Dagur - 30.06.1987, Blaðsíða 1

Dagur - 30.06.1987, Blaðsíða 1
4ews\ Sumar- og sportfatnaður HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 ■N Skólarúta frá Dalvík til Akureyrar: Stefnt að daglegum akstri í haust - gæti lækkað kostnað skólafólks verulega Þessa dagana er verið að senda út tit skólafólks á Dalvík aug- lýsingu um daglegan skólaakst- Brú yfir Glerá: Tilboði Híbýlis tekið Bæjarráð hefur samþykkt að taka tilboði Híbýlis um bygg- ingu brúar yfír Glerá, en tvö tilboð bárust í verkið. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á rúmlega 6.038.000. Tilboð Híbýlis, sem var lægra var upp á tæplega sjö milljónir, eða um 19% yfir kostnaðaráætlun, að sögn Guðmundar Guðlaugssonar bæjarverkfræðings. Guðmundur sagði að miðað væri við að verkið hæfist að lokn- um vorflóðum í Glerá, en þau eru mest á tímabilinu 15. júní til 15. júlí. Skiladagur er 10. októ- ber. Brúarlengd milli stöpla er 17 metrar og heildarbreidd ei 13,50 metrar. Akreinar verða tvær, í sína áttina hvor auk gangstétta beggja vegna. mþþ Aukablað um fjórðungsmótið Sérútgáfa fylgir Degi í dag, 30. maí. Þessi útgáfa er tileinkuð fjórðungsmóti norðlenskra hestamanna sem haldið var á Melgerðismelum um síðustu helgi og er þar gerð ítarleg grein fyrir mótinu í máli og ntyndum. ur til Akureyrar. Um er að ræða skólafólk sem þarf að sækja nám í framhaldsskólun- um og háskólanum á Akur- eyri. Unnið er nú við undir- búning þessa skólaaksturs en hann veltur mikið á því hve margir munu hafa áhuga á því að nýta sér þessa þjónustu. Stefnt er að því að akstur geti hafíst í haust. Trausti Þorsteinsson, skóla- stjóri á Dalvík og forseti bæjar- stjórnar sagði í samtali við Dag að hann gerði ráð fyrir að um 30- 40 manns frá Dalvík sæktu nám til Akureyrar á næsta ári. Laus- lega reiknað kostar einn vetur um 200 þúsund krónur fyrir ein- staklinginn þegar reiknuð er húsaleiga, uppihald og bóka- kostnaður. Reikna má með því að kostnaður skólafólks verði aðeins fjórðungur þessarar upp- hæðar ef fólk getur farið með rútu á milli. Að sögn Trausta er hugmyndin að kostnaður vegna þessa aksturs, ef af verður, muni verða greiddur að hluta af ríki og bæjarfélaginu. Mætti þá hugsa sér að ferða- og dvalarstyrkir sem ríkið greiðir nemendum gangi beint til niðurgreiðslu á akstrin- um. Einnig kæmi bæjarfélagið til með að greiða niður hluta kostn- aðarins. Ef skólafólk á Dalvík er tilbúið til að nýta sér þennan akstur, þarf að athuga fleiri atriði sem tengjast þessu. Til þarf að koma aðstaða fyrir skólafólkið á Akur- eyri þar sem hægt væri að nýta tímann til heimanáms meðan beðið væri eftir rútunni. Einnig hafa Dalvíkingar verið óánægðir með snjómokstur milli Akureyr- ar og Dalvíkur, en leiðin hefur hingað til verið mokuð tvisvar í viku. Ef aksturinn kæmi til, þyrfti að óska eftir fleiri mokstursdög- um svo og að leiðin verði mokuð fyrr á morgnana. JÓH Sér grefur gröf þótt grafi . . . Sigtryggur Jónsson, starfsmaöur Vatnsveitu Akureyrar, lagfærir vatnsrör fyrir vökvunarkrana á Ráðhústorgi. Mynd: G.T. Kjúklingaframleiðsla: A.m.k. 300 tonnum of mikil á síðasta ári Nokkrar birgðir eru nú fyrir- liggjandi af kjúklingum sökutn offramleiðslu á síðasta ári. Er áætlað að framleitt hafí verið a.m.k. 300 tonnum of mikið að sögn Jónasar Halldórssonar, formanns Félags kjtiklinga- bænda. Jónas sagði að búið væri aö flytja út hluta af þessum birgðum en það hefði ekki nægt til og því væri samdráttur óumflýjanlegur. Aðspurður hvort hann sæi fram á offramleiðslu í ár sagðist Jónas vonast til að búið yrði að jafna þetta um áramót. Menn væru almennt að loka núna og sumar- frí yrðu lengri en vanalega. Eins og kunnugt er varð ísfugl fyrir miklum áföllum vegna sal- monellusýkingar en