Dagur - 18.05.1987, Blaðsíða 8

Dagur - 18.05.1987, Blaðsíða 8
8- DAGUR- 18. maí 1987 Super Solaríum Professional sólarlampi til sölu. Með nýlegum perum. Upplýsingar í síma 25610. Nauðungaruppboð á fasteigninni Skaröshlfð 22e, Akureyri, þingl. eignadi Jó- hanna Valgeirsdóttir, fer fram í dómsal embættisins Hafnar- stræti 107, 3. hæö, Akureyri föstud. 22. maí kl. 14.45. Uppboðsbeiðandi er: Ólafur Axelsson hrl. Bæjarfogetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninni Lækjargata 6, Akureyri, þingl. eigandi Ólafur Ólafsson o.fl., fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 22. maí kl. 14.30. Uppboðsbeiðandi er: Gunnar Sólnes hrl. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninni Kjalarsíða 16d, Akureyri, þingl. eigandi Gísley G. Hauksdóttir, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 22. maí kl. 15.15. Uppboðsbeiðandi er: Gunnar Sónes hrl. Bæjarfógetinn á Akureyri. „Menn stóðu sig ákaflega vel voru frískir í þessu“ - Lionsklúbbur Siglufjarðar stóð fyrir matreiðslunámskeiði í vetur Þegar Dagur var á ferð á Siglu- firði í vetur komst blaðið á snoðir um heilmikið mat- reiðslunámskeið sem Lions- klúbbur staðarins stóð þá fyrir, er Benedikt Sigurjónsson einn félaga í klúbbnum var tekinn tali. Þar sem námskeiðið var ekki nema stutt á veg komið, var ekki mikið um það að segja þá, en á dögunum var rætt við Benedikt í annað sinn. „Menn stóðu sig ákaflega vel, voru vel frískir í þessu. Maður sá ýmis tilþrif og þetta var ansi skemmtilegt. Að loknu nám- skeiðinu fengu menn síðan afhent meistarabréf í matreiðslu, en það var auðvitað í gríni gert. Við enduðum þetta með því að bjóða konunum út að borða. Við vorum með vín með matnum og þetta var virkilega huggulegt, eins konar jólastemmning sem rfkti. Að sjálfsögðu matbjuggum við matinn sem fram var borinn, og þótti hann bragðast alveg sér- staklega vel. Það hafði einhver orð á því að konurnar hefðu orð- ið hálf spældar yfir því hvað við vorum orðnir flínkir, örlítillar afbrýðisemi gætt.“ - Ertu þá farinn að elda alveg á fullu núna? „Ég hef nú dregið mig svolítið í hlé núna, en auðvitað fer maður að elda.“ - Þegar ég hitti þig í vetur þá hafðir þú gert eplapæ og svo varstu að tala um eitthvað snið- ugt hjá Óla Blöndal. „Já. Eplapæið þótti alveg frábært. Óli Blöndal gerði ítalsk- an kjötrétt, sem þótti alveg sér- staklega góður og höfðu menn orð á því að Óli gæti sómt sér sem aðalkokkur á hvaða fyrsta flokks alþjóða veitingastað sem er.“ Nauðungaruppboð á fasteigninni Tryggvabraut 5-7, Akureyri, þingl. eigandi Þórs- hamar hf., fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 22. maí kl. 17.00. Uppboðsbeiðandi er: Innheimtumaður ríkissjóðs. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninni Draupnisgötu 4, e.h. n-hl. Akureyri, þingl. eig- andi Karl og Þórðursf., ferfram í dómsal embættisins Hafnar- stræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 22. maí kl. 16.45. Uppboðsbeiðandi er: Innheimtumaður ríkissjóðs. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og síðara, á fasteigninni Sunnuhlíð 13 Akureyri, þingl. eigandi Kjartan Bragason o.fl., fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107,3. hæð, Akureyri föstud. 