Dagur - 30.06.1987, Qupperneq 7
30. júní 1987 - DAGUR - 7
2,6 milljónum lítra hellt
niður
Á tímabilinu frá júní 1985 til árs-
loka 1986 voru meira en 900 þús-
und heimabruggunartæki afhent
eða eyðilögð af frjálsum vilja, 2,6
milljónum lítra af ólöglegu áfengi
var hellt niður. Á árinu 1986 voru
yfir 130 þúsund manns dæmd af
alþýðudómstólum og 70 þúsund
hlutu hegningu lögum
samkvæmt. Skráð voru 90 tilfelli,
þar sem hópar manna höfðu orð-
ið fyrir eitrun vegna drykkju á
einhverjum óþverra, 200 manns
höfðu látist.
í sambandi við þetta var gerð
viðbótarsamþykkt núna í júní
„um ábyrgð vegna heima-
bruggs“. Þessi samþykkt gerir
ráð fyrir allháum sektum fyrir
bruggun eða eign bruggunar-
tækja, enda þótt ekki sé um
neina sölu að ræða. Endurtekið
brot telst glæpsamlegt athæfi og
fyrir það er refsað með enn hærri
sektum og betrunarhúsvinnu í
allt að 2 ár.
Það er einnig flokkað með
glæpamálum, ef brotnar eru regl-
ur um sölu áfengra drykkja í
verslunum, veitingahúsum eða
herbúðum. Auk betrunarvinnu
og sekta missa þeir, sem hlut eiga
að máli, rétt til að vinna í faginu
næstu fimm árin.
Enn þyngri refsingar liggja við
því að aka bifreið undir áhrifum
áfengis. Og þá er ekki aðeins
ökumönnunum refsað, heldur
einnig þeim, sem vera kunna
ábyrgir fyrir því að viðkomandi
bifreið er í akstri.
í stuttu máli sagt, þá hefur ver-
ið hert mjög á löggjöf varðandi
drykkjuskap í Sovétríkjunum.
Engu að síður álíta Sovétmenn
það mikilsverðast og árangurs-
ríkast í baráttunni gegn áfenginu,
að það viðhorf verði almennt, að
það sé hinn eðlilegi lífsstíll að
vera allsgáður.
Lengi býr að fyrstu gerð
Rannsókn á „sjúkrasögu“ alkó-
hólista og stórdrykkjumanna
leiðir í ljós, að 90% þeirra hafa
vanist áfengi á barnsaldri eða á
unglingsárum. Sú ályktun, sem af
þessu má draga, er augljós: Það
verður að kenna börnunum bind-
indissemi. En það er ekki auðvelt
að koma börnunum til að skilja,
hversu hættulegt áfengið er. Á
æskuárum hefur fólk ekki
áhyggjur af heilsunni (tífaldri
hættu á hjartasjúkdómum,
skemmdum á maga, lifur, nýrum
og öðrum líffærum), og ábend-
ingar þessa efnis hafa því venju-
lega engin áhrif. Við höfum því
gert sérstakar athuganir á því,
hvaða aðferð henti best hverjum
aldurshópi, þegar fræða á um
bindindismál. Árangur þessara
athugana er sá, að útbúin hefur
verið mismunandi uppsetning
bindindisfræðslu fyrir gagnfræða-
skóla, tækniskóla og mennta-
skóla, en þessari fræðslu er ætlað
að skapa skilning á bindindissemi
hjá hinum ýinsu hópum;
börnum, táningum og ungu fólki.
Allt kerfi heilbrigðisfræðslunn-
ar hefur verið endurbætt: Nýjar
kennslubækur er verið að gera og
kvikinyndir, sem eiga að vera
auðskildar börnum á öllum aldri.
Þeim er ætlað að skýra nákvæm-
lega og greinilega hvers vegna
jafnvel smáskammtar af áfengi
geta verið hættulegur þröskuldur
bæði andlegum og líkamlegum
þroska og leiða til minni getu á
íþróttasviðinu sem og í eðlisfræði
eða stærðfræði. Sovéskir sér-
fræðingar mæla með bindindis-
fræðslu í skólum allt frá fyrsta
degi til hins síðasta. Tilgangur
þessarar fræðslu er einfaldlega
sá, að fá börn til að átta sig á
áhrifum áfengis á líkamann og
skaðlegum afleiðingum af notkun
þess. Þýðingarmest er að ná þeim
siðferðisþroska, að neysla áfengis
komi alls ekki til greina.
