Dagur - 22.06.1987, Síða 5
22. júní 1987 - DAGUR - 5
Bygging við Hofsbót:
Iþróttahöllin er hið glæsilegasta mannvirki eins og sjá má.
Myndir: IM
Mikið fjölmenni var viðstatt vígsluna.
Samningur á lokastigi
Eins og fram hefur komið í
fréttum, hefur Verkfræðistofa
’ Norðurlands hafnað þeim
þrem tilboðum er bárust við
útboði þeirra á byggingu húss
við Hofsbót á Akureyri. Það
er mat manna að þetta séu
óvenjuleg vinnubrögð, og
bagaleg fyrir þau fyrirtæki sem
tilboð gera þar sem dýrt sé fyr-
ir þau að útbúa tilboðin.
Hofsós:
Líkamsrækt
í fiystihúsi
Fljótlega mun starfsfólki
Hraðfrystihússins á Hofsósi
gefast kostur á léttu leikfimis-
prógrammi til að mýkja sig og
liðka í vinnunni. Síðustu daga
hefur Magnús Olafsson sjúkra-
þjálfari frá Akureyri verið að
útbúa prógram á myndbandi
sem ætlað er starfsfólki
hússins.
Hólmgeir Einarsson verkstjóri
í Hraðfrystihúsinu sagði Magnús
sníða þetta prógram eftir aðstæð-
um á staðnum og líklega færi fólk
í þessar æfingar tvisvar á dag, um
kaffileytið, en það hefði þó ekki
verið ákveðið. Hólmgeir kvaðst
vera mjög bjartsýnn á að þessi
líkamsrækt ætti eftir að koma öll-
um aðilum vel. Reynsla annarra
húsa af þessu væri mjög góð og
dæmi þess að vöðvabólga og aðr-
ir kvillar sem þjáðu fólk hefðu
horfið eins og dögg fyrir sólu.
-þá
Dagur hafði samband við
Sigurð Hermannsson hjá Verk-
fræðistofunni, og innti hann eftir
því hvert næsta skref yrði hjá
þeim hvað bygginguna varðar.
Hann sagði að verið væri að
semja við aðila um bygginguna,
og ætti aðeins eftir að ganga frá
formsatriðum. Samkvæmt heim-
ildum blaðsins mun þetta vera
SJS, sem átti næstlægsta tilboð í
bygginguna, eða tæpri miljón
hærra en það lægsta.
Hús þetta verður á fjórum
hæðum og verður fatahreinsun á
jarðhæð. Þrír til fjórir tannlækn-
ar og tannsmíðaverkstæði verður
á tveim hæðum og Verkfræðistof-
an á einni hæð. Stefnt er að því
að starfsemi hefjist í húsinu
haustið 1988. Sigurður sagði að
það væri matsatriði hvort þeirra
kostnaðaráætlun hafi verið of
lág, en tilboð SJS var 24% hærra
en áætlunin sem hljóðaði upp á
13,7 miljónir króna. VG
Hlutabréf
í Amaro hf. til sölu
Nánari upplýsingar veitir Brynjar Skarphéöinsson
Lögbergsgötu 7, sími 96-23457 á kvöldin frá kl.
20.00-21.00.
Til sölu MMC L-200 Pick up árgerð 1982.
Bíllinn sem lítur mjög vel út er með veltigrind, spili og í honum
eru góð hljómflutningstæki. Einnig fylgja bílnum stór og mikil
vetrardekk á hvítum felgum.
Verð 430 þúsund.
Nánari upplýsingar gefur Kristján Kristjánsson í síma 24222 á
daginn og í síma 26367 á kvöldin.
Málm- og tréiðnaðardeildir VMA:
Aðsókn dræmari
en venjulega
- enn hægt að bæta við nemendum
Að sögn Hauks Jónssonar,
kennslustjóra á tæknisviði
Verkmenntaskólans á Akur-
eyri, getur skólinn .enn tekið
við nemendum í máimiðnaðar-
deild og tréiðnaðardeild, auk
þess sem örfá sæti eru laus í
grunndeild rafiðnaðar og
vélstjórn. Haukur sagði
aðsókn hafa verið heldur
dræmari en þeir ættu að venj-
ast en venjulegum umsóknar-
fresti er nú lokið. Hefur því
verið ákveðið að gefa lengri
frest og vildi hann benda á að
skrifstofan yrði opin fram til
næstu mánaðamóta.
Verkstæði málmiðnaðar, sem
staðsett er að Eyrarlandshólti, er
afar fullkomið og sagði Haukur
að þangað hefðu komið skóla-
rnenn af öllu landinu og verið
sammála um að það væri það
besta sem hér væri boðið upp á.
Aðstaðan ein sér ætti því að
draga nemendur að. „Annars er
þessi samdráttur í málmiðnaðar-
námi undarlegur því iðnaðurinn
er öflugur hér í bænum og fyrir-
tækin hafa beint nemendum sín-
um hingað. Þeir sem liingað
koma fá örugglega samning en
hinir fá hann varla. í>á má einnig
benda á að þeir sem læra hér fá
ársstyttingu á námssamningi,"
sagði Haukur.
Tréiðnaðardeildin er enn til
húsa í gamla Iðnskólanum.
Aðsókn að þeirri deild hefur ver-
ið í nokkurri lægð síðustu ár en
nú er mjög mikið að gera í
tréiðnaði í bænum og sagðist
Haukur eiga von á að það kæmi
fram í aukinni aðsókn að deild-
inni.
Þessa dagana er verið að vinna
að því hjá Iðnfræðsluráði að þeir
sem Ijúki grunndeildum fái
ákveðin starfsréttindi. „Það er nú
frekar erfitt að orða hvað átt er
við en það má segja að þeir verði
eins konar sérhæfðir verkamenn,
en þessir menn eru ntun betur
staddir en menn sem eru ókunnir
viðkomandi starfsgrein,“ sagði
Haukur.
Þeir sem hafa lokið iðnnámi
geta haldið áfram námi á tækni-
braut og lokið stúdentsprófi en
það veitir réltindi til náms í
Tækniskólanum eða Háskólan-
um. Þá fara þeir sem ætla í iðn-
rekstrarfræði á þessa tæknibraut.
Enn er möguleiki að komast að á
tæknibiautinni. JHB
Bensínsláttuvélar, handsláttuvélar,
hrífur, skóflur, kantskerar, gafflar,
garðslönguhjól, garðslöngur, úð-
arar, smágarðáhöld, runnaklippur,
bílkústar, slöngutengi, hjólbörur,
kústar, laufhrífur, greinaklippur,
rósaskæri, rafhlöðugrasklippur,
rafhlöðurunnaklippur, trimmer,
garðaplast, útigrill og viðarkol,
stigar, tröppur, útiblómaker, mal-
arskóflur, HONDA-rafstöðvar,
HONDA-vatnsdælur o.fl. o.fl. o.fl.
o.fl.
MMWMW'ÍM
Akureyri - simi 96-22233.
GARÐVERKFÆRI