Dagur - 19.06.1987, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - 19. júní 1987
„Við skulum taka þá og rassskella"
Við fórum þarna tveir, ég og
Ólafur Einarsson, sem kallaður
var Óli Hvanndal, sterkur
maður. Þegar við höfðum rekið
mennina úr portinu segir einn í
hópnum: „Það er ljórtt ef við lát-
um tvo lögregluþjónsræfla reka
okkur úr portinu. Við skulum
bara taka þá og rassskella þá!“ -
og gengur í áttina til okkar. Þá
fer að komast hreyfing á liðið og
ég hugsa með mér: Hvað gerum
við nú? Þá sé ég að Óli laumar
hendinni niður í kylfuvasann,
tekur kylfuna og slær í hausinn á
stráknum sem var með lætin.
Hljóðið var eins og byssuhvellur,
ég hélt að það myndi brotna á
honum hausinn. Strákurinn rek-
ur upp öskur, grípur um hausinn
og valhoppar suður alla götuna.
Þá splundraðist hópurinn. En á
meðan á öllu þessu gekk er ég að
reyna að ná kylfu upp úr vasan-
um! Þegar ég loksins náði kylf-
unni voru allir farnir af götunni
en ég elti einn uppi yfir á Skóla-
balann og ég hefði ekki náð
manninum nema hann hefði
stoppað til að pissa. Maður hafði
lesið íslendingasögurnar, og þar
stendur að ef menn brugðu sverði
urðu þeir að beita því. Ég lét því
kylfuna vaða í rassinn á mannin-
um og hann hætti náttúrlega við
að pissa.“
„Hélt hann væri
handIeggsbrotinn“
„Svo var það nokkrum árum
seinna, að góður kunningi minn.
Vestmanneyingur, hafði náð
góðu taki á jakka andstæðings,
og greinilegt var að ef einhver
umbrot yrðu þá mundi hann rífa
jakkann. Ég fer til hans og segi:
Blessaður, slepptu manninum.
Þú þarft ekkert að sýna að þú sért
sterkari, þú veist það. Hann
segir: Vertu ekkert að blanda þér
í þetta, það er okkar á milli. Það
var kominn hópur fólks þarna í
kring, svo ég segi: Þú tekur þá
afleiðingunum. Hann segir á
móti: Ég er líklega maður til
þess. Þá tek ég kylfuna og slæ á
handlegginn á honum. Hann
sleppti og gekk þegjandi burt.
Svo hitti ég þennan mann næst,
þegar báturinn sem hann var á
kom inn. Þá sagði hann: Helv.
beinið þitt, ég hélt ég væri hand-
Ieggsbrotinn. Þess vegna sagði
hann ekki neitt en þetta eru einu
skiptin, sem ég hef þurft að beita
kylfu.“
Múgæsing á Hótel Höfn
sumarið 1959
- Viltu segja frá atburðunum í
júlí 1959, þegar ólætin urðu við
Hótel Höfn?
„Það hefur margt verið ýkt í
frásögum af þessum atburðum og
þeir misskildir á marga vegu. A
þessum árum höfðum við tvær
kylfur, sem voru úr málmi og
þannig útbúnar, að hægt var að
setja inn í þær táragasskothylki.
Þessi skothylki voru svipuð að
stærð og Faunavindill. Maður
hélt á þessu eins og kylfu og
studdi á hnapp, þá púðraðist
táragas fram úr kylfunni. Við
höfðum notað þetta eitthvað til
þess að dreifa smærri hópum. Ég
man t.d. eftir því að við Jóhannes
Þórðarson, sem nú er yfirlög-
regluþjónn, vorum einu sinni
saman niðri við síldarverksmiðj-
una Rauðku. Þar voru nokkrir
strákar, sem voru ansi baldnir, og
Jóhannes fretar úr kylfunni á
strákana. Ég fór strax inn í
mökkinn og tók þann sem var vit-
lausari, setti hann inn í bílinn og
skellti hurðinni. Ég settist síðan
undir stýri og ók af stað. Mig
sveið í augun en það var ekki
meira, og eftir klukkutíma voru
áhrifin alveg horfin, þetta var nú
ekki sterkara en það.