Jónas sagði að almennt hefði ekki dregið mikið úr sölunni. „Við urðum aðeins varir við að salan minnk- áði eftir ævintýrið í Búðardal en síðan hefur það jafnað sig. Ann- ars hefur kjúklingasala á fyrri hluta þessa árs ekki verið neitt sérstök ef miðað er við uppsveifl- una í kjúklinganeyslu á síðasta ári,“ sagði Jónas Halldórsson. JHB Skólanefnd Akureyrar um kennaraíbúðir: Leiga verði hækkuð Skólanefnd Akureyrar sam- þykkti nýverið á fundi að leiga á kennaraíbúðum sem eru í eigu bæjarins verði hækkuð á næsta skólaári þannig að hún samsvari hóflegri leigu á almennum markaði. Björn Jósef Arnviðarson, for- maður skólanefndar sagði í sam- tali við Dag að þær íbúðir bæjar- ins sem leigðar hafi verið kennur- um hafi verið leigðar þeim á sömu kjörum og íbúðir sem leigðar eru félagsmálastofnun. Að mati skólanefndar er leigan á þessu íbúðum of lág og verulega undir markaðsverði. Því var sam- þykkt að hækka leigu á íbúðun- um og nota þá peninga til að greiða niður leigu fyrir íbúðir sem fengjust á frjálsum markaði. Einnig yrðu þeir peningar sem ella hafi farið í flutningsstyrki til kennara notaðir til að greiða nið- ur kennaraíbúðir í eitt til tvö ár þannig að fleiri nytu góðs af þess- um styrkjum. Skólanefnd hefur aðstoðað kennara sem sækja um stöður á Akureyri við að fá húsnæði á hóf- legu verði og sagði Björn Jósef að í þetta skipti hefði gengið mjög vel að útvega íbúðir fyrir næsta vetur. þrátt fyrir mikil þrengsli á leigumarkaðnum. Tekist hefur að útvega sjö íbúðir í viðbót við þær fjórar íbúðir sem bærinn hefur til umráða. JÓH Obilgjarnar kröfur Þorsteins - komu í veg fyrir stjórnarmyndun „Yið höfum lagt okkur mjög mikið fram í þessum viðræð- um, þrátt fyrir það að í upp- hafí hafí kratarnir hvorki vilj- að sjá okkur né heyra. Við- ræðurnar hafa satt að segja gengið þannig að þótt mjög hafí dregið saman með okkur og Alþýðuflokksmönnum málefnalega, einkennast þær að því að saman reyna hinir að gera okkar hlut sem minnstan,“ sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráð- herra í samtali við Dag í gærkvöld. Eins og kunnugt er fór Jón Baldvin Hannibalsson á fund forseta íslands í gær og skilaði umboði sínu til stjórnarmynd- unar. Hann lét í það skína að einungis væri formsatriði að ljúka stjórnarmyndun eins og málum væri komið. Steingrímur Hermannsson er á öðru máli: „Ég hef leyft mér að leggja til bæði ríkisstjórnir með Þorstein og jafnvel Jón Baldvin sem forsætisráðherra. í því sambandi settu framsóknar- menn ákveðin skilyröi snemma í viðræðunum: Ef Jón Baldvin yrði forsætisráðherra yrðu ráð- herrar Alþýðuflokks tveir, þrír hjá okkur og fjórir hjá Sjálf- stæðisflokki. Ef Þorsteinn yrði í forsæti fengju sjálfstæðismenn jafn marga ráðherra og hinir eða þrjá. Ég fór ekki fram á mcira en saml hefur allt strand- að á þessu. Ég veit að ég hef komið meira til móts við sjálf- stæðismenn og krata en mínir flokksmenn almennt hefðu kosið, en ég taldi það rétt í stöðunni. Ég bauð það einnig, að færum við með forystu í ríkisstjórninni yrðu ráðherrar Sjálfstæðisflokksins fjórir en við fengjum þrjá. Þeir höfnuðu því en settu þess í stað fram kröfu um þetta sama hlutfall auk þess sem forsætisráðuneytið kæmi í þeirra hlut. Það er varla hægt að telja það sanngjarnt," sagði Steingrímur. Hann sagði að auk þess hefðu framsóknarmenn tekið bæði landbúnaðar- og heilbrigðismál- in í sína umsjá, eftir að sjálf- stæðismenn höfðu alfarið hafn- að þeim, „sem er vissulega fróð- leg afstaða út af fyrirsig," sagði Steingrímur. Það virðast því vera óbil- gjarnar kröfur sjálfstæðismanna sem fyrst og fremst standa í veg- inum fyrir því að stjórnarmynd- un takist á þessu stigi. BB

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.