Dagur - 22.06.1987, Qupperneq 16
Skipagötu 12
síml 21464
Opnunartími
Crown Chicken í sumar
verdur frá kl. 11.00-23.30.
v CROWN
* CHICKEN
fiiiniturTTV
AKUREYRI
Skipagötu 12
sími 21464 1
Jóhann Sigurjónsson:
„Hrefnan ekki
í útrýmingarhættu“
-a.m.k. tíu til fimmtán þúsund dýr við landið
Fyrir framan hið nýja hús Sæplasts hf. á vígsludaginn. Frá vinstri: Pétur Reimarsson framkvæindastjóri, Jón Gunn-
arsson framleiðslustjóri, Matthías Jakobsson stjórnarformaður og Kristján Aðalsteinsson nýráðinn sölumaður
Sæplasts hf.
Sæpiast á Daivík:
Starfsemin flytur í nýtt húsnæði
- framkvæmdir þegar hafnar við viðbyggingu
„Samkvæmt okkar upplýsing-
um gætu verið tíu til fimmtán
þúsund dýr við landfð, e.t.v.
fleiri. I fyrra tókst okkur í
fyrsta sinn að telja hrefnur úr
flugvél og niðurstöðurnar voru
lagðar fyrir vísindanefnd
Alþjóða-hvalveiðiráðsins, sem
nú starfar,“ sagði Jóhann Sig-
urjónsson, deildarstjóri hjá
Hafrannsóknastofnun, þegar
hann var spurður um stærð
hrefnustofnsins við landið.
Að sögn Jóhanns er hrefnu-
stofninn engan veginn í útrým-
ingarhættu, miðað við þær veiðar
sem hafa verið stundaðar undan-
farin ár, en um tuttugu ára skeið
hafa verið veidd um 200 dýr
árlega. Reiknað er með að óhætt
I vetur var óskað eftir tilboð-
um í eignir þrotabús KSÞ á
Svalbarðseyri og þar með er
talin verslun í Vaglaskógi.
Nokkur tilboð bárust í eignina
og var Hálshreppi í Fnjóskadal
seld hún á 710 þúsund. Er j
þetta eina eign þrotabúsins
sem seld hefur verið á frjálsum
markaði en aðrar eignir þrota-
búsins fara á uppboð á næst-
unni eins og kunnugt er.
Tryggvi Stefánsson, oddviti í
Hálshreppi, sagði í samtali við
Dag að til greina hefði komið að
hreppurinn leigði verslunina út til
reksturs en þar sem engin viðun-
andi tilboð fengust mun hreppur-
inn reka verslunina í sumar.
Taldi hann að ef vel væri á mál-
um haldið ætti reksturinn að geta
skilað einhverjum hagnaði.
Ástæður fyrir því að Háls-
hreppur kaupir verslunina sagði
Tryggvi að með þessu væri verið
að reyna að skapa atvinnu fyrir
fólkið í hreppnum. Ekki væri urn
auðugan garða að gresja í þeim
efnum, helst væri atvinnu að hafa
við skógræktina að Vöglum en nú
væri tekið að draga úr atvinnu við
hana og því væri brugðið á þetta
ráð. Nokkur störf eru við versl-
unina, unnið á vöktum, en versl-
sé að veiða eitt til fjögur prósent
dýranna á ári, án þess að hafa
áhrif á stofnstærðina. Fleiri upp-
lýsinga er þörf til að áætla með
þokkalegri nákvæmni stærð
hrefnustofnsins, og verður unnið
að þeim rannsóknum í sumar.
„Það er ekki inni í myndinni
að veiða áfram 200 hrefnur á ári,
enginn hefur lagt það til. Ljóst er,
að við þurfum að endurbæta taln-
ingaraðferðir okkar og verður
talningin í sumar framkvæmd
með tilliti til þessa. Það eru ekki
allir á einu máli um raunverulega
stærð stofnisins og því er þörf á
að affa frekari gagna og nota
nýjustu rannsóknartækni," sagði
Jóhann Sigurjónsson.
„Það er alveg óljóst hvort við
fáum leyfi til að veiða hrefnu í
sumar, við höfum ekkert svar
fengið ennþá. Þetta skýrist vænt-
anlega eftir hvalveiðiráðstefn-
una, sem hefst 22. júní. Ég var á
netum í vetur og hef verið á
snurvoð undanfarið en ég er
búinn að vera á hrefnuveiðum á
hverju ári frá 1970 og er ekki
sáttur við að þetta sé tekið af
manni. Við hrefnuveiðimenn
teljum og höfum alltaf talið að
nóg sé af hrefnu í sjónum og taln-
ingin í fyrra sannaði, að við höfð-
um rétt fyrir okkur,“ sagði Guð-
mundur Haraldsson, hrefnu-
veiðimaður á Akureyri, þegar
hann var spurður álits á hrefnu-
veiðibanninu. EHB
unin verður opin alla daga vik-
unnar í sumar.
Verslunin í Vaglaskógi er með
almennar neyslu- og ferðamanna-
vörur á boðstólum, en hún
þjónar aðallega ferðamönnum
sem um Vaglaskóg fara en einnig
njóta heimamenn góðs af versl-
uninni. JÓH
„Málið er þannig núna, að það
er svo mikill maðkur að við
erum hættir að hafa undan og
verðum væntanlega að svíkja
fjölda manns sem hafa nú þeg-
ar pantaö hjá okkur“, sagði
Smári Sigurðsson garðyrkju-
maður, en óvenju mikið er um
trjámaðk núna miðað við
undanfarin ár. Það eru ein-
göngu þrír menn sem sinna
þessu starfi nú, og hafa þeir
engan veginn undan eftir-
spurn.
