Dagur - 22.06.1987, Page 11

Dagur - 22.06.1987, Page 11
22. júní 1987 - DAGUR - 11 Jesendahornið________ Hræðilegt hve böm eiga auðvelt með að kaupa sér vín íslandsmyndir Mayers 1836 - Einstæð heimild um íslenskt þjóðlíf á fyrri tíð Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur gefið út íslandsmyndir Mayers í tilefni þess að árið 1986 voru 150 ár liðin frá því leiðangur Paul Gaimards ferðaðist um ísland í því skyni að rannsaka !and og þjóð. Afrakstur ferðar- innar var margvíslegur, m.a. þær tæplega 200 myndir sem nú eru gefnar út, sumar í fyrsta sinn á Islandi. Svo til allar myndirnar eru prentaðar í lit og hefur frú Guðrún Rafnsdóttir handlitað þær og notið tæknilegrar aðstoð- ar Kristins Sigurjónssonar lit- greiningarmeistara en fræðilegrar leiðsagnar Fríðar Ólafsdóttur lektors. Árni Björnsson þjóð- háttafræðingur og Ásgeir S. Björnsson lektor sömdu formála og ítarlegar myndskýringar og er textinn á íslensku, frönsku og ensku. íslandsmyndum Mayers fylgir litprentað kver, Chants Islandis, sem er ljósprentun á fágætu kveri með kvæðum og ræðu sem flutt voru Páli Gaimard til heiðurs í veislunni góðu í Kaupmannahöfn 1839. í kverinu er einnig ritgerð eftir dr. Finnboga Guðmundsson landsbókavörð þar sem varpað er nýju ljósi á kvæði Jónasar Hall- grímssonar. íslandsmyndir Mayers er 298 blaðsíður í allstóru broti, en kvæðiskverið er 48 blaðsíður í minna broti og báðar eru bæk- urnar saman í öskju. Verkið í heild er einstæð heimild um íslenskt þjóðlíf á fyrri tíð og um leið sérstakt augnayndi og rómað mjög fyrir fegurð og frágang. Þannig kemst t.d. Sigurlaugur Brynleifsson svo að orði í rit- dómi: „Þetta er glæsileg útgáfa, vönduð og vel unnin og er slík útgáfustarfsemi „nostra laude majus,“ ofar voru lofi. Islandsmyndir Mayers 1836 er sett og prentuð í Prentsmiðjunni Odda og bundin þar og í Arnar- felli hf. Litgreiningar voru unnar í Odda. Hönnun öskju og spjald annaðist Sigurþór Jakobsson en prentlögn bókanna (layout) sáu þeir um Kristinn Sigurjónsson og Örlygur Hálfdanarson. Aðalfundur Tölvumið- stöðvar fatlaðra 1. aðalfundur Tölvumiðstöðvar fatlaðra var haldinn fimmtudaginn 21. maí 1987. Á fundinum var kjörin ný stjórn og í henni sitja eftirtaldir: Ragnar Gunnar Þórhallsson frá Sjálfsbjörg, landssamtök, Noel Burgess frá Þroskahjálp, landssamtök, Jóhannes Ágústs- son frá Félagi heyrnarlausra, Páll Svavarsson frá Styrktarf. lam- aðra og fatlaðra, Ólöf Ríkharðs- dóttir frá Öryrkjabandalagi íslands, Arnþór Helgason frá Blindrafélaginu. Á fundinum var einnig kjörin þriggja manna laganefnd, en henni er ætlað að endurskoða lög félagsins fyrir næsta aðalfund. Eftirfarandi áskorun til Öryrkjabandalags íslands og Tryggingastofnunar ríkisins var samþykkt. Aðalfundur Tölvumiðstöðvar fatlaðra, haldinn að Háaleitis- braut 11-13 21. maí 1987 beinir því til Öryrkjabandalags íslands og Tryggingastofnunar ríkisins að hraðað verði sem kostur er gerð sérstaks búnaðar, þannig að tölvur geti skilað af sér efni með íslensku tali. Til okkar hringdi móðir 13 ára gamals unglings, og hafði hún óskemmtilega sögu að segja. Hún hefur fyrir því öruggar heimildir, að börn og unglingar 13-14 ára gömul eigi bæði auðvelt með að verða sér úti um vín og að komast inn á skemmtistaði t.d. Freyvang. Barn hennar sem var fermt í vor, hefur ásamt félögum sínum og jafnöldrum, undanfarið leiðst út í áfengisnotkun. Að kvöldi 16. júní sl. var haldinn dansleikur í Freyvangi, og hafði móðirin spurnir af því, að hópur þessi ætl- aði að fara þangað. Hún taldi sig ekki þurfa að hafa af þessu áhyggjur, þar sem aldurstakmark er 16 ár, en ók engu að síður á staðinn um kvöldið og fór inn. Og viti ménn, inni var barn henn- ar ásamt félögum sínum, og var aðkoman óskemmtileg því þarna lágu unglingar drukknir hér og þar. Hún vatt sér að dyraverði og spurði hvort ekki þyrfti að sýna persónuskilríki við innganginn. Hann svaraði því til að það væri aðeins ef ástæða þætti til. Hjá lögreglunni fékk hún þær upplýs- ingar, að þeir sæju eingöngu um hefðbundna löggæslu við svona dansleiki, og gætu ekki sökum mannfæðar sinnt verkefnum af þessu tagi. Annað er einnig hræðilegt. Það er hversu auðvelt börnin eiga með að verða sér úti um vín. Ein „örugg“ leið að þeirra mati, er að fara í Spilahöllina við Strandgötu og biðja þar sér eldra fólk að kaupa fyrir sig vín. Einnig höfðu þau nýlega stöðvað mann fyrir utan Sjallann og hafði hann farið fyrir þau í Kjallarann og keypt handa þeim vín. Að þessu tilefni nefndi hún niðurstöður könnunar um ungl- inga í miðbæ Akureyrar sem nýlega voru birtar. Hún vildi meina að þær væru mjög óraun- hæfar og spyr hvort það séu virki- lega ekki margir foreldrar sem eiga andvökunætur vegna barna sinna. Eru þeir kannski það sljóir að þeir sjái ekki að börnin þeirra eru drukkin þegar þau koma heim, eða vilja þeir ekki sjá það? Er kannski ástandið á heimilum það slæmt, og þá foreldrar sjálfir e.t.v. of drukknir sjálfir til þess að sjá vín á börnum sínum? Það er bagalegt til þess að vita að svona lagað viðgangist, og er þessi saga sögð m.a. til þess að vara aðra foreldra við. Nauðungaruppboð á fasteigninni Hamarsstígur 30, Akureyri, talinn eigandi Friðný Friðriksdóttir, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 26. júní kl. 17.00. Uppboðsbeiðandi er: Sigurður G. Guðjónsson hdl. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninni Hafnarstræti 84, e.h. Akureyri, talinn eigandi Ari E. Arason, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 26. júní kl. 15.45. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl., Steingrímur Þormóðsson hdl., Veðdeild Landsbanka (slands og Sigriður Thorlacius hdl. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninni Hafnarstræti 88, 1. hæð, s-hl. Akureyri, þingl. eigandi Stefán Sigurðsson, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107,3. hæð, Akureyri föstud. 26. júní kl. 14.40. Uppboðsbeiðandi er: Innheimtumaður ríkissjóðs. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og siðara, á fasteigninni Hrafnagilsstræti 19, n.h. Akur- eyri, þingl. eigandi Áslaug Jónsdóttir, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 26. júní kl. 14.15. Uppboðsbeiðandi er: Gunnar Sólnes hrl. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninni Kaldbaksgata, skáli, A-hluti, Akureyri, þingl. eig- andi Bílasalan h.f., fer fram í dómsal embættisins Hafnar- stræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 26. júní kl. 17.30. Uppboðsbeiðandi er: Innheimtumaður ríkissjóðs. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og síðara, á fasteigninni Keilusiða 12b, Akureyri, talinn eigandi Konráð F. Svavarsson, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 26. júní kl. 13.45. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl. og Bæjarsjóður Akureyrar. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og síðara, á fasteigninni Grenilundur 15, Akureyri, þingl. eigandi Haukur Þór Adolfsson, fer fram i dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 26. júní kl. 13.40. Uppboðsbeiðandi er: Innheimtumaður ríkissjóðs. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninni Glerárgata 34, 3. hæð að aust., Akureyri, þingl. eigandi Teiknistofan s.f., ferfram í dómsal embættisins Hafn- arstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 26. júní kl. 16.45. Uppboðsbeiðendur eru: Ævar Guðmundsson hdl„ Klemens Eggertsson hdl., Sigurður G. Guðjónsson hdl., Búnaðarbanki íslands, Helgi V. Jónsson hrl. og Iðnaðarbanki íslands h.f. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninni Norðurgata 47, neðri hæð, Akureyri, þingl. eig- andi Jóhann Kr. Sigurðsson o.fl., fer fram í dómsal embættis- ins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 26. júní kl. 17.30. Uppboðsbeiðandi er: Gunnar Sólnes hrl. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninni Óseyri 8, Akureyri, þingl. eigandi Norðurverk h.f., fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 26. júní kl. 16.30. Uppboðsbeiðendur eru: Innheimtumaður ríkissjóðs og Guðj- ón Ármann Jónsson hdl. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninni Skarðshlíð 15b, Akureyri, þingl. eigandi Pétur Gunnarsson, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 26. júní kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur eru: Gisli Kjartansson hdl., Bæjarsjóður Akureyrar og Innheimtumaður ríkissjóðs. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninni Smárahlíð 9g, Akureyri, þingl. eigandi Eyjólfur Björnsson, ferfram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107,3. hæð, Akureyri föstud. 26. júni kl. 14.30. Uppboðsbeiðandi er: Gunnar Sólnes hrl. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð á fasteigninni Strandgata 61, Akureyri, þingl. eigandi Atli h.f., fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 26. júní kl. 15.30. Uppboðsbeiðandi er: Innheimtumaður ríkissjóðs. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og síðara, á fasteigninni Smárahlíð 9d, Akureyri, talinn eigandi Magnús Jónsson, fer fram f dómsal embættisins Hafnarstræti 107,3. hæð, Akureyri föstud. 26. júní kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl. og Ólafur B. Árna- son hdl. Bæjarfógetinn á Akureyri.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.