En það sem gerðist við Hótel
Höfn var, að við sáum fram á að
landlega yrði. Við fórum fram á
það við settan bæjarfógeta, en
það var Ófeigur Eiríksson, góður
kunningi minn, að áfengisútsöl-
unni á staðnum yrði lokað. Sam-
tal okkar var á þá leið, að Ófeig-
ur sagði að lokum: Þið megið
eMd verða hræddir þó það sé
landlega framundan. Það fauk í
mig, ég sagði ekki meira og lagði
á. En ballið varð staðreynd, flot-
inn kom allur inn áður en Ríkinu
var lokað og menn komust yfir-
leitt til að kaupa sér brennivín.
„Bara hræðsla ef við
tökum þessu ekki með ró“
Á Höfninni var haldið ball, því
þar var eini staðurinn sem hægt
var að nota til dansleikja. Menn
slógust um að fá miða og miða-
salan var mikil; sumir sögðu 400
og aðrir 500. Þeir, sem hafa kom-
ið á Höfnina, vita, að þar er troð-
fullt þegar 200 manns eru í hús-
inu. En til okkar á lögreglustöð-
ina komu nokkrir strákar, sem
áttu að eiga frívakt um kvöldið,
og buðust til að fara á vakt um
kvöldið. Ég var varðstjóri og
sagði nei, það er ekkert um að
vera, ég hef orð Ófeigs fyrir því
að það sé bara hræðsla ef við tök-
um þessu ekki með ró. Við vor-
um því fimm á vaktinni eins og
venjulega.
Svo er hringt í okkur og við
beðnir um að taka nokkra gaura,
sem séu búnir að brjóta stóra
rúðu, sem snéri að götunni. Við
fórum á staðinn og sáum að hér
horfði til vandræða því fólk gekk
inn og út um brotnu rúðuna,
dyraverðirnir gátu ekki sinnt
þessu. Það var þó nokkur þvaga
við rúðuna og til að fá svigrúm til
að komast inn - því það var líka
allt vitlaust fyrir innan rúðuna -
þá púðra ég táragasi á þá sem
stóðu fyrir utan, á stéttinni. En
þarna gerðist nokkuð, sem ég gat
ekki séð fyrir. Loftræstingin í
húsinu var þannig að ein stór
rella var í ioftinu innarlega í saln-
um og hún sogaði loftið, sem var
við gluggann, inn í salinn, en
brotna rúðan var eini opni stað-
urinn á húsinu.
Fólkiö hélt að kviknað
væri í hótelinu
Það greip mikil hræðsla um sig
inni í salnum. Eg hef talað við
menn, sem voru í salnum þegar
þetta gerðist, og einn þeirra sagði
að fólkið hefði haldið að kviknað
væri í húsinu. Veturinn á undan
hafði einmitt kviknað í Hótel
Höfn og hótelhaldarinn og sonur
hans létust af völdum bruna og
reykeitrunar. Múgæði greip um
sig og það ruddist hver um annan
þveran til að komast út. Seinna
heyrði maður frá fólki, sem var
þarna, að bomburnar hefðu kom-
ið veltandi inn eftir öllu húsinu.
En það eina sem gerðist var í
rauninni það að einu táragashylki
var skotið fyrir utan húsið, en
táragasblandað loft barst inn
vegna loftstraumsins.“
- Fengu þá allir í salnum tár í
augun?
„Nei, þetta var ekki.það mikið.
Fólkið fann lyktina af táragasinu
og það var nóg. Hræðslan og æs-
ingurinn var það mikill, að fólkið
reyndi að ryðjast út, og þetta var
auðvitað endirinn á ballinu. En
þetta er gott dæmi um það hvern-
ig múgæsing getur komið fram og
þessi atburður varð frægur um
allt land á sínum tíma, þetta er
m.a. í Öldinni okkar í bindinu
sem nær yfir árin 1951 til 1960.“
Undirritaður kvaddi Braga og
þakkaði honum fyrir spjallið,
fróðari en áður um lífið á Siglu-
firði og starf lögreglumannsins á
þeim árum, sem síldin réði svo
miklu unt líf, örlög og afkomu
fólksins á Norðurlandi. EHB
athudið
§Flóamarkaður verður
föstudaginn 19. júní kl.
