á
þessu og venjulegum lífeyrissjóð-
um er að þessir peningar eru allt-
af þín eign, þetta læsist ekki inni
í einhverju lífeyrissjóðakerfi.
Þetta er í samvinnu við Almenn-
ar tryggingar og Almennar líf-
tryggingar og þú getur tryggt þig
fyrir því að tryggingarnar haldi
áfram að borga þessa upphæð
fyrir þig eða þú getur fengið það
allt út, ef eitthvað kemur fyrir,
sjúkdómar eða slys. Það er rétt
að taka það fram að þó fólk
ákveði að kaupa lífeyrisbréf hjá
okkur verður það samkvæmt lög-
um að halda áfram að borga í
sinn lögbundna lífeyrissjóð."
- Hvað þarf fólk að borga
ykkur fyrir þjónustuna?
„Við tökum 2% innlausnar-
gjald af þeirri upphæð sem þú
tekur út hverju sinni eftir sparn-
aðartímann.“
- Að lokum, er fólk ekki rugl-
að á öllum þessum ávöxtunar-
möguleikum?
„Jú, það má segja það, það eru
svo rnargar tegundir af reikning-
um í gangi, t.d. hjá bönkunum,
hver um sig rneð mismunandi
reglum, þannig að þetta verður
eins og fargjaldafrumskógurinn
hjá flugfélögunum." -HJS
Á fundi 24. apríl sl. í Golf-
skálanum við Hlíðarenda veitti
Lionsklúbbur Sauðárkróks
félagi Sjálfsbjargar á staðnum
100 þúsund króna fjárframlag,
peningum sem klúbburinn
safnar meðal almennings með
ýmsum hætti og veitir síðan til
líknar- og menningarmála
árlega. Gm þessar mundir eru
25 ár frá stofun félags Sjálfs-
bjargar á Sauðárkróki og
undanfarið hafa staðið yfir
miklar endurbætur á húsi
félagsins við Sæmundargötu.
Sigmundur Pálsson formaður
klúbbsins afhenti Karli Magnús-
syni ávísunina og færði Karl fram
þakkir með stuttu ávarpi. Kvað
hann þessa peninga koma að
góðum notum við endurbætur á
húsi félagsins sem tekið hefði
miklum stakkaskiptum upp á síð-
kastið. En hvað sem fjármunun-
um liði þá væri hugurinn bak við
verkin sem skipti mestu máli og
þakkaði hann þann mikla hug sem
Lionsklúbbur Sauðárkróks sýndi
félagi Sjálfsbjargar. -þá
Nemendur fjórða bekkjar VMA dimmiteruðu á fímmtudaginn. Fóru þeir vítt og breitt um bæinn á dráttarvélum og
þar til gerðum vögnum. Hver bekkur klæddi sig upp á, rétt eins og börnin á öskudaginn og hér sést einn bekkurinn
sem er í gervi strumpa og tóku sig bara vel út. Mynd: ehb
Á föstudaginn var í fyrsta skipti skipað út fóðri sem framleitt er í verksmiðju
ístess hf. á Krossanesi. Fóðrið er sett í gáma, eins og sést á myndinni.
Mynd: EHB
Togarar ÚA:
Aflinn fyrstu 3
mánuðina 3900 tonn
Fyrstu þrjá mánuði þessa árs
veiddu togarar Útgerðarfélags
Akureyringa samtals 3896
tonn að verðmæti 92,2 milljón-
ir króna. Togararnir fjórir fóru
á þessum tíma í 25 veiðiferðir.
Af þessu eru um 3000 tonn
þorskur.
Sem kunnugt er, þá er Slétt-
bakur nú í Slippstöðinni á Akur-
eyri þar sem verið er að gera
miklar breytingar á honum. Tog-
ararnir eru því einum færri en í
fyrra.
Kaldbakur fór á þessum þrem-
ur mánuðum í 7 veiðiferðir og
veiddi í þeim 1279 tonn að
brúttóverðmæti 31 milljón. Sval-
bakur fór einnig í 7 túra og veiddi
1247 tonn að verðmæti 28,7 millj-
ónir en í 6 túrum aflaði Harðbak-
ur 872 tonna fyrir 20,4 milljónir.
Hrímbakur veiddi 498 tonn að
verðmæti 12 milljónir í fimm
túrum.
Fyrstu þrjá mánuði ársins 1986
var afli togaranna fjögurra heldur
rneiri eða 3741 tonn.
Að undanförnu hefur afli
togaranna verið mjög góður og
um daginn landaði Harðbakur
287 tonnum. Aflinn var að mestu
grálúða en nú er sá tími að byrja
að rnikið veiðist af henni. ET
Sauðárkrókur:
Félag Sjálfs-
bjargar fær
fjárstuðning
Ibúðir til
Erum að hefja sölu á 10 íbúðum í
fjölbýlishúsi við Melasíðu 6.
3ja og 4ra herbergja íbúðum fylgir bílskúrsréttur.
íbúðirnar seljast tilbúnar undir tréverk,
sameign frágengin.
Verð þ. 1. maí 1987. 2ja heb. kr. 1.611.000,-
3ja herb. kr. 2.186.000.-, 4ra herb. kr. 2.437.000,-
Draupnisgötu 7m
■ÍS 96-23248 - Pósthólf 535 - 602 Akureyri.
Félag verslunar-
og skrifstofufólks, Akureyri
Sími 21635 - Skipagötu 14
SUMARHÚS
Sumarhús til leigu fyrir félaga verslunar- og
skrifstofufólks Akureyri og nágrenni.
Félagið hefur til umráða hús á eftirtöldum stöðum:
lllugastaðir, Aðaldalur, Vaglaskógur,
íbúð í Reykjavík.
Eyðublöð og upplýsingar veittar á skrifstofu félags-
ins, Skipagötu 14, sími 21635.
Umsóknarfrestur er til 15. maí 1987.
Unnið verður úr umsóknum.
Þeir sem aldrei hafa fengið hús áður hafa forgang.
Leiga á sumarhúsi er kr. 4.000.-
Leiga á íbúð er kr. 4.500.-