Fylgifískur iðjuleysis
Það er alkunna, að áfengi er
fylgifiskur iðjuleysis (þess vegna
fer ósjálfstætt fólk, sem ekki veit
hvað það á að gera við frítímann,
að drekka). Jafnframt er það
viðurkennt, að takist allt frá
fyrstu bernskuárum að vekja
áhuga á íþróttum, listum og
skapandi störfum almennt, og
takist að veita börnunum tæki-
færi til að beita hæfileikum si'num
á þeim s.viðum, sem þau hafa
áhuga fyrir, þá kemur það vanda-
mál aldrei upp, að skortur sé við-
fangsefna eða skemmtunar.
Vegna hins umfangsmikla
kerfis tómstundaheimila í Sovét-
ríkjunum er auðvelt að ieysa
þetta vandamál. Þar eru yfir 105
þúsund tómstundaheimili í
sveitaskólum, tónlistarskólum,
listaskólum og íþróttaskólum,
æfingastaðir ballett-hópa. mið-
stöðvar ungra verkmenntanema,
hallir og hús æskulýðssamtaka.
Af íþróttafélögum eru hundruð
þúsunda og hópar áhugafólks um
listir og fleira eru stofnsettir í
gagnfræðaskólum og mennta-
skólum. Öll börn geta orðið aðil-
ar að þeim án tillits til búsetu eða
þjóðfélagsstöðu foreldranna.
Áróður í fjölmiðlum
Auk þessa er nauðsyn að koma á
fót öflugri bindindishreyfingu
fullorðins fólks.
í því skyni hefur.verið gripið til
ýmissa ráða í Sovétríkjunum.
Fjölmiðlarnir, útvarp og
sjónvarp, eru með reglulega
þætti, þar sem fram koma
sovéskir sérfræðingar (öðrum
fremur læknar), sem flytja erindi
um lífeðlisfræði og sér í lagi líf-
eðlisfræði barna. Þeir stjórna síð-
an viðræðum við fólk, sem þegar
er orðið foreldrar eða eru vænt-
anlegir foreldrar.
Enn hafa þó ekki verið notaðir
allir möguleikar til fræðslu, sem
hægt er að nýta, eins og t.d. við-
ræður við fólk, sem kemur í
heilsuverndarstöðvar til bólu-
setningar. En nú hefur starfandi
læknum og sérfræðingum í ýms-
um greinum verið uppálagt að
leggja sérstaka áherslu á áróður
fyrir bindindi.
Fræðsluaðferðin er tiltölulega
lengi að skila árangri. Jákvæður
árangur hennar sést ekki á stund-
inni. Engu að síður er það ljóst,
að ásamt þvf að almenningsálitið
snúist gegn drykkjuskap, þá
fjölgar þeim Sovétbúum sífellt,
sem krefjast þess, að haldið sé í
hemilinn á drykkjusiðunum.
Fjórar og hálf milljón manna
eru skráð sem alkoholistar. Unt
það bil 500 þúsund fara í meðferð
á hverju ári, og eru teknir af
skránni, en álíka margir bætast
við.
Heilbrigðisþjónustan veitir
þessu fólki margháttaða aðstoð.
Læknar frá hinni sérstöku vímu-
efnastofnun stjórna ekki aðeins
meðferð alkoholista heldur finna
þeir einnig, hverjir eru sjúkir,
leita fyrirbyggjandi ráða og fylgj-
ast með alkoholistum eftir
meðferð.
Fjöldi meðferðarheimila fer
vaxandi. Flest eru þau sett upp
við iðjuver eða verksmiðjur.
Fólk getur verið þar á skipulögð-
um lækningakúr, en stundað
vinnu sína jafnframt. Að sögn
sovésku sérfræðinganna næst
með þessu móti miklu betri
árangur af meðferðinni, flýtir fyr-
ir þjóðfélagslegri endurhæfingu
alkoholistanna og veitir þeint
tækifæri til að reyna krafta sína
við ný verkefni.
Skyldumeðferð
Það er ljóst, að ekki skilja allir
þeir sem sjúkir eru, nauðsyn
meðferðar. Þá, sem gerast sekir
við lög vegna sjúkdómsins, er
hægt að skylda til vistar í svo-
nefndum lækninga-vinnubúðum
og til að sæta meðferð þar. Fjöldi
slíkra stöðva, fyrir þá, sem verst
eru farnir af völdurn sjúkdóms-
ins, fer einnig fjölgandi.
Það er nokkuð harkaleg
aðgerð að skylda menn til að fara
í meðferð, en það er nauðsyn-
legt. Eina ráðið til að koma í veg
fyrir að slík tilvik eigi sér stað, er
að nindra það að sjúkdómurinn
komist á hátt stig, gera sér grein
fyrir hve afdrifaríkur hann getur
verið. Það er eitt þýðingarmesta
verkefni vímuefnastofnunarinnar
í landi okkar.
