Dagur - 18.05.1987, Síða 7
Umsjón: Kristján Kristjánsson
18. maí 1987 - DAGUR - 7
imótið í knattspyrnu 2. deild:
egt sigunnark
Siglufirði
menn sigruðu IBi 2:1 í
Björn Ingimarsson afgreiddi með
glæsilegu skoti, óverjandi fyrir
annars ágætan markvörð ísfirð-
inga. Þetta reyndist vera sigur-
ntark leiksins og KS-ingar fögn-
uðu sigri í leikslok.
Leikurinn var frekar slakur af
hálfu beggja liða, mikil barátta
og voru tveir leikmenn ÍBÍ
ágæt tilþrif Jakobs Jónssonar á
köflum.
Akureyringar byrjuðu leikinn
mun betur og komust í 3:0.
Fyrsta mark Garðbæinga kom
ekki fyrr en á 9. mín. en þá hafði
Brynjar Kvaran þegar varið frá
þeim tvö vítaköst. Um miðjan
fyrri hálfleik var munurinn að-
eins eitt mark 5:4 heimamönnum
í vil. Þeir náðu mest fintm marka
forystu í hálfleiknum, 12:7 og
13:8 en Garðbæingar skoruðu tvö
síðustu mörkin í fyrri hálfleik og
Akureyringa en það dugði ekki til.
Mynd: RÞB
fyrsta leik
bókaðir. Mark Duffield lék vel á
miðjunni hjá KS og þá var Björn
Ingimarsson mjög sprækur og
gerði marga fallega hluti. Lið ÍBÍ
var mjög jafnt og ekki hægt að
hæla einum öðrum fremur.
Haukur Torfason dæmdi leik-
inn og gerði það mjög vel.
minnkuðu muninn í þrjú mörk
fyrir hlé, 13:10.
Norðanmenn hófu síðari hálf-
leik illa og leikur liðsins var mjög
ráðleysislegur. Garðbæingar
náðu yfirhöndinni, jöfnuðu leik-
inn á 13. mín., 17:17 og komust
yfir skömmu síðar 19:17. Akur-
eyringar fóru þá að taka við sér
og héldu í við gestina fram á
lokamínútur leiksins. Þegar um
ein og hálf mín. var eftir af leikn-
um höfðu Garðbæingar tveggja
marka forystu, 27:25 en norðan-
menn skoruðu tvö síðustu mörk-
in og náðu að jafna leikinn 27:27.
Því varð að framlengja leikinn
um 2 sinnum 5 mín. og þá höfðu
Garðbæingar betur og sigruðu
31:30.
Brynjar Kvaran var langbestur
í liði Akureyrar, varði um 20 skot
í leiknum og þar af 5 vítaköst.
Jakob Jónsson sýndi skemmtileg
tilþrif á köflum en aðrir leikmenn
liðsins léku undir getu.
Jónas Þorgeirsson var lang-
bestur í liði Garðbæinga en einn-
ig voru þeir Gylfi Birgisson, Skúli
Gunnsteinsson, Einar Einarsson
og Sigurjón Guðmundsson góðir.
Mörk Akureyrar: Jakob Jóns-
son 6, Guðmundur Guðmunds-
son 6, Pétur Bjarnason 6(1),
Eggert Tryggvason 5(3), Jón
Kristjánsson 3, Friðjón Jónsson 2
og Sigurpáll Aðalsteinsson 2(1).
Mörk Garðabæjar: Gylfi Birg-
isson 9(1), Einar Einarsson 9(1),
Skúli Gunnsteinson 6, Sigurjón
Guðmundsson 4, Hafsteinn
Bragason 2 og Páll Björgvinsson
1. '
Ólafur Haraldsson og Aðal-
steinn Sigurgeirsson dæmdu leik-
inn ágætlega.
Ragnheiður Víkingsdóttir fyrir-
liði Vals með sigurluunin.
Kvennaknattspyrna:
Kvennalið Vals sigraði í Ijög-
urra liða æfingamóii í knatt-
spyrnu sem fram fór á Akur-
eyri um helgina. Auk Vals
tóku KA, Þór og Brciðablik
þátt í mótinu.
Valsstúlkurnar unnu alla
sína þrjá leiki í mótinu en í
öðru sæti var lið Þórs. Breiða-
blik hafnaði i þriðja sæti ug
KA í því fjórða. Það var
Morgunblaðið sem gaf verð-
launin í mótinu. Því verður
gert nánari skil í vikunni.
Gústaf Björnsson þjálfari og
ieikmaður KS á Siglufírði
lék ekki ineð sínum mönn-
um gegn ÍBÍ í gær. Hann
meiddist í leik gegn KA fyrir
rúmri viku og í Ijós kom að
liðband í hné er slitið.