22. maí kl. 16.30. Uppboðsbeiðendur eru: Veðdeild Landsbanka íslands, Ólafur B. Árnason hdl., Gunnar Sólnes hrl., Hreinn Pálsson hdl., Bæjarsjóður Akureyrar, Innheimtumaður ríkissjóðs, Jón Þór- oddsson hdl. og Sigurður G. Guðjónsson hdl. Bæjarfógetinn á Akureyri. Lögtaksúrskurður eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs á Akureyri Dalvík og í Eyjafjarðarsýslu úrskurðast hér með, að lögtök geti farið fram fyrir eftirtöldum gjöldum, gjaldföllnum, en ógreiddum: Söluskattur fyrir janúar, febrúar og mars 1987 svo og viðbótar- og aukaálagning söluskatts vegna fyrri tímabila. Ennfremur fyrir þinggjaldahækkunum vegna fyrri ára og skipulagsgjaldi af nýbyggingum. Lögtök til tryggingar framangreindum gjöldum ásamt dráttarvöxtum og kostnaði geta farið fram að liðnum 8 dögum frá birtingu úrskurðar þessa. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu, 15. maí 1987. Sérmál aðalfundar KEA 6.-7. maí 1987: Málefiri samvinnu- starfsmanna Það er mér mikil ánægja að fá að reifa lítil- lega sérmál þessa aðalfundar Kaupfélags Eyfirðinga, málefni samvinnustarfs- manna. Ég fagna því að þau eru þannig tekin til umræðu á aðalfundum kaupfélag- anna og á aðalfundi Sambandsins síðar í vor. Ég hefði e.t.v. kosið heldur meiri fyrirvara, svo að málefni samvinnu- starfsmanna hefðu getað fengið sérstaka umfjöllun innan starfsmannafélagsins fyrir þennan aðalfund. Það er sannarlega af nógu að taka og vandinn sá að velja sér umræðugrundvöll við hæfi. Samvinnustarfsmenn á landinu öllu skipta nokkrum þúsundum og eru að ýmsu leyti sundurleitur hópur. Þeir stunda ýmis störf hjá mörgum fyrirtækjum, eru dreifðir um land allt og geta haft ólíkra hagsmuna að gæta t.d. í kjaramálum. Eitt eiga sam- vinnustarfsmenn þó sameiginlegt, að vinna hjá samvinnufélögum og samvinnu- fyrirtækjum og vera þannig hluti af sam- vinnuhreyfingunni á íslandi, eins og segir raunar í stefnuskrá hennar. Viðhorf starfsmanna til vinnuveitandans skiptir hér mikiu máli. Það er mikils virði fyrir sam- vinnuhreyfinguna að sem flestum starfs- mönnum hennar á öllum starfssviðum þyki fremd í því að vinna fyrir hana. Því miður heyrist sa fónn stundum að menn vinni „bara“ fyrir kaupfélagið eða Sambandið líkt og það sé hálfgert feimnismál. Hinum almenna starfsmanni finnst að hann sé orðinn afskiptur og að of mikill stofnana- bragur sé orðinn á Sambandinu og hinum stærri kaupfélögum og samvinnufyrirtækj- um Hart hefur verið deilt á samvinnu- hreyfinguna og fyrirtæki hennar undanfar- in ár, enda hefur höggstaður á stundum verið gefinn. Slíkur áróður getur átt greiða leið að starfsmönnum og setur sitt mark á þá, ef ekki kemur annað á móti til að efla samkennd þeirra og trú á gildi samvinnu- starfsins. Að mínu áliti þurfa ýmsar forsendur að vera fyrir hendi til þess að skapa þetta já- kvæða viðhorf samvinnustarfsmanna til vinnuveitenda sinna, samvinnufyrirtækj- anna, til þess með öðrum orðum að starfs- menn skilji að hagsmunir samvinnu- hreyfingarinnar fara saman við eigin hags- muni. Ég nefni nokkrar þessara forscnda: 1. Starfsmenn þurfa að þekkja upp- byggingu og skipulag eigin fyrirtækis og samvinnuhreyfingarinnar. 2. Virkt félagsstarf í starfsmannafélagi, sem nýtur velvilja forráðamanna fyrir- tækisins. Starfsmenn verða að finna að hagsmunamál þeirra njóti skilnings hjá nánustu yfirmönnum þeirra og öðrum forráðamönnum í fyrirtækinu. 