Dagur - 19.06.1987, Blaðsíða 3

Dagur - 19.06.1987, Blaðsíða 3
19. júní 1987 - DAGUR - 3 I gær var Dalborg EA 316 frá Dalvík afhcnt eigendum sínum á ný við hátíðlega athöfn í Slippstöðinni á Akureyri. Allt frá því í febrúar hefur skipið verið þar í viðgerð en jafnframt hafa verið gerðar á því miklar breytingar. M.a. var smíðuð ný brú á skipið, skipt um Ijósavél og allan spilbúnað. Sökum þess hversu skipið hcfur verið lengi frá veið- um er nánast allur kvóti þess eftir en væntanlega tekst að fylla hann á árinu. Mynd rþb Akureyri: Óánægja með þjóðhátíðardagskrána Margir hafa hringt hingað á Dag og kvartað yfir því að dag- skrárliðir í þjóðhátíðardagskrá á Akureyri hafí fallið niður og fólk því gripið í tómt. Hér er sérstaklega átt við siglingar hjá siglingaklúbbnum Nökkva og skemmtisiglingu báts um Pollinn. Við höfðum samband við Stefán Gunnlaugsson, gjaldkera KA en félagið sá um skemmtidagskrána að þessu sinni. „Mér þykir fyrir því ef svona hefur farið. Það kom fram í Degi fyrir hátíðina að það ætti að vera sigling að morgni þess 17. og það stóð til. Hins vegar brást það og í götuauglýsingum var þessi sigling ekki auglýst. Mér er ekki kunn- ugt um hvort að sigling hjá Nökkva brást. Aðrir dagskrárlið- ir tókust vel og vil ég þar sérstak- lega nefna tónleikana á torginu um kvöldið enda voru þar á ferð þekktir skemmtikraftar og náðu þeir upp góðu fjöri. Það má kannski deila um hvort dagskráin á íþróttavellinum hafi verið mjög lífleg en það er ekki hægt að gera svo öllum líki,“ sagði Stefán. Tekið skal fram að ekki tókst að hafa upp á Árna Freysteins- syni í gær, en hann sá um fram- kvæmd hátíðarhaldanna. JÓH Landsmót '87: Ný hljómplata - með Skriðjöklum í dag kemur út hljómplata með Skriðjöklum á vegum lands- mótsnefndar í samvinnu við Samver hf. á Akureyri. Platan er 12 tommu en tveggja laga, og hefur Bjarni Hafþór Helga- son sem er Húsvíkingur samið bæði Iög og texta. Upplag plötunnar er 2000 ein- tök, og verður stærstum hluta þess dreift í gegnum ungmenna- félagshreyfinguna með því að ganga í hús og bjóða hana til sölu. Gerð hafa verið myndbönd með báðum lögunum á plötunni Annað hefur þegar verið sýnt í sjónvarpi, en hitt mun bráðlega koma fyrir sjónir almennings. Skriðjöklar eru ein af fjórum hljómsveitum sem leika munu á landsmótinu. ___ BMX tilbod Fengum nokkur 20” BMX hjól á hlægilegu verði Kr. 6.800.- Tí/IioOií) sfendur aðcins Takmarkað tnagn Sendum í póstkröfu SlMI (96) 21400 Fasteignasala - Sími 26441 Hafnarstræti 108. Sölumaður: Páll Halldórsson, heimasíml: 22697. Lögmaður: Björn Jósef Arnviðarson. Aðalstræti: Lítið einbýlishús, (gamalt) endurnýjaö að hluta. Hæð, ris og kjallari. Laust strax. Þórunnarstræti: 5 herb. íbúð á efri hæð. Laus 1. október. Okkur vantar allar gerðir húseigna á skrá. Stofnfundur Borgaraflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra verður haldinn á Akureyri í Gránufélagsgötu 49, uppi, iaugar- daginn 20. júní ki. 2 e.h. Kosið verður í stjórn félagsins. Einnig verður kosið í kjördæmaráð. Stuðningsmenn hvattir til að mæta. Þingmennirnir Guðmundur Ásgeirsson og Júlíus Sólnes mæta á fundinn. U ndirbúningsnefnd. BORGARAM FLOKKURim -flokkur með framtíðW Samtök jafnréttis og félagshyggju Stuðningsfólk! Fundur um stjórnmálaástandið og bréf Steingríms Hermannssonar verður haldinn í Vín sunnudaginn 21. júní kl. 21.00. Framsöguerindi: Stefán Valgeirsson, Pétur Þórarinsson. Hópumræður: Stjórnandi Auður Eiríksdóttir. Fundarstjóri: Bjarni Guðleifsson. J-listinn. Ný símanúmer Frá og með 15. júní Farpantanir 22000 Leigu- og sjúkraflug . 27900 Skrifstofur 27901 ► Verkstæði 27902 fáL fluqfélaq I-JLJJ noróurlands hf. Akureyrarflugvelli ATHUGIÐ breytt síinaniíiuer Nýia símanúmerið er 2TT72.2 (ðrelflg Draupnisgötu 6.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.