Barátta gegn hvers konar
fjöldafyrirbæri í þjóðfélaginu
getur verið árangursrík, ef hún
samrýmist vonum íbúanna og
nýtur stuðnings þeirra. En þegar
um er að ræða venjur eða siði
þjóðar, sem eiga sér aldalanga
sögu (eins og t.d. áfengisdrykkja)
þá er stuðningur ekki nóg. Þá
þarf stöðuga og virka þátttöku
íbúanna til að leita lausnar á
vandamálinu.
Hin opinberu bindindissamtök
okkar (TPS) hafa því hlutverki
að gegna að sameina innan sinna
vébanda þá, sem vilja algera
útrýmingu áfengisneyslu, að fá
áhugamenn til að vinna að því á
hverjum tíma að fá fjöldann til
að hætta áfengisneyslu, að skapa
almenningsálit gegn því að
drykkja sé þoluð eða eigi sér stað
á vinnustöðum. Nú hafa aðildar-
félög verið stofnsett á tveimur af
hverjum þremur vinnustöðum, í
menntastofnunum og íbúða-
hverfum, þ.e.a.s. hvarvetna þar
sem Sovétmenn lifa og starfa.
Aðildarfélögin eru ábyrg gagn-
vart héraða-, borga- og sveita-
samtökum, síðan koma sambönd
fyrir hvert lýðveldanna, sem loks
standa öll að alríkissambandinu
(TPS - All-Union Voluntary
Teinperance Promotion Society).
Það var ekki fyrir tilviljun, sem
þetta nafn var valið samtökum
okkar. Innan þess sameinast að-
eins þeir Sovétborgarar 18 ára
eða eldri, sem fylgja því fordæmi
að afneita með öllu áfengisneyslu
og beita sér fyrir bindindisáróðri.
TPS vinnur ekki aðeins á þeim
grundvelli að fá félagana til að
berjast gegn áfengi, heldur einnig
að því að kenna þeim, hvernig á
að koma þeim tii aðstoðar, sem
hafa orðið fórnarlömb áfengisins,
og hvernig á að verjasl fyrir
algeru afnárni drykkju þar sem
fólk kemur saman, alls staðar þar
sem TPS-félagar stunda vinnu
eða nám.
Annað markmið samtaka okk-
ar er þátttaka í endurreisnar-
starfi, sem miðar að því að bæta
lífsháttu fólks í Sovétríkjunum
og fylgjast betur með svonefnd-
um „áhættufjölskyldum".
TPS beitir sér ekki einungis
fyrir öflugum áróðri gegn áfeng-
isnotkun og kynnir þá reynslu,
sem fengist hefur af bindindi
víðsvegar um landið. Þar scm
TPS eru fjöldasamtök, þá starfa
þau t.d. mjög að því að fá opin-
berar reglur um áfengissölu hert-
ar og útrýmingu leynivínsölu og
heimabuggs. Félagarnir geta kært
fólk fyrir brot á áfengislöggjöf-
inni og krafist refsinga.
Forvamarstarf
TPS starfar í nánum tengslum við
menningarstofnanir. Farið er í
heimsóknir þangað og höfð milli-
ganga um að koma gestum í sam-
band við stofnanir, sem skipu-
leggja frítíma þeirra. En klúbbar
og menningarstofnanir ýmsar
eru mjög mörg í Sovétríkjun-
um.
Þá tengist lausn áfengisvanda-
málsins því, að tómstundafélög
fólksins, og þá einkum unga
fólksins, verði bætt og þar unnið
eðlilegt og skapandi tómstunda-
starf. Félagar í TPS eru sífellt að
berjast fyrir fjölbreytni í menn-
ingarstarfsemi, íþróttum og
heilsurækt, í skólum, heimavist-
um, stofnunum og vinnustöðum.
Annað verkefni samtakanna er
að leita uppi fólk, sem býr yfir
hæfileikum til að hafa hafa frum-
kvæði að stofnun félaga, þar sem
fólk með sömu áhugamál getur
komið saman. Það er ljóst, að
TPS þarf á stuðningi annarra að
halda. Enda þótt við höfunt
ákveðnar tekjur, sem annars veg-
ar fást með frjálsum framlögum
(frá verkalýðsfélögum, öðrum
samtökum og einstaklingum) og
hins vegar með félagsgjöldum
(inntökugjald og fast árgjald) þá
nægir það engan veginn til að
standa fyrir byggingu leikvalla
eða kosta framleiðslu kvikmynda
til notkunar í baráttunni við
áfengið.