3. Starfsmenn eigi ávallt kost á starfs- menntun og þjálfun og geti vænst viður- kenningar og raunverulegrar umbunar fyr- ir vel unnin störf. 4. Starfsmenn hafi ákveðin áhrif á stjórn fyrirtækisins og gang mála á sínum vinnustað. 5. Aðbúnaður allur á vinnustað og vinnuaðstaða þarf að uppfylla kröfur um hollustuhætti og þægindi - og raunar gott betur. Lítum fyrst á félagssamtök starfsmanna og hvernig þau geta unnið að fræðslu- og tómstundastarfi og öðrum hagsmunamál- um starfsmanna. Við flest samvinnufyrir- tæki eru starfandi starfsmannafélög, mis- virk að vísu. Starfsmannafélögin mynda Landssamband íslenskra samvinnu- starfsmanna - LÍS - sem hefur innan sinna vébanda tæplega 40 félög með um 4500 félagsmenn. Starfsmannafélag Kaupfélags Ey- firðinga - S.K.E. - var stofnað 22. nóv. 1930 og er eitt af elstu og um leið fjöl- mennustu starfsmannafélögunum með um 800 félagsmenn. Allir fastráðnir starfs- menn KEA og sameignarfélaga KEA, sem þess óska, eru félagar í S.K.E. Tilgangur og hlutverk allra starfsmannafélaga er svipaður og við skulum skoða hvernig til- gangi S.K.E. er lýst í lögum þess. Tilgangurinn er m.a.: • Að auka kynni félagsmanna inn og út á við og að vinna að aukinni menningu og fræðslu þeirra. • Að varðveita og auka réttindi félagsmanna. • Að bæta orlofsaðstöðu alla. • Að vinna hugsjónum samvinnu- hreyfingarinnar gagn. • Að vinna að öllum þeim hagsmuna- málum er varða samskipti vinnuveitenda og félagsmanna S.K.E., sem ekki eru beint á sviði stéttarfélaga. Að þessum málum hefur félagið unnið allt frá stofnun, enda eru þau þess eðlis að nýir tímar kalla á ný verkefni. Starfs- mannafélagið heldur uppi ýmiss konar tómstundastarfi, svo sem skák, bridds, íþróttum, skemmtanahaldi og námskeið- um. Öll aðstaða á því sviði gjörbreyttist við tilkomu nýja starfsmannasalarins í verslunarmiðstöðinni, Sunnuhlíð 12 á Akureyri. Kaupfélagið afhenti starfs- mannafélaginu þann sal, sem tekur 100 manns í sæti, þann 17. nóvember 1985 til fullra umráða og afnota. Stjóm KEA tók þessa höfðinglegu ákvörðun í tilefni 50 ára afmælis S.K.E. árið 1980, og salurinn hef- ur reynst okkur starfsmönnum vel þess virði að bíða þessi 5 ár að fá hann afhent- an, en mig rekur minni til að sumir okkar væru orðnir nokkuð óþreyjufullir að fá hann í gagnið. Slík aðstaða til félags- og fræðslustarfs er til mikilla hagsbóta og æskilegt að samvinnustarfsmenn sem víð- ast hefðu til afnota húsnæði við hæfi. Starfsmenn hér á Akureyri eiga að sjálf- sögðu auðveldara með að nýta sér salinn og þá starfsemi, sem þar fer fram, en hinir sem búa og starfa í öðrum byggðarlögum utar með Eyjafirði, eða vestur á Siglufirði. Svipað er upp á teningnum með ýmsa aðra starfsemi S.K.E., aðstaða félags- manna til þátttöku er misjöfn. Ýmislegt hefur þó verið gert m.a. í samvinnu við KEA, til þess að auka kynni starfsmanna innbyrðis og fræða þá í leiðinni. Árið 1980 voru t.d. skipulagðar kynnisferðir starfs- manna utan Akureyrar í KEA fyrirtæki og verslanir hér í bænum. Fram kom ósk frá S.K.E. um hliðstæða fyrirtækjakynningu fyrir KEA starfsmenn á Akureyri, því vissulega lifa menn og hrærast á sínum

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.