Þetta er mikið áfall fyrir
KS-inga en Gústaf en einn
albesti leikmaður liðsins.
Hann verður í gipsi í allt að
sex vikur og í versta falli
gæti hann verið úr leik fram
í júlí. KS-ingar létu þetta
ekki á sig í gær og sigruðu
eins og fram kemur í blað-
inu en ljóst er að skarð Gúst-
afs er vandl’yllt.
Skagamenn
sigruðu
Framara
- í Meistarakeppni KSÍ
Skagamenn sigruðu Framara
með tvcimur mörkuin gegn
engu í Meistarakeppni KSI í
knattspyrnu í gær. Leikurinn
fór fram á Akranesi.
Leikurinn þótti þokkalega
leikinn af báðum liðuin en það
var Guðbjörn Tryggvason sem
kom Skagamönnum yfir í fyrri
hálfleik. í þeim síöari bætti
Þrándur Sigurðsson við öðru
marki fyrir heimamenn og úr-
slitin 2:0.
Það var hart barist í leik KS og ÍBÍ á Siglufirði í gær en það voru heimamenn
Sem fögnuðu sigri. Mynd: BÞ
aejakeppnin í handbolta:
kveröimir í
hlutverkum
arðbæingar unnu Akureyringa
Húsvíkingar -
aðrir Norðlendingar
Stórglæsilegir tónleikar í vændum.
Hvenær?
20. maí kl. 21.00.
Hvar?
í Húsavíkurkirkju.
Flytjendur, Kristín Sædal Sigtryggsdóttir, sópran.
Cathtrine Williams annast undirleik.
Mjög fjölbreytt efnisskrá. Aögöngumiöar
við innganginn frá kl. 20.30.
Frá Grunnskólum
Akureyrar
Innritun 6 ára barna (fædd 1981), sem ætla aö
sækja forskólanám á næsta skólaári, fer fram í
grunnskólum bæjarins miövikudaginn 20. maí
nk. kl. 10-12 f.h. Innrita má meö símtali viö viö-
komandi skóla.
Barnaskóla Akureyrar....... í síma 24172.
Glerárskóla................ í síma 22253.
Lundarskóla ............... í síma 24888.
Oddeyrarskóla ............. í síma 22886.
Síðuskóla ................. í síma 22588.
í stórum dráttum veröa skólasvæði óbreytt miö-
að viö núverandi skólaár. Á sama tíma þarf að til-
kynna um flutning eldri nemenda milli skóla-
svæða, því aö skólarnir þurfa að skipuleggja
störf sín með löngum fyrirvara. Verði þeim ekki
gert aðvart geta, í sumum tilvikum, orðið vand-
kvæði með skólavist á breyttu skólasvæði.
Skólastjórarnir.
jh Frá mennta-
® málaráðuneytinu
í lögum nr. 48/1986 um lögverndun á starfsheiti og starfsréttind-
um grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra er
grein til bráöabirgöa sem hljóöar svo:
„Þeir, sem fyrir gildistöku þessara laga hafa startað sem settir
kennarar sex ár eða lengur en fullnægja ekki skilyrðum laganna
til starisheitis og starfsréttinda, skulu eiga kost á því að Ijúka
námi á vegum Kennaraháskóla íslands eða Háskóla islands til
að öðlast slík réttindi. Um tilhögun námsins skal setja ákvæði í
reglugerð.
Heimilt er að ráða eða setja þá, sem slíka starfsreynslu hafa að
baki, í kennslustarf til eins árs I senn en þó ekki til lengri tíma
en fjögurra skólaára samtals frá gildistöku laga þessara.
Þrátt fyrir ákvæði 7. gr. má setja eða ráða sem framhaldsskóla-
kennara þann sem hefur verið settur I sama starf í fjögur ár eða
lengur og hefur lokiö fullgildum prófum í kennslugrein þótt ekki
hafi hann réttindi samkvæmt lögum þessum. Þessi undanþága
gildir næstu fjögur ár eftir gildistöku laganna en til loka starfs-
ævinnar ef um er að ræða kennara sem náð hefur 55 ára aldri
við gildistöku laganna."
Nám, byggt á þessu lagaákvæði, mun fara fram við Kennarahá-
skóla íslands og Háskóla íslands eftir því sem við á. Vegna skipu-
lagningar þessa náms er nauðsynlegt að fá vitneskju um hverjir
hafa áhuga á að stunda slíkt nám og hvaða menntun þeir hafa.
Námið verður skipulagt að mestu sem sumarnám, heimanám og
námskeið á skólatíma þannig að unnt verði að stunda það sam-
hliða kennslu.
Þeir sem hafa hug á að stunda nám samkvæmt framansögðu eru
beðnir um að snúa sér til menntamálaráðuneytisins, framhalds-
skóladeildar, fyrir 25. maí nk.
Menntamálaráðuneytið.