En svo er fyrir að þakka, að í
starfsemi sinni nýtur TPS góðs af
trausti grundvallarsamtaka, eins
og verkalýðssamtakanna, ungra
kommúnista, heilbrigðisráðu-
neytisins og Vísindaakademíunn-
ar, og vinnur því ekki eitt og sér
heldur í árangursríku samstarfi
við ríkisvaldið og stofnanir, sem
liafa yfir fjármunum að segja.
Þannig hefur við gerð áætlana á
sviði fjármála og félagsmála tek-
ist að fá aukin framlög til bygg-
ingar kvikmyndahúsa, menning-
arhalla, félagsheimila, bóka-
safna, íþróttamiðstöðva og mat-
vöruverslana, einkum í nýjum
íbúðahverfum og í dreifbýli.
Vaxandi áhersla er lögð á gurð-
rækt og garðyrkjustofnanir.
Tekst á skömmum tíma að ná
árangri í baráttunni við drykkju-
skap? Kannanir á ástandinu, eins
og það er nú, benda til þess, að
aldagamlir drvkkjusiðir séu
komnir á undanhald síðan tekið
var að berjast gegn þeim um allt
landið.
Ótrúlegur árangur
Margt mætti nelna þessu til
sönnunar, þó að einstök dæmi
segi auðvitað ekki alla söguna.
Það mikilsverðasta er jákvætt
viðhorf og alrnenn tilhneiging til
að minnka áfengisneysluna, sem
greinilega hefur sagt til sín upp á
síðkastið. Og hver er árangur-
inn?
Meðal annars sá, að frá því í
júní 1985 til sarna tíma á þessu
ári hafa 23 prósent þeirra, sem
áður stunduðu áfengisdrykkju
heitið því af frjálsum vilja að
forðast áfengi og lýst því yfir, að
þeir vilji vera bindindismenn.
Frjálsu bindindissamtökin,
TPS, hafa nú innan sinna
vébanda 14 milljónir manna í 422
þúsund aðildarfélögum.
Miðstjórn TPS gefur út máðar-
rit, sem ber heitið Bindindi og
menning. Upplagið er nálægt
einni milljón eintaka.
Alls staðar hefur verið lögð
áhersla á eflingu bindindis og að
skapa andúð á drykkjuskap. Eins
og áður hefur verið tekið fram,
þýðir það bætt siðferði í landinu,
edir vinnusemi og almannafrið.
Á árinu 1986 var alkoholneysl-
an aðeins helmingur þess, sem
hún var 1984 (hafði minnkað úr
8,7 lítrum af hreinum vínanda á
mann í 4,4 lítra), útgjöld þjóðar-
innar til áfengiskaupa höfðu
minnkað um 10 milljarða rúblna.
Tala þeirra, sem teknir voru inn á
sérstakar afvötnunarstöðvar
hafði minnkað um þriðjung,
afbrotum, sem tengdust áfengis-
neyslu, hafði fækkað unt 26%.
Þá gerðist það í landi okkar, að
í fyrsta skipti um langan tíma
lækkaði dánartíðni - úr 10,6 í 9,7
á hvert þúsund íbúa. Fæöingar-
tíðni jókst úr 19,4 á þúsund íbúa
1985 í 19,9 á þúsund 1986. í
fyrsta skipti á tíu árurn hækkaði
meðalaldur þjóðarinnar. Hann er
nú 69 ár.
Göfugt réttlætismál
Þann 2. maí á þessu ári gaf mið-
stjórn Kommúnistaflokksins út
skýrslu um árangurinn af sam-
þykkt flokksins um baráttu gegn
drykkjuskap og alkoholisma. Þar
er lögð áhersla á það, að sú
reynsla, sem fengist hefur síðustu
tvö árin, staðfesti það, að mark-
mið okkar sé raunhæft - að
útrýma drykkjuskap og áfengis-
sýki.
Landsmenn allir styðja einum
rómi það starf, sem unnið er á
þessu sviði.
Kommúnistaflokkur Sovétríkj-
anna telur að útrýming drykkju-
skapar og áfengissýki sé verkefni,
sent hafi mikla stjórnmálalega
þýðingu, sem einn þáttur í „per-
estroika" (endurreisn), þáttur í
því verki, sem unnið er til að
hreinsa hið siðferðilega andrúms-
loft í okkar sósíalíska þjóðfélagi.
Það göfuga réttlætismál að gera
bindindi eðlilega lífsreglu hjá
sovésku þjóðinni ntun áreiðan-
lega verða sigursælt.
(Ræðan cr örlítiö stytt í þýðingu. - P.J.)