Dagur - 15.06.1987, Blaðsíða 12
Hvað ertu bráðlátur?
^Pedíðmyndir’
Viltu fá myndirnar þínar
eftir 3, 2 eöa 1 klukkustund?
Til þjónustu reiðubúin.
Hafnarstræti 98 - Akureyri Sími 96-23520.
Starfsnám fyrir ófaglært iðnverkafólk:
Stefnt að námi á
Akureyri í haust
í samningum samtaka iðn-
verkafólks og atvinnurekenda í
desember sl., var ákveðið að
komið skyldi á starfsnámi fyrir
ófaglært iðnverkafóik. Þetta er
Dalvík:
Rafmagns-
lína slitin
Síðla dags síðastliðinn flmmtu-
dag varð rafmagnslaust í Svarf-
aðardal um stund vegna þess
að rafmagnslína fyrir sveitina
sem Iiggur yfír veginn hjá Hrís-
um við Dalvík var slitin.
Um kl. 6 var Rafmagnsveitum
ríkisins á Dalvík tilkynnt um raf-
magnsleysið og kom þá í ljós að
rafmagnsstrengurinn sem er í um
7 metra hæð yfir veginum hafði
verið slitinn. Komið var rafmagni
á sveitina með öðru móti uns við-
gerð var lokið en það var um kl.
10. Töluvert tjón er af óhöppum
sem þessum en á þessari línu er
um 11.000 volta rafstraumur. Hjá
lögreglunni á Dalvík fengust þær
upplýsingar að ekki væri vitað
með hvaða hætti línan slitnaði en
ekki er ólíklegt að bílkrani hafi
getað valdið þessu. Unnið er að
rannsókn málsins. JÓH
tímamótaákvörðun í iðnaðin-
um, og er þegar hafín kennsla
fyrir starfsfólk í húsgagna- og
innréttingaiðnaði. Undirbún-
ingur er víðtækur og felur m.a.
í sér fræðslu starfsþjálfara.
Þeir munu þurfa að sækja 8
vikna námskeið, auk þess sem
þeir eiga að starfa í fyrirtækj-
unum um tíma. Undirbúningur
á Akureyri er skammt á veg
kominn, en stefnt er að því að
kennsla hefjist í haust.
Gunnar Árnason deildarstjóri
hjá Iðnaðardeild Sambandsins
gaf okkur þær upplýsingar, að
hvað þá varðar mun þeirra sta'rfs-
fólki verða gefinn kostur á að
fara á námskeiðin, og hljóta út á
þau launaflokkshækkun, líkt og
þekkist hjá fiskvinnsiunni. Nám-
skeiðskostnaður verður að mestu
greiddur af ríkinu, en starfsfólk
mun þurfa að sækja þau utan
vinnutíma.
Námið verður bóklegt að
hluta, en að mestu verklegt.
Gunnar sagði að þeir væntu góðs
af þessu. „Þetta var til þess að
fataiðnaðurinn á landinu gat
gengið að þessum samningum í
desember, því hann þarf fram-
leiðsluaukningu til þess að geta
staðið undir kostnaði. Vonast er
til þess, að með betri þjálfun
fólksins verði framleiðslan meiri
og betri.“ VG
í gær var Sjómannadagurinn í tilefni þess fóru fram hefðbundin hátíðarhöld. Keppt var í reiptogi, stakkasundi, róðri
og fleiru. A Akureyri fór róðrarkeppnin fram á laugardaginn og var spennandi eins og vera ber. I kvennaflokki sigr-
uðu konurnar á frystihúsi Útgerðarfélags Akureyrar en karlarnir í áhöfn skuttogarans Margrétar sigruðu í karla-
flokki.
Steinull frá Sauðárkróki til stórfyrirtækis í USA?:
„Verðtilboð frá Manville
sennilega of lágt“
- segir framkvæmdastjóri Steinullarverksmiðjunnar
Skagafjörður:
Fjós og hlaða í
Villínganesi bmnnu
Laust upp úr hádegi á föstudag
kom upp eldur í fjósi og hlööu
á bænum Villinganesi í Lýtings-
staðahreppi í Skagafírði.
Skepnum tókst að bjarga út úr
fjósinu en slökkviliðið, sem
þurfti um langan veg að fara,
réð ekkert við eldinn og brann
allt til kaldra kola.
Ekki bætti úr skák að erfitt var
fyrir slökkviliðsmenn að komast í
vatn á staðnum. Unnið var að
slökkvistarfi fram á kvöld við að
moka afgangnum af 100 hest-
burðum af heyi sem í hlöðunni
voru út úr rústunum. Ókunnugt
er um eldsupptök en jafnvel
haldið að þau eigi rætur sínar að
rekja til þess að hitnað hafi í
moði í einum básnum.
Hinar brunnu byggingar, sem
voru gamlar, segjast ábúendur
ætla að endurreisa á næstunni.
þá
Þegar aðalforstjóri og stjórn-
arformaður Manville sam-
steypunnar, sem er 40% eign-
araðili að Kísiliðjunni við
Mývatn, voru á ferð hér á
landi nýlega sýndu þeir áhuga
á kaupum á steinull frá Stein-
ullarverksmiðjunni á Sauðár-
króki, til nota í iðnaðarfram-
leiðslu hjá Manville í Evrópu.
Hér er verið að tala um við-
skipti allt að 2 þúsund tonnum,
sem nema rúmlega helmingi
áætlaðrar framleiðslu Steinull-
arverksmiðjunnar á þessu ári.
