Dagur - 18.05.1987, Qupperneq 2
2-DAGUR-18. maí 1987
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 530 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 50 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERTTRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
leiðari._________________________________
Óréttmæt gagmýni á
húsnæðislánakerfið
í ráðherratíð Alexanders Stefánssonar félagsmála-
ráðherra hafa verið gerðar umfangsmeiri breyt-
ingar á húsnæðislánakerfinu en nokkru sinni fyrr.
Eiginlega er réttara að tala um byltingu í því sam-
bandi, þar sem nýja húsnæðislánakerfið er sam-
bærilegt við það besta sem þekkist í nálægum
ríkjum.
Þrátt fyrir þessa staðreynd hefur umræðan um
nýja húsnæðislánakerfið ekki verið að sama skapi
jákvæð. Frá upphafi hefur hún verið menguð
flokkspólitík af verstu gerð og einkennst af stór-
yrðum um langan biðtíma, skort á fjármagni og
þeirri fullyrðingu að kerfið sé að hrynja. Stjórnar-
andstaðan, með Alþýðuflokkinn í broddi fylkingar
hefur leitt þessa neikvæðu umræðu og fullyrða má
að þessar efasemdir hafi átt ríkan þátt í því að
skapa þá byrjunarörðugleika sem nú eru til staðar
í hinu nýja kerfi.
Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri og formað-
ur húsnæðisnefndar aðila vinnumarkaðarins og
ríkisstjórnarinnar sem samdi frumvarpið að nú-
verandi húsnæðislánakerfi, hefur lýst þeirri skoð-
un sinni að einmitt þær efasemdir um ágæti hús-
næðislánakerfisins, sem andstæðingar þess hafa
hampað, hafi orðið til þess að valda áhyggjum og
ótta meðal almennings um að menn yrðu útundan
ef þeir brygðust ekki skjótt við og sæktu um lán.
Þannig hafi þenslan í kerfinu orðið mun meiri en
ráð var fyrir gert, því margir hafi sótt um lán til
þess eins að komast í biðröðina, fremur en að þeir
hygðu strax á húsnæðiskaup.
Hagstofustjóri bendir enntremur á að umræðan
um langan biðtíma eftir lánum sé sérlega villandi.
Bæði hafi sjónarmið um útjöfnun lánveitinga og
auknar ráðstöfunartekjur lífeyrissjóða hvergi
komið þar fram og auk þess hafi menn látið sem
bið eftir húsnæðislánum væri áður óþekkt fyrir-
brigði.
Hafa menn gleymt því að nú er biðtíminn mið-
aður við innlögn umsóknar en í gamla kerfinu var
hann miðaður við fokhelt hús eða þegar gerðan
kaupsamning? Á þessu tvennu er mikill munur.
Niðurstaða hagstofustjóra er sú að bið eftir lán-
um í nýja kerfinu sé enn sem komið er ekki lengri
en í eldra kerfi og ekki lengri en reiknað var með.
Ekkert hafi heldur komið fram sem raski upphaf-
legum hugmyndum um að skynsamlegt sé að kerf-
ið komi að fullu til framkvæmda smám saman. Ekki
skuli því láta undan ítrustu útlánaeftirspurn í upp-
hafi með því að veita meira fé til kerfisins en þegar
er áformað.
Þetta ættu þeir að hafa í huga sem gagnrýna
nýja húsnæðislánakerfið hvað harðast. Það hefur
orðið bylting í lánamálum húsbyggjenda en endur-
bótastarfinu er engan veginn lokið. BB.
rViðtal dagsins.
„Þetta er svo mikill munur
frá því áður að ég get varia lýst því
- sagði Búi Vilhjálmsson sem róið hefur 17 grásleppuvertíðir úr Selvík
ustu yfirferðinni sem við fórum
um netin fengum við 14 tunnur
og núna verðum við með svona
10. Við erum með það mikið af
Selvík.
netum að við erum 3 daga að
vitja um þau öll.“
- Hvað eruð þið búnir að fá
mikið?
„Rúmlega 50 tunnur. Þetta var
ágætis veiði hjá okkur í dag, það
var bara farið að kula svo mikið,
að þess vegna komum við svona
snemma í land. Við lögðum
trossur í „þara“ sem við köllum,
eða grunnt upp við landið fyrir 3
dögum og vitjuðum um þær á
leiðinni í land núna. Það var
mokafli í þeim, 200 stykki í
hverri."
- Hvar gangið þið frá hrogn-
unum?
„Við erum ásamt tveim öðrum
bátuni með aðstöðu hérna úti í
Lágmúla, skammt fyrir utan. Já,
það hefur gengið ágætlega hjá
Það er sjálfsagt ekki ofmælt að
í Selvík á Skaga séu bestu
hafnarskilyrði frá náttúrunnar
hendi við Skagafjörð. Selvík
mun hafa verið löggilt sem
verslunarstaður árið 1903. Þar
var uppskipunarhöfn og
snemma á öldinni var gerð
aðstaða til að skipa vörunum
upp úr skipunum, með braut-
arteinum neðan úr fjörunni og
dráttarspili sem komið var fyr-
ir uppi á bakkanum. I víkinni
lögðu fyrr á öldinni upp afla
sinn bátar frá Vestfjörðum og
víðar.
Nú fyrir stuttu var lokið fyrsta
áfanga varanlegrar hafnargerðar
í Selvík sem félag 11 aðila af 8
bæjum í Skefilstaðahreppi stóð
fyrir óg geta nú grásleppubændur
á Skaganum komið aflanum
beint í land í stað þess að selflytja
hann í land eins og áður þurfti.
Þegar Dagur var þarna á ferð á
dögunum voru Búi Vilhjálmsson
bóndi á Hvalnesi og bátsfélagi
hans Brynjar Gunnarsson að
koma að landi með drekkhlaðinn
bát. Búi var tekinn tali.
„Vertíðin gekk ekkert sérlega
vel hjá okkur til að byrja með.
Við fengum drif á okkur og kom-
umst ekkert á sjó í 3 vikur eftir
fyrstu lögnina. En síðan má segja
að það hafi gengið sæmilega, sér-
staklega upp á síðkastið. í síð-
Búi Vilhjálmsson.
# Sandkornin
„skúbbuð“
íslensk dagblöð hafa mörg
gert talsvert af því gegnum
tíðina að gera góðlátlegt
grín hvert að öðru, í þartil-
gerðum, léttgeggjuðum,
dálkum. Dagur hefur lítið tek-
ið þátt í þessum slag, enda
lítil samkeppni í blaðaheim-
inum hér norðan heiða. Jafn-
vel hefur blaðið ekki sinnt því
að svara stöðugu „sand-
kornaregni" í ónefndu dag-
blaði. Sandkorn þessi snúast
einu sinni í viku um það að
fjalla um það helsta í fréttum
Dags þá vikuna, þó að frétt-
irnar hafi margar hverjar ver-
ið birtar styttar og endur-
sagðar i blaði þessu þá
þegar. Gjarnan eru teknar fyr-
ir hinar og þessar fyrirsagnir.
Nú ætlar S&S hins vegar að
fara ótroðnar slóðir í þessum
bransa og „skúbba" sand-
kornin ærlega. Sá háttur sem
hafður verður á er að nota
þann ótvíræða kost sem S&S
hefur yfir að ráða, nefnilega
að gera grín að sjálfum sér,
eða öllu heldur húsbónda
sínum, Degi.
# Skortur á
starfsfólki
í föstudagsblaði Dags er
fimm dálka fyrirsögn á for-
síðu sem varð þess valdandi
að ýmsir ráku upp stór augu,
svo ekki sé meira sagt. „Látn-
ir þvo strætisvagna á nótt-
unni“! Það er ekkert annað.
Vissulega hefur S&S heyrt af
því eins og aðrir að hjá ýms-
um fyrirtækjum sé skortur á
starfsfólki og lítil viðbrögð
komi við auglýsingum. En að
bærinn ætli að ganga á und-
an með að láta hina látnu
vinna, og það á nóttunni. Er
það nú ekki fulllangt gengið.
Enda segir Gísli Lór. aðstoð-
arslökkviliðsstjóri í undirfyr-
irsögn: „Kemur varla til fram-
kvæmda“. Skyldi nokkurn
undra? Annars er rétt að upp-
lýsa þá, sem aðeins lesa
aðalfyrirsagnir blaðsins, að í
yfirfyrirsögn segir „Slökkvi-
liðsmenn á Akureyri" og síð-
an þetta gullkorn „Látnir þvo
strætisvagna á nóttunni,
spurningarmerki“