Dagur - 18.05.1987, Page 1
70. árgangur Akureyri, mánudagur 18. maí 1987________________92. tölublað
Filman þín
á skiliö þaö
besta /
FILMUHUSIÐ
Hafnarstræti 106- Simi 22771 - Pósthólf 198
gæðaframköllun
Hrað-
framköllun
Opið á
laugardögum
frá kl. 9-12.
Boðveitunefnd og Póstur og sími:
Kapalkerfi fyrir Akureyri
- sem m.a. myndi dreifa sjónvarpsefni frá gervihnöttum
A vegum Boðvcitunefndar
Akureyrarbæjar er nú verið að
vinna tillögur um gerð dreifi-
kerfis fyrir margs konar send-
inga, þ.á m. sjónvarpssend-
inga frá gervihnöttum. Ætlun-
in er að gera samning milli
Akureyrarbæjar og Pósts og
síma um fyrirkomulag slíks
dreifikerfis fyrir bæinn.
Það er Páll Jónsson tækni-
fræðingur hjá tæknideild Pósts og
síma sem er að vinna þessar til-
lögur. Páll kom nýlega á fund hjá
boðveitunefnd þar sem hann
kynnti það nýjasta í þessum
málum.
Víða erlendis fer nú fram
ákveðin togstreita milli eigenda
aflmikilla gervihnatta annars veg-
ar og aflminni hnatta hins vegar.
Til að ná sendingum frá hinum
minni þarf nokkuð stór loftnet
eða diska, sem ekki er á færi ein-
staklinga að reka. í slíkum tilfell-
um hafa einmitt verið sett á fót
kapalkerfi.
Á næsta ári verða sendir á loft
tveir nýir sjónvarpshnettir en
vegna legu íslands verður aðeins
hægt að ná þeim hér með stórum
loftnetum. Ánnar þessara hnatta,
ASTRA, mun senda út hvorki
fleiri né færri en 16 sjónvarpsrásir
frá ýmsum löndum.
Petta er einmitt það sem boð-
veitunefnd er nú að skoða. Lík-
legast er, að um verði að ræða
svokallað „mini-star“ dreifikerfi
en þau eru alls ráðandi í Hol-
landi, sem oft hefur verið kallað
vagga kapalvæðingarinnar. Mini-
star kerfin eru þannig uppbyggð
að u.þ.b. 20 hús eru tengd inn á
hverja „stjörnu" en stjörnurnar
eru svo tengdar móðurstöð þar
sem móttökudiskur yrði staðsett-
ur. Helst er rætt um að þetta yrði
svokallað tvívirkt breiðbands-
kerfi sem rúmað getur auk sjón-
varpssendinga, síma, tölvuboð
og fleira.
Rekstrarform slíks kerfis hefur
ekki verið ákveðið. Einar S.
Bjarnason formaður boðveitu-
nefndar telur rétt að rekstur kerf-
isins, sem yrði þó eign Pósts og
síma, yrði í höndum hverfasam-
taka, fyrirtækja eða einstaklinga.
„Hlutverk bæjarins á, að mínu
mati, ekki að vera annað en að
móta í þessu heildarstefnu,“
sagði Einar í samtali við Dag.
ET
breytingin verður þó fólgin í því
að fleiri deildir tengjast móður-
tölvunni en áður og öll vinnsla
gjörbreytist. Þannig verður mikið
af þeirri vinnu sem farið hefur
fram í tölvudeildinni nú fram-
kvæmd annars staðar. Meðal
þeirra deilda sem tengjast hinni
nýju tölvu verður lager efnaverk-
smiðjunnar Sjafnar í Garðabæ.
Með tilkomu tölvunnar verða all-
ar útstöðvarnar tengdar telex-
kerfi kaupfélagsins.
Að sögn Gunnars voru ýmsar
ástæður fyrir því að HP varð fyrir
valinu. Sá hugbúnaður sem fyrir-
tækið Þróun framleiddi upphaf-
lega fyrir Digital, og KEÁ not-
aði, hefur verið heimfærður yfir á
HP kerfin. Einnig vegur þungt að
tölvan er mjög örugg í notkun og
býr m.a. yfir vararafhlöðu. Loks
er HP tölvan að sögn Gunnars
ódýrari en aðrar sambærilegar
tölvur en kaupverð hennar með
útstöðvum, diskum o.fl. er uin 20
milljónir. ET
Sniff:
„Síðasta verk sumra
í þessum heimi“
Á nokkura ára fresti, skýtur
upp bölvaldi í landinu. Sá sem
nú fer um sem eldur í sinu, er
sniff. Öllum ætti að vera Ijóst
hvílíkur skaðvaldur þetta er,
en afleiðingar geta verið ógn-
vænlegar. Má sem dæmi
- foreldrar veri á varðbergi
nefna, óeðlilegur þroski heila,
minni tilfinningar, hreyfifærni
skerðist og tjónið getur orðið
varanlegt.
Valdimar Brynjólfsson, er
framkvæmdastjóri Heilbrigðis-
Dalvík:
Byggingariðnaður
vex á nýjan leik
Svo virðist sem meiri uppgang-
ur sé í byggingariðnaði á Dal-
vík en víða annars staðar á
Norðurlandi. Byggingafélagið
Viðar hf. hefur sótt um 2 lóðir
undir fjölbýlishús og vill reisa
annað húsið í sumar, 10 íbúðir.
Fyrr á þessu ári hafði Tréverk
hf. uppi áform um að byggja 8
raðhúsaíbúðir og einnig var
fyrirhugað að byggja 5-6 ein-
býlishús á Dalvík, að sögn
Kristjáns Þórs Júlíussonar
bæjarstjóra.
„Hér fæst ekki íbúðarhúsnæði
frekar en glóandi gull,“ sagði
Hilmar Daníelsson, annar af eig-
endum Viðars hf., í samtali við
Dag sl. fimmtudag og sömu sögu
má reyndar segja frá Akureyri
þótt lítið fréttist þar af íbúða-
byggingum. Umsókn Viðars hf.
er nú til umfjöllunar hjá bænum
og sagði Kristján Þór Júlíusson
að bæjaryfirvöld hefðu fullan
vilja til þess að leysa úr þessari
umsókn og finna hentugar lóðir.
Ekki sagðist Kristján vita hvort
Tréverk hf. hefði enn hug á að
byggja raðhúsin en þetta hefði
borið á góma skömmu eftir ára-
mótin. Varðandi einbýlishúsin
bjóst hann við að þau yrðu
eitthvað færri en til stóð í upphafi
og reyndar vissi hann aðeins um
eitt sem ákveðið væri að byggja.
Engin fasteignasala er á Dalvík
en Kristján hafði þó heyrt að
eitthvað væri að losna af íbúðum
til sölu. Þó væri ljóst að auka
þyrfti framboðið enda kallaði
vaxandi atvinnulíf á fólksfjölgun.
SS
eftirlits Eyjafjarðar, og sagði
hann í samtali við Dag, að þeir
hefðu ekki orðið varir við að
börn og unglingar á svæðinu
hefðu leiðst út í þetta, enn sem
komið er. Hann taldi af hinu
góða, að banna sölu á leysiefnum
í verslunum og að miða sölu
þeirra annars staðar við 18 ára
aldurstakmark. Umræða um
þessi mál taldi Valdimar að væri
af hinu góða, og æskilegt er að
foreldrar séu á varðbergi gagn-
vart börnum sínum.
Hjá rannsóknarlögreglunni
fengust þær upplýsingar, að ekki
hefði komið upp tilfelli um sniff
ennþá. Þeir munu vera á varð-
bergi og finnst mjög eðlileg við-
brögð að banna sölu á efnunum í
verslunum.
Til umhugsunar skal hér vitnað
í bækling sem gefinn var út fyrir
nokkrum árum, sem heitir „Sniff
er hættulegt heilsu þinni.“ Þar
segir m.a: „Að þefa af leysiefni
er síðasta verk sumra í þessum
heimi. Þeir kafna í eigin spýju,
ofreyna hjartað svo það stansar,
kafna í poka, álpast fram af
bryggjum eða verða undir bíl.
Þessir menn hafa sjálfsagt haldið
að það kæmi ekki fyrir sig.“
VG
Brúsar sem þessir mega ekki vera til sölu í almennum verslunum. Þá má hins
vegar fá, t.d. á bensínstöðvum, með því skilyrði að kaupandi sé fulira 18 ára.
Mynd: RÞB
Kaupfélag Eyfirðinga:
Kaupir tölvukerfi fyrir 20 milljónir
- getur tengst 150 útstöðvum - afkastameiri en öll önnur tölvukerfi í bænum samanlagt
I byrjun apríl var mörkuö lang-
tímastefna í tölvumálum
Kaupfélags Eyfiröinga með því
að undirritaöur var samningur
um kaup á fullkominni tölvu af
gerðinni Hewlett Packard
3000/930. Minni vélarinnar er
16 Mb sem þýðir að það getur
geymt 16 milljónir stafa.
Gunnar Hallsson deildarstjóri
tölvudeildarinnar segir hina
nýju tölvu vera afkastameiri en
öíl önnur tölvukerfi í bænum.
Hin nýja tölva verður ein sú
stærsta á landinu og til að mynda
stærri en tölva SÍS. Um er að
ræða splunkunýja gerð af HP
tölvum. Ein sú fyrsta, og sú fyrsta
til landsins, þessarar tegundar
verður afgreidd til Pósts og síma í
október en tölva KEA kemur
ekki fyrr en í mars á næsta ári.
Tölvan getur tengst allt að 150
útstöðvum og samtímis getur hún
afgreitt a.m.k. 120 slíkar. Þess
má geta að samningurinn er gerð-
ur með þeim fyrirvara að hægt
verði að breyta yfir í næstu stærð
fyrir ofan, en hún er 50%
afkastameiri.
Hjá tölvudeildinni eru nú tvær
tölvur, en með tilkomu nýja kerf-
isins áttfaldast minnið. Mesta