Dagur - 19.06.1987, Blaðsíða 5

Dagur - 19.06.1987, Blaðsíða 5
19. júní 1987 - DAGUR - 5 mst - "í .. .. t—I Erum með þessa víðfrægu krabbasúpu - Ingvar Jakobsson vert á línunni Ingvar Jakobsson vert í Verts- húsinu á Hvammstanga er á lín- unni í dag. Um þessar mundir er eitt ár síðan Vertshúsið hóf starfsemi sína en til þess tíma hafði ekkert hótel verið á Hvammstanga. - Hvernig gekk nú fyrsta árið hjá ykkur? - Það hefur náttúrlega verið erfitt, mjög erfitt, það er ekki hægt að segja annað. Nú vitum við hins vegar hvernig þetta er, markaðurinn og svoleiðis og við höfum verið að þreifa okkur áfram með ýmislegt í vetur. - En er ekki bjart framund- an? - Það er bjart framundan í sumar, það verður ekki annað sagt, þetta er alla vega mikil breyting frá því í fyrra. - Var eitthvað í sambandi við rekstur hótels á Hvammstanga sem kom þér sérstaklega á óvart? - Ég veit ekki hvað skal segja. Eftir sumarið í fyrra sá maður hvað þetta tæki raun- verulega langan tíma, þannig að veturinn kom manni kannski ekkert á óvart. - Er mikið bókað fyrir sumarið? - Já, en það er aðallega í mat. Það verður mikið meira um hópa í mat en í fyrra. - Verðið þið með einhverjar nýjungar í sumar? - Ekki við beint en það verða ferðir héðan frá Vertshúsinu tvisvar í viku, umhverfis Vatns- nesið. Þetta eru svona hálfsdags- ferðir. - Hvað er margt starfsfólk á Vertshúsinu? - Við erum fimm í fullu starfi og svo er lausafólk sem kemur inn þegar á þarf að halda. - Hefur verið svolítið um að fólk leggi lykkju á leið sína um hringveginn til að borða á Verts- húsinu? - Maður hefur fundið það t.d. núna í maí og júní að fólk gerir mun meira af því en áður að koma hérna við. I vetur aftur á móti þá var það helst að fólk kæmi hingað út eftir ef veður- spáin var eitthvað tvísýn. Fólk virðist annars yfirleitt vera á hraðferð eftir hringveginum og er ekki mikið fyrir að fara neitt út fyrir hann. - En hvað með fólk úr ná- grannabyggðarlögum ? - Jú, jú það kemur töluvert. Blöndósingar hafa t.d. verið mjög duglegir að heimsækja okkur. - Fólk sem er á ferð t.d. í sumarleyfi spyr gjarnan að því hvort það sé bar á þeim gisti- stöðum sem bjóðast, hvernig er því háttað hjá ykkur? - Við erum með allar veiting- ar og höfum barleyfi. - Hefur ekki verið lögð sér- stök áhersla sjávarrétti á mat-. ,seðlinum hjá ykkur? - Jú. Það er mikil útgerð hérna og við reynum að vera með allan þann fisk sem við fáum nýjan. Úrvalið eykst alltaf þegar bátarnir fara á úthafsrækj- una svo réttirnir verða fiöl- breyttari. - / fyrrasumar bauðst fólki að fara með ykkur að vitja um krabbagildrur, á trillu. Verður framhald á því? - Já, ég er hérna með trillu og ef fólk hefur áhuga þá getur það fengið að fara með að vitja um bæði krabba- og kuðunga- gildrur sem ég er með. Við erum með þessa víðfrægu krabbasúpu og öflum hráefnisins sjálfir. - Hvað er það svo annað en gisting og matur á ágætu hóteli sem fólki býðst á Hvamms- tanga? - Það er náttúrlega ýmislegt. Ég get nefnt sem dæmi sund- laugina sem verður opin frá klukkan sjö á morgnana til tíu á kvöldin alla virka daga og frá 10-17 um helgar. Svo er verið að undirbúa smá púttvöll hérna fyr- ir ofan, við hliðina á knatt- spyrnuvellinum og tjaldstæðinu, svona fyrir þá sem eru með kylfurnar með sér. - Mér skilst að í fyrra hafi verin haldinn útimarkaður sem tókst mjög vel. Hvernig fór það fram? - Það var Verslun Sigurðar Pálmasonar sem stóð fyrir úti- markaði og það tókst mjög vel. Ég hef aldrei vitað annan eins markað. Það voru ótrúlegustu hlutir sem fólki bauðst að kaupa þarna t.d. voru þar nautshausar og svo saltfiskur, prjónadót, leirmunir og fleira. Ég veit ekki betur en að þetta verði endur- tekið í sumar. Og með það kvaddi ég vertinn á Hvammstanga og óska honuin góðrar veiði á krabba- og „túr- istaveiðum" í sumar. G.Kr. Neytendafélag Akureyrar og nágrennis Skrifstofan, Gránufélagsgötu 4, III. hæð er opin mánudaga til föstudaga frá kl. 11.00 til 15.00. Símatími er frá kl. 13.00 til 14.00 mánudaga til föstudaga. Sími félagsins er 22506. Fulltrúi Neytendasamtakanna á Akureyri er Steinunn S. Sigurðardóttir. Argangur ’66 9. bekkur ’82 módel úr Glerárskóla ætlar í útilegu helg- ina 20.-21. júní í Vaglaskóg. Mætum öll hress. Nánari upplýsingar: Viddí sími 27151, Ingó sími 22273. Verkstæðishúsnæði 128 fm til leigu. Laust nú þegar. Draupnisgötu 7m 96-23248 Pósthólf 535 602 Akureyri. er opnuð til stangveiða laugardaginn 20. júní Veiðileyfisölu annast Sportvörudeild KEA. Veiðileyfin skal staðgreiða við pöntun. Athygli er vakin á að öll veiði er stranglega bönnuð í landhelgi árinnar beggja vegna við ósinn, Gáseyri og Óseyri. Stjórnin. Nýtt * Nýtt * Nýtt Blómakönnur ★ Blómaskæri Bómullarmottur, margir litir - margar stærðir. Blómavasar ★ Kertastjakar ★ Könnur og glös. Frábærar myndir og kort. Verið velkomin. KOMPAN SKiPAGÖTU 2 AKUREYRI SÍMI 96 25917 Kristján Guðmundsson leikur fyrir matargesti föstudags- og laugardagskvöld. Laugardagskvöld 20. júní Dansleikur Miðaldamenn frá Siglufirði halda uppi stanslausu fjöri til kl. 03.00. Borðapantanir fyrir matargesti hjá veitingastjóra í síma 22200. Sunnudagur frá kl. 10-01 Hinir frábæru Stuðmenn ásamt Adda rokk halda áfram leitinni mikiu af hinum eina og sanna látúnsbarka. Látið skrá ykkur í þessa stórskemmtilegu keppni. Glæsileg verðlaun í boði. HOTEL KEA AKUREYRI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.