Dagur - 03.06.1987, Blaðsíða 1
NotarþúCHo?
Þjónusta .
í miðbænum
GLERAUGNAÞJONUSTAN DAVlÐSSON
SKIPAGÖTU 7 - BOX 11 - 602 AKUREYRI - SÍMI24646
Opnunartími verslana
stórlega rýmkaður
Yerslunareigendur á Akureyri
geta haft verslanir sínar opnar
til klukkan 18.00 á laugardög-
um framvegis ef þeim sýnist
svo og eftir áramótin hafa þeir
alveg frjálsar hendur um það
hvenær þeir hafa opið, því þá
verða reglur um opnunartíma
verslana á Akureyri alveg
felldar úr gildi.
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti þetta á fundi sínum í gær
eftir allnokkrar umræður, með 10
atkvæðum gegn einu. Hugmynd-
in sem að baki liggur er að gera
Akureyri að nokkurs konar versl-
unarmiðstöð á Norðurlandi og
með því að hafa verslanir opnar á
laugardögum muni fólk úr ná-
grannabyggðunum heimsækja
Akureyri í ríkara mæli í verslun-
arerindum.
Sigurður Jóhannesson, bæjar-
fulltrúi Framsóknarflokksins,
greiddi atkvæði gegn tillögunni.
Hann sagði að sér fyndist rangt
að heimila lengri opnunartíma
verslana án nokkurs samráðs við
þá aðila sem málið varðaði, þ.e.
verslunarfólk og félög þess og
Neytendafélag Akureyrar. Til-
laga hans um að ákvörðun yrði
Atvinnuflug á Islandi:
50 ára
í dag, 3. júní, eru 50 ár liðin
frá stofnun Flugfélags Akur-
eyrar, sem var flutt til Reykja-
víkur árið 1940 og var þá nafn-
inu breytt í Flugfélag íslands.
Með stofnun Flugfélags Akur-
eyrar hófst samfellt atvinnu-
flug á Islandi og er það því eitt
af forverum Flugleiða. Til að
minnast þessara tímamóta
heldur stjóm Flugleiða hátíðar-
fund á Hótel KEA í dag kl.
i dag
Einnig verður börnunum boðið
upp á gos í flugstöðinni. Að sögn
Sæmundar Guðvinssonar, blaða-
fulltrúa Flugleiða er gert ráð fyrir
frekari hátíðahöldum í tilefni
afmælisins í haust, en tími vinnst
ekki til þess núna því miklar ann-
ir eru í fluginu á þessum árstíma.
-HJS
frestað og bæjarstjóra falið að
koma á viðræðum milli þessara
aðila var felld með tveimur at-
kvæðum gegn sjö.
Sigfús Jónsson bæjarstjóri og
bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks
og Alþýðuflokks töldu fráleitt að
með þessari samþykkt væri verið
að lengja vinnudag verslunar-
fólks, hér væri einungis verið að
veita heimild til þess að hafa
verslanir opnar lengur. Verslun-
armönnum væri það síðan í
sjálfsvald sett hvort þeir nýttu sér
heimildina. Þeir sögðust ekki sjá
nokkur rök fyrir því að hafa
reglugerð um opnunartíma versl-
ana áfram í gildi.
Sigríður Stefánsdóttir, bæjar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins,
sagðist ekkert hafa á móti því að
tilraun yrði gerð í sumar með
rýmri opnunartíma verslana á
laugardögum. Hins vegar sæi hún
ekki rök fyrir því að reglugerð
um opnunartímann yrði alveg
felld úr gildi.
Það má því búast við að ein-
hverjar verslanir á Akureyri
verði opnar til kl. 18.00 á laugar-
daginn. Svo er bara að sjá hvort
fólk streymir í bæinn í verslunar-
hugleiðingum. BB.
Það er allt í lagi þótt sólin fari í nokkurra daga frí,
pollafötin okkar og sullum pínulítið.
við tökum bara fram
Mynd: RÞB
Kartöfluverksmiðjan á Svalbarðseyri:
17.30.
Það eru um 100 manns sem
koma frá Reykjavík til að sitja
þennan fund, koma þeir með
þotu Flugleiða. Á fundinum
heldur Sigurður Helgason,
stjórnarformaður hátíðarræðu,
mun hann minnast stofnunar
Flugfélags Akureyrar. Þá verður
tilkynnt um gjöf frá Flugleiðum
til Ákureyrarbæjar og borin upp
tillaga um kaup á nýjum þotum.
Væntanlega verður undirritaður
kaupsamingur um þessar þotur á
fundinum.
Meðan hópurinn úr Reykjavík
dvelur á Akureyri verður þeim
sem áhuga hafa boðið að skoða
þotuna á Akureyrarflugvelli, það
er á milli kl. 17.30 og 19.30.
Framleiðslu á frönskum kart-
öflum hætt um miðjan mánuðinn
Nú stefnir allt í að kartöflu-
verksmiðjunni á Svalbarðseyri
verði lokað um miðjan mánuð-
inn og framleiðslu á frönskum
kartöflum hætt um sinn, en
annað uppboð á eignum þrota-
bús Kaupfélags Svalbarðseyrar
verður haldið 19. júní. Áfram
verður þó tekið á móti matar-
- rúmlega 100 tonna birgðir til
kartöflum í verksmiðjunni til
dreifíngar, þó
pökkunar og
framleiðsla á frönsku kart
öflunum stöðvist. Hlutafélagið
Kjörland hefur rekið verk-
smiðjuna, en meirihluti Kjör-
lands er í eigu Kaupfélags Ey-
fírðinga.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
stjórnarformaður í Kjörlandi
sagði í samtali við blaðið að í
byrjun maí hefði litið svo út sem
samningar við skiptaráðanda um
kaup Kjörlands á verksmiðjunni
tækjust en síðan hefði það gengið
til baka. Um framhaldið sagðist
hann lítið vilja segja en sem
stendur eru allar horfur á að
Tillögur um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga:
Taldar munu minnka útgjöld
sveitarfélaga um 115 millj.
Utgjöld sveitarfélaga eru talin
munu minnka um 115 milljónir
króna, samkvæmt nýjum til-
lögum um verkaskiptingu ríkis
og sveitarfélaga og breytingum
á fjárhagslegum samskiptum
þeirra á milli. Þetta kemur
fram í sameiginlegu nefndar-
áliti tveggja nefnda á vegum
ríkisstjórnarinnar, þar sem
gerðar voru tillögur um þessi
mál.
Tillögur verkaskiptinganefnd-
ar um flutning verkefna frá rík-
inu til sveitarfélaganna munu
auka útgjöld þeirra um 1.095
milljónir kr. en verkefnaflutning-
ur frá sveitarfélögum til ríkisins
létta á útgjöldunum um 325 millj-
ónir kr., segir í niðurstöðum
nefndanna. Hins vegar munu til-
lögur unt breytingar á fjármála-
legum samskiptum létta útgjöld-
um af sveitarfélögunum um 885
milljónir kr. Mismunurinn er því
um 115 milljónir kr. sem útgjöld
sveitarfélaga munu minnka á ári.
Kaupstaðir og kauptún munu
hagnast mest á þessum breyting-
um, ef þær verða framkvæmdar,
en útgjöld dreifbýlissveitarfélag-
anna eru talin munu aukast
vegna grunnskóla, tónlistarskóla
og heilsugæslu. Hækkun þessi
yrði nokkru meiri en sparnaður
vegna þess að ríkið taki að sér
sjúkarsamlögin, tannlækningar
og sýsluvegina. Tillögur um
breyttar úthlutunarreglur Jöfn-
unarsjóðs sveitarfélaga eiga hins
vegar að bæta dreifbýlinu upp
þennan mun, þannig að hagur
dreifbýlissveitarfélaganna eigi að
vera betri en samkvæmt núver-
andi kerfi.
Á næstunni verður unnið að
kynningu tillagnanna á vegum
félagsmála- og fjármálaráðu-
neyta og Sambands íslenskra
sveitarfélaga. HS
verksmiðjan fari á uppboð. Erf-
iðlega hefur gengið að selja
frönsku kartöflurnar sem verk-
smiðjan vinnur og því eru til all-
nokkrar birgðir nú þegar fram-
leiðsla stöðvast.
Þórður Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Kjörlands sagði að
birgðir í verksmiðjunni væru
eitthvað á annað hundrað tonn
sem svarar til um 3 mánaða fram-
leiðslu. Hann kvaðst bjartsýnn
um að á næstu mánuðum tækist
að selja þessar birgðir og gera
upp við bændur en erfiðlega hef-
ur gengið að gera upp við þá
vegna þessarar birgðasöfnunar.
Matarkartöflur hafa selst jafnt og
þétt þó svo að enn séu til umtals-
verðar birgðir hjá bændum.
Einnig er nokkuð til af smærri
premíukartöflum hjá bændum en
óvissa ríkir nú um hvort hægt
verður að selja þær.
5 manns vinna í verksmiðj-
unni og missa þeir sín störf. Þeim
Jóhannesi og Þórði bar saman
um að framhald skuli vera á
rekstri verksmiðjunnar, enda
eðlilegt að þeir sem hafi sýnt
þessum rekstri einhvern áhuga
reki verksmiðjuna áfram. En
ekkert er hægt að segja til um
framvindu málsins fyrr en upp-
boð á eignum Kaupfélags Sval-
barðseyrar hafa farið fram. JÓH