14.00-18.00 í sal Hjálp-
ræðishersins að
Hvannavöllum 10.
Mikið af nýlegum unglingafatnaði
og skóm.
Komið og gerið góð kaup.
Hjálpræðisherinn.
Munið minningarspjöld kvenfé-
lagsins „Framtíðin“. Spjöldin fást
í Dvalarheimilunum Hlíð og
Skjaldarvík, hjá Margréti Kröyer
Helgamagrastræti 9, verslununum
Skemmunni, Bókabúð Jónasar og
Blómabúðinni Akri, Kaupangi.
Allur ágóði rennur í elliheimilis-
sjóð félagsins.
Hálsprestakall.
Fermingarguðsþjónusta að Hálsi
n.k. sunnudag kl. 2 .e.h.
Fermd verða:
Jóna Guðrún Ármannsdóttir
Vatnsleysu
Valdís Árna Arnórsdóttir
Þverá
Kristján Óli Sverrisson
Stórutjörnum
Bolli Gústafsson.
Ferðafélag Akureyrar
Skipagötu 13.
Jónsmessuferð verður
farin nk. laugardag 20.
júní út í Hrísey, litast um í eynni
og grillað. Lagt verður af stað kl,
19.00 frá Skipagötu 13.
Allar upplýsingar eru veittar á
skrifstofu félagsins sem er að
Skipagötu 13, sími 22720.
Hjálpræðisherinn
Hvannavöllum 10.
Föstudaginn 19. júní kl.
14.00-18.00 flóamark-
aður. Kl. 20.00 æskulýðsfundur.
Sunnudaginn 21. júní kl. 20.00
almenn samkoma.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Inn til hins nýja skipulagt undir
forystu Krists.
Opinber biblíufyrirlestur sunnu-
daginn 21. júní kl. 10.00 í Ríkissal
votta Jehóva, Sjafnarstíg 1, Akur-
eyri. Ræðumaður Bengt Hansen
fulltrúi Varðturnsfélagsins. Allt
áhugasamt fólk velkomið.
Vottar Jehóva.
75 ára verður nk. mánudag 22.
júní Dagrún Jakobsdóttir frá Hlíð.
Hún tekur á móti gestum laugar-
daginn 20. júní að heimili sínu að
Lögbergsgötu 5.
ENGIN HÚS
ÁN HITA
Hreinlætistæki
blöndunartæki
baðinnréttingar
og flísar
Verslið við
IJJIJlJlg ,agmann-
DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI
SÍMI (96)22360
Ferðafélag Akureyrar
4^ óskar eftir
sjálfboðaliðum
til gæslustarfa við sæluhús félagsins í Laugafelii
í sumar.
Upplýsingar veita:
Guðmundur Björnsson.
Vinnusími: 96-25200.
Heimasími: 96-21885.
Guðmundur Gunnarsson.
Vinnusími: 96-22900
Heimasími: 96-22045.
við Hvannavelli.
Símar 24119 og 24170.
MMC Galant árg. ’82
Verð 350.000.
Range Roverárg. ’82 ek.77.000.
Verð 900.000.
Subaru 1800 station árg. ’84
ek. 14.000. Verð 480.000.
MMC Lancer1500 GLX árg. ’84
ek. 35.000. Verð 350.000.
I FRAMSÓKNARMENN Ífetíi
AKUREYRI IIII
Bæjarmálafundur
verður mánudaginn 22. júní
kl. 20.30 að Hafnarstraeti 90.
Fundarefni: Dagskrá bæjarstjórnar
nk. þriðjudag. Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SNÆBJÖRN HJÁLMARSSON,
Þormóðsstöðum,
sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn
13. júní verður jarðsunginn frá Saurbæjarkirkju laugardaginn
20. júní kl. 15.00.
Jarðsett verður að Möðruvöllum.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á að láta Krabbameins-
félag Islands njóta þess.
Valgarður Snæbjörnsson,
Þormóður Snæbjörnsson, Sigurborg Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Fiat Uno 60s árg. ’86 ek. 21.000.
Verð 320.000.
Lada Sport árg. ’86 5 gíra
ek. 15.000. Verð 320.000.
Ath. Breytt símanúmer í
nýjum bílum 27015 og 27385.