Nú mun það vera þannig, að
Síðastliðinn föstudag var vígt
nýtt hús Sæplasts hf. á Dalvík.
Fyrirtækið hefur verið í Ieigu-
húsnæði hingað til, allt frá því
að það var keypt til Dalvíkur
fyrir þremur árum síðan. Nýja
húsið er 840 fermetrar að
stærð og kostar tæpar 32 millj-
ónir króna.
Húsbygginguna annaðist
Híbýli hf. á Akureyri. Hafist var
handa við bygginguna síðasta
haust og uppsteypa hófst 10. okt-
óber. Byggingin var fjármögnuð
með lánum frá Iðnþróunarsjóði,
Iðnlánasjóði og að hluta með eig-
in fé. Fljótt varð ljóst að húsið er
of lítið og eru framkvæmdir nú
hafnar við viðbyggingu sem verð-
ur 768 fermetrar að stærð. Við-
byggingin ^verður tekin í notkun
um næstu áramót. Einnig hefur
verið ákveðið að fjárfesta í nýj-
um framleiðslubúnaði til að auka
afköst og hagkvæmni verksmiðj-
unnar. Búnaður þessi verður
kominn í gagnið um næstu ára-
mót og mun rúmlega tvöfalda
framleiðslugetuna. Kostnaður
vegna þessa búnaðar er um 50
milljónir.
Sæplast framleiðir fiskiker í
fjórum stærðum, svo og vöru-
bretti og kassabretti fyrir fiski-
búast má við að maðkurinn verði
í 2-3 vikur í viðbót. Ástæða þess
að svo mikið er um maðk nú er
tíðarfarið, sem verið hefur
óvenju gott. Haustið var gott og
veturinn mildur svo eggin voru
mörg og skemmdust ekki yfir vet-
urinn. Þá kom vorið snemma og
var gott svo þau sprungu nærri
því öll út og urðu að möðkurn.
Síðan kom stutt kuldakast og er
hlýnaði aftur sprungu enn fleiri
út, og er þaö ástæða þess hve
maðkurinn verður lengi enn.
Vegna alls þessa vildi Smári
koma því á framfæri að fólk
kassa. Mikil eftirspurn hefur ver-
ið eftir framleiðsluvörum Sæ-
plasts hf. og ekki verið unnt að
að anna henni. Þriðjungur fram-
leiðslunnar er fluttur á erlenda
markaði, í Færeyjum, Bandaríkj-
unum og Kanada en einnig á Evr-
ópumarkað.
Velta fyrirtækisins hefur tvö-
faldast ár frá ári og lítur út fyrir
Margt bar til tíöinda hjá lög-
reglunni á Akureyri um helg-
ina og sumt nokkuð óvenju-
legt. M.a. losnaði hjól undan
bíl og lenti það á öðrum bfl
sem skemmdist nokkuð. Þá
kviknaði í bíl á föstudaginn og
skemmdist hann mikið. Eig-
andinn ætlaði að taka það
nýtilegasta og henda flakinu
síðan en þegar hann kom á
staðinn hafði einhver tekið
ómakið af honum, fjarlægt bíl-
inn og hirt það heillegasta.
Þá varð hestamaður fyrir
ágangi bíls í Kjarnaskógi með
hreinlega úðaði hjá sér sjálft.
Hann benti á að nú væri til í apó-
tekum hér lyf sem heitir Permas-
ect. Það er að vtsu dýrt, en alveg
hættulaust bæði mönnum og dýr-
um með heitt blóð, sem er rnikill
kostur t.d. vegna fuglanna. Lyfið
vinnur að vísu ekki á roðamaur,
en ber 100% árangur á trjámaðki
og er auðvelt í meðförum. Það
sem þarf er handdæla, sem snið-
ugt væri að nokkrir tækju sig
saman um að kaupa, eigi þeir
hana ekki fyrir. Einn ml af
Permasect er blandað út í 10 lítra
af vatni svo brúsi af efninu dugir
að veltan verði um 140 milljónir
króna en heildarveltan á síðasta
ári var 71 milljón. Afkoma hefur
því verið góð, ef undan er skilið
fyrsta árið en þá var tap á rekstr-
inum.
Hjá fyrirtækinu starfa nú 23 og
hluthafar eru um 30, bæði ein-
staklingar og fyrirtæki. JOH
þeim afleiðingum að hesturinn
fældist og féll á girðingu. Maður
og hestur hlutu smávægileg
meiðsl. Einnig var tilkynnt um
hestamann sem fór út af vaði yfir
Eyjafjarðará en hann náði að
hanga í taglinu í land og varð
ekki meint af.
Þrír árekstrar voru skráðir í
bækur lögreglunnar, allir minni
háttar. Þá sagði Ingimar Skjóldal
varðstjóri að mikið væri um að
lögreglan væri beðin að opna
læsta bíla, stundum 5-6 sinnum á
dag.
loforö“
á marga garða.
Smári sagði ennfremur, að nú
væri ástandið einna verst við
Helgamagrastræti og Munka-
þverárstræti, einkum vegna þess
hversu gróin tré eru þar. Þeir sem
sagt ráðleggja fólki að reyna að
úða sjálft.
Vilji fólk síðan vera fyrir-
hyggjusamt, er hægt að úða að
vetrinum með sérstöku lyfi sem
vinnur á eggjunum, og þarf þá
engar áhyggjur að hafa á vorin.
VG
Verslun KSÞ í Vaglaskógi:
Seld Hálshreppi
- Eina eign þrotabúsins sem seld er
á frjálsum markaði
Garðaúðun:
„Þurfum að svíkja gefin
- Miklar annir hjá garðyrkjumönnum
Akureyri:
Bifreið brann