Dagur - 18.05.1987, Qupperneq 5
18. maí 1987 - DAGUR - 5
„Samvinnureksturinn verður
eftir þó annað hverfi“
- segir Sveinn Jónsson á Ytra-Kálfsskinni
Sveinn Jónsson, sem býr að
Ytra-Kálfsskinni á Árskógs-
strönd, er þekktur athafna-
maður, og hefur komið víða
við. Þekktastur er hann fyrir
byggingastarfsemi sína, en
hann hefur rekið sjálfstætt
byggingafyrirtæki frá árinu
1959.
- Hvað ertu aðallega að fást
við þessa dagana, Sveinn?
„Pað hefur nú nýlega verið
sagt við mig að ég ætti að fara
að slappa af, minnka við mig og
hætta þessum innflutningi. Ég
hef flutt inn byggingarefni og
framleiði vörubretti, en efnið í
þau er flutt inn frá Portúgal. Ég
hóf framleiðslu á brettunum í
fyrra, m.a. í sambandi við
væntanlegan vatnsútflutning á
vegum Akva sf, því mér finnst
eðlilegt að við reynum að fram-
leiða_ þetta hér í stað þess að
sækja þetta suður. Ég er með
verkstæðið á iðnaðarsvæðinu á
Árskógsströnd."
- Hvað ertu búinn að vera
lengi í byggingabransanum?
„Ég er búinn að vera a.m.k.
þrjátíu ár í þessu. Ég byrjaði
sem strákur um fermingu að
byggja útihús með bændunum í
sveitinni en síðar fór ég í tré-
smíðanám og lærði bæði hér
heima og erlendis. Ég fór til
Reykjavíkur 1955 í trésmíðina
og hef verið í þessu síðan. Ég
fór líka til Danmerkur og ferð-
aðist um alla Vestur-Evrópu,
aðallega til að sjá mig um. Ég
get ekki sagt að ég hafi verið
byrjaður sjálfstætt fyrr en
1959.“
- Viltu nefna eitthvað sér-
stakt af því sem þú hefur byggt?
„Ég hef byggt á svæðinu frá
Grímsey og inn í Eyjafjarðar-
botn. Nokkur hús byggði ég
líka á Akureyri en stærsta verk
mitt var Hrafnagilsskólinn, en
hann byggði ég frá upphafi til
enda, eins og þeir segja. Þá
byggði ég hús Véladeildar KEA
og Búnaðarsambandsins við
Óseyri á Akureyri. Annars hafa
þetta ekki verið neinar stór-
byggingar, mest í smærra lagi
eins og íbúðarhús. Maður hefur
staðið í þessu með búskapnum
allt árið, meira og minna í 30
ár.“
- Hvernig búskap ert þú
með?
„Ég er nú með hefðbundinn
búskap; kindur og kýr. Svo er
ég með nokkra hesta, ánægj-
unnar vegna, en það er bara
aldrei tími til að fara á bak.“
- Þú hefur starfað að félags-
málum um dagana?
Sveinn Jónsson.
„Ég get varla sagt að það hafi
verið mikið, ég hef setið sem
fulltrúi fyrir Árskógsdeild á
aðalfundi KEA af og til síðustu
20 árin.“
- Hvað finnst þér um framtíð
samvinnuhreyfingarinnar á
þessu svæði?
„Ég er á þeirri skoðun að
samvinnuhreyfingin sé mjög
sterk og að framtíð hennar
verði góð hérna. Þessi hreyfing
er nauðsynleg því samvinnu-
reksturinn hefur verið mörgum
lyftistöng og verður eftir í sveit-
um og þéttbýli þessa héraðs þó
annað hverfi. Það koma alltaf
upp einhver stundarfyrirbrigði
en þetta er fastmótaður rekstur
á mörgum sviðum atvinnulífs-
ins.“
- Hefur þú sömu trú á sam-
vinnuhugsjóninni nú og þegar
þú byrjaðir að starfa að mál-
efnum hennar fyrir tuttugu
árum?
„Ég hef alls ekki minni trú á
henni nú en áður, því verkefnin
eru þau sömu og áður, að efla
byggð og styrkja undirstöður
atvinnulífsins."
- Hvernig finnst þér horfa
um landbúnaðinn núna?