Þórður Hilmarsson fram-
kvæmdastjóri Steinullarverk-
smiðjunnar sagði framleiðsluna
sem hér um ræðir vera svonefnda
hráull, ull sem á eftir að herða.
Þá hefðu þeir áhuga á að kaupa
afskurð, sem í dag er hent. Á ári
falla til 350 tonn af honum. Sagði
hann það mundi taka riokkrar
vikur að fara yfir alla þætti þessa
máls; verð, framleiðslu, flutninga
og hugsanlegar fjárfestingar
vegna þessa verkefnis. „En ég vil
taka fram, að þó að þessir aðilar
hafi sýnt áhuga á þessu, þá erum
við nánast daglega að skoða
margs konar möguleika, sem allt
eins geta orðið að veruleika og
það er ekkert sem gefur ástæðu
til að ýta undir bjartsýni um að af
þessu verði. Vegna þess, án þess
að búið sé að skoða þetta til
hlítar, þá er verðtilboðið að
mínu mati sennilega það lágt, að
ég held að við munum ekki hafa
teljandi áhuga á þessu. Okkar
áhugi liggur í fullunninni vöru og
það er á þeim nótum sem við
fyrst og fremst viljum reyna að
vinna okkur markaði,“ sagði
Norðurland:
Grasmaur í túnum viðvarandi vandamál
Að sögn Ólafs Vagnssonar hjá
Búnaðarsambandi Eyjafjarðar
er grasmaur í túnum greinilega
orðinn viðvarandi vandamál á
Norðurlandi. Maur þessi þykir
heldur óskemmtilegur gestur
en hann leggst á grasblöð og
sýgur þau þannig að þau visna
upp og taka túnin þá á sig grá-
leitan blæ. Menn hafa verið að
verða varir við grasmaurinn á
síðustu 5-10 árum en ekki er
þó ólíklegt að hann hafí verið
til staðar áður án þess að menn
hafí áttað sig á hvað það var
sem olii því að gras visnaði
svona upp.
Maurinn heldur sig gjarnan á
sömu túnunum en þó hefur tekist
að minnka hann eða eyða á
nokkrum yjildum og nýjar hafa
bæst við. Ólafur sagði vissar ytri
aðstæður hafa áhrif á hve mikið
maurinn næði að fjölga sér og
sennilega hefði eitthvað slegið á
hann í ákveðnum spildum á síð-
asta ári. Þá var reynt að slá mjög
snemma nokkur tún þar sem
hans hafði orðið vart, en það
minnkar næringu maursins og
getur orðið til þess að egg hans
nái ekki að klekjast.
Svo virðist sem grasmaurinn sé
fyrst og fremst vandamál á
Norðurlandi þó hann þekkist
annars staðar á landinu í mun
minni mæli. Þá má geta þess að
síðustu 10 árin hefur hann verið
verulegt vandamál á Grænlandi.
Þegar Ólafur var spurður til
hvaða ráða bændur gætu gripið
gegn þessum skaðvaldi sagði
hann að því miður væri mjög erf-
itt að fást við þetta. „Menn hafa
reynt ýmis ráð eins og t.d. að slá
snemma, þ.e.a.s. nokkuð fyrr en
tún eru búin að ná fullri sprettu
og treysta í staðinn á endurvöxt.
Þetta hefur í nokkrum tilfellum
reynst vel og það hefur komið
eins út ef menn beita viðkomandi
tún. Þessar aðferðir hafa hins
vegar ekki reynst eins haldgóðar
og vonast hafði verið til og því
hafa menn verið að gera tilraunir
með efni sem úðað er yfir túnin
og þær virðast gefa nokkuð góða
raun. Þetta er á tilraunastigi
ennþá en þó er búið að flytja inn
efni til að úða á stærri spildur
þannig að frekari reynsla ætti að
fást af því í sumar,“ sagði Ólafur
Vagnsson. JHB
Þórður Hilmarsson.
Aðspurður um Bretlandsmark-
aðinn, kvað hann það mál mundi
skýrast á næstu mánuðum.
Reyndar seldu þeir alltaf jafnt og
þétt á Bretland. í næstu viku færu
20 tonn þangað og í síðasta mán-
uði hefðufarið 15. Framkvæmda-
stjórinn sem nú er á förum til
Finnlands og mun halda í næsta
mánuði til Englands sagði að
unnið væri að nokkrum útflutn-
ingsmálum. Steinullarsalan á
innanlandsmarkaði hefur verið
góð undanfarið, jöfn og þétt. -þá
Dalborg til
veiða á ný
í þessari viku heldur Dalborg
EA 317 frá Dalvík til veiða á
ný eftir viðgerð og breytingar á
skipinu sem staðið hafa yfír
síðan í febrúar í vetur. Verkið
var unnið í Slippstöðinni á
Akureyri.
Að sögn Kristjáns Ólafssonar,
sjávarútvegsfulltrúa KEA, stóðu
vonir til að verkinu lyki fyrr, en
ýmislegt hefur orðið til að tefja
það. Smíðuð var ný brú á skipið,
skipt um ljósavél og allan spil-
búnað. Kristján sagði að Slipp-
stöðin hefði gert tilboð í verkið
upp á rúmar 40 milljónir en
sennilega færi kostnaður eitthvað
fram yfir það vegna ýmissa auka-
verka. Þar sem skipið hefur verið
svo mikið frá veiðurn er nánast
allur kvóti þess eftir, um 1600
tonn, og er vonast til að skipið
nái að veiða hann á árinu. JÓH