Dagur - 04.05.1987, Blaðsíða 8
8-DAGUR-4. maí 1987
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Borgarhlíð 6a. Akureyri, þingl. eigandi Jakob
Jóhannesson, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti
107, 3. hæð, Akureyri föstud. 8. maí kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Veðdeild Landsbanka Islands og Inn-
heimtumaður ríkissjóðs.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Hafnarstræti 25, e.h. og ris, Akureyri, þingl. eig-
andi Leifur Thorarensen ofl., fer fram í dómsal embættisins
Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 8. maí kl. 17.00.
Uppboðsbeiðandi er: Bæjarsjóður Akureyrar.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Lyngholt 26, Akureyri, þingl. eigandi Jón
Ásmundssón, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti
107, 3. hæð, Akureyri föstud. 8. maí kl. 16.15.
Uppboðsbeiðendur eru: Hreinn Pálsson hdl. og Veðdeild
Landsbanka íslands.
Bæjarfogetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Norðurgata 32, Akureyri, talinn eigandi Jakob
Tryggvason ofl., fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti
107, 3. hæð, Akureyri föstud. 8. maí kl. 16.45.
Uppboðsbeiðendur eru: Ragnar Steinbergsson, hrl., Hreinn
Pálsson hdl. og Agnar Gústafsson hrl.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Óseyri 16, Akureyri, þingl. eigandi Vör hf., fer
fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri
föstud. 8. maí kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er: Ólafur B. Árnason hdl.
Bæjarfogetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðara, á fasteigninni Arnarsíða 6d. Akureyri, þingl.
eigandi Ásgeir Ingi Jónsson, fer fram í dómsal embættisins
Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 8. maí kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Tryggingastofnun ríkisins og Ólafur
B. Árnason hdl.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðara, á fasteigninni Faxaborg 6, hesthús, Akur-
eyri, talinn eigandi BirgirÁrnason, ferfram í dómsal embættis-'
ins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 8. maí kl.
15.15.
Uppboðsbeiðandi er: Gunnar Sólnes hrl.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðara, á fasteigninni Frostagötu 3b. b-hl. Akureyri,
þingl. eigandi SigurðurÁkason, ferfram í dómsal embættisins
Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 8. maí kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru: Iðnlánasjóður og Sigurður G. Guð-
jónsson hdi.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðara, á fasteigninni Hafnarstræti 67, Akureyri, tal-
inn eigandi Fontur hf. fer fram í dómsal embættisins Hafnar-
stræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 8. maí kl. 17.15.
Uppboðsbeiðendur eru: Byggðastofnun, Ásgeir Thoroddsen
hdl., Innheimtumaður ríkissjóðs, Brunabótafélag íslands og
Ólafur B. Árnason hdl.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Fjórír nemendur Hafralækjarskóla:
Mamþondans í 26 tíma
Á sumardaginn fyrsta hófu 25
nemendur úr sjöunda og átt-
unda bekk í Hafralækjarskóla
maraþondans í félagsheimilinu
Ydölum. Dansinn hófst kl.
18.00 og fjórir úthaldsbestu
nemendurnir dönsuðu til kl.
20.00 á föstudag eða samtals í
26 klukkutíma. Nemendurnir
höfðu safnað áheitum hjá
fyrirtækjum að upphæð 70-80
þúsund krónur sem notaðar
verða til að bæta útivistar- og
tómstundaaðstöðu við
skólann.
Dagur kom að Ýdölum þegar
nemendurnir höfðu dansað sam-
fellt í sólarhring, aðeins var tekið
fimm mínútna hlé á klukkutíma
fresti. Nemendurnir fjórir sem
ekkert voru á því að gefast upp
Erna Ólafsdóttir mamma Böðvars farin að dansa með lengst til hægri á
myndinni.
Þorsteinn Halldórsson plötusnúður.
við dansinn voru Þórdís Linda
Guðmundsdóttir og Böðvar Þór
Kárason úr sjöunda bekk og
Valtýr Freyr Helgason og Sigmar
Stefánsson úr áttunda bekk.
Það var komið að pásu og þá
lögðust krakkarnir á gólfið,
greinilega fegin þessari smáhvíld
þó þau létu engan bilbug á sér
finna. Nokkrir nemendur og
kennarar, ásamt móður Böðvars,
Ernu Ólafsdóttur hjúkrunarkonu
hlynntu að dönsurunum og nudd-
uðu fætur þeirra.
Krakkarnir voru sammála um
að erfiðasti tíminn hefði verið
milli 5 og 6 um morguninn. Þór-
dfs sagði að sér liði bara vel en
hún væri svolítið lúin í löppun-
um, sér fyndist best að dansa eftir
hröðum lögum og hún var ekkert
á því að hætta. Böðvar sagði að
heilsan væri ágæt núna en hann
hefði alveg verið kominn að því
Minning:
Ý Friðrik Júníusson
Fæddur 6. febrúar 1898 - Dáinn 24. apríl 1987
Föstudaginn 24. apríl sl. andaðist
á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri Friðrik Júníusson, eftir stutta
en erfiða sjúkdómsbaráttu.
Friðrik var fæddur 6. febrúar
1898 í Baugaseli í Hörgárdal
elsta barn hjónanna Júníusar
Friðrikssonar og Rannveigar
Ólafsdóttur. Tveggja ára fluttist
hann með foreldrum sínum að
Flögu í sömu sveit og átti þar
heimili til tíu ára aldurs. Föður
sinn missti Friðrik ungur aðeins
níu ára og ári síðar fluttist móðir
hans með börnin þrjú að Myrk-
árdal í sömu sveit og bjó þar um
nokkurt skeið. Eins og alsiða var
f sveitum á íslandi á þessum tím-
um byrjaði Friðrik snemma að
taka til hendi við bústörfin, enda
kröfðust aðstæður heimilisins að
svo væri. Hann fór ungur í
kaupavinnu og létti þannig undir
með fjölskyldunni. Þannig var
víst oft á tíðum hlutskipti fólks á
þessum árum og víst er að mörg-
um nútímamanninum er nær
ógerlegt að gera sér í hugarlund
þær aðstæður sem fólk þá bjó
við.
Árin 1919-1921 stundaði Friðr-
ik nám við Bændaskólann á Hól-
um í Hjaltadal og nokkur næstu
ár vann hann við plægingar og
jarðvinnslu á sumrum en fjár-
gæslu á vetrum. Árið 1931 kvænt-
ist hann Guðrúnu Steindórsdótt-
ur frá Þrastarhóli og hófu þau
búskap á Nunnuhóli 1932, en
jafnframt stundaði hann vinnu
hjá prestinum á Möðruvöllum
séra Sigurði Stefánssyni.
Bústofninn var ekki stór, 30 ær
og ein kýr, en nóg á sá sér nægja
lætur. Þeim Friðrik og Guðrúnu
fæddust tvær dætur Elín Guðrún
gift Sigursteini Kristjánssyni og
Hulda Rannveig gift Arnljóti
Einarssyni. Árið 1934 fluttust
Friðrik og Guðrún að Syðri-
Bakka í Arnarneshreppi og
bjuggu þar í átján ár eða þar til
þau fluttu að Flúðum við Akur-
eyri, en á Akureyri dvöldu þau
síðan bæði til dauðadags. Guð-
rún andaðist 1971 og hafði þá átt
við vanheilsu að stríða í mörg ár.
Hann Friðrik afi minn var
dæmigerður íslenskur alþýðu-
maður er verk sín vann af alúð og
trúmennsku þau er honum voru
falin. Á Akureyri vann hann
almenna verkamannavinnu m.a.
í Lystigarðinum hjá Jóni Rögn-
valdssyni og í Möl og sandi. Ef til
vill er trúmennskan, skyldurækn-
in og vinnusemin eitthvert helsta
einkenni þeirrar kynslóðar er
Friðrik tilheyrði og mættu menn
gjarnan draga nokkurn lærdóm
og fyrirmynd af þeim eiginleikum
þessara aldamótabarna. Það eru
nefnilega þessir hljóðlátu,
íslensku alþýðumenn sem skópu
í raun og veru velferðarríkið er
við nú lifum í. Þó er næsta víst að
ekki fari mikið fyrir nöfnum
þeirra á spjöldum sögunnar en
þessa er hollt að minnast.
Sem barn og unglingur varð ég
þeirrar gæfu aðnjótandi að alast
upp á heimili þar sem afinn og
amman tóku þátt í uppeldi
barnabarnanna. Fyrir það er ég
þakklátur og er tímar líða er mér
betur ljóst hver fjársjóður það er
hverju barni sem þess fær að
njóta. Afi var einn af þeim
mönnum sem alltaf eru tilbúnir