„Það er óhætt að segja að það
eru allt önnur skilyrði sem
menn þurfa að búa við núna,
þegar búið er að takmarka svo
margt af því sem bóndinn má
gera. Það er breyting frá þeim
tíma þegar menn máttu vinna
að þessu eins og hver hafði getu
og möguleika til. Petta er eins
og að vera með bundnar hendur
en við þessu er ekkert að gera,
við verðum að takmarka okkar
framleiðslu við þá möguleika
sem markaðurinn gefur okkur.
Pað hafa margir farið út í nýjar
búgreinar og tekið fljótt við sér
á því sviði. Þetta er fólk sem
hefur hug á því að búa áfram í
sveitunum og vill frekar reyna
nýjungar en gefast upp.“ EHB
Tímaritið
Þroskahjálp
komið út
Tímaritið Proskahjálp 1. tölu-
blað 1987 er komið út. Útgefandi
er Landssamtökin Þroskahjálp.
Að venju eru í ritinu ýmsar
greinar, viðtöl, upplýsingar og
fróðleikur um málefni fatlaðra.
Sem dæmi um efni má nefna
leiðara sem að þessu sinni er um
málefni einhverfra. Sagt er frá
sumarstarfi barna og í því sam-
bandi birtist viðtal við tvær fóstr-
ur sem störfuðu á Úlfljótsvatni,
síðast liðið sumar. í framhaldi af
grein um tölvutækni í kennslu
fatlaðra er ljósi varpað á aðstöðu
nemenda í deild hreyfihamlaðra í
Hlíðaskóla í Reykjavík. Þá er
sagt frá Tölvumiðstöð fatlaðra
sem nýlega var sett á laggirnar.
Fjallað er um störf Svæðisstjórn-
ar Reykjavíkur þar sem sitt af
hverju kemur fram í viðtali við
framkvæmdastjóra stjórnarinnar.
Þá er að finna í þessu hefti
sögu eftir unga stúlku sem bæði
er blind og heyrnarlaus. Söguna,
sem hún tileinkar foreldrum sín-
um og systkinum, nefnir höfund-
ur Töfradísina. Þá má nefna ljóð-
ið Elska sem er eftir unga stúlku,
alvarlega spastíska. Ritað er um
bækur fyrir þroskahefta og rætt
við nokkra úr þeirra hópi um
lestur bóka.
Fastir pistlar eru á sínum stað
s.s. Bókakynning og Af starfi
samtakanna. í þeim síðarnefnda
er tæpt á því helsta sem Þroska-
hjálp vinnur að hverju sinni.
Tímaritið Þroskahjálp kemur
út fimm sinnum á þessu ári. Það
er sent áskrifendum og er til sölu
á skrifstofu Þroskahjálpar að
Nóatúni 17,105 Reykjavík. Ritið
er einnig hægt að fá keypt í bóka-
búðum og á blaðsölustöðum.
Áskriftarsíminn er 91-29901.
Reiðhjólum
stolið á
Akureyri
Móðir á Brekkunni hringdi:
Ég vil koma því á framfæri til for-
eldra barna á grunnskólaaldri að
þeir athugi hvort börn þeirra hafa
undir höndum reiðhjól, sem þau
hafa fengið með annarlegum
hætti, og skila siíkum gripum til
lögreglunnar, ef þeir finnast. Það
er mikið um að reiðhjólum sé
stolið hérna í bænum og hafa
hjólin fundist í hirðuleysi hingað
og þangað um bæinn. Ekki virð-
ist það vera nein fyrirstaða þó
hjólunum sé læst, þau eru samt
tekin. Hjóli var stolið frá dóttur
minni um daginn og er þetta
mjög bagalegt, að maður geti
ekki skilið reiðhjól eftir utan við
hús án þess að því sé stolið, þó
það sé læst.
Á vegl
án gangstéttar
gengur fólk
vinstra megin
-ÁMÓTI
AKANDI
UMFERÐ
Aðalfundur
Bridgefélags Akureyrar
vérður haldinn í Félagsborg þriðjudaginn 19. maí
kl. 19.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Spilað eftir fund. Fjölmennið.
Stjórnin.
eitthvað nýtt
Dömukjólar,
dömublússur,
dömubolir,
íþróttagallar,
alpahúfur
tvær stærðir,
rúllukragabolir,
sundföt og
handklæði.
Sigmtar Gnbtmindssomrhf.
HAFNARSTRÆTI 96 SÍMI 96*24423 AKUREYRI
Slöngutengi
Byggingavörur
Glerárgötu 36
Akureyri